Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Side 10
Eftir Stefán Mána stefan.mani@simnet.is Sumarið 1996 réð ég mig til starfa hjáBylgjunni í Ólafsvík þar sem ég hafðiumsjón með pökkun og útskipun áfrosnum fiskflökum. Veturinn á undan starfaði ég hjá rækjuvinnslu í húsnæði hrað- frystihússins sem fór á hausinn nokkrum árum áður. Þegar frystihúsið fór á hausinn missti ég vinnuna og var á atvinnuleysisbótum þar til ég réð mig í járnabindingar og steypuvinnu niðri á höfn. Þegar nýi hafnarbakkinn var kominn í gagnið fór ég í nýju rækjuvinnsluna þar sem biðu mín tólf tíma vaktir við að þíða blokkir af frosinni rækju í rökkri, bleytu, gufu og hávaða. Eftir að ég yfirgaf rækjuna fyrir frosnu fisk- flökin í Bylgjunni fór rækjuvinnslan á hausinn, eins og ég hafði séð fyrir. Svona gekk lífið … Ég hafði fengist við skriftir í nokkur ár þegar þarna er komið sögu. Um tuttugu og fjögurra ára aldurinn fékk ég þá flugu í höfuðið að skrifa barnabók. Það var saga um hvítan, heim- ilislausan kött sem þvælist um tilbúinn bæ. Sög- una sendi ég á Vöku-Helgafell og þar benti mér ágætur maður á að senda hana í einhverja sam- keppni á vegum útgáfunnar. Þetta þótti mér hin versta höfnun og varð móðgaður. Enginn er eins stórhuga og sjálfumglaður og sá sem ekki áttar sig á reglunum í þeim leik sem hann tekur þátt í. Ég setti barnabókina til hliðar og spennti bogann hærra. Næstu tvö árin skrifaði ég skáldsögur, hvert þrekvirkið á fætur öðru – að eigin mati. Það voru tilfinningahlaðnir barokk- turnar sem stóðu á brauðfótum byrjandans og hrundu jafnóðum og ég hlóð ofan á þá. Þessi stórvirki sendi ég á útgefendur syðra sem sendu til baka kurteis höfnunarbréf. Einu raun- verulegu viðbrögðin komu frá Þorsteini Thor- arensen í Fjölva. Hann sendi mér nokkrar skemmtilegar línur sem mér þótti vænt um og geymi enn. En draumurinn um útgefið meist- araverk varð smám saman að engu, brauðfætur byrjandans urðu að deigi og fyrir tuttugasta og sjötta afmælisdaginn minn, þriðja júní 1996, gafst ég endanlega upp: tölvan fór á haugana, ég réð mig í Bylgjuna og horfði tómeygur fram á veginn. Ekkert beið mín nema stimpilklukka, hárnet og frosinn fiskur … Það var síðan einn daginn, ætli það hafi ekki verið á sunnudegi, að ég gekk einsamall út fyrir bæinn og fæ sögu í höfuðið. Það gerðist bara þannig. Ég rölti í austur eftir móum sunnan við þjóðveginn, fyrir ofan mig á hægri hönd var fell sem heitir Lambafell og framundan var mynni Fossárdals. Þegar ég var kominn fram hjá Lambafellinu blasti Fossárdalurinn við og þá varð mér ósjálfrátt litið upp eftir honum þar sem hann teygði sig hálfa leið til Snæfellsjökuls. Þá horfði ég beint á hið dökka og tignarlega Tindfell sem reis eins og grófgerður píramídi uppi á fjallgarðinum. Þá kviknaði sagan eins og ljós inni í höfðinu á mér. Sagan sem átti eftir að heita Dyrnar á Svörtufjöllum. Ég sá þetta allt saman fyrir mér á örskotsstund: Það er fólk innan í fjallinu, fólk sem hefur lokað sig þar inni af því að sólin er dáin og jörðin svífur stjórnlaus á ógnarhraða inn í niðdimman útgeiminn … Teningunum er kastað … Sagan lét mig ekki í friði en af því að tölvan var komin á haugana handskrifaði ég söguna á laus blöð sem smám saman fylltu vasana. Og af því að ég vann við að pakka og skipa út frosnum fiskflökum í tólf og stundum sextán tíma á dag sex daga vikunnar varð endanleg útgáfa sög- unnar mun styttri en ég hafði ætlað í upphafi. Ég hafði hvorki þrek né tíma til að skrifa skáld- sögu í fullri lengd upp úr þessari hugljómun. En sagan óx og dafnaði og þó að orðin sem hún var smíðuð úr hafi ekki verið mörg fyllti sagan huga minn eins og sólskin fyllir veröldina á fallegum degi. Ég var hugfanginn, ég hugsaði ekki um annað og hegðaði mér eflaust eins og ástfanginn unglingur. Í vinnunni var einbeitingin ekki upp á marga frosna fiska og áhuginn á þessari and- lausu og illa launuðu verkamannavinnu dalaði, visnaði og dó í skugganum af sögunni sem átti hug minn allan og stýrði honum hvert sem henni sýndist. En hvað átti ég að gera við þessa sögu? Það hvarflaði í raun aldrei að mér að senda handrit að Dyrunum á Svörtufjöllum til útgefenda. Ég þóttist vita að þeir myndu ekki líta við svona olnbogabarni og tilhugsunin um að sitja og bíða eftir höfnunarbréfunum var ekki spennandi. Ég vissi að annaðhvort myndi ég gefa þessa bók út sjálfur eða að hún kæmi aldrei út. Auðvitað langaði mig til þess að bókin liti dagsins ljós en fyrst og fremst leit ég á hugs- anlega útgáfu sem farmiða burt úr Ólafsvík, ástæðu eða afsökun fyrir að yfirgefa æsku- stöðvarnar og hefja nýtt líf. Átthagafjötar og óttinn við hið óþekkta læstu klónum í mig en á endanum stökk ég í stað þess að hrökkva; ég sagði upp vinnunni, hlóð fátæklegum eigum mínum í gamla Lödu og keyrði til Reykjavíkur í þrumustormi með hnút í maganum, ljóstýru í höfðinu og vélritað handrit að Dyrunum á Svörtufjöllum í brúnu umslagi í farþegasæt- inu … Hið ljúfa líf … Fyrstu vikurnar á malbikinu bjó ég heima hjá Halli Ingólfssyni tónlistarmanni og fjölskyldu hans en Halli hafði ég kynnst gegnum sameig- inlega kunningja. Hallur hjálpaði mér að slá sögunni inn á gamlan Makka svo ég ætti hana á tölvutæku formi. Kápuna gerðum við í samein- ingu; ég vissi hvernig hún átti að vera og Hallur galdraði hana fram á tölvuskjáinn. Jóhann Þór- ir Jónsson heitinn hjá Skákprenti í Dugguvogi tók mér vel þegar ég leitaði til hans með prent- un bókarinnar. Við gerðum heiðursmanna- samkomulag sem báðir stóðu við; ég borgaði fyrirfram uppsett verð og Jóhann Þórir sá um umbrot og prentaði rúmlega 300 eintök af bók- inni sem var síðan bundin inn hjá Flatey í Þver- holti. Þessi ágætu fyrirtæki eru ekki til í dag. Þegar bókin var tilbúin hafði ég flutt mig um set og leigði lítið kjallarherbergi við Brávallagötu. Ég sótti allt upplagið á Lödunni og fyllti her- bergið af brúnum pappakössum barmafullum af ilmandi prentverki sem yljaði mér um hjarta- ræturnar en vakti um leið hjá mér ótta og van- metakennd: Hvað átti ég að gera við allar þess- ar bækur? Borgarbókasafnið keypti fimm eintök, ef ég man rétt, um það bil tuttugu eintök fóru í valdar bókabúðir, vinir og ættingjar keyptu ófá eintök en bróðurparturinn var seld- ur á börum borgarinnar og oftar en ekki var ágóði kvöldsins drukkinn við barborðið áður en nýr dagur reis. Á Vitabar skálaði ég við sjálfan mig í huganum og splæsti síðan á mig steik: Það var útgáfupartíið. Bíóbarinn við Klapparstíg reyndist mér happadrjúgur þegar kom að bók- sölu, sem og Kaffi List við sömu götu. Upplagið seldist allt á endanum og í dag er bókin nánast ófáanleg. Þessar vikur sem þetta fábrotna æv- intýri stóð yfir voru í mínum barnslega huga ígildi tónleikaferðar rokkhljómsveitar. Ég sveif um á bleiku skýi sem var svo stórt og þykkt að það var útilokað að það myndi nokkurn tíma gufa upp og verða að engu. Síðan gufaði það upp og varð næstum að engu … 1997 Eftir jól eru eftirstríðsár höfundarins. Allt í einu er draumurinn á enda og raunveruleikinn blasir við: Enginn kaupir bækur, fjölmiðlar hafa ekki lengur áhuga á bókum, enginn á pening og öllum er sama um höfunda og höfundarnir eru ekki lengur frægir, umtalaðir, frábærir. Ég var enn í herberginu á Brávallagötunni, en bóka- kassarnir voru tómir, veskið var tómt og haus- inn var tómur eins og tunna eftir drykkju, gleði og glaum síðustu vikna … Hvað nú? Ég hélt áfram að skrifa en ekkert gekk; allt sem ég hamraði á ritvélina næstu mánuði og ár var andvana fætt en síðborið af- sprengi þessara myrku miðalda ævi minnar er skáldsagan Myrkravél sem Mál og menning gaf út haustið 1999. En við erum enn stödd í kjall- araherbergi í Vesturbænum; ég sendi handrit eftir handrit á útgefendur og fékk kurteis höfn- unarbréf til baka. Áður en ég varð gjaldþrota réð ég mig í vinnu á bókbandsdeildinni hjá Steindórsprenti/Gutenberg. Það fyrirtæki er ekki til lengur. Ekki frekar en Bíóbarinn og Kaffi List. Fyrir tuttugasta og sjöunda afmæl- isdaginn minn hafði ég gefist endanlega upp á skrifunum: ritvélin fór inn í skáp, ég fór á vaktir í prentsmiðjunni og vann meira eða minna allan sólarhringinn og horfði tómeygur fram á veg- inn. Ekkert beið mín nema stimpilklukka, prentsverta og pappír … Aftur til Flateyjar En ég gat þó alltaf hugsað fáeina mánuði aftur í tímann og bakkað eina ferðina enn á Lödunni upp að rennihurðinni á bókbandsstofunni Flat- ey þar sem brúnum pappakössum var hand- langað innan úr rökkrinu og í skottið á bílnum. Tíu eða tólf pappakassar barmafullir af fyrstu skáldsögunni minni fylltu bílinn frá aftursæti að hlera. Tvö eða þrjú hundruð kíló af draumi sem hafði ræst … Mér fannst eins og ég hefði sigrað eitthvað en ég vissi bara ekki hvað. Ekki fyrr en núna … Mig dreymir alltaf sama drauminn … Morgunblaðið/Árni Sæberg Stefán Máni „Á Vitabar skálaði ég við sjálfan mig í huganum og splæsti síðan á mig steik: Það var útgáfupartíið,“ segir Stefán Máni um útgáfu fyrstu bókar sinnar, Dyrnar á Svörtufjöllum. Á þessum orðum byrjar fyrsta skáldsaga Stefáns Mána, Dyrnar á Svörtufjöllum, sem hann sendi frá sér haustið 1996. Það var bók sem fór með veggjum í darraðardansinum fyrir þau jól en gerbreytti þó lífi eins manns. Hún batt enda á innihaldslaust líf ungs verka- manns og markar um leið upphaf ferils hans sem rithöfundar. Það má með sanni segja að bókin hafi skapað höfund sinn, alveg eins og hann hafði skapað hana. Í haust eiga Dyrnar á Svörtufjöllum tíu ára útgáfuafmæli. Af því tilefni rifjar höfundurinn upp meðgöngu og fæðingu sögunnar, sem spratt óvænt upp úr hrjóstrugum jarðvegi uppgjafar og örvænt- ingar. Höfundur er rithöfundur 10 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók þó að vissulega ríki hér sovésk viðhorf í um- hverfismálum. Á sama tíma og íslenskt viðskiptalíf hefur náð ævintýralegum hæðum og íslenskir at- hafnamenn eru að sölsa undir sig fyrirtæki og eignir út um allan heim, er sem íslenskir stjórnmálamenn séu á valdi gerska ævintýr- isins. Niðurgreidd, ríkisstyrkt stóriðja er lausnarorðið eins og sést best á því að á sínum tíma var ætlunin sú að stofna sérstakt fyr- irtæki um virkjunina á Austurlandi. Þetta fyr- irtæki átti að fá þær einar tryggingar sem lágu í framkvæmdinni sjálfri. Svo komust menn að því að með því móti yrði orkan of dýr og fallið var frá slíkum ákvörðunum. Og stóriðjuflokk- arnir ætla ekki að láta staðar numið við Kára- hnjúkavirkjun. Nú á að stækka álverin í Straumsvík og Grundartanga, reisa nýtt álver í Helguvík, enn annað á Húsavík. Einnig eru hafnar viðræður um að flytja norska magn- esíumkísilmálmframleiðslu frá Ålvik í Harða- landi til Íslands og koma henni fyrir á Grund- artanga, en orkuverðið í Noregi er fjórum sinnum hærra en hér á landi.16 Eru hugsjónir íslenskra stjórnmálamanna í sama verðflokki og raforkuverðið eða hvílir kannski leynd yfir þeim líka? Tugþúsundir Íslendinga hafa gerst fráhverf- ir stóriðjuhugsun á síðasta áratug og sá hópur stækkar aðeins. Sumir merkja ekki augnablik- ið þegar efinn vaknar, í öðrum tilvikum er sem hulu sé svipt frá augum í einu vetfangi. Ein- hverjir umturnast í göngu uppi á miðhálendi í grænum dal við það eitt að sjá nástráin bærast í blænum. Aðrir finna hvernig ástin á landinu kemur sér fyrir í ennisblöðunum við það að sjá móruga jökulá byltast milli bakka eða við það að horfa á hreindýrskálfa hlaupa yfir mosa- breiðurnar. Svo eru það þeir sem finna ein- hverja undarlega lykt í loftinu sem þeir koma ekki fyrir sig. Ég man líka eftir augnablikinu þegar efinn kom sér fyrir í huga mínum. Mín vitrun var þó ekki andartak hinnar skáldlegu stundar. Hvað á Ísland sameiginlegt með Brasilíu, Indlandi, Jamaíku, Venesúela, Víetnam, Mið-Aust- urlöndum, Suður-Afríku, Tadsjikistan og Aust- ur-Rússlandi? Það var frammi fyrir samskonar lista og þessum sem fyrstu spurningar mínar um virkjanastefnu stjórnvalda vöknuðu. Síðan þá hef ég lesið mikið um efnið og séð marga lista. Listarnir eru allir eins þó að löndin á þeim séu aldrei nákvæmlega hin sömu. Stóriðjulist- inn er skilningsapparat. Hann stingur í augun og minnir helst á framandgervingu í ljóði, óvænta mynd eða hugmynd sem gerir það að verkum að lesandinn stoppar og íhugar það sem hann les. Stóriðjulistinn á að valda okkur áhyggjum. Hann sýnir þá valkosti sem margar af fátækustu þjóðum heims standa frammi fyr- ir, en það eru sömu valkostir og íslenskir stjórnmálamenn berjast fyrir að gera að okkar. Það er kominn tími til að risinn í íslenskum stjórnmálum vakni af steinrunnum nátttrölls- svefni sínum. Án Sjálfstæðisflokksins verður ekki hægt að snúa þróuninni við og af þeim sökum ber hann mesta ábyrgð á þeim náttúru- og efnahagsspjöllum sem íslenskar stór- iðjuframkvæmdir munu hafa í för með sér um ókomna framtíð.  1„Umhverfið og áróðurstækin: Stendur Sjálfstæð- isflokknum ógn af umhverfisvernd?“. Lesbók Morgunblaðsins, 15. júlí 2006. 2 Illugi Gunnarsson: „Náttúruvernd og orkuverð“. Fréttablað- ið, 9. júlí 2006. 3 Illugi Gunnarsson: „Hægri grænt – náttúruvernd og nátt- úrunýting“. Lesbók Morgunblaðsins, 29. júlí 2006. 4 Kolbrún Halldórsdóttir: „Markaðslögmálin gagnast ekki baráttunni fyrir náttúruvernd“. Lesbók Morgunblaðsins, 19. ágúst 2006. 5 Roger Bate: „Can Iceland Be a Bridge over the Atlantic?“. American Enterprise Institute, 15. desember, 2005. Sjá: http://www.aei.org/publications/pubID.23584,filter.all/ pub_detail.asp 6 Illugi Gunnarsson ræðir þessar hugmyndir víða, m.a. í svar- grein sinni „Hægri grænt – náttúruvernd og náttúrunýting“ í Lesbók Morgunblaðsins, 29. júlí 2006. Sigríður Ásthildur set- ur fram umhverfismálahugmyndir sínar í pistlinum „Njótum og nýtum“, sem birtist í Blaðinu, 27. september 2006. 7 Skoðanakannanir Capacent Gallup fyrir Náttúruvernd- arsamtök Íslands sýna að 2⁄3 hlutar Íslendinga hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum og að um 80% telja að stjórnvöld geri lítið til að draga úr útstreymi mengandi efna. 8 Margir hafa verið ósáttir við þær fullyrðingar, t.d. Teitur Björn Einarsson í pistlinum „Vinstri hroki“ sem finna má á deiglan.com (5.9.2006); sjá einnig „Staksteina“ Morg- unblaðsins, 4. september 2006. 9 Það er þó kannski engin furða þótt vinstri grænir hlaupi upp til handa og fóta og segi ekki gerlegt að vera umhverfisvernd- arsinni og aðhyllast sjónarmiði hægri stefnu í ljósi þess hvaða umhverfiskandídötum Sjálfstæðisflokkurinn teflir fram. 10 Jón Steinsson: „Hægrimenn og gróðurhúsaáhrif“ (2.8.2006). Sjá: http://www.deiglan.com/10109.html 11 Í Ameríku eru þess konar vísindi kölluð „tobacco science“ eða tóbaksvísindi eftir að upp komst að tóbaksframleiðendur beinlínis borguðu vísindamönnum fyrir falsaðar niðurstöður. 12 Sjá David Adam: „Royal Society tells Exxon: stop funding climate change denial“. The Guardian, 20. september, 2006. 13 Sjá „Rusal íhugar að reisa álver hér“ á fréttavef Rík- isútvarpsins, www.ruv.is (27.09.2006). 14 Ann Danaiya Usher: Dams as Aid: A Political Anatomy of Nordic development thinking. London: Routledge, 1997. 15 Nýlega voru Impregilo og fleiri fyrirtæki sektuð um háar fjárhæðir fyrir mútur í tengslum við stíflugerð í Afríkuríkinu Lesótó. 16 Sjá „Tímabært að endurskoða orkuverðlagningu“ (19.09.2006), www.ruv.is. Í annarri frétt á www.ruv.is (12.10. 2006) segir að starfsemi stóriðjufyrirtækisins Elkem verði flutt til Íslands. Í þeirri frétt er því haldið fram að raf- orkuverð sé „nú um tvöfalt hærra í Noregi en á Íslandi.“ Höfundur er bókmenntafræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.