Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.2006, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók lenskur neytandi eða íslenskt bókasafn þarf að panta stök eintök af sértækari bókum þá er engra annarra kosta völ en að panta bókina beint. Ekki nema með því að yfirgefa eyjuna, annars er einfaldlega ekki hægt að kaupa pólsku útgáfuna af Við hverju má búast þegar maður á von á sér, eða notaða útgáfu sjaldséðr- ar nýsjálenskrar skáldsögu, öðruvísi en að panta bækurnar sjálfir af Netinu. Það má vissulega panta bók að utan í gegnum samlán bókasafna, það kostar bara oft mun meira en að einfaldlega kaupa hana. Að kaupa notaðar bækur er ekki bara eitt- hvað sem maður verður að gera ef bókin sem mann langar í er ekki lengur gefin út – það er líka góður valkostur í stað þess að kaupa nýja. Bók sem kostar 20 dollara ný á Amazon kann að kosta þrjá dollara notuð eða um 210 kr. En Íslendingar eru svo gott sem útilokaðir frá þessum markaði vegna samsetningar hás send- ingarkostnaðar og annarra gjalda. Þegar búið er að greiða 630 kr. sendingarkostnað, 116 kr. virðisaukaskatt og 450 kr. þjónustugjald er 210 kr. bókin komin upp í 1.406 kr. auk að sjálf- sögðu ferðarinnar á pósthúsið. Það er lítil hjálp í ShopUSA – þar kostar hún 1.441 kr. Það er því aðeins litlu dýrara að kaupa bókina nýja í gegnum Bóksölu stúdenta. Eða láta senda hana til vinar í Bandaríkjunum fyrir um 450 kr. þar sem hún mun bíða þar til þú átt þar næst leið um. Er það þess virði að rukka virðisaukaskatt af erlendum bókum? Fljótlegasta leiðin til gera Íslendingum kleift að kaupa fleiri erlendar bækur væri að breyta virðisaukaskattskerfinu. Nú tel ég ekkert sið- ferðilega rangt við að innheimta söluskatt af er- lendum innkaupum og hver einstakur kostn- aðarliður hefur sína einstöku réttlætingu. En þegar þeir eru allir sameinaðir hafa þeir eyði- leggjandi áhrif á hvern þann sem vill panta staka bók. Við greiðum mjög háan sending- arkostnað, síðan verðum við að greiða virð- isaukaskatt ekki aðeins af kaupverðinu heldur líka af háa sendingarkostnaðinum, erum svo krafin um umsýslugjald fyrir skattheimtuna sem er oft hærra en skatturinn sjálfur, og að lokum þurfum við yfirleitt líka að gera okkur ferð á pósthúsið. Líkt og skýrt kom fram í ný- legum Víkverjadálki í Morgunblaðinu (12. ágúst 2006) skilja fæstir þetta ferli þar til þeir upplifa það sjálfir. Þannig að annar mínus í kerfinu er sú óþægilega uppgötvun þeirra sem panta í gegnum Netið í fyrsta skipti og ekki átt- uðu sig á að þeir yrðu krafnir um 450 kr. þjón- ustugjald. Það er sorglegt að við skulum þröngva þessu kerfi upp á okkur sjálf þrátt fyrir þá staðreynd að það skapi ríkinu ekki miklar tekjur. Ná- kvæmar tölur skortir en það er engu að síður ágætis ágiskun að af þeim 24.000 innfluttu bók- um sem fóru í gegnum Íslandspóst árið 2005 hafi virðisaukaskatturinn numið 24 milljónum kr. (reiknað á grundvelli þess að skattur með- albókapakkans sé 990 kr.) og þjónustugjöldin 8,4 milljónum kr. (miðað við fyrra gjald sem var 350 kr. fyrir pakkann). Vinnan við umsýslu og innheimtu bókagjaldanna krefst vinnu rúmlega tveggja fullra starfskrafta hjá Tollmiðlun auk ákveðins hlutfalls af tíma bréfbera og póst- húsastarfsfólks; það má því giska á að vinnu- kostnaðurinn vegna þessa nemi 10 milljónum kr. Þetta þýðir að tekjur ríkisins vegna er- lendra bókapantana árið 2005 numu 22 millj- ónum kr. Af þessum 22 milljónum kr. má síðan draga frá þann tíma sem Íslendingar eyða í að fást við kerfið (bíða heima eftir póstinum og í ferðir á pósthúsið), að forðast kerfið (með því að kaupa bækur á ferðum erlendis) og viðbót- arkostnaðinn við að láta tvær heilbrigðar manneskjur sem gætu betur sinnt öðrum störf- um eyða tíma sínum í að innheimta virð- isaukaskatt. Við þetta má síðan bæta kostnaði vegna mis- taka í kerfinu og skrifræðislega fáránleikans sem kerfið óumflýjanlega getur af sér. Íslands- póstur þarf að flokka þúsundir pakka, mjög hratt, í pakka sem rukka á virðisaukaskatt af og þá sem ekki á að greiða af, og þeim verða auðvitað á mistök. Ég átti eitt sinn í baráttu við Tollmiðlun til að frelsa úr haldi bandarísku skattaeyðublöðin mín (ókeypis skýringarbæklingurinn er frekar þykkur og pakkinn leit út fyrir að koma frá op- inberri stofnun, þeir töldu þetta því vera bók sem ég hefði pantað og sendu mér staðlað bréf þar sem þess var óskað að ég framvísaði reikn- ingi). Öðru sinni lenti ég í stappi við að fá af- henta nokkra notaða geisladiska sem ég hafði lánað bandarískum kollega sem hún síðan sendi mér til baka í fyrirtækjaumslagi. Toll- miðlun lét þá ekki af hendi fyrr en ég hafði fengið þennan sama kollega til að senda þeim fax þess efnis að ég hefði ekkert greitt fyrir diskana. Ég tek enn að mér ritstýringu og rannsóknarvinnu fyrir sama fyrirtæki og verð sífellt að vera að minna kollega mína þar á að senda allar bækur sem mér eru ætlaðar í hand- skrifuðum umslögum, svo Tollmiðlun stöðvi sendingarnar ekki fyrir mistök. Í enn öðru tilfelli var mér send óvænt gjöf frá gömlum vini: bók frá Amazon. Gjafir sem kosta minna en 7.000 kr. eru undanþegnar virð- isaukaskatti. Bókin kostaði 1.015 kr. og var réttilega merkt sem gjöf. En gjafamerkingin fór framhjá Íslandspósti, sem sendi út reikning vegna 492 kr. virðisaukaskatts og þjónustu- gjalds og sendi pakkann heim til mín. Ég hefði líklega áttað mig á mistökunum, en var ekki heima þegar pakkinn kom. Aldraður nágranni minn hélt að hún væri að gera mér greiða, kvittaði fyrir pakkann, greiddi gjöldin og bað mig síðan um að endurgreiða sér. Ég gerði það, en hef ekki enn haft tíma til að láta Íslandspóst endurgreiða mér. Ég vil taka það skýrt fram að ég kenni ekki starfsfólki Íslandspósts um þessi mistök. Ég hef séð starfsemi Íslandspósts með eigin augum og efast ekki um að þeir gera sitt besta. Ég kenni hins vegar um kerfinu sem gerir þessi mistök óumflýjanleg og íþyngir neytendum með kostnaði sínum. Ég er sammála því að ríkið þarf að afla tekna, en að innheimta virðisaukaskatt á inn- fluttum bókum sýnist mér vera ein versta leiðin til slíkrar tekjuöflunar. Með henni eyðir kerfið öllum okkar tíma og skapar ekki miklar tekjur. Þetta gefur Íslandi líka það orðspor að þar sé óþjált að stunda nokkurs konar þekkingar- iðnað. Undanskiljum bókasöfn virðisaukaskatti Ég var hneykslaður þegar ég frétti að almenn- ings- og háskólabókasöfn þurfa að greiða virð- isaukaskatt af bókunum sem þau panta. Ætt- um við ekki að undanskilja öll bókasöfn virðisaukaskatti og þjónustugjöldum á inn- fluttum bókum (og kannski íslenskum líka)? Af hverju látum við bókasöfn, sem fá rekstrarfé sitt að mestu frá ríkinu, endurgreiða ríkinu skatta af bókakaupum sínum, og jafnvel enn hærri upphæðir fyrir pappírsvinnuna sem í þessu felst? Viljum við ekki örva gáfnafar fólks – í stað þess að hvetja það til að horfa meira á sjónvarpið? Hvaða hugsanlega ástæðu höfum við fyrir því að hindra bókasafn Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri frá því að kaupa 14% fleiri bækur um fjárbúskap og grasrækt og nota þar með umsýslukostnaðinn af greiðslu þessara skatta til einhvers þarfara? Komum fleiri bókum í almenna umferð Íslendingar kaupa ekki bara erlendar bækur, þeir fá þær líka lánaðar á bókasafninu. Guðni Elíasson fékk nýlega birta eftir sig ögrandi grein í Lesbók Morgunblaðsins (1. júlí 2006) þar sem hann harmar hve litlu fjármagni Há- skóli Íslands eyði til bókakaupa, á meðan Jón Ólafsson (Lesbók, 18. ágúst 2006) hefur hvatt til betra eftirlits með því hvaða bækur eru valdar. Að auka fjármagn til bókakaupa væri frábært, en mig langar að benda á að íslensk bókasöfn gætu nýtt betur þær bækur sem þeg- ar eru til á eyjunni með tvennum hætti: með því að hvetja til frekari bókagjafa og með því að skrá fleiri bækur. Fjöldi fólks á Íslandi á erlendar bækur sem það les ekki lengur og sem myndu nýtast betur í bókasafnskerfinu. Sé ársskýrsla Lands- bókasafnsins skoðuð sést að Íslendingar gefa bókasöfnum erlendar bækur – en alltof fáar að mínu mati. Nýleg tilfærsla á 6.000 bókum frá Goethe-stofnuninni yfir í almannahendur setti gott fordæmi (þótt ég hafi aldrei skilið hvers vegna safnið var gefið Bókasafni Hafnarfjarðar í stað Landsbókasafninu). Íslensk bókasöfn hafa líka þegið nokkrar stórar bókagjafir að ut- an, m.a. tvær gjafir frá Bretlandi og Bandaríkj- unum upp á nokkur þúsund bækur hvor um málefni tengd stærðfræði og mannfræði frá prófessorum á eftirlaunum. Og þótt bókagjöf- um geti stundum fylgt töluverð aukavinna sem og aukið virði er ég sannfærður um að landið ætti – og getur – hvatt til fleiri slíkra gjafa. Það þarf líka að klára að skrásetja allar bæk- ur sem til eru á bókasöfnum okkar. Samskrá bókasafna landsins í Gegni, eitt tölvuvætt land- lægt kerfi, hefur verið stórt skref fram á við fyrir íslenska lesendur. En það þarf engu að síður að klára að skrá í Gegni allar bækur sem á söfnunum leynast. Mörg bókasöfn eiga stóran haug óskráðra bóka, þar með talið Lands- bókasafnið og Bókasafnið á Bifröst. Bókasafn Hafnarfjarðar tilkynnti nýlega á vefsíðu sinni að þar hefðu verið skráðir mánaðarlega um 100 titlar úr Goethe-safninu; með þessum hraða mun það taka meira en fimm ár að skrá allt safnið. Að skrásetja bækurnar, þó dýrt sé, er sér- lega mikilvægt af því að við búum á eyju. Hver nýr titill sem kemur inn í kerfið er titill sem aldrei aftur þarf að leita að utan landsteinanna – hvorki til kaups né samláns bókasafna. Það er kaldhæðnislegt að bækurnar sem yfirleitt eru aftast í skráningarröðinni eru þær sem nú þeg- ar er ekki að finna í Gegni. Að skrá bók inn í kerfið í fyrsta skipti tekur lengri tíma og aðeins bókasafnsfræðingar sem hafa lokið sérstöku námi og hlotið skráningarleyfi mega færa inn upplýsingar um nýjar bækur í Gegni. Ekki allir bókasafnsstarfsmenn hafa skráningarleyfi (fyrir nánari upplýsingar um þetta og tengd málefni sjá www. alefli.is, vefsvæði Gegnisnot- enda) og mörg bókasöfn hafa afar takmarkaðar fjárveitingar og veita fyrir vikið forgang skrán- ingu þess efnis sem þegar er að finna í kerfinu. Bókasafn Dagsbrúnar í Reykjavíkurakademí- unni geymir til að mynda stóran haug bóka sem ekki er þegar að finna í Gegni og bíða þess að verða skráðar – einhvern tímann. Þetta er virkileg synd því að það eru nákvæmlega bæk- urnar sem ekki eru í Gegni sem auka verðmæti bókasafna landsins í heild. Að lokum, þótt það sé e.t.v. nokkuð langsótt leið til að koma fleiri bókum í umferð, er að birta lista yfir innihald bókasafna í einkaeigu. Þetta er ekki jafn vanþakklátt starf og kann að hljóma og það er þess virði að hvetja til þess á eyju eins og Íslandi þar sem alþjóðleg sam- safnalán eru dýr. Gerð slíkra lista er líka orðin miklu auðveldari með tilkomu tækja á vefnum til að búa til skrár og til leitarmöguleika fyrir einkaskrár (eins og á hinu skemmtilega vin- sæla www.librarything.com, þar sem þegar er að finna fjóra einstaklinga á Íslandi). Hér er þegar að finna nokkra slíka lista (einn um ítalskar bækur er að finna á slóðinni http:// www.hi.is/~maurizio/risorse.htm). Þeir sem hafa áhuga á bókaviðskiptum geta síðan bæst í hóp nokkurra annarra Íslendinga á slóðinni www.bookmooch.com. Hvetjum til netsölu á notuðum bókum á Íslandi Netbyltingin í sölu notaðra bóka hefur breytt bandarískri og evrópski bóksölu, en hefur ekki enn alveg náð ströndum Íslands. Eina leiðin til að finna notaðar bækur er að leita í hillum Kolaportsins, Góða hirðinum eða í einni öfárra fornbókaverslana (þær eru að- allega í miðbæ Reykjavíkur og Akureyrar). Ari og Bragi sem reka fína fornbókaverslun á horni Klapparstígs og Hverfisgötu voru til skamms tíma með dýrustu og verðmætustu bækurnar sem þeir höfðu til sölu á skrá hjá abebooks- .com, en hafa nú fjarlægt listann vegna slæ- legra viðbragða. Ég spái því þó að fljótlega taki einhver það skref að setja venjulegar notaðar íslenskar bækur – Sjálfstætt fólk og aðrar slík- ar, námsbækur og erlendar bækur – í netsölu. Tæknin er fyrir hendi og kostnaðurinn við að hefja slíkan rekstur er lítill. Þótt sala á notuðum bókum sé ekki góð leið til að auðgast, þá tel ég að a.m.k. einn ein- staklingur á Íslandi gæti haft lifibrauð sitt af því að selja fólki bækur á Netinu. Það eina sem þarf að breytast er að bæði þeir sem selja bæk- urnar og þeir sem kaupa þær þurfa að venjast því að gera kaup sín í gegnum tölvu. Góði hirðirinn fær 20 kassa af bókum frá vinnslustöðvum Sorpu dag hvern. Ég velti því fyrir mér hvort þeir gætu ekki selt einhverjum þær fyrir hærra verð en 100 kr., sem er núvirði þeirra, ef þeir settu þær á Netið. Fólki á lands- byggðinni yrði líka akkur að netsölu, það þyrfti þá ekki lengur að gera sér ferð til Reykjavíkur til að kaupa notaða bók ódýrt. Hvort sem mað- ur býr á Kópaskeri eða í Kópavogi þá má panta og kaupa bók á Netinu á nokkrum sekúndum, sem síðan birtist í póstkassanum nokkrum dög- um síðar. Kæfum ekki þekkingariðnaðinn í fæðingu Því heyrist oft fleygt að við séum (eða ættum að vera) að búa til þekkingarsamfélag á Íslandi. En með því að gera Íslendingum erfitt fyrir með að kaupa bækur að utan tökum við þá áhættu að kæfa iðnað sem þrífst á fróðleik. Við neitum sjálfum okkur um það sem við þörfn- umst til að vera samkeppnishæf og við látum námsmenn okkar búa við fróðleiksskort. Ég tel að við öll hér skiljum afleiðingar þess að búa á afskekktri eyju í Norður-Atlantshafi. Við kunnum að meta þá mörgu kosti sem Ís- land hefur upp á að bjóða. Við vitum líka að fjarlægðin getur verið ókostur, til dæmis hvað háan sendingarkostnað varðar. Sem samfélag ættum við ekki að vera að vinna saman að því að bæta fyrir fjarlægðina í stað þess að auka á áhrif hennar? Ættum við ekki að opna hliðin og hleypa bókunum inn? Bóksala á Netinu Netbyltingin í sölu notaðra bóka hefur breytt bandarískri og evrópskri bók- sölu en hefur ekki enn alveg náð ströndum Íslands. »Ég var hneykslaður þegar ég frétti að almennings- og háskólabókasöfn þurfa að greiða virðisaukaskatt af bók- unum sem þau panta. Höfundur er alþjóðafulltrúi og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.