Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.2006, Page 12
12 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Bræðurnir Ethan og Joel Coenætla að gera þriðju myndina
með leikaranum George Clooney í
aðalhlutverki. Myndin sem er í bí-
gerð nefnist Burn After Reading og
fjallar um starfsmann leyniþjónust-
unnar CIA sem týnir diski sem inni-
heldur handrit að bók sem hann er
að skrifa.
Þríeykið vann
áður saman að
myndunum O
Brother Where
Art Thou? (2000)
og Intolerable
Cruelty (2003).
Þeir Coen-
bræður hafa jafn-
an sama háttinn á
við verkaskipt-
ingu við myndir
sínar. Handritið skrifa þeir saman,
Joel leikstýrir og Ethan framleiðir.
Þeir fengu Óskarsverðlaun fyrir
besta frumsamda handritið árið
1996 fyrir kvikmyndina Fargo.
Tökur á Burn After Reading eiga
að hefjast í ágúst eða september á
næsta ári, eða um leið og Clooney
hefur lokið við leikstjórn á nýjustu
mynd sinni, Leatherheads.
Myndin fjallar um knattspyrnu á
þriðja áratug síðustu aldar og fer
Clooney jafnframt með aðalhlutverk
myndarinnar ásamt Renee Zellwe-
ger.
Af annarri þekktri bræðratvennuí Hollywood, Farrelly-
bræðrum.
Þeir hafa nú
tekið að sér að
endurgera sjón-
varpsþætti fyrir
Bandaríkjamark-
að, byggða á
breskum gam-
anþáttum sem
nefnast Ím With
Stupid.
Þeir aðilar sem
standa að flutn-
ingnum yfir Atl-
antshafið eru þeir sömu og stóðu að
endurgerð gamanþáttanna The Of-
fice vestanhafs.
Í bresku útgáfunni fer Mark Ben-
ton með hlutverk heimilislauss
manns sem fær inni á sambýli fyrir
fatlaða, en þættirnir fjalla að mestu
leyti um fólk sem er fatlað að ein-
hverju leyti.
Þann 2. nóvember næstkomandieru 100 ár síðan danski kvik-
myndaleikstjórinn Alfred Lind opn-
aði fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi,
Reykjavík Biog-
raftheater.
Þetta var
sögulegur dagur
í íslenskri kvik-
myndasögu, og
síðan þá hefur
verið mikil sam-
vinna milli kvik-
myndagerð-
armanna
landanna
tveggja.
Haldið verður upp á 100 ára af-
mælið á Norðurbryggjunni 2., 9. og
16. nóvember næstkomandi með
sýningu bæði nýrra og eldri kvik-
mynda. Meðal þeirra íslensku
mynda sem sýndar verða eru Blóð-
bönd eftir Árna Ólaf Ásgeirsson og
Englar alheimsins Friðriks Þórs
Friðrikssonar.
Einnig verður fyrirlestur um
dansk-íslenska kvikmyndasögu
1906-2006. Stiklað verður á stóru
með sýningu brota úr kvikmyndum
frá tímabilinu. M.a. verður sýnt brot
úr þöglu myndinni Höddu Pöddu
(1924), íslensku kvikmyndinni 79 af
stöðinni, sem Erik Balling gerði ár-
ið 1962, og úr nýrri myndum eftir
m.a. Simon Staho og Dag Kára,
Lars von Trier og Friðrik Þór Frið-
riksson.
Auk þess fara fram umræður um
hina alþjóðlegu kvikmyndagerð.
Allar nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á vefsíðunni bryggen.dk.
KVIKMYNDIR
George Clooney
Friðrik Þór
Friðriksson
Bobby Farrelly
Eftir Björn Norðfjörð
bn@hi.is
Þegar Martin Scorsese var við nám í kvik-myndagerð við New York University ásjöunda áratugnum gleypti hann í sigkvikmyndir ítalska nýraunsæisins,
breska nýbíósins og frönsku nýbylgjunnar. Það
var þó bandarísk kvikmynd sem hafði mest áhrif
á hann: Shadows (1959) í leikstjórn Johns Cas-
savetes. Þessi fyrsta mynd Cassavetes hefur al-
gera sérstöðu í bandarískri kvikmyndagerð. Hún
var tekin á 16mm filmu í New York og í brenni-
depli var daglegt líf þriggja svartra systkina.
Segja má að með þessari mynd hefji raunsæið
innreið sína vestra og Cassavetes hefur verið per-
sónugervingur þess allar götur síðan. Hann lék
vissulega í hefðbundnu sjónvarpsefni og Holly-
wood-myndum, t.d. The Killers (1964), The Dirty
Dozen (1967) og Rosemary’s Baby (1968), en
fyrst og fremst til að afla tekna til fjármögnunar
eigin kvikmynda sem Hollywood hafði hvorki
áhuga á að framleiða né dreifa.
Scorsese sýndi honum fyrstu mynd sína Who’s
that Knocking at My Door (1967) sem var sömu-
leiðis raunsæisverk tekið í svarthvítu í New York
þar sem þá óþekktur Harvey Keitel fór með aðal-
hlutverkið. Cassavetes var hrifinn og réð Scor-
sese sem hljóðmann við sína nýjustu mynd Min-
nie and Moskowitz (1971). Samstarfið stóð þó
ekki lengi þar sem í miðjum upptökum bauð B-
mynda-mógúllinn Roger Corman Scorsese að
leikstýra Boxcar Bertha (1972). Hann greip tæki-
færið fegins hendi og bræddi saman ástarsögu og
blóðuga ræningjamynd að hætti Hollywood – þótt
krydduð væri. Goðið Cassavetes var lítt hrifið:
„Marty, þú hefur eytt heilu ári af ævi þinni í al-
gjört drasl [e. Marty, you’ve spent a year of your
life making a piece of shit].“ Það er Scorsese
sjálfur sem rifjar þetta upp – ekki af biturð held-
ur þakklæti. Hann þakkar Cassavetes það að
hafa ekki gengið til liðs við Hollywood og snúið
sér þess í stað að persónulegri kvikmyndagerð.
Áttundi áratugurinn stóð upp úr á ferli þeirra
beggja. Aftur og aftur tókst Cassavetes að kalla
fram þann undraverða leik sem markar Faces
(1968) og á ekki sinn líka á sjöunda áratugnum.
Þematísk úrvinnsla þeirrar myndar á skipbroti
hjónabandsins birtist með nýjum hætti í ein-
stökum samleik Peters Falks og Genu Rowlands
í A Woman Under the Influence (1974). Ben
Gazzara var engu síðri í The Killing of a Chinese
Bookie (1976), mynd sem þótti misheppnuð á sín-
um tíma en er í dag lykilverk í bandarískri kvik-
myndasögu. Síðasta myndin sem Cassavetes leik-
stýrði á áratugnum, Opening Night (1977), var
engu upplitsdjarfari en nú bættist við sem þema
sjálf leiktúlkunin en í myndinni lék Rowlands
leikkonu í tilfinningakreppu. Á áttunda áratugn-
um birtist dekkri mynd af bandarísku samfélagi á
hvíta tjaldinu en við eigum að venjast en það er í
þessum þremur myndum sem glíman við hvers-
dagslífið er hvað þungbærust.
Scorsese fylgdi ráðum Cassavetes og réðst í
gerð Mean Streets (1973), framleiddi og skrifaði
handrit jafnframt því sem hann leikstýrði. Um
sjálfstæða framleiðslu var að ræða líkt og síðar
meir var tilfellið með New York, New York
(1977) og Raging Bull (1980). En þar með lýkur
samanburðinum við Cassavetes þar sem allar
þessar myndir fóru í almenna dreifingu á vegum
Hollywood-samsteypnanna auk þess sem Alice
Doesn’t Live Here Anymore (1974) og Taxi Dri-
ver (1976) voru framleiddar af samsteypunum.
Það fer þó ekki á milli mála að þetta eru myndir
sem byggjast á persónulegri sýn leikstjórans og
lúta ekki lögmálum Hollywood – ólíkt Boxcar
Bertha. Undarlegt nokk hefur Scorsese fikrað sig
nær og nær Hollywood samfara því að frelsi leik-
stjóra þar hefur minnkað – ekki síst við gerð rán-
dýrra mynda á borð við Gangs of New York
(2002), The Aviator (2004) og nú The Departed
(2006). En nú er Scorsese líka búinn að fá nóg og
segist ætla að endurheimta listrænt frelsi sitt
með gerð ódýrra mynda utan Hollywood – en það
hafði Cassavetes reyndar ráðlagt honum fyrir
margt löngu.
Cassavetes og Scorsese
SJÓNARHORN » Scorsese greip tækifærið fegins hendi og bræddi saman ást-
arsögu og blóðuga ræningjamynd að hætti Hollywood – þótt
krydduð væri. Goðið Cassavetes var lítt hrifið: „Marty, þú hefur eytt
heilu ári af ævi þinni í algjört drasl.“
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
Á
ður en sjónvarp, fjöldaframleidd
amerísk afþreying og breyttur tíð-
arandi gekk nánast frá frumsýn-
ingum á evrópskum myndum á al-
mennum bíósýningum áttu
nokkrir franskir leikstjórar virkan
aðdáendahóp á Íslandi. Mér kæmi ekki á óvart að
Claude Chabrol hafi verið fremstur í þeim flokki,
sem taldi m.a. Philippe de Broca, Jean-Luc God-
ard, Louis Malle, Bertrand Tavernier og ekki síst
François Truffaut. Sem naut ásamt Chabrol slíkr-
ar virðingar og vinsælda að flestar ef ekki allar
þeirra myndir rötuðu inn í bíóin á löngu tímabili.
Truffaut féll frá aðeins liðlega fimmtugur árið
1984, en Chabrol er enn að, hálfáttræður að aldri.
Maður saknar krimmameistarans, en nýjasta
stórvirki leikstjórans og handritsöfundarins, La
Demoiselle d’honneur eða Brúðarmærin, hefur
farið víða í sumar, bæði á hátíðum og á almennum
sýningum, og hlotið óspart lof. Aðal Chabrols er
að ná til breiðs hóps áhorfenda, hann er djarfur
listamaður sem veltir gjarnan upp nýjum hliðum á
gamalkunnu efni, þar sem glæpir og refsing eru
efst á blaði. Þessi myrki sögumaður frumsýndi
nýjasta verkið sitt, L’Ivresse de Pouvoir, á Berl-
ínarhátíðinni í vetur.
Einn af höfundum „frönsku nýbylgjunnar“
Á ofanverðum sjötta áratugnum starfaði Chabrol
sem gagnrýnandi við kvikmyndatímaritið Cahiers
du Cinéma, ásamt nokkrum öðrum ungum mönn-
um sem vidu breyta og bæta ástandið í kvik-
myndagerð. Lognmolla hafði ríkt í Frakklandi um
skeið og Chabrol og félagar hans á Cahiers gerðu
meira en að tala um hlutina. Áður en áratugurinn
var úti höfðu Chabrol, Truffaut, Godard, Eric
Rohmer og Jacques Rivette hleypt ferskum vind-
um í listgreinina; franska nýbylgjan – Nouvelle
Vague – var orðin að veruleika. Það má segja að
Chabrol hafi verið upphafsmaðurinn með Le Beau
Serge (’58) og Les Cousins (’59), þær höfðu báðar
verið sýndar þegar Truffaut setti kvikmynda-
heiminn á annan endann með Les Quatre cents co-
ups á Cannes vorið 1959.
Le Beau Serge er íhugul þroskasaga um her-
mann sem snýr aftur til gamla heimabæjarins þar
sem fátt hefur breyst til batnaðar, en Les Cousins
gerist í höfuðborginni og er kaldhæðnisleg lýsing
á lífi sveitapilts sem heldur þangað til náms og
sest að hjá frændfólki sínu. Frændurnir er talin
ein af grundvallarmyndum nýbylgjunnar og eru
þessar myndir báðar fjarri glæpamyndunum sem
áttu eftir að verða vörumerki Chabrols.
Chabrol finnur morðtólin
Eftir vænlega byrjun kom bakslag sem náði yfir
fjölda mynda og undir lok þess var fátt að gerast
sem minnti á frumherja nýbylgjunnar. Meðal
mynda sem Chabrol gerði á þessu tímabili voru
nokkrar hasargrínmyndir með Roger Hanin í hlut-
verki Tígursins. Þótt þær risu ekki hátt í sam-
anburði við það sem síðar kom nutu þær mikilla
vinsælda, jafnvel hér heima (þar sem þær voru
allajafna sýndar í Hafnarbíói).
Jafn skyndilega og meðpalmennskan hófst lauk
henni með Les Bitches (’68), kvikindislegri glæpa-
sögu sem gerist í fáguðu en spilltu umhverfi auð-
manna í Saint-Tropez. Sjarmörinn Jean-Louis
Trintignant fer með aðalhlutverkið og Stéphane
Audran, þokkadísin með sitt rauðgullna hár, leikur
eina af titilpersónunum. Hún var orðin eiginkona
leikstjórans og setti mark sitt á öll hans bestu verk
næsta áratuginn.
La Femme Infedelé (’69) markar tímamót í gerð
glæpamynda. Hér fullkomnar Chabrol fyrri til-
raunir með formið, myndin er með sterkri undir-
öldu kynlífs, lyga, svika, afbrýði og annarra mann-
legra bresta meðal frönsku millistéttarinnar.
Persónurnar hrokafullar, heillandi og spilltar í
senn, víla ekki fyrir sér að myrða ef einhver stend-
ur fyrir markmiðum þeirra. Þrátt fyrir hrollvekj-
andi og siðblint innihald eru bestu verk Chabrols
undarlega þokkafull í aðra röndina. Hann er
smekkmaður, siðfágaður heimsborgari með blóð-
rautt hugmyndaflug, takmarkalaust þegar kemur
að löstum mannskepnunnar. Hann er stílhreinn
leikstjóri með næmt auga fyrir smáatriðum sem
stórum og leikaravalið endurspeglar þessa eig-
inleika. Audran er ekki aðeins tíguleg og góð leik-
kona, ef svo ber undir streymir frá henni háski,
sannkallaður kvendjöfull sem einskis svífst. Hún
er í góðum félagsskap þegar hún leikur á móti
Trintignant, Jean Yanne í klassíkinni Le Boucher
(’70), og Jean-Pierre Cassell í forræðisdeilunni La
Rupture (’70). Hún er engill við hliðina á Michel
Vouquet í Juste avant la nuit, en hann kemur við
sögu í mörgum Chabrol-myndum.
Blóðbrúðkaupið – Les Noces rouges (’73) er
hvað eftirminnilegust þeirra allra og nú finnur
Audran jafningja sinn í hinum magnaða Michel
Piccoli. Þau eru fullkomlega eitt í fordæðuhætt-
inum í hrikalegri mynd um framhjáhald, svik og
manndráp og lík sem eru leyst upp í rauðgraut.
Ósvikin klassík sem verður ekki borin saman við
önnur verk.
Annar uppskerubrestur góðra mynda stendur
fram til Violette Nozière (’73), Audran er þá aftur
komin til sögunnar en myndin er minnisstæðust
fyrir frammistöðu hinnar ungu Isabelle Huppert
sem kornungrar, lauslátrar stúlku og höfuðverkjar
broddborgaranna foreldra sinna.
Kannski á næstu kvikmyndahátíð?
Síðan hefur Chabrol verið að leita fyrir sér, m.a.
notað enskumæalandi leikara með misjöfnum ár-
angri. Af og til dettur hann niður á sitt gamla form
og uppsker naprar, háðskar og spennandi glæpa-
myndir á borð við Masques (’87) með Philippe Noi-
ret. Undantekning frá krimmaþemanu er dramað
Une affaire de femmes (’88), eitt af áhrifamestu
verkum Chabrols og segir af dapurlegum örlögum
Marie Latour (Huppert), síðustu konunnar sem
var tekin af lífi í Frakklandi, dæmd fyrir fóstureyð-
ingar á tímum hersetu Þjóðverja í síðari heims-
styrjöld.
Fyrrnefnd Brúðarmærin er sögð bera vott um
að enn brenni eldar með roskna kvikmyndaskáld-
inu. Mikið væri ánægjulegt ef þessa allt að því van-
metna og hér heima fyrrum vinsæla en nú hálf-
gleymda listamanns yrði minnst á næstu
kvikmyndahátíð.
Chabrol er enn á siglingu
Franski krimmaleikstjórinn var lengi fastagest-
ur í íslenskum bíóum. Nú er öldin önnur. Einn af
þessum leikstjórum er Claude Chabrol sem var
einn af upphafsmönnum frönsku nýbylgjunnar
en er enn að og frumsýndi sína nýjustu mynd á
kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrr á árinu.
Á kvikmyndahátíð Mikið væri ánægjulegt ef þessa allt að því vanmetna og hér heima fyrrum vinsæla
en nú hálfgleymda listamanns yrði minnst á næstu kvikmyndahátíð. Brialy og Lafont í Le Beau Serge