Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.2006, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 15 LISTAHÁTÍÐIN Sequences var opnuð í Nýlistasafninu sl. föstudag með gjörningadagskrá og sýningu. Hátíðin, sem er samstarfsverkefni Nýlistasafnsins Kling og Bang og Bananas, er stór viðburður á ís- lenskan mælikvarða þar sem 140 listamenn taka þátt í uppákomum og sýningum út um allan bæ. Lögð er áhersla á blöndun listgreina og tímatengda viðburði og gjörningar hvers konar virðast stór hluti hátíð- arinnar. Á opnuninni í Nýló, sem stóð yfir í fjóra tíma, var andrúms- loft lævi blandið þar sem rökkur og reykur umlukti rýmið og skapaði draugslega og eilítið kuldalega stemningu. Allt verður að gjörningi á svona hátíð og oft erfitt að sjá hvort einhver munur sé á listgjörn- ingum og hefðbundnum skemmti- atriðum sem fylgja hátíðum eins og 17. júní. Gjörningur Geirþrúðar Finnbogadóttur Hjörvar var lag sem hljómsveit spilaði, Gunnhildur Hauksdóttir var með gjörning þar sem þrjár aðrar konur sýndu kín- verska leikfimi. Þetta er ekki nýtt að listamaðurinn sé eins konar verkstjóri í verki sínu og láti aðra vinna það og hér virðist listamað- urinn vera í aðalhlutverki sem sýn- ingarstjóri lítilla leik- eða tónlistar- atriða á meðan flytjendur verkanna eru í eins konar aukahlutverki. Þetta sjónarmið nær hámarki í ein- hvers konar „uppbótaratriði“ Finns Arnars og Magnúsar Sigurðssonar sem hvorugur var á staðnum þar sem annar er staddur í Kína og hinn í Bandaríkjunum. Flugeld- urinn minnir auðvitað á Kína og að listamenn vilja helst skjótast hratt upp á stjörnuhimininn. Það er ekki verri hugmynd en hver önnur að dvelja sjálfur í útlöndum en hafa statista á Íslandi. Á meðan á opn- uninni stóð var Snorri Ásmundsson í búddastellingu inni í glerpíramída fyrir utan safnið og leitaði hins andlega. Sá gjörningur ásamt hinni andlegu austurlensku leikfimi Gunnhildar endurspeglar vaxandi áhuga vestrænnar menningar á möguleikum austurlenskra trúar- bragða meðan óhugnanlegt og áleit- ið myndbandsverk Joseph Marzolla minnir helst á hrylling andsetn- ingamynda á borð við Exorcist. Myndbandið er hluti af staðbund- inni innsetningu listamannsins á sýningunni sem einnig inniheldur neonljós og veggskúlptúr þar sem má sjá svartan kött með glóandi glyrnur og fagurskreyttan fugl með hvassar klær. Unnur Andrea Ein- arsdóttir er einnig með innsetningu á sýningunni sem byggist á líf- rænum og leikrænum óhugnaði. Verk hennar samanstendur af myndbandi, mjólkandi krúttlegum hryllingsskúlptúr og gjörningi. Verk Unnar Andreu og efnistök bjóða upp á margvíslegar pælingar og innihalda óvænta og forvitnilega hluti. Kitsaður skrautlampi á gólfi reynist gerður að hluta úr manns- tönnum sem vekur einhverra hluta vegna sterka viðbjóðstilfinningu og jafnvel undrun yfir þeirri tilfinn- ingu. Kristján Zaklinsky á mynd- bandsinnsetningu þar sem teikni- myndaveröld nútímans kastast á veggi og gólf safnsins eins og ein- hver diskóljós. Öllum þessum þremur innsetningum fylgir ákveð- ið hljóð eða tónlist. Skipst er á að spila verkin svo hægt er að horfa á hvert og eitt þeirra ótruflað frá hin- um. Fjórða innsetningin í Ný- listasafninu er leirskúlptúrar og teikningar eftir Árna Ingólfsson sem einnig framdi gjörning á opn- uninni. Áhugaverðara er þó viðtal Estrid Þorvaldsdóttur við Árna ásamt myndum af öðru verki eftir listamanninn í The End, tímariti Nýlistasafnsins. Sýningin í heild hefur yfir sér yfirbragð tilbúins hráleika sem fer ekki öllum verk- unum jafn vel en þau eru þó heldur áhugaverðari og metnaðarfyllri á lygnum degi en virtist í partístandi opnunarinnar. Hér hefðu einhverjar upplýsingar um listamennina og merkingar um hver eigi hvað í sýn- ingarrýminu gert góða sýningu betri. Óhugnaður, skraut og skemmtilegheit MYNDLIST Morgunblaðið/Ásdís Óhugnaður Unnur Andrea Einarsdóttir sýnir innsetningu sem byggist á lífrænum og leikrænum óhugnaði, segir í dómnum. Verk hennar samanstendur af myndbandi, mjólkandi krúttlegum hryllingsskúlptúr og gjörningi. Verk Unnar bjóða upp á margvíslegar pælingar og innihalda óvænta og forvitnilega hluti. Þóra Þórisdóttir Sequences Laugavegi 26, Grettisgötumegin Sýningin stendur til 29. október. Opið alla daga kl.13–18 Aðgangur ókeypis Nýlistasafnið – Gjörningar og sýning Morgunblaðið/Árni Sæberg Óskar Árni Óskarsson „Mackay Brown er skáld sem hiklaust má mæla með hvort sem sótt er í ljóðin hans eða bráðskemmtilegar ritgerðir um lífið á þessum litlu skosku eyjum.“ Lesarinn Á borðinu liggur bók sem ég keypti úti íEdinborg í vor og var að ljúka við að lesa og heitir George Mackay Brown: The Life eftir Maggie Fergusson. Þetta er ævisaga Orkneyjaskáldsins Mackays Brown sem lést fyrir nokkrum árum, en hann sendi frá sér bæði skáldsögur, ljóð og ritgerðir. Hann bjó nánast alla sína tíð á Orkneyjum að und- anskildum nokkrum órólegum árum í Ed- inborg þar sem hann hélt löngum til á kránum í Rose Street í kompaníi við önnur drykkfelld skosk skáld. Þessi nýja ævisaga hans er bæði afar vel skrifuð og heillandi lesning þar sem ævi hans eru gerð góð skil og einnig sagt frá hugarstríðum hans, jafnt í skáldskap sem einkalífi. Hann var einfari en sóttist þó eftir félagsskap og sambandi við annað fólk eins og oft á við um slíka menn. Það má benda á að við erum svo heppin að Aðalsteinn Ásberg gaf út fyrir nokkrum árum þýðingar sínar á úr- vali úr ljóðum hans undir heitinu Vegurinn blái. Mackay Brown er skáld sem hiklaust má mæla með hvort sem sótt er í ljóðin hans eða bráðskemmtilegar ritgerðir um lífið á þessum litlu skosku eyjum. Óskar Árni Óskarsson rithöfundur Gláparinn Þar sem ég er meðlimur í Evrópsku aka-demíunni fæ ég fullan kassa af vönduðum evrópskum myndum sendan til mín á hverju hausti. Ein af þessum myndum er athygl- isverð þýsk kvikmynd sem heitir The Live of Others og fjallar um hleranir og njósnir kommúnista í Austur-Þýskalandi í kalda stríð- inu. Myndin er kannski ekki síst áhugaverð í ljósi síðustu frétta á Íslandi. Ég geri ráð fyrir að myndina reki fyrr eða síðar upp á skerið. Á umslaginu stendur: „Where power is absolute nothing is private.“ Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri Morgunblaðið/Kristinn Hleranir Myndin The Live of Others er kanski ekki hvað síst áhugaverð í ljósi síðustu frétta á Íslandi en hún fjallar um hleranir, segir Baltasar Kormákur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.