Morgunblaðið - 14.02.2006, Page 6

Morgunblaðið - 14.02.2006, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HALLI á rekstri Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) var 283 milljónir króna á síðasta ári sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri en rekstrarkostnaður nam tæpum 30 milljörðum króna. Fór spítalinn því um 1% fram úr fjárheimildum sín- um en rekstur flestra sviða spít- alans er innan áætlunar eða mjög nálægt áætlun. Aðeins tvö svið eru með rekstrarkostnað sem er meira en 4% umfram fjárheimildir en það eru slysa- og bráðasvið og lyflækn- ingasvið I. Þau sinna bæði umtals- verðri bráðaþjónustu og hefur starfsemi þeirra aukist verulega frá fyrra ári. LSH fékk greidda rúmlega 26,8 milljarða króna á fjárlögum á síð- asta ári og um 2,5 milljarða í sér- tekjur. Gjöldin voru samtals rúm- lega 29,5 milljarðar og frávikið því 283 milljónir króna. Er þetta svip- aður tekjuhalli og árið 2004 en þá var hann rúmlega 289 milljónir króna. Launagjöld eru langstærsti kostnaðarliður spítalans eða 19,6 milljarðar sem er um 5,8% meira en árið 2004. Um 3.850 stöðugildi voru á LSH á síðasta ári. Lyfjakostn- aður var um 2,4 milljarðar, þar af var kostnaður við svokölluð S- merkt lyf rúmlega 1,5 milljarðar króna eða tæplega 3% meiri en árið 2004. Þó var sá kostnaður um 4,3% minni en áætlanir höfðu ráð fyrir gert. Komum á göngudeildir fjölgar og legudögum fækkar enn Komum á göngudeildir spítalans fjölgar um 4,9% frá fyrra ári og um 0,4% á dagdeildir. Er þetta í takt við stefnu sjúkrahússins og þró- unina í hinum vestræna heimi. Að auki fjölgar komum á slysa- og bráðamóttökur um 7,7%. Hins veg- ar fækkar sjúklingum á sólarhring- sdeildum um 1,5% og legudögum um 0,7%. Fæðingum fjölgaði um 2,2% á síðasta ári, skurðaðgerðum um 1,9%, hjartaþræðingum um 14,8% og kransæðavíkkunum um 22,1%. Þetta kemur m.a. fram í stjórn- unarupplýsingum LSH fyrir síðasta ár. 16% færri bíða eftir aðgerð Fækkað hefur á biðlistum eftir þjónustu spítalans síðustu þrjú ár- in. Fyrir ári biðu 2.585 eftir skurð- aðgerð á spítalanum en nú bíða 2.167 sem er rúmlega 16% fækkun á einu ári. Í flestum sérgreinum er engin bið eða bið sem talin er eðlileg eða viðunandi. En í nokkrum sérgrein- um er bið of löng þó svo hún hafi styst í flestum þeirra, segir í stjórn- unarupplýsingunum. Flestir bíða eftir skurðaðgerð á augasteini þótt umtalsverð fjölgun hafi orðið á þeim aðgerðum síðustu árin. Nú bíða 816 eftir þeirri aðgerð en á sama tíma í fyrra biðu 1.149. Samsvarar það tæplega sjö mánaða biðtíma að meðaltali en biðin nam tæpum ellefu mánuðum á sama tíma í fyrra. Í fyrra biðu 108 eftir aðgerð vegna vélindabakflæðis og þindarslits en nú bíða 39 eftir slíkri aðgerð sem samsvarar rúmlega þriggja mánaða biðtíma í stað rúm- lega sex mánaða í fyrra. Eftir gerviliðaaðgerð á hné bíða nú 123 einstaklingar sem þýðir tæplega átta mánaða bið og eftir gerviliða- aðgerð á mjöðm bíða 116 og sam- svarar það tæplega fjögurra mán- aða bið að meðaltali. Bið eftir gerviliðaaðgerðum hefur lengst. Eftir hjartaþræðingu bíða 163 einstaklingar en í fyrra biðu 212 og 8 bíða eftir kransæðavíkkun. Enn bíða mjög margir á spítalanum eftir vist á hjúkrunarheimili eða bú- setuúrræði á vegum félagsmálayf- irvalda. Yfir áttatíu einstaklingar bíða eftir vist á hjúkrunarheimili og yfir 70 eftir búsetuúrræði. Kostnaðargreining klínískrar starfsemi og innleiðing DRG (Diag- nosis Related Groups) á deildir LSH hefur staðið yfir í fimm ár og er í meginatriðum lokið. Unnið er að því að fínstilla ýmis atriði til að spítalinn geti notað DRG kerfið við áætlanagerð á sviðum og dreifingu fjár innan spítalans. Síðustu tvö ár- in hefur verið lögð umtalsverð vinna í greiningu kostnaðar við tvo meginþætti háskólasjúkrahússins þ.e. kennslu og rannsóknir. Þeirri vinnu er nær lokið og verður kynnt síðar í þessum mánuði. „Nágranna- lönd okkar hafa öll breytt fjárveit- ingaraðferð sinna sjúkrahúsa og mikilvægt er að við fetum í fótspor þeirra hér á landi,“ segir í inn- gangsorðum Önnu Lilju Gunnars- dóttur, framkvæmdastjóra fjár- reiðna- og upplýsinga í stjórnunar- upplýsingunum. Morgunblaðið/ÞÖK Komum á slysa- og bráðadeildir LSH fer fjölgandi. Árið 2005 voru þær 7,7% fleiri en árið á undan. Um 1% halli á 30 milljarða rekstri LSH Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „ÞETTA er sam- kvæmt okkar spá frá því í haust og er mjög lítið frá- vik í prósentum. Við erum því þokkalega sátt við þetta. Við höfum smátt og smátt verið að ná þessum árangri. Við erum að reka spítalann fyrir sömu fjármuni ár eft- ir ár en erum að framleiða meira,“ segir Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna- og upplýsinga á LSH, um bráðabirgða- uppgjör spítalans fyrir síðasta ár. Hún bendir á að aukning hafi orð- ið í mörgum aðgerðum og góður ár- angur náðst í að stytta biðlista. Bið eftir gerviliðaaðgerð hafi þó lengst en það skýrist m.a. af því að fresta hafi þurft aðgerðum vegna flensu- faraldurs sem var óvenju skæður. Aðspurð hvað valdi því að sjúkra- húsið sé þó rekið með 1% halla segir Anna Lilja að sparnaðarkrafa í rekstri spítalans undanfarin ár skýri m.a. frávikið. „Í skýrslu Ríkisend- urskoðunar sem kom út í desember kom fram að við erum að reka spít- alann fyrir nær sömu fjármuni frá árinu 1999 þrátt fyrir talsvert aukna starfsemi.“ Á sama tíma hafi íbúum landsins fjölgað, m.a. hafi íbúum á suðvest- urhorni landsins fjölgað um 9% og þar af öldruðum um 8,5%. Samlegð- aráhrif í kjölfar sameiningar sjúkra- húsanna í Reykjavík árið 2000 og endurskoðun verkferla hafi gert það að verkum að aukin starfsemi á LSH hafi ekki leitt til aukins rekstr- arkostnaðar. En nú sé sameining- unni lokið, samlegðaráhrif að fullu nýtt þar til nýr spítali verði tekinn í notkun og starfsemin sameinuð und- ir eitt þak. Af þessum ástæðum megi búast við því að rekstrarkostnaður aukist á næstu árum í takt við fjölg- un íbúa og þá sérstaklega fjölgun aldraðra. Hjá því verður ekki kom- ist, að sögn Önnu Lilju. „Núna förum við að síga upp á við í takt við fjölg- un þjóðarinnar og fjölgun aldraðra,“ segir hún um rekstarkostnað spít- alans næstu árin. Meiri starfsemi fyrir sömu fjármuni Anna Lilja Gunnarsdóttir NEMENDUR Menntaskólans við Sund stefna að því að setja heimsmet í lestri á Íslend- ingasögum en maraþonlestur hefur staðið yfir síðan á hádegi á sunnudag og er stefnt að því að ljúka lestrinum á hádegi í dag. Er þetta hluti af þemaviku í skólanum en henni lýkur síðan með árshátíð nemendafélagsins. Að sögn Hjördísar Öldu Hreiðarsdóttur, Ár- manns MS, er lestrarmaraþonið liður í því að safna áheitum fyrir Barnaheill en í fyrra söfn- uðust peningar til að byggja skóla í Kambódíu. Lesið alla nóttina Aðspurð hvernig nemendur skólans tækju í lestrarátakið sagði Hjördís að viðbrögðin hefðu verið góð. Lesið hefði verið alla nóttina og hefði mætingin verið feikigóð, en hver nem- andi les í um fimm til tíu mínútur. Í vikunni er hefðbundið skólastarf fellt niður og sagði Hjördís Þorgeirsdóttir, konrektor skólans, að nemendur fengjust við ýmiskonar verkefni er tengdust þema vikunnar, sem er íslensk menn- ing. Bekkirnir væru meðal annars að gera verkefni um íslenska matreiðslu, sælgæti og hefðu nemendur eins bekkjarins meðal annars heimsótt Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í verkefni tengdu íslensku kúnni. Íslenska sauðkindin og prjónn Þemaverkefni þriðja bekkjar d var að þessu sinni íslenska sauðkindin og aðspurð hvers vegna hún hefði orðið fyrir valinu sögðu nem- endur bekkjarins að hún væri fallegasta kind- in, mun fallegri en sú breska til dæmis. Unnið væri að heimildamynd sem stefnt væri að sýna í Húsdýragarðinum auk þess sem þau hafa samið rolluljóð, rollurapp og rolludans. Mikil stemning var í stofu bekkjarins en grunur lék á að svefngalsi væri í mönnun en nemendur bekkjarins höfðu verið vakandi síðan þrjú um nóttina þegar þau lásu í maraþoninu. Í þriðja bekk s sátu nemendur og prjónuðu. Að sögn karlkynsnemenda í bekknum var handavinna ekki þeirra uppáhaldsfag í grunn- skóla en höfðu þó gaman að því að taka í prjón- ana núna. Þeir hefðu verið fljótir að læra en enginn hefði þó kunnað að prjóna í bekknum fyrir utan eina stúlku, Önnu Sigríði Jóns- dóttur, en hún kenndi öllum grunnatriðin. Spurðir um prjónaskap í framtíðinni sögðust strákarnir ætla að sjá til með það. Morgunblaðið/Ómar Gunnar Jónsson, Arnar Ágústsson, Þórður Ragnar Gissurarson, Gunnar Steinn Jónsson og Rúnar Steinn Benediktsson munda prjónana undir leiðsögn Önnu Sigríðar Jónsdóttur. Dana Rún Hákonardóttir og Nína Björk Valdimarsdóttir sýna mynd af rauðri rollu. Jón Grétar Höskuldsson les upp úr Njálu. Stefna á heimsmet í upp- lestri á Íslendingasögum Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.