Morgunblaðið - 14.02.2006, Síða 8

Morgunblaðið - 14.02.2006, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR I had a dream. Ekkert lát er á vextiútgjalda hins opin-bera vegna heil- brigðisþjónustu og umönn- unar aldraðra og sjúkra í aðildarlöndum Efnahags- og framfarastofnunarinn- ar, OECD. Kostnaðurinn þenst út í flestum löndum, sem mun setja síaukinn þrýsting á opinber fjárút- lát á komandi árum og ára- tugum, raunar talsvert umfram það sem gera má ráð fyrir vegna þeirra breytinga sem fyrirsjáan- legar eru á aldurssamsetn- ingu þjóðanna og lengri meðalævi íbúanna. Útgjöld til heilbrigðismála og umönnunar ættu að vera forgangs- mál við alla opinbera stefnumótun, að mati Jean-Philippe Cotis, aðal- hagfræðings OECD, að því er fram kemur í inngangi hans að nýrri skýrslu sem nokkrir sérfræðingar á vegum OECD hafa tekið saman. Þar er sett fram spá um kostnað aðildarlandanna vegna heilbrigðis- mála allt til ársins 2050 og eru þá einkaútgjöld borgaranna vegna heilbrigðisþjónustu og umönnunar frátalin en þau eru að meðaltali tal- in vera um 2% af vergri landsfram- leiðslu í ríkjum OECD. Meginniðurstöðurnar eru þess- ar: Opinber útgjöld til heilbrigðis- mála og umönnunar í löndum OECD munu að öllum líkindum tvöfaldast að raungildi fram til árs- ins 2050 ef heldur fram sem horfir. Í dag verja þessi lönd að meðaltali um 6,7% af vergri landsframleiðslu sinni til þessara mála. Árið 2050 má gera ráð fyrir að meðalkostnaður muni nema tæplega 13% af vergri landsframleiðslu verði ekki gripið til sérstakra ráðstafana til að halda aftur af útgjaldaaukningunni. Höfundar skýrslunnar gera raunar einnig tilraun til að áætla hver þróun útgjaldanna gæti orðið ef stjórnvöld grípa til ýmissa að- gerða sem tiltæk eru til að halda aftur af útgjaldaaukningunni. Kostnaðurinn mun þó eftir sem áð- ur aukast verulega þrátt fyrir þessar aðgerðir og verða að með- altali kominn í um 10% af lands- framleiðslu um miðja öldina. Munur milli þjóða Athyglisverður munur er á út- gjöldum einstakra þjóða og því hversu hröðum vexti er spáð fyrir einstök lönd. Hafa ber þó ýmsa fyr- irvara á samanburði af þessu tagi á milli landa þar sem þau styðjast við mismunandi uppgjörsaðferðir. Þá er kostnaður vegna öldrunarmála í sumum löndum að einhverju leyti færður sem félagsmál en ekki und- ir heilbrigðismál líkt og gert er hér. Fram kemur í úttekt OECD að heildarútgjöld hins opinbera (ríkis og sveitarfélaga) vegna heilbrigð- isþjónustu og umönnunar, á mæli- kvarða landsframleiðslu, voru hlut- fallslega mest í Noregi á seinasta ári eða 9,9% af VLF. Ísland er í öðru sæti þar sem þessi útgjöld eru talin hafa verið 9,6% af landsfram- leiðslu árið 2005. Næst í röðinni eru Þýskaland (8,85% af VLF) og Svíþjóð (8,86% af VLF). Meðaltalið í 30 aðildarlöndum OECD sem út- tektin nær til, var 6,7%. Í skýrslunni er því spáð að verði ekkert að gert og þróunin heldur áfram eins og verið hefur muni op- inber útgjöld OECD-landanna til heilbrigðismála og umönnunar verða komin í 12,8% af vergri land- framleiðslu að meðaltali árið 2050. Árleg útgjöld vegna þessarar þjónustu verða þá hlutfallslega mest á Íslandi samkvæmt spá sér- fræðinganna eða 15,2% af VLF á ári. Norðmenn fylgja fast á hæla okkar þar sem útgjöldin verða komin í 15%. Írar koma næstir í röðinni (14,5%). Ef gert er ráð fyrir í útreikning- unum að stjórnvöld grípi til að- gerða til að halda útgjaldaaukning- unni í skefjum, er því spáð að útgjöld til heilbrigðis- og umönn- unarmála verði hlutfallslega mest í Noregi (12,4%) og á Íslandi (12,3%) Ljóst er að um verulegar fjár- hæðir er að ræða. Ætla má skv. bráðabirgðauppgjöri að verðmæti landsframleiðslunnar hér á landi á seinasta ári hafi verið um 973 millj- arðar kr. Hafi heildarkostnaður vegna heilbrigðisþjónustu og umönnunar numið 9,6% af lands- framleiðslu má gera ráð fyrir að hann hafi numið rúmlega 93 millj- örðum kr. í fyrra. Útgjöldin væru hins vegar 55 milljörðum kr. hærri eða um 148 milljarðar ef hlutfall þeirra af verðmæti landsfram- leiðslunnar í fyrra væri komið í 15,2% eins og spáð er í OECD- skýrslunni fyrir árið 2050. Hvað sem öllum fyrirvörum líð- ur um spár af þessu tagi er ljóst að stjórnvöld standa frammi fyrir stórum og áleitnum spurningum. Í skýrslu OECD kemur fram að eft- irspurn eftir aukinni heilbrigðis- þjónustu vegna fjölgunar í hópi aldraðra og vaxandi auðlegðar í ríkjum OECD skýri ekki nema hluta þess mikla vaxtar sem fram- undan er. Árlegur vöxtur opin- berra útgjalda til heilbrigðismála sé 1% meiri en sem nemur auknum þjóðartekjum landanna, m.a. vegna framfara í lækningum og krafna um sífellt umfangsmeiri þjónustu. Fréttaskýring | OECD spáir miklum vexti útgjalda heilbrigðismála til ársins 2050 Íslendingar í efstu sætum Útgjöld til heilbrigðismála á Íslandi gætu að óbreyttu vaxið í 15,2% af VLF til 2050 Kostnaður við heilbrigðisþjónustu þenst út. Kostnaður á hvern aldraðan fer minnkandi  Fjölgun aldraðra mun auka heilbrigðisútgjöldin en vegna betri heilsu mun kostnaður á sér- hvern eldri borgara minnka skv. OECD. Lífshættir skipta sköp- um. Talið er að milljarður manna líði fyrir yfirþyngd. Ólafur Ólafs- son, fyrrv. landlæknir, komst að kjarna málsins á ráðstefnu um aldraða: ,,Ég held að það sé eng- inn vafi á því, að þeim mun virk- ari sem þú ert þegar líður á ald- urinn, í þeim mun minni hættu ertu á að lenda á öldrunardeild.“ Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is SIGRÚN Klara Hannesdóttir lands- bókavörður sagði í samtali við Morg- unblaðið að Landsbókasafnið væri tilbúið til að taka við bókasafni Go- ethe-zentrum ef leitað væri eftir því. Hún sagði enn fremur að fyrir skömmu hefðu viðræður átt sér stað um að Landsbókasafnið tæki að sér Goethe-safnið en þær viðræður hefðu siglt í strand vegna eignar- halds á bókunum. Goethe-safnið er eign þýska ríkisins og verður að vera innan Goethe-zentrum. Í kjölfar mannabreytinga segir Sigrún Klara að þessar viðræður hefðu síðan end- anlega runnið út í sandinn. Hún benti á að gott samstarf hefði verið á milli miðstöðvarinnar og Lands- bókasafnsins, haldnar höfðu verið sýningar á þýskum barnabókum auk þess sem bókasafninu hefði verið færð bókagjöf með þýskum bókum frá miðstöðinni. Einnig hefðu við- ræður átt sér stað um að skrá Go- ethe-bókasafnið í Gegni, safnaskrá íslenskra bókasafna. Sigrún taldi mikilvægt að varðveita Goethe-safn- ið þegar miðstöðinni verður lokað í apríl og Landsbókasafnið hefði mik- inn áhuga á að taka þátt í því. Tilbúið að taka við Goethe-safninu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.