Morgunblaðið - 14.02.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 15
ERLENT
Aðalfundur Íslandsbanka hf. árið 2006 verður haldinn á
Nordica Hótel þriðjudaginn 21. febrúar 2006 og hefst
kl. 14.00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta bankans.
2. Tillaga um heimild til stjórnar til kaupa á hlutabréfum í Íslandsbanka hf.
3. Tillaga um framlag í Menningarsjóð.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða
umboðsmönnum þeirra í Íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 20. febrúar nk.
kl. 9.00–16.00 og á fundardegi kl. 9.00–13.00. Einnig verða atkvæðaseðlar og
aðgöngumiðar afhentir á fundarstað milli kl. 13.00 og 14.00 á fundardegi.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningar félagsins fyrir árið 2005 verða
hluthöfum til sýnis á sama stað frá og meðmánudeginum 13. febrúar 2006. Þessi
gögn verða einnig aðgengileg á www.isb.is.
Framboðsfrestur til stjórnar rennur út miðvikudaginn 15. febrúar nk., kl. 14.00.
Framboðum skal skila til forstjóra á Kirkjusandi.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna á
Kirkjusandi fyrir kl. 13.00 á fundardegi eða í síðasta lagi milli kl. 13.00 og 14.00 á
fundarstað. Afhendingu aðgöngumiða og atkvæðaseðla verður hætt kl. 14.00.
8. febrúar 2006,
stjórn Íslandsbanka hf.
Aðalfundur
Íslandsbanka hf.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
London. AFP | Breskir herlög-
reglumenn handtóku í fyrradag
einn mann vegna rannsóknar á
myndbandi, sem virðist sýna mis-
þyrmingar breskra hermanna á
íröskum unglingspiltum. Er
myndbandið mikið áfall fyrir
Breta, sem óttast að það geti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir þá í
Írak auk þess sem það er mikill
álitshnekkir fyrir breska herinn
almennt.
Breska varnamálaráðuneytið,
sem hefur hafið rannsókn á mál-
inu, skýrði frá handtökunni í gær,
en vildi ekkert um það segja hvort
fleiri handtökur væru yfirvofandi.
Breska stjórnin, sem hefur
reynt að sneiða hjá deilunni um
skopmyndirnar af Múhameð spá-
manni, hefur miklar áhyggjur af
þessu máli, en ýmsir sérfræðingar
segja, að myndbandið geti styrkt
marga múslíma í þeirri trú, að
þeir séu fyrirlitnir af vestrænum
mönnum. Hefur breska herliðinu í
Írak verið skipað að vera við öllu
búið, enda er talin hætta á að
árásum á það muni fjölga.
„Það þarf ekki neinn snilling til
að átta sig á hvaða skaða mynd-
bandið mun valda um öll arabarík-
in,“ sagði dagblaðið The Times í
leiðara um málið og hélt því fram,
að það væri eitthvað verulega
bogið við agann í breska hernum.
Myndbandsmálið í Bretlandi
Einn maður
handtekinn
KÍNVERSK hjónaleysi kyssast áður en þau voru
gefin saman í fjöldabrúðkaupi á lestarstöð í Nank-
ing á sunnudag. Til þess var efnt í tilefni af Valent-
ínusardeginum, sem er í dag. Er hann dagur elsk-
enda í kaþólskum sið en hann er víða haldinn
hátíðlegur hvað sem líður trúarskoðunum að öðru
leyti. Mest er jafnan tilstandið í Bandaríkjunum en
þó ekki aðeins hjá ástföngnu fólki, heldur er aldrei
meira að gera hjá einkaspæjurum en um þetta leyti.
Þeir eða þær, sem leika tveim skjöldum í ástamál-
unum, koma nefnilega oft upp um sig á Valentínus-
ardegi.
AP
Valentínusarvígsla
Kaupmannahöfn. AP. | Danska blaðið
Jyllands-Posten hefur á skömmum
tíma öðlast heimsfrægð fyrir um-
deildar teikningar af Múhameð
spámanni, sumir myndu frekar
segja að blaðið hafi orðið alræmt.
En heimsóknir á vefsíðu blaðsins
hafa fjórfaldast síðustu vikurnar
og ritstjórarnir geta amk. sagt eig-
endum að nafnið sé búið að festa
sig í sessi í vitund neytenda.
Jyllands-Posten var stofnað fyrir
135 árum, var lengi landshlutablað
og tengt Íhaldsflokknum en sleit
endanlega flokkstengslin 1971 og
gerðist óháð. Blaðið er með að-
alstöðvar í Viby, skammt frá Árós-
um og þar vinna um 650 manns en
175 í útibúinu í Kaupmannahöfn.
Það hefur lengi lagt áherslu á
sjónarmið frjálshyggju í jafnt efna-
hagsmálum sem menningu og ekki
síst tjáningarfrelsið. Frægt varð
árið 1959 að menningarritstjóri
þess, Jens Kruuse, hrósaði mjög
bók eftir norskan rithöfund er
þótti afar berorður um kynferð-
ismál.
Um 1980 gripu eigendur þess
tækifærið þegar öflugasta hægri-
blað Dana, Berlingske Tidende,
átti í erfiðleikum vegna verkfalla.
Jyllands-Posten er nú stærsta blað
Danmerkur, eintakafjöldinn er um
154 þúsund á virkum dögum, rúm
200 þúsund um helgar en tölurnar
eru þó heldur hærri þessa dagana.
Jyllands-Posten var frá upphafi
mjög andsnúið rússneskum komm-
únistum, árið 1959 hætti Nikita
Krústjoff, þáverandi sovétleiðtogi,
við að heimsækja Danmörku, að
sögn vegna greina í blaðinu sem
honum mislíkaði. En blaðið hefur
lengi stært sig af því að troða fólki
um tær án tillits til stjórnmála-
skoðana. Blaðið birti árið 1992
leiðara gegn stjórnmálamönnum
sem beittu sér gegn innflytjendum
og munu sumir áskrifendur hafa
tekið þetta óstinnt upp. En fáum
dylst að blaðið hefur síðustu árin
verið hlynnt Venstre, hinum
hægrisinnaða stjórnarflokki And-
ers Fogh Rasmussen forsætisráð-
herra.
Upphaf teikningamálsins var að
Jyllands-Posten komst að því að
teiknarar höfðu veigrað sér við að
gera myndir af Múhameð í barna-
bók eftir Kaare Bluitgen um íslam,
að sögn vegna ótta við hefndir af
hálfu ofstækismanna. Bókin var að
lokum gefin út með myndum af
spámanninum en hefðir íslams
leggja bann við að gera myndir af
Múhameð. En danska blaðið ákvað
að fá nokkra teiknara til að brjóta
myndabannið í nafni tjáningar-
frelsisins.
Dagblað sem stíg-
ur á sumar tær