Morgunblaðið - 14.02.2006, Síða 16

Morgunblaðið - 14.02.2006, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT KAMBÓDÍSKUR búddhatrúar- munkur hellir vatni yfir börn á götu í borginni Oudong í norðanverðri Kambódíu í gær, á lokadegi þriggja daga kröfugöngu mannréttinda- hreyfinga og stjórnarandstæðinga í landinu. Gangan hófst í Phnom Penh, og markmið göngumanna var að knýja á ríkisstjórn Huns Sens for- sætisráðherra um að styðja mál- frelsi og stöðva herferð yfirvalda gegn andstæðingum hennar. Reuters Mannréttinda krafist í Kambódíu Moskvu. AP, AFP. | Leiðtogi Ham- as-hreyfingar Palestínumanna hefur hafnað kröfu Sameinuðu þjóðanna, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins um að af- neita ofbeldi. Hann segir að Ísr- aelar verði fyrst að lofa því að fara af öllum hernumdu svæð- unum. „Ef Ísraelar viðurkenna rétt- indi okkar og lofa að draga her sinn frá öllum hernumdu svæð- unum mun Hamas og palest- ínska þjóðin ákveða að hætta allri vopnaðri andspyrnu,“ sagði Khaled Meshaal, pólitískur leið- togi Hamas, í viðtali sem rúss- neska dagblaðið Nezavísímaja Gazeta birti í gær. Áður hafði Meshaal aðeins sagt að Hamas gæti samþykkt „langtímavopna- hlé“ ef Ísraelar flyttu her sinn frá herteknu svæðunum og við- urkenndu sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna. Meshaal sagði í viðtalinu við rússneska blaðið að Hamas- hreyfingin teldi sig ekki skuld- bundna til að hlíta svonefndum Vegvísi til friðar í Mið-Austur- löndum þar sem engir aðrir færu eftir honum. Hreyfingin væri þó tilbúin að ræða við leið- toga allra ríkja, meðal annars Bandaríkjanna. „Vonum að Hamas sýni skynsemi“ Meshaal sagði að það væri mikill heiður fyrir Hamas að Vladímír Pútín, forseti Rúss- lands, bauð leiðtogum hreyfing- arinnar til viðræðna í Moskvu um friðarumleitanir í Mið-Aust- urlöndum eftir sigur hennar í þingkosningum Palestínu- manna 25. janúar. „Rússland er fyrsta ríkið í svonefndum kvartett sáttasemj- ara í Mið-Austurlöndum sem virðir val palestínsku þjóðarinn- ar og tekur skýrt fram að það líti ekki á Hamas sem öfga- eða hryðjuverkahreyfingu,“ sagði Meshaal. „Við metum þessa af- stöðu mikils.“ Bandaríkin og Evrópusam- bandið skilgreina Hamas sem hryðjuverkahreyfingu en stjórnvöld í Rússlandi hafa ekki gert það. Bandaríkin, Evrópusam- bandið og Sameinuðu þjóðirnar hafa hafnað samskiptum við Ha- mas og hótað að hætta fjárhags- aðstoð við Palestínumenn ef hreyfingin hafnar kröfunni um að viðurkenna tilverurétt Ísr- aelsríkis og afneita ofbeldi í bar- áttunni fyrir málstað Palestínu- manna. Haft var eftir sendiherra Rússlands hjá Sameinuðu þjóð- unum, Andrej Denísov, að rúss- nesk stjórnvöld skildu áhyggjur vestrænna ríkja af Hamas. Hann varaði hins vegar við því að ákvörðun um að hætta fjár- hagsaðstoð við Palestínumenn myndi hafa „þveröfug áhrif“. „Í sögunni eru mörg dæmi um að róttækar hreyfingar hafi komist til valda og tekið upp raunsærri og uppbyggilegri stefnu,“ hafði rússneska dag- blaðið Izvestía eftir Denísov. „Við vonum öll að Hamas sýni skynsemi.“ Alexander Kalugin, sendi- maður Rússlands í Mið-Austur- löndum, sagði að rússneskir ráðamenn hygðust hvetja leið- toga Hamas til að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis á fundin- um í Moskvu. Gert er ráð fyrir því að hann verði haldinn fyrir lok febrúar. Hafnar ekki ofbeldi nema her- námi ljúki Ramallah. AP, AFP. | Fráfarandi þing Palestínu- manna samþykkti í gær lög, sem auka völd Mahmouds Abbas forseta, aðeins nokkrum dög- um áður en nýtt þing kemur saman. Hamas- hreyfingin, sem fékk meirihluta þingsæta í kosn- ingum 25. janúar, mótmælti lögunum og sakaði fráfarandi þing um stjórnarskrárbrot. Þingmenn Fatah, hreyfingar Abbas, eru í meirihluta á fráfarandi þingi sem kom saman í síðasta sinn í gær og samþykkti meðal annars að stofna stjórnlagadómstól. Samkvæmt lögunum á Abbas að skipa alla dómarana og dómstóllinn á að skera úr um ágreiningsmál sem kunna að koma upp milli hans og meirihluta þingsins eða stjórnar Hamas. Nýi dómstóllinn getur einnig komið í veg fyrir gildistöku laga sem hann telur brjóta í bága við stjórnarskrána. Palestínski lögspekingurinn Issam Abdeen sagði að nýju lögin myndu gera Abbas kleift að „ógilda öll lög nýja þingsins undir því yfirskini að þau samræmdust ekki stjórnarskránni“. „Nýja breytingin veitir Mahmoud Abbas for- seta vald yfir lögum nýja palestínska þingsins, þar sem það er hann sem skipar dómara stjórn- lagadómstólsins,“ sagði Abdeen. „Hann getur notað þetta vald til að ógilda lög sem hann sættir sig ekki við. Ef Hamas samþykkir íslömsk lög getur hann sagt að þau brjóti í bága við stjórn- arskrána.“ „Valdarán án blóðsúthellinga“ Talsmaður Hamas, Said Siyam, sagði að fráfar- andi þing hefði hvorki umboð né rétt til að sam- þykkja slíkar breytingar eftir kosningar. Hann sagði að nýja þingið, sem kemur saman í fyrsta skipti á laugardag, myndi afnema lögin. Hamas þarf tvo þriðju atkvæðanna – eða 88 af 132 – til að ógilda nýju lögin. Hreyfingin fékk 74 þingsæti í kosningunum í janúar en getur einnig reitt sig á stuðning nokkurra óháðra þingmanna. Óljóst er þó hvort nægur meirihluti verði fyrir því á nýja þinginu að ógilda lögin. Einn nýkjörinna þingmanna Hamas, Abdel Aziz Duaik, sagði að nýju lögin færðu „allt vald í hendur forsetans“. „Ég tel að þessi þingfundur hafi verið ólöglegur. Þetta er eins konar valdarán án blóðsúthellinga.“ Fráfarandi þing skipaði einnig stuðningsmenn Fatah í fjögur mikilvæg embætti, meðal annars embætti yfirmanns eftirlitsstofnunar sem á að koma í veg fyrir fjármálaspillingu. Hamas hét því fyrir kosningarnar að uppræta spillingu embætt- ismanna Fatah og talið er að það loforð skýri að miklu leyti sigur hreyfingarinnar í kosningunum. Fatah-menn voru einnig skipaðir í embætti starfsmannastjóra heimastjórnarinnar, skrif- stofustjóra þingsins og yfirmanns launa- og líf- eyrissjóðs heimastjórnarinnar. Azzam Al-Ahmed, sem fer fyrir Fatah á nýja þinginu, sagði að þingfundurinn í gær hefði verið „100 prósent löglegur“. „Nýju þingmennirnir eru fáfróðir um lögin,“ sagði hann. „Palestínska þing- ið getur haldið fundi alveg þar til nýtt þing tekur við.“ Forseti fráfarandi þings, Rawhi Fattuh, hafn- aði atkvæðagreiðslu um tillögu eins af þingmönn- um Fatah um að veita Abbas vald til að leysa upp þingið og boða til kosninga. Hamas mótmælir lögum sem auka völd Abbas Sakar fráfarandi þing Palestínumanna um að hafa brotið stjórnarskrána Jerúsalem. AFP. | Ísra- elar hafa í raun ein- angrað Jórdandalinn frá öðrum hlutum Vesturbakkans með ýmiss konar „öryggis- aðgerðum“. Skýrði ísraelska dagblaðið Haaretz frá því í gær og sagði, að flestum Palestínumönnum væri nú meinaður að- gangur að svæðinu. Jórdandalurinn, sem er við landamæri Jórdaníu, er um þriðj- ungur Vesturbakk- ans og liggur frá Galíleuvatni í norðri til Dauða- hafs í suðri. Allt frá uppreisn Palestínumanna í september 2000 hefur Palestínu- mönnum verið bannað að nota þjóðbrautina eftir dalnum en á síð- asta ári var farið að banna Palestínu- mönnum að koma í dalinn öðrum en þeim, sem þar búa eða starfa í gyðingabyggðun- um. Ehud Olmert, starfandi for- sætisráðherra Ísraels, sagði í síð- ustu viku, að Ísraelar ætluðu að leggja undir sig Jórdandalinn enda yrðu þeir að ráða landinu við „austurlandamæri Ísraels“. Talsmenn Ísraelshers vildu ekkert um fréttina í Haaretz segja en samkvæmt Vegvísinum svo- kallaða áttu Ísraelar að hætta út- þenslu gyðingabyggðanna á Vest- urbakkanum. Það hafa þeir ekki gert. Ehud Olmert, forsætis- ráðherra Ísraels. Hafa einangrað Jórdandalinn Washington. AFP. | Embættismenn í Hvíta húsinu í Washington voru í gær gagnrýndir fyrir að skýra ekki strax frá því að Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, skaut veiðifélaga sinn fyrir slysni þegar þeir voru við veiðar í suðurhluta Texas um helgina. Sá sem fyrir skotinu varð, Harry Whitt- ington, 78 ára lögmaður, særðist ekki alvar- lega, en fékk högl í andlit og brjóst. Þeir Cheney og Whittington voru að veiða kornhænur þegar slysið varð á laug- ardag. Forsetanum var sagt strax frá slys- inu en embættismenn í Hvíta húsinu skýrðu ekki frá því fyrr en tæpum sólarhring síðar. Í vörn vegna slysaskots

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.