Morgunblaðið - 14.02.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 19
MINNSTAÐUR
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn
í Akurgerði,
Akureyri
Upplýsingar
í síma 461 1600
SUÐURNES
LANDIÐ
Nú er unnið að því að bæta úr þessu. Svæðið er inn-
an Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Á vegum þjóðgarðs-
varðar eru hafnar framkvæmdir og er nú verið leggja
þar bæði akveg og göngustíga og einnig að gera bíla-
stæði.
Vegagerðin hefur umsjón með verkefninu en verk-
takafyrirtækið Snævélar ehf. á Hellissandi er verk-
taki.
Gufuskálar | Fornu fiskbyrgin, Írskrabrunnur og
Írskrabyrgi, og lendingin í Gufuskálavör á Gufuskál-
um eru allt áhugaverðir staðir til að skoða. Gallinn
hefur bara verið sá að ekki er akfært að lendingunni
og fiskbyrgjunum og hafa því margir ferðamenn látið
vera að ganga vegarspottann að þessum stöðum og
því ekki notið þess að sjá þessar merkilegu gömlu
minjar.
Vegur að Gufuskálavör
og fornu fiskbyrgjunum
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Aðgengi Nýr vegur er lagður að Írskabrunni, fjær sést vegurinn að Gufuskálavör.
Reykjanesbær | „Þetta á nú sjálfsagt ekki eftir að
breyta neinu fyrir hann, verður bara gaman fyrir
hann seinna meira að sjá allt umstangið í kringum
fæðinguna,“ sagði Erla María Andrésdóttir móðir
þrjúhundruðþúsundasta Íslendingsins í samtali við
Morgunblaðið. Drengnum var á sunnudag gefið
nafnið Andrés Kristinn í höfuðið á móðurafa sínum.
Andrés Kristinn Haraldsson svaf vært í vögg-
unni sinni þegar blaðamann bar að garði og lét
myndatökuna ekki einu sinni raska svefninum.
Hann ber engin ummerki þess að hafa flýtt sér í
þennan heim né að hafa þurft að berjast fyrir sínu
fyrstu dagana. Í ljósi þessa varð Erlu Maríu á orði
að eftir á að hyggja hefði allt umstangið í kringum
fæðinguna verið algjört rugl. „Við vorum bæði svo
veik og þegar ég hugsa til baka þá man ég óljóst
eftir þessu öllu,“ sagði Erla María í samtali við
blaðamann.
Blaðamannafundur í móðu
Andrési Kristni lá á að komast heiminn. Tekin
hafði verið ákvörðun um það á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja að taka hann með keisaraskurði 24.
janúar, en þann dag var Erla María skráð. Aðfara-
nótt 9. janúar missti Erla María hins vegar vatnið
og þegar hún komast á heilbrigðisstofnunina varð
ljóst að ekki yrði unnt að bíða til morguns þegar
skurðstofan yrði opnuð. „Ég fékk meðgöngueitrun
sem m.a. leiddi til hás blóðþrýstings og ég var undir
eftirliti. Þegar ég kom á sjúkrahúsið um nóttina og
farið var að meta stöðuna kom í ljós að barnið var
farið að berjast fyrir sínu og því þurfti að koma mér
á Landspítalann með hraði. Þegar við komum
þangað var ég send í bráðakeisara og þess vegna
svæfð. Það fór því ekkert eins og það átti að fara.“
Erla María og Haraldur Arnarson viðurkenndu
að þau hafi gert sér aðrar hugmyndir um fæð-
inguna en raunin varð, en Andrés Kristinn er
þeirra fyrsta barn. Þegar við bættist umstangið í
kringum þrjú hundruð þúsundasta Íslendinginn
varð upplifunin öðruvísi en væntingar stóðu til.
„Auðvitað varð þetta bara gaman eftir á en fyrstu
dagana hugsuðum við bara um að þeim myndi
batna. Þetta var bara bónus,“ sagði Haraldur. „Ég
var þó ekkert allt of hrifinn af þessu fyrst og einu
sinni þegar ég fór fram á gang sá ég fjölmiðlamenn
eins og gráa ketti inni á deildinni við að reyna að fá
upplýsingar og viðtal. Þá tókum við þá ákvörðun að
drífa þetta af og fá svo að vera í friði.“
Erla María skaut inn í að þegar komið hefði að
fjölmiðlafundi hefði hún verið að sjá nýfætt barn
sitt í annað sinn. „Af því að fæðingin fór eins og hún
fór þá sá ég hann ekkert fyrr en seint um kvöldið
daginn sem hann fæddist. Þetta leið allt hjá í hálf-
gerðri móðu og eiginlega það eina sem komst að
var að hann næði heilsu. Það kom svo þegar lækn-
irinn hans uppgötvaði að það þurfti að tappa af hon-
um blóði, heilum 85 millilítrum úr þessum litla
kroppi.“
Líka hálfur Reykvíkingur
Andrés Kristinn fæddist 52 sentímetra langur og
14 merkur og hefur á rúmum mánuði þyngst um
tæpt kíló þannig að hann dafnar vel. Hann er róleg-
ur og góður að sögn foreldranna og blaðamaður
varð ekki var við annað en mikla værð í kringum
hann.
Samræðurnar fara að snúast um umhverfið sem
Andrés Kristinn kemur til með að alast upp í og
Erla María og Haraldur segjast ánægð með að-
stæður barnafólks í Reykjanesbæ. „Ég á tvö yngri
systkini og það sem ég hef upplifað í gegnum þau
hefur mér litist vel á,“ sagði Erla María sem er elst
þriggja systkina og ólst upp í Keflavík. Andrés
Kristinn er fyrsta barnabarn foreldra hennar og
nafni afa síns eins og áður kom fram.
Hér minnir Haraldur á sig og segir að hans upp-
runi hafi algjörlega gleymst í allri umræðunni. „Ég
kem úr Reykjavík þó ég hafi á sínum tíma elt Erlu
Maríu hingað suður og Andrés Kristinn verði alinn
upp hér.“ Í skírninni á sunnudag var því ákveðið að
blanda þessu betur saman en gert hafði verið. „Við
fengum séra Valgeir Ástráðsson sóknarprest í
Seljakirkju til að skíra heima hjá afa hans og nafna
og ömmu hér í Keflavík en Valgeir bæði skírði mig
og fermdi og systkini mín líka. Það verður að vera
jafnræði í þessu,“ sagði Haraldur.
Og nú þegar ummönnunarverkefnið er komið af
stað gera Haraldur og Erla María eins og aðrir
sannir Íslendingar, huga að næsta verkefni. Nú á
að smíða hús utan um stækkandi fjölskyldu.
– Þið ætlið ekki að láta þessa lífsreynslu draga úr
ykkur við að fjölga bæjarbúum?
„Nei,“ svara þau bæði í kór. „En þetta var óneit-
anlega mikil lífsreynsla og sérstakt að vera á vöku-
deild með nýfætt barn. En starfsfólkið á deildinni
var frábært og okkur langar að koma sérstöku
þakklæti til þeirra allra,“ sögðu nýbökuðu foreldr-
arnir að lokum.
Þrjúhundruðþúsundasti Íslendingurinn þurfti að berjast fyrir sínu fyrstu dagana
„Þetta var bara bónus“
Morgunblaðið/Svanhildur
Tímamótabarn Andrés Kristinn heitir 300 þúsundasti Íslendingurinn, í höfuðið á móðurafa sínum.
Þrátt fyrir veikindi fyrstu dagana hefur hann braggast vel. Fjölmiðlafárið fór að mestu framhjá hon-
um. Hér er hann með foreldrum sínum Erlu Maríu Andrésdóttur og Haraldi Arnarsyni.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Hestamannafélagið
Máni og íþróttafélagið Nes hafa að
undanförnu rætt möguleika á sam-
vinnu og hugsanlegri samnýtingu á
hluta af félagsaðstöðu Mána og
Bridsfélagsins á Mánagrund. Hug-
myndin er að Nes fengi hluta af
kjallara hússins til afnota sem fé-
lagsaðstöðu og um leið aðgang að
efri hæðinni í samvinnu við félögin.
Kemur þetta fram í erindi sem
Máni og Nes hafa sent menningar-,
íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
nesbæjar (MÍT) og rætt var á síðasta
fundi. Fram kom að töluverðra lag-
færinga er þörf í kjallara hússins og
mun félagsfólk innan Ness og vel-
unnarar félagsins leggja þar hönd á
plóg. Óskar félagið eftir aðstoð MÍT
við að greiða efniskostnað sem nem-
ur allt að 700 þúsund krónum. Þá
óskar Nes eftir því að MÍT geri
samning við félagið um þátttöku-
hluta félagsins í rekstri hússins sem
er áætlaður 150 þúsund kr. Það er
tekið fram að félagslegi þátturinn í
starfsemi Ness, íþróttafélags fatl-
aðra, er ekki síður þýðingarmikill
og íþróttaæfingarnar sjálfar.
MÍT tók vel í erindið og fól skrif-
stofu ráðsins að leggja fram drög að
samningi við Nes um rekstr-
arkostnað við aðstöðuna og tillögur
um með hvaða hætti MÍT gæti styrkt
félagið til efniskaupa.
Hugsanlegt að Nes
fái félagsaðstöðu
á Mánagrund
Sagnakvöld í Grindavík | Leið-
sögumennirnir Sigrún Franklín,
Ómar Smári Ármannsson og Dag-
björt Óskarsdóttir bjóða íbúum
Grindavíkur og öðru áhugafólki
upp á sagnakvöld í Saltfisksetrinu
fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.
Leiðsögumenn s.e.s. halda kvöldið í
samvinnu við menningarnefnd
Grindavíkur og Ferli.
Saga Grindavíkur er áhugaverð.
Leiðsögumenn Reykjaness kynntu
sér söguna og fylltust miklum
áhuga vegna þess hversu athygl-
isverð hún er og vilja miðla hluta
hennar áfram til íbúa og annarra
gesta. „Sök bítur sekan“ nefnist
frásögn Sigrúnar um Carl Nilsson
skipstjóra á togaranum Anlaby er
fórst við Jónsbásakletta 1902.
Bjallan úr því skipi prýðir klukkna-
portið í Staðarkirkjugarði. Ómar
sýnir myndir af minjum er sagnir
og heimildir tengja atburðum frá
Tyrkaráninu 1627 og enn má sjá á
allnokkrum stöðum í umdæmi
Grindavíkur. Dagbjört segir gam-
ansögur af „merku“ fólki í Grinda-
vík.
Milli atriða verður flutt ljóðið
Vendetta eftir Jón Trausta og
fjöldasöngur við undirleik.
Garður | Sveitarfélagið Garður
hefur samþykkt viljayfirlýsingu
um að taka á leigu hluta af versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði sem
Samkaup áforma að byggja í sam-
vinnu við Sparisjóðinn í Keflavík.
Húsið verður byggt á lóð Spari-
sjóðsins í Garði.
Fyrirhugað er að Samkaup
verði með verslun sína í húsinu og
sparisjóðurinn með útibú sitt.
Bærinn hyggst flytja skrifstofur
sínar í húsið og jafnvel koma þar
upp almenningsbókasafni. Til at-
hugunar er að flytja aðstöðu
heilsugæslunnar þangað. Þá hefur
Álasund sem rekur skipamiðlun
áhuga á að hafa aðstöðu í nýja
verslunar- og skrifstofuhúsinu.
Bærinn með í bygg-
ingu þjónustuhúss