Morgunblaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 21
Verið velkomin á fyrirlestur um: „Gestastofur fyrir ferðamenn“ hjá Umhverfisstofnun í dag, þriðjudaginn 14. febrúar, kl. 15-16 Aðgangur ókeypis. Fyrirlesarar: Guðbjörg Gunnarsdóttir, þjóðgarðsvörður á Snæfellsnesi og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Fyrirlesturinn verður haldinn í matsal Umhverfisstofnunar á Suðurlandsbraut 24, 5. hæð. Upplýsingar á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is Sameiginlegir fletir eruparasamböndum og hjóna-böndum lífsnauðsynlegir.Á sama tíma þurfa ein- staklingar í sambúð eða hjónabandi að hafa ákveðið frelsi innan skyn- samlegra marka,“ seg- ir Gréta Jónsdóttir, sem nýlega hefur lokið námi í fjölskylduráð- gjöf frá Bretlandi og undirbýr nú m.a. fólk fyrir sambúð og hjóna- band auk þess að að- stoða fólk, sem á við sambúðarvanda að etja. Í sambúðina á bleiku skýi „Fólk siglir gjarnan af stað í sambúð með miklar væntingar á bleiku skýi. Það er duglegt að vera saman í tilhugalífinu, en eftir fimm til sjö ár stefnir í hættutíma og þá fara hnútar og núningar að gera vart við sig. Grái hversdags- leikinn er tekinn við. Brauðstritið og börnin eru komin inn í myndina og í amstri dagsins gleymist að kveðjast með kossi á morgnana og tjá hvort öðru væntumþykju. Já- kvæð tjáning er samböndum nefni- lega svo næringarrík. Á meðan mannfólkið þarf sinn skammt af já- kvæðum strokum til að geta dafn- að, þurfa bílar bensín til að komast áfram og blómin þurfa vatn til að ná að lifa,“ segir Gréta um leið og hún gefur blaðamanni nokkur holl ráð fyrr sambúð. „Í fyrsta lagi þurfa pör að vera dugleg að tala saman og fullvissa sig um að hinn aðilinn hlusti og skilji meiningu skilaboðanna því þau parasambönd virðast hvað líf- seigust þar sem einstaklingarnir leggja sig í líma við að finna út og skilja þarfir makans og hlusta með athygli. Í þessu samhengi og þegar óskir og væntingar eru settar fram við makann er affærasælast að tala í fyrstu persónu, en ekki í annarri persónu. Í öðru lagi mega pör aldr- ei sofna á verðinum gagnvart til- hugalífinu, hversu gamalt sem sam- bandið er annars orðið. Til að sambandið nái að vaxa og dafna er nauðsynlegt að taka frá í það minnsta eitt kvöld í viku og gera eitthvað skemmtilegt saman. Það þarf ekki að vera merkilegt enda er samveran aðalmarkmiðið. Það er hægt að fara í göngutúra, fjall- göngu, sund, bíltúra, á kaffihús, í bíó eða bara hafa það rómantískt heima. Ég ræð hinsvegar sambúð- arfólki alfarið frá því að fara eitt út að skemmta sér og aldrei að sofna ósátt við hvort annað á kvöldin. Svefnherbergið á fyrst og fremst að vera griðastaður, þar sem fólk á að vera gott hvað við annað.“ Styrkleikarnir og veikleikarnir Gréta segist helst kjósa að vinna með pör á stigi tilhugalífs- ins svo komast megi hjá erfiðleikum á seinni stigum, en síður þegar allt er „komið í klessu“, eins og hún orðar það. „Fólk þarf að læra að hlusta hvað á annað, gera áætlanir um fjármál, barn- eignir og uppeldi og læra að vinna úr vandamálum þegar árekstrar koma upp.“ Pörin byrja sitt í hvoru lagi á því að svara 145 spurningum, sem varða meðal annars fortíð og fram- tíð, áhugamál og væntingar. Svörin sendir Gréta síðan til fyrirtækis í Bretlandi sem hún er í tengslum við og sérhæfir sig í hjónaráðgjöf. Á grundvelli svaranna berst henni svo greinagerð um styrkleika og veikleika sambandsins. „Þetta er frábært tæki, sem mælir vaxt- armöguleika parsins, og gefur góð- ar vísbendingar um hvaða þætti sambandsins þarf að styrkja og hverja ekki.“ Gagnkvæm virðing er para- samböndum afar mikilvæg, að sögn Grétu, en að sama skapi þarf sjálfs- öryggið að vera til staðar og sam- búðarfólk þarf að vera óhrætt við að tjá skoðanir sínar og langanir. „Þegar upp koma þrætur í para- sambandi er til dæmis mjög algengt að konur fara að hegna mökum sín- um með kynlífsleysi, sem er eitt það versta sem þær gera mönnum sín- um. Karlinn skilur ekki neitt í neinu og er ef til vill ekki sekur um annað en að hafa ekki sýnt konu sinni nógu mikla umhyggju undanfarna daga, að hennar mati. Við konur þurfum nefnilega að láta klappa okkur í tíma og ótíma.“ Sambúðarvandi getur átt rætur hefur hann lært hvernig leysa á úr ágreiningi. Það, sem fyrir börnum er haft, er prentað inn í barnshug- ann og undirmeðvitundina, og magnast svo upp þegar viðkomandi lendir í „lærðum“ aðstæðum,“ segir Gréta og bætir við að skemmda ímynd einstaklinga af heilbrigðu fjölskyldulífi megi laga með með- ferð og ráðgjöf. Ættleiðing og dótturmissir Gréta býður auk þessa meðferð til að hjálpa fullorðnum ein- staklingum, sem lent hafa í and- legu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi eða öðrum missi á barns- aldri. Sjálf missti hún tólf ára dótt- ur sína úr krabbameini fyrir ellefu árum. „Ég fór sjálf í gegnum per- sónulega meðferð í náminu sem reyndist mjög einkennileg upp- lifun. Kennari minn einn fann það fljótlega út að ég átti mjög erfitt með að treysta fólki sem á rætur að rekja til þess að ég var ættleidd þriggja vikna gömul og fékk ekki að vita sannleikann fyrr en fyrir al- gjöra tilviljun á barnaskólaaldri. Þetta vandamál hefur fylgt mér lengi og bitnað bæði á eiginmanni mínum og börnum, en nú er ég komin heim breytt manneskja og allt í einu farin að finna frið, sem ég hef ekki fundið fyrir áður,“ segir Gréta, sem samhliða fjölskylduráð- gjöfinni sinnir söngkennslu, en hún útskrifaðist sem söngkennari frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1999.  PARASAMBÖND | Hættutímar eru fram- undan eftir fimm til sjö ára sambúðartíma Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Gréta Jónsdóttir fjölskylduráðgjafi. Morgunblaðið/ÞÖK Daglegtlíf febrúar Gleymið ekki tilhugalífinu að rekja til fjölmargra þátta. Stundum er fólk ekki sammála um hvernig verja á áhugamálum, pen- ingum, hvernig standa eigi að barnauppeldinu, hvernig haga beri verkaskiptingu á heimilinu eða hvernig haga skuli kynlífinu. „Bar- næskan hefur ótrúleg áhrif á lífs- sýn okkar og það sem við upplifum í æsku tökum við gjarnan með okkur í eigin sambúð síðar á lífsleiðinni. Hafi t.d. einstaklingur alist upp við ofbeldi af einhverju tagi er mjög líklegt að hann beiti ofbeldi sem fullorðinn einstaklingur því þannig  Leitaðu að því góða í maka þín- um og vertu óspar/óspör á gull- hamrana.  Hrósaðu maka þínum í tíma og ótíma.  Forðist að dæma hvort annað.  Reynið í lengstu lög að finna lausnir ef það stefnir í sam- skiptavanda.  Hlustið með athygli á hvort annað.  Sýnið hvort öðru sjálfsöryggi og talið við makann í fyrstu persónu um óskir og langanir en ekki í annarri persónu.  Gefðu sambandinu þínu sama forgang og það hafði meðan á tilhugalífinu stóð. Hvernig má bæta sambandið? STÓRNOTENDUR í tónlistarniðurhali hafa deyft tónlistarsmekk sinn segir hópur breskra sál- fræðinga sem gerði könn- un á því hvernig fólk hlustar á tónlist. Fyrri kynslóðir nutu tónlistar en svokölluð iPod-kynslóð hefur misst hæfileikann til að hlusta. Dr. Adrian North við háskólann í Leicester fór fyrir rannsókninni en 346 einstaklingar tóku þátt í henni með því að svara spurningum um tónlist sem þeir höfðu hlýtt á. Með tilkomu netsins er tónlist orðin aðgengileg og fólk er með tónlist í bakgrunni meira og minna alla daga á meðan það sinnir öðru. Hér áður fyrr var það upplifun þegar fólk gaf sér tíma til að hlusta á tónlist og gera ekkert annað á meðan.  KÖNNUN Hefur iPod-kynslóðin misst hæfileikann til að hlusta? Fréttir í tölvupósti „KRAKKAR verða skynsamari þeg- ar þau byrja í skóla en síðan er eins og þetta gangi til baka þegar ung- lingsárunum er náð,“ segir Noel Janis-Norton sem heldur námskeið fyrir foreldra í Bretlandi en hún heldur því fram að mikl- ar breytingar verði á heila barna á ung- lingsárum. Á vef Daily Telegraph er vitnað í hana þar sem hún segir að kynhormón fari á fullt á þessu skeiði og heilafrumur séu að þroskast. Síð- ast þroskast það svæði í heilanum sem stjórnar forgangsröðun, skipu- lagi á hugsunum og bælingu hvata en það er ekki fyrr en 25 ára aldri er náð að þetta svæði þroskast að fullu. Janis-Norton leggur þó áherslu á að foreldrar þurfi ekki að sætta sig við alla hegðun unglinga þótt út- skýring liggi fyrir. Foreldrar beri ábyrgð á að kenna börnum sínum siði eins og að þakka fyrir sig og horfa í augun á fólki. Hrós skiptir miklu Janis-Norton leggur áherslu á að taka þurfi á málunum strax. Hrós skipti miklu máli en nöldur og tuð leiði ekki til góðs. Hrós þar sem því er lýst sem foreldri er ánægt með, hefur mikið að segja, t.d.: „Gott hjá þér, þú kynntir þig í símann þegar þú spurðir eftir Guðmundi.“ Mikilvægast er að vera börnunum góð fyrirmynd, unglinga langar ekki að koma vel fram við foreldra sem ekki koma vel fram við þá. Nokkur ráð frá Janis-Norton:  Ákveddu hvaða siðir þú vilt að séu hafðir í heiðri og settu fram kröf- ur þess efnis. Gefðu skýrt til kynna við hverju er búist í ákveðnum aðstæðum.  Hrósið með útskýringum til að viðurkenna góða framkomu.  Útskýrið af hverju góðir siðir eru mikilvægir, t.d. upp á atvinnu- möguleika í framtíðinni.  Ekki vera dónaleg(ur) á móti.  Ekki gagnrýna eða leiðrétta börnin þín fyrir framan félaga þeirra.  Ekki nöldra um hluti sem skipta þig í raun ekki máli.  Ekki gleyma að ólundarungarnir heima geta umbreyst í heillandi manneskjur í annarra manna hús- um.  UPPELDI Ekki vera dónalegur á móti við unglinginn Unglinga langar ekki að koma vel fram við for- eldra sem ekki koma vel fram við þá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.