Morgunblaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 27
MINNINGAR
Við Anna Jóna
kynntumst fyrst
haustið 1993 þegar við
störfuðum saman, veturlangt, í
heilsdagsskóla í Brúarlandi. Frá
fyrstu viðkynningu fann ég að þarna
fór heilsteypt persóna, manneskja
sem var samkvæm sjálfri sér og var
elskuleg í alla staði og hvers manns
hugljúfi.
Eftir þennan vetur þekktumst við
vel og störfuðum síðan áfram saman
bæði í Varmárskóla og í kærleiks-
þjónustu kirkjunnar í Lágafellssókn.
Anna Jóna var ein af sex manna
hópi sjálfboðaliða sem bauð sig fram
ANNA JÓNA
RAGNARSDÓTTIR
✝ Anna JónaRagnarsdóttir
fæddist í Reykjavík
18. janúar 1937.
Hún lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 25. des-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kirkju 30. desem-
ber.
til sjálfboðins starfs
fyrir kirkjuna í heim-
sóknarþjónustu í júní
árið 2001.
Þessi þjónusta, við
aldraða, einmana og
þjáða, var þá alveg ný
í safnaðarstarfinu hér
í Mosfellsbæ. Með ár-
unum hefur heim-
sóknarþjónustan öðl-
ast fastan sess í
þjónustu kirkjunnar
við sóknarbörn. Þetta
óeigingjarna starf
veitir sjálfboðaliðum
og þeim sem þiggur heimsókn í
flestum tilfellum einlæga gleði og
vináttu.
Ég vil þakka fyrir hönd okkar
allra úr sjálfboðaliðahópnum í Lága-
fellssókn í Mosfellsbæ fyrir samveru
og samstarf og yndislega nærveru
okkar kæru Önnu Jónu Ragnars-
dóttur. Megi góður Guð geyma hana
í heilögum náðarfaðmi sínum.
Innilegar samúðarkveðjur til
barna, tengdabarna og barnabarna.
Þórdís Ásgeirsdóttir djákni.
Hjörtur F. Jónsson
var tengdafaðir minn.
Hann tók mér opnum
örmum þegar sam-
band mitt við næstyngsta soninn
hófst fyrir rúmum þrjátíu árum.
Hjörtur var sérstaklega mikið
HJÖRTUR F.
JÓNSSON
✝ Hjörtur Frið-berg Jónsson
fæddist í Melshúsum
á Seltjarnarnesi 10.
september 1920.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 23.
janúar síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Fossvogskirkju
3. febrúar.
snyrtimenni og kurt-
eisi hans gerði mig
stundum feimna. Það
var alveg ástæðulaust
því með prúðmennsku
hans og alúð var auð-
velt og gaman að um-
gangast hann öll árin.
Ég sá hve mikið dá-
læti hann hafði á
konu sinni og kom þá
fram hve rómantískur
hann var. Hjörtur
vildi alltaf aðstoða ef
eftir því var leitað og
taldi ekkert viðvik
eftir sér. Ósérhlífinn var hann með
eindæmum og ábyggilegur í hví-
vetna.
Þau árin sem við hjónin bjuggum
erlendis var ávallt víst að Hjörtur
kæmi á flugvöllinn til að fagna
komu okkar og eins kvartaði hann
aldrei undan því að aka okkur eld-
snemma út á flugvöll. Þegar við
hjónin innréttuðum nýja húsnæðið
okkar þá voru vandasöm verkefni
honum auðveld. Hann var vandvirk-
ur og í raun fagurkeri.
Mér fannst Hjörtur taka erfið-
leikum stórmannlega og aldrei
heyrði ég hann falla í sjálfsvorkunn
yfir því hlutskipti hans að verða
háður hjólastól frá haustinu 1994;
lífslöngun hans var sterk og ham-
ingjan aldrei meiri en þegar hann
var með eiginkonu sinni. Vigdís var
honum stoð og stytta og myndi sú
umönnun reynast mörgum ofviða
en hér voru hjón sem stóðu þétt
saman. Virðing mín fyrir þeim er
mikil. Ég vil að leiðarlokum þakka
Hirti fyrir allt hið góða sem hann
hefur gert fyrir okkur. Ég votta
tengdamóður minni mína dýpstu
samúð. Blessuð sé minning Hjartar.
Áslaug Guðmundsdóttir.
Elsku afi. Ég á þér svo margt að
þakka. Það er ótalmargt sem þú
kenndir mér varðandi lífið sem ég
mun aldrei gleyma. Þú kveiktir hjá
mér áhuga á bókmenntum og ís-
lenskri tungu. Þú kenndir mér að
skrifa svo fallega og semja ljóð eftir
reglunum, stuðlar og höfuðstafir á
réttum stað. Að þessu mun ég búa
alla ævi. Þú keyrðir mig á dans-
æfingar nokkrum sinnum í viku og í
þessum stuttu bílferðum fylltir þú
huga minn af fróðleik á þann hátt
að mig þyrsti í meira. Vigdís Hlíf
og Jón Sigmar voru þeirrar bless-
unar aðnjótandi að fá að kynnast
þér á sama hátt og ég. Ég mun
gera mitt besta til að kenna þeim
allt sem þú kenndir mér. Það síð-
asta sem þú sagðir við Jón Sigmar
var að hann skyldi ávallt muna að
segja gjörðu svo vel. Ég get full-
vissað þig um að hann mun aldrei
gleyma því að koma fram af þeirri
háttvísi og við munum öll hugsa
okkur tvisvar um áður en við kveðj-
um með orðinu „bæ“. Því vil ég
nota tækifærið og segja bless afi,
sjáumst seinna.
Fyrir hönd systkina minna, Vig-
dísar Hlífar og Jóns Sigmars,
Lára Guðrún Ævarsdóttir.
Nú er heiðurskonan
Elísabet Andrésdóttir í
Tungu fallin frá, 94 ára
að aldri. Hún var ein af þessum kven-
hetjum 20. aldar, sem ólust upp við
kröpp kjör, mikla og erfiða vinnu frá
barnsaldri en tóku flestum erfiðleik-
um með brosi á vor og gengu í gegn-
um lífið allt með óbilandi kjarki á
hverju sem gekk.
Ég kynntist Betu stjúpmóður eftir
að hún giftist föður mínum 1953 og
fluttist að Tungu í Gönguskörðum og
tók þar við húsmóðurstörfum. Það
var föður mínum mikil gæfa að fá
slíka konu. Hún var dagfarsprúð,
glaðsinna, bráðþrifin, stjórnsöm og
dugleg með afbrigðum, hvaða verki
sem hún gekk að, hvort heldur var úti
eða inni.
Í Þrúðardal í Strandasýslu þar sem
hún ólst upp var hún lengi aðal stoð
og stytta foreldra sinna og bróður,
sem var heilsuveill. Þar gekk hún í öll
karlmannsverk, t.d. sló með orfi og
ljá, rakaði, batt hey og risti torf því þá
var vélaöldin ekki gengin í garð. Í
Tungu var hún fyrst og fremst „hús-
móðirin“ sem alltaf sá um að nóg væri
ELÍSABET
ANDRÉSDÓTTIR
✝ Elísabet Andr-ésdóttir fæddist
í Þrúðardal í
Strandasýslu 13.
nóvember 1912.
Hún andaðist á Heil-
brigðisstofnuninni á
Sauðárkróki laug-
ardaginn 28. janúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram í
kyrrþey.
á borðum, á réttum
tíma af hollri og góðri
fæðu, allt heimagert.
Hún sá um að alltaf
væru til birgðir af öllu,
var ekkert í búðum of
oft en var sannarlega
það sem við eldra fólkið
köllum góð matmóðir.
Gestrisni hennar var
orðlögð, hún tók öllum
með vinsemd og rausn
og var viðræðugóð og
skemmtileg.
Hún fylgdist alltaf
vel með öllu utan húss
og innan. Að búskapurinn gengi vel
var hennar hjartans mál og velferð
einkarsonarins Andrésar og alls
heimilisfólksins. Barnabörnunum sín-
um var hún afar góð amma og við
eldri börn Helga virtum hana öll og
dáðum fyrir hennar miklu mannkosti.
Hún reyndist föður okkar afar góð
eiginkona og annaðist hann af stakri
umhyggju, það verður aldrei of þakk-
að. Með árunum urðum við góðar vin-
konur. Ég þakka henni af alhug allar
góðar samverustundir og kveð með
söknuði. Hún hefur sannarlega skilað
góðu dagsverki.
Bróður mínum og mágkonu Andr-
ési, Ásdísi og börnum þeirra votta ég
dýpstu samúð. Þau og við öll höfum
svo margs að sakna.
Kristín Helgadóttir frá Tungu.
Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara,
eins og þú hefur heitið mér.
(Lúkasarguðspjall 2:29.)
Þessi orð komu mér fyrst í hug,
þegar mér var tilkynnt um lát hennar
Elísabetar í Tungu.
Hún kvaddi á sinn hógværa, hljóð-
láta hátt og fékk hægt andlát. Þökk sé
forsjóninni fyrir það.
Og þrátt fyrir söknuð okkar allra er
sú huggun til mótvægis, að ótal mynd-
ir og minningar líða nú fyrir hugar-
sjónir. Allar ljúfar og góðar og þær
verða áfram með okkur, tryggir föru-
nautar um ófarin ár.
Þessar dýrmætu minningar visna
ekki þótt hrörnandi líkami 94 ára
gamallar heiðurskonu, móður, ömmu
og langömmu hverfi undir kistulokið.
Konu, sem með fádæma starfsorku
og æðruleysi fram á síðustu stund,
hélt sinni reisn, þótt líkamleg áföll
tækju sinn toll og hreyfigeta minnk-
aði smátt og smátt, þá var jafnaðar-
geðið og góðvildin hin sama og um-
hyggjan fyrir öllu og öllum.
Já, þær eru svo sannarlega marg-
ar, minningarnar sem raðast upp. En
ég veit að síst af öllu mundi hún Beta
mín kæra sig um orðmælgi og upp-
talningu á þeim til aflestrar fyrir al-
menning, svo ég geymi þær með mér.
Þessar línur verða því aðeins vottur
um þakklæti til forsjónarinnar fyrir
að hafa fengið að njóta svo lengi
mannbætandi samvista við þessa
traustu mannkostakonu og trygga
vin.
Andrés og fjölskylda, ykkar missir
er mikill. Við samhryggjumst öll.
Elísabet mín, Far þú í friði. Friður
Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Guðríður B. Helgadóttir.
Hinn 28. janúar lést Elísabet Andr-
ésdóttir, eða Beta okkar í Tungu. Þó
svo hún hafi ekki viljað láta skrifa
mikið eftir sig þá koma hér fáein
kveðjuorð.
Hún var ein af stofnendum kven-
félagsins okkar sem stofnað var 1977
og kosin formaður þess árið 1980 og
gegndi hún því starfi um árabil. Síðar
tók hún að sér fleiri stjórnunarstörf í
félaginu okkar, og það eftir að hún
hafði orðið fyrir því slysi að lær-
brotna, sem hún varð aldrei söm eftir,
en hún lét það ekki aftra sér.
Hún var kjörin leiðtogi, vildi hafa
reglu á hlutunum. Fundir skyldu hefj-
ast á auglýstum tíma, því stundvísi og
reglusemi var ein af hennar dyggð-
um. Hún hafði frábæra frásagnar-
hæfileika, kom iðulega með eitthvað
með sér til upplestrar á fundum og
lék það þá yfirleitt, þannig að við velt-
umst um af hlátri. Einnig var hún
óþreytandi við að segja okkur frá bú-
skaparháttum, vinnubrögðum og
skemmtanahaldi í hennar ungdæmi.
Eitt sinn samdi hún leikþátt og lét
okkur flytja með sér á skemmtisam-
komu skagfirskra kvenna.
Eftir að heilsu hennar hrakaði og
hún hætti að geta sótt fundi og fara
sinna ferða þá bauð hún sig fram í
ferðanefnd og skipulagði dagsferð
vestur í Dali, þó svo hún kæmist ekki
sjálf með. Á sinn hátt tók hún þátt í
starfi okkar. Hún hringdi í okkur,
minnti okkur á og rak á eftir okkur.
Alltaf þegar eitthvað hafði verið á
dagskrá hjá okkur, t.d. basar, spila-
kvöld, jólaball þá hringdi hún strax
næsta dag: Hvernig gekk? Hvað kom
inn? Hvað komu margir? Hún fylgd-
ist vel með félaginu sínu til siðasta
dags. Elísabet var gerð að heiðurs-
félaga í kvenfélaginu árið 1998, henni
fannst það að vísu alger óþarfi.
Við félagssystur hennar kveðjum
með virðingu og þökk. Hennar er sárt
saknað og verður vandfyllt í hennar
skarð. Aðstandendum hennar send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd Kvenfélagsins Fram-
farar í Skarðshreppi,
Sigrún Aadnegard.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
GÍSLA VIGFÚSSONAR
frá Skálmarbæ.
Þakkir til starfsfólks á Klausturhólum, Kirkjubæjar-
klaustri.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Gestsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, ástkær vinur, afi og
bróðir,
STEFÁN KARL ÞORSTEINSSON,
Einholti 8a,
Akureyri,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 8. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 17. febrúar kl. 13:30.
Hrafn Stefánsson,
Vala Stefánsdóttir, Viðar Sigurjónsson,
Svala Lárusdóttir,
afabörn og systkini.
Móðir okkar, amma og langamma,
STEINUNN ÁRNADÓTTIR,
Miklubraut 62,
andaðist á Landspítala Fossvogi aðfaranótt laugardagsins 11. febrúar.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Árni Benediktsson og fjölskylda,
Stefán Benediktsson og fjölskylda.
Móðir mín,
SIGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR,
síðast til heimilis á öldrunardeild
Sjúkrahúss Skagfirðinga,
lést miðvikudaginn 8. febrúar.
Útförin fer fram frá Víðimýrarkirkju laugardaginn
18. febrúar kl. 14:00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl Bergmann.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞORSTEINN S. SIGVALDASON,
Hraunbrún 34,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn
12. febrúar.
Útför verður auglýst síðar.
Guðleif K. Jóhannesdóttir og fjölskylda.