Morgunblaðið - 14.02.2006, Síða 33
LAUFÁSVEGUR – GLÆSIEIGN
Vorum að fá í einkasölu eitt af þessum virðulegu og glæsilegu hús-
um við Laufásveg í Þingholtunum. Húsið er teiknað af Sigurði Guð-
mundssyni. Á aðalhæð hússins eru m.a. þrjár glæsilegar stofur, eld-
hús og snyrting. Á efri hæð eru m.a. fjögur herbergi, baðherbergi og
þvottahús. Í kjallara eru þrjú herbergi, geymslur og fl. Í risi er eitt her-
bergi og geymslur. Falleg stór lóð til suðurs. Úr borðstofu er gengið út á stórar flísalagðar svalir og þaðan niður í garð.
Þrennar svalir eru á húsinu. Innkoman í húsið er mjög tíguleg vegna mikils rýmis sem stigi og hol fá. Í glugga í stiga-
gangi er 5 fm steindur gluggi eftir Gerði Helgadóttir. Glæsileg eign á eftirsóttum stað. Nánari upplýsingar er veittar á
skrifstofu Eignamiðlunar. Óskað er eftir tilboðum. 5022
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Sími 588 9090 – Fax 588 9095 – Síðumúla 21 – eignamidlun@eignamidlun.is – www.eignamidlun.is
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 33
DAGBÓK
60 ÁRA afmæli. Í dag, 14. febrúar,er sextugur Eyjólfur Kolbeins,
innkaupastjóri hjá Orkuveitu Reykja-
víkur, til heimilis að Gvendargeisla
82, Reykjavík.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Urriðaholt eða
Urriðavatnsholt?
VEGNA greina í Morgunblaðinu og
Fasteignablaði Mbl. fyrir stuttu um
nýja byggð í „Urriðaholti“ er mér
spurn hvort ástæða sé til að breyta
örnefni á svæði því sem fyrirhugað er
að byggja á sunnan Vífilsstaða. Þetta
svæði er skráð Urriðavatnsholt á
kortum Landmælinga Íslands,
1:100.000 (útg. 1972), og upp af Urr-
iðavatni ganga smádalir, þar sem nú
er hluti af golfvelli Oddfellowa, sem
heita Urriðavatnsdalir, og upp af
holtinu er svo hrauntunga sem heitir
Urriðavatnshraun. Bær sem stóð við
vatnið er skráð Urriðavatn á sama
korti, en var síðast kallað Urriða-
vatnskot áður en það fór í eyði.
Finnst skipulagsfólki / arkitektum
ástæða til að leggja þessi gömlu nöfn
niður eða hver er ástæða fyrir því að
þau eru ekki notuð?
Mér finnst líka skrítið að kenna
holtið við urriða eins og nú er gert,
varla hafa urriðarnir úr vatninu
stokkið upp á holtið!
Það er synd að lofa ekki góðum ör-
nefnum að halda sér. Gaman væri að
heyra álit fleira fólks.
Ásta Kristjánsdóttir,
Melhaga 8, Rvík.
Er framleiðsla áls
það eina sem við getum?
ÁGÆTI lesandi.
Um þessar mundir er barist um
mengunarkvóta. Það hefur verið í
farvatninu að reisa álver á Norður-
landi um nokkurt skeið en sú ætlan
var kæfð í síðustu viku því ákveðið
var að stækka og byggja álver á suð-
vesturhorni landsins. Húsvíkingar og
Eyfirðingar eru ævareiðir enda var
þeim lofað kvóta til að menga. Nú
horfa norðanmenn til framtíðar og sjá
ekkert nema böl og fátækt, atvinnu-
leysi og svartnætti. Hér verður ekk-
ert að gera nema að bora í nefið og
bölva Reykjavíkurpakkinu í sand og
ösku. En bíddu nú við, getum við ekki
bara gert eitthvað annað? Hefur sá
möguleiki aldrei verið skoðaður?
Stendur valið ekki um álver eða eitt-
hvað annað, frekar en álver eða ekki
neitt? Nú er að spýta í lófana og
hugsa upp leiðir til að fá nasaþefinn
af hagsæld suðursins. Við viljum líka
synda í peningum og því eigum við
rétt á því að fá tækifæri til að búa til
tækifæri. Ég er með eina hugmynd,
getum við ekki búið eitthvað nytsam-
legt úr öllu þessu áli sem er verið að
framleiða fyrir sunnan?
Baldvin Esra Einarsson,
Sniðgötu 1, Akureyri.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 0-0
5. Bg2 d6 6. 0-0 Rbd7 7. Dc2 e5 8.
Hd1 He8 9. Rc3 e4 10. Rg5 e3 11. f4
c6 12. Db3 Rf8 13. Hd3 Bf5 14. Hxe3
Hxe3 15. Bxe3 Rg4 16. Bf2 Rxf2 17.
Kxf2 Bxd4+ 18. e3 Bf6 19. Rge4 Be7
20. Hd1 Dc7 21. Re2 He8 22. Rd4
Bxe4 23. Bxe4 Rd7 24. Bf3 Bf6 25.
Da3 a6 26. b4 Rb6 27. Dd3 De7 28.
Rc2 Hd8 29. e4 De6 30. Re3 c5 31.
bxc5 dxc5 32. Rd5 Bd4+ 33. Kg2 Rd7
34. Hb1 Hb8 35. a4 Kg7 36. h4 Dc6
37. Db3 h5 38. e5 De6 39. Rc7 De7
40. Bxb7 f6 41. e6 Rf8 42. Db6 Kh6
43. He1 Bc3 44. He2 Hxb7 45. Dxb7
Ba5
Indverska skákdrottningin Humpy
Koneru (2.537) er önnur stigahæsta
skákkona heims samkvæmt skák-
stigalista FIDE fyrir virka skák-
menn. Þessi 18 ára stúlka hefur
óvenjulegan skákstíl þar eð hún virð-
ist leggja litla áherslu á byrjanir.
Hins vegar þegar byrjuninni sleppir
sýnir hún heldur betur á sér klærnar
eins og þessi skák ber með sér en í
henni hafði hún hvítt gegn hollenska
stórmeistaranum Daniel Stellwagen
(2.572) í B-flokki Corus skákhátíð-
arinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk
aan Zee í Hollandi. Sú indverska lék
46. Rd5! í stöðunni og svartur gafst
upp eftir 46. ...Dxb7 47. e7 þar eð það
er óumflýjanlegt að ný hvít drottning
fæðist og að hvítur verði liði yfir.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Næsta vetur verður boðið upp á nýttmeistaranám í fjármálahagfræði viðviðskipta- og hagfræðideild HáskólaÍslands. Kynningarfundur um nýja
námið verður haldinn nk. miðvikudag í stofu 132 í
Öskju kl. 16.
„Fjármálaumhverfið er orðið flóknara og fjöl-
breyttara. Áður fyrr gátu allir gengið í flest störf en
sérhæfingin á markaðinum er að aukast og með
þessu námi erum við m.a. að bregðast við kröfunni
um aukna sérhæfingu,“ segir Haukur C. Bene-
diktsson, lektor og umsjónarmaður meistaranáms-
ins í fjármálum.
„Við höfum frá 1999 boðið upp á meistaranám í
fjármálum, en ákváðum að greina námið í tvær leið-
ir: annars vegar fjármál fyrirtækja, sem er hefð-
bundna línan, og hins vegar nýju línuna, fjármála-
hagfræði. Nýja námsleiðin leggur meiri áherslu á
stærðfræðilegu hliðina, og er sérstaklega sniðin að
þörfum þeirra sem vilja fást við verkefni sem krefj-
ast flókinna fjármálaútreikninga, s.s. í áhættu-
greiningu, líkanagerð, verðlagningu afleiðna og
annarra fjármálaafurða. Sérstaklega er þörfin fyrir
fólk með þessa menntun mikil í fjármálakerfinu og
skilningur þeirra sem þar starfa á mikilvægi þessa
náms endurspeglast m.a. í rausnarlegum fjárstuðn-
ingi sem KB banki hefur veitt til námsins und-
anfarin ár enda hefur markaðurinn tekið meist-
aranáminu í fjármálum og útskrifuðum nemendum
afar vel“
Námið er 45 einingar og er miðað við tvær annir
af námskeiðum og 15 eininga lokaritgerð. Því geta
nemendur, ef þeir sinna náminu af fullum þunga,
lokið gráðunni á 12 mánuðum.
„Nemendurnir fá góðan grunn í þjóðhagfræði og
rekstrarhagfræði, en áherslan er á fjármála-
hagfræði. Við reynum að byggja sterkan fræðilegan
bakgrunn en haga náminu þannig að nemendur geti
nýtt fræðin í starfi, og leggjum okkur fram við að
tengja námið við atvinnulífið,“ segir Haukur.
Þær kröfur eru gerðar til umsækjenda um meist-
aranám að þeir hafi 1. einkunn (að lágmarki 7,25) en
boðið er upp á hrað-undirbúningsnámskeið í lok
sumars handa þeim sem lítinn bakgrunn hafa úr
viðskipta- og hagfræðilegu námi, enda hafi þeir
stundað nám á öðrum sviðum. Sveigjanleiki er
veittur um hraða námsins og segir Haukur það geta
gagnast vel þeim sem þegar eru í starfi en vilja
bæta við sig framhaldsnámi án þess að taka hlé frá
vinnumarkaðinum.
Sem fyrr segir verður kynningin á meistaranámi
í fjármálahagfræði kl. 16 á miðvikudag, og er að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Síðasti skráningardagur til meistaranáms á
næsta skólaári er 15. apríl en við viðskipta- og hag-
fræðideild er boðið upp á fjölbreytt úrval námsleiða
á meistarastigi og verður heildstæð kynning á
námsframboðinu 26. febrúar nk.
Meistaranám | Ný námsleið við viðskipta- og hagfræðideild HÍ
Nýtt nám í fjármálahagfræði
Haukur Camillus
Benediktsson fæddist í
Reykjavík 1972. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla Íslands
1992, BS-prófi í hag-
fræði frá Háskóla Ís-
lands 1996 og meist-
araprófi í fjármála-
hagfræði frá LSE 1998.
Haukur starfaði hjá
Hagfræðistofnun Há-
skóla Íslands 1995 til 1999. Hann starfaði hjá
Íslandsbanka 1999 til 2001 þegar hann hóf
störf hjá Seðlabanka Íslands og starfar nú á
alþjóðasviði bankans. Frá 1999 hefur Haukur
gegnt lektorsstöðu við HÍ.
Haukur er kvæntur Hjördísi Sigurðardóttur
rafmagnsverkfræðingi og eiga þau tvo syni.
ASTMA- og umhverfisþættir er
yfirskrift fræðslufundar sem
Astma- og ofnæmisfélagið stend-
ur fyrir í dag, þriðjudaginn 14.
febrúar, kl. 20, í húsakynnum
SÍBS í Síðumúla 6. Þar flytur
Sigurður Þór Sigurðarson, sér-
fræðingur í lungnasjúkdómum,
erindi um astmavalda í umhverfi
okkar og svarar fyrirspurnum.
Sigurður Þór stundaði sér-
fræðinám í lungnasjúkdómum við
háskólann í Iowa í Bandaríkj-
unum.
Fundurinn er öllum opinn.
Fundur um astma-
og ofnæmisþætti
Þriðja leiðin.
Norður
♠ÁG9
♥G104
♦KD7532
♣7
Suður
♠D105
♥ÁK
♦G10
♣ÁK6543
Suður spilar þrjú grönd. Vestur
kemur út með smátt hjarta, sem suð-
ur tekur og spilar gosa og tíu í tígli.
Þá kemur í ljós að vestur á einspil
(og kastar spaða), en austur ásinn
fjórða. Austur dúkkar, auðvitað, svo
nú er spurningin: Á að svína í spað-
anum eða treysta á 3-3 legu í laufi?
Jöfn lauflega er á móti líkum (36%),
svo svíning í spaða er skárri kostur.
En eins og legan er, skiptir litlu máli
hvor leiðin verður fyrir valinu – aust-
ur á spaðakóng og laufið brotnar
ekki:
Norður
♠ÁG9
♥G104
♦KD7532
♣7
Vestur Austur
♠843 ♠K762
♥D8652 ♥973
♦6 ♦Á984
♣DG92 ♣108
Suður
♠D105
♥ÁK
♦G10
♣ÁK6543
Þriðja leiðin er til og hún er langbest:
Sagnhafi spilar spaðadrottningu, en
yfirdrepur með ás þegar vestur sýnir
engin viðbrögð. Spilar svo tígulkóng
og hendir háhjarta heima! Þá er allt í
góðum gír. Ef vörnin sækir hjartað
áfram verður gosinn innkoma á tíg-
ulinn, en annars má brjóta sér leið
inn í borð á spaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is