Morgunblaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.02.2006, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn hefur lagt sitt af mörkum í skotgröfum ástarinnar og uppsker nú árangur erfiðisins. Himintunglin gefa honum tækifæri til þess að sletta úr klaufunum á degi Valentínusar. Naut (20. apríl - 20. maí)  Sumir líta á ástina sem leik, aðrir líta á hana sem dans. Í augum nautsins er hún eins og jafna sem þarf að leysa. Vísindalegt viðhorf þess gefur því fleiri valmöguleika. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Að fara á stefnumót er tækifæri til þess að eiga samskipti. Það er ekki próf eða leikur sem maður þarf að reyna að vinna. Slakaðu á svo þú getir lyft þér upp. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Maður getur opnað augun til þess að njóta fegurðar umhverfisins, hið sama gildir um hjartað sem opnar sig fyrir sælutilfinningum. Að vera nálægt ein- hverjum hjartfólgnum spillir ekki fyr- ir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Himintunglin draga veikleika fram í dagsljósið. Ástin krefst þess og á end- anum brestur hjartað. Ljónsmerkið er reyndar tengt hjartanu og veit að það á ekki að óttast. Örin styrkja. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan er til í að deila lífi sínu með einhverjum. Það gildir líka um þá sem hafa verið í parsambandi um heila ei- lífð. Allir eiga sér hliðar sem þeir halda leyndum og fyrir sig. Meyjan sýnir eina slíka í dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hvers vegna er haft á orði að allt sé leyfilegt í ástum og stríði, þegar það er augljóslega ekki rétt? Sanngirni er sanngirni, burtséð frá tilefninu. Þú ætlast til hins besta af ástvinunum og það er gagnkvæmt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sambönd sem líta vel út á papp- írunum en smella ekki eru álíka dýr- mæt og pappírinn sem þau eru sögð líta vel út á. Samspil, eðlishvöt og hjartalag eru málið. Annað er auka- atriði. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn er hvað sterkastur þeg- ar hann er ástfanginn. Trúðu því! Ást- vinir þínir auka bara á styrkleika þinn, staðfestu og kraft. Þannig er það, nema þér finnist ástin draga úr þér mátt. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki hafa áhyggjur af rómantíkinni. Fagnaðu komu hennar. Kannski finnst steingeitinni það bara út í hött, en svo er alls ekki. Rómantík er áfangastaður sem maður ákveður og kemst til, með hliðsjón af því sem maður velur sér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Dagurinn kemur vatnsberanum á óvart. Fólkið sem hann á von á send- ingu frá er ekki það eina sem lætur til sín taka. Hann er í meiri metum en hann áttar sig á. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Samvinna við félaga færir fisknum heppni. Rómantískar hneigðir láta á sér kræla um leið og hugmyndafund- inum lýkur. Einhleypir í ástarleit komast að því að bókasöfn og bóka- búðir taka næturlífinu fram. Stjörnuspá Holiday Mathis Venus, pláneta ástar, blikkar Júpíter á degi elsk- endanna, er hún kannski að fara á fjör- urnar við hann? Tungl í meyju ýtir undir nákvæma sundurgreiningu á því sem er á seyði í einkalífinu, og eykur hættuna á því að fólk einblíni á smá- atriði. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 gerðarleg, 8 reikar, 9 pésa, 10 starf, 11 froða, 13 tómar, 15 lít- ils skips, 18 klöpp, 21 frostskemmd, 22 pjatla, 23 ávinnur sér, 24 bundin eiði. Lóðrétt | 2 gretta, 3 skepnan, 4 rás, 5 kven- kynfruman, 6 farandk- villi, 7 hæðir, 12 ótta, 14 reyfi, 15 gleði, 16 gæs- arsteggur, 17 virki, 18 ferma, 19 styrkti, 20 fæða. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hamra, 4 hamli, 7 lifur, 8 lokki, 9 sút, 11 aumt, 13 frán, 14 örlar, 15 hníf, 17 úrar, 20 smá, 22 létta, 23 metum, 24 róast, 25 nárar. Lóðrétt: 1 halla, 2 máfum, 3 aurs, 4 holt, 5 mokar, 6 ið- inn, 10 útlim, 12 töf, 13 frú, 15 halur, 16 ístra, 18 ritur, 19 rómar, 20 satt, 21 áman.   Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Myndlist 101 gallery | Ásmundur Ásmundsson. Til 25. feb. Artótek Grófarhúsi | Valgerður Hauks- dóttir myndlistarmaður til 19. febrúar. BANANANANAS | Finnur Arnar Arn- arson til 18. febrúar. Energia | Erla M. Alexandersdóttir sýnir akríl- og olíumálverk. Út febrúar. Gallerí Fold | Málverkasýning Huldu Vil- hjálmsdóttur – Náttúrusköp – the nature shape in creation. Til 19. febrúar. Gallerí Kolbrúnar Kjarval | Sigrid Østerby sýnir myndverk tengd sömum til 22. febr.. Gallerí Sævars Karls | Jónas Viðar Sveinsson sýnir málverk til 23. febrúar. Gallerí Úlfur | Sýning Ásgeirs Lárussonar út febrúar. Hrafnista, Hafnarfirði | Sjö málarar frá Félagsmiðstöðinni Gerðubergi sýna í Menningarsal til 21. mars. Jónas Viðar Gallerí | Stefán Jónsson sýnir höggmyndir til 26. febrúar. Kaffi Mílanó | Erla Magna Alexand- ersdóttir sýnir olíu- og akrílmyndir út febr. Karólína Restaurant | Óli G. með sýn- inguna Týnda fiðrildið til loka apríl. Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Ingibjörg Jónsdóttir – Fínofnar himnur og þulur um tímann. Gryfja: Guðrún Marinósdóttir – Einskonar gróður. Arinstofa: Vigdís Krist- jánsdóttir – Myndvefnaður. Opið alla daga nema mánudaga kl. 13–17. Til 5. mars Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn- ing. Listasafnið á Akureyri | Svavar Guðna- son, Carl-Henning Pedersen, Sigurjón Ólafsson og Else Alfelt. Til 25. febr. Listasafn Reykjanesbæjar | Guðrún Ein- arsdóttir Til 5. mars. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Gabríela Friðriksdóttir, Feneyjaverkið. Kristín Eyfells. Til 26. feb. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæðingu málarans. Til 19. mars. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið. Jóna Þorvaldsdóttir. Til 22. feb. Thorvaldsen | Bjarni Helgason – Ostr- anenie – sjónræna tónræna – til 3. mars. Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís- lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljósmyndir Marcos Paoluzzo og ljós- myndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20. febrúar. Söfn Aurum | Þorgeir Frímann Óðinsson, fjöl- listamaður sýnir verk úr myndaröðinni Vigdís til 17. febrúar. Bæjarbókasafn Ölfuss | Sýning á teikn- ingum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, sem hann gerði er hann var í verbúð í Þorlákshöfn á árunum 1913–1915. Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins í Duus húsum Sagt er frá tímabilinu 1969 til 1979 í máli og myndum. Rifjuð upp tísk- an og tíðarandinn. Opið kl. 13–18.30 til 1. apríl. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Myndirnar á sýningunni Móðir Jörð gefa óhefð- bundna og nýstárlega sýn á íslenskt landslag þar sem markmiðið er að fanga ákveðna stemmningu fremur en ákveðna staði. Skotið er nýr sýningarkostur hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og er mynd- um varpað á vegg úr myndvarpa. Minjasafn Austurlands | Endurnýjun á sýningum stendur yfir. Ný grunnsýning opnuð 1. maí nk. Þjóðmenningarhúsið | Fræðist um fjöl- breytt efni á sýningunum Handritin, Þjóð- minjasafnið – svona var það, Fyrirheitna landið og Mozart-óperan á Íslandi. Njótið myndlistar og ljúfra veitinga í veit- ingastofunni. Leiðsögn í boði fyrir hópa. Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru ný- stárlegar og vandaðar sýningar auk safn- búðar og kaffihúss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Bækur Iða | Þórarinn Eldjárn les upp úr verkum sínum í Iðu á 54. Skáldaspírukvöldi. Þetta verður notaleg stund með Þórarni, gestir mega taka með sér hressingu af annarri hæðinni og boðið verður upp á umræður og létt spjall með hinu ástsæla skáldi. Fyrirlestrar og fundir Alþjóðahúsið | Tveir fulltrúar frá Rauða kross-deild Gambíu halda fyrirlestur á ensku á vegum Afríka 20.20 um starfs- umhverfi Rauða krossins/hálfmánans í Gambíu sem óháðra félagasamtaka (NGO) í V-Afríku. Fyrirlesturinn er í dag kl. 20 í Alþjóðahúsinu, 1. hæð t.v., Hverfisgötu 18. ITC-Harpa | Fundur kl. 20, á þriðju hæð í Borgartúni 22. Gestir velkomnir. Nánar á itcharpa@hotmail.com heimasíða http:// www.simnet.is/itc og í síma 6617250. Landakot | Fræðslunefnd Rannsóknastofu í öldrunarfræðum, RHLÖ, heldur fræðslu- fund 16. feb. kl. 15, í kennslusalnum á 6. hæð á Landakoti. Lovísa Einarsdóttir, íþróttakennari og samskiptafulltrúi Hrafn- istu, Hafnarfirði, fjallar um grunnæfingar í Tai Chi fyrir eldri borgara. Sent verður út með fjarfundabúnaði. OA-samtökin | OA karlafundur í Tjarna- götu 20 (Gula húsinu) kl. 21–22. OA er fé- lagsskapur karla og kvenna sem hittast til að finna lausn á sameiginlegum vanda – hömlulausu ofáti. www.oa.is ReykjavíkurAkademían | Þorvaldur Krist- insson, fyrrum formaður Samtakanna ’78, fjallar um hvaða merkingu fjölskyldan hef- ur í lífi hins samkynhneigða, og spyr hvor hún efli vald hans eða veiki. Er fjölskyldan styrkur hans eða byrði? Erindið byggist á rannsókn höfundar, og er haldið kl. 20. Sjá www.akademia.is/MI. Styrkur | Styrkur er með opið hús kl. 20 í Skógarhlíð 8, 4. hæð. Magnea S. Ingi- mundardóttir, þekkingarstjóri hjá Nýherja, talar um líf og viðhorf þeirra sem greinast með krabbamein og Hólmfríður Friðriks- dóttir sýnir myndir úr starfi Styrks. Kaffi og allir velkomnir. Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Örn Daníel Jónsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, flytur erindið „Frumkvæði og greinabundin þró- un“ í málstofu Hagfræðistofnunar og Við- skiptafræðistofnunar 15. febrúar, kl. 12.20. Málstofan er haldin í Odda, stofu 101 og er öllum opin. Nánari á www.vidskipti.hi.is Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Ís- lands mun í haust bjóða í fyrsta sinn upp á meistaranám í fjármálahagfræði sem lýkur með prófgráðunni MS í hagfræði. 15. febrúar kl. 16 verður kynning á náminu í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, stofu 132. Nánari á www.vidskipti.hi.is. Þjónustumiðstöð Laugardals og Háa- leitis | Þjónustumiðstöðin stendur fyrir fundi í þjónustumiðstöðinni Hæðargarði 31, kl. 14–16, þar sem forvarnarstefna Reykjavíkurborgar verður kynnt og nið- urstöður rannsókna og greiningar á vímu- efnaneyslu nemenda í 9. og 10. bekk í grunnskólum hverfanna. Fréttir og tilkynningar Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti matvælum, fatnaði og leikföngum alla miðvikudaga kl. 13–17. Úthlutun matvæla er alla miðvikudaga kl. 15–17 í Eskihlíð 2–4 v/Miklatorg. Skuld á Rósenberg | Dyslexíufélagið Skuld heldur stofnfund um verðandi há- skólafélag. Fundurinn verður 16. feb. kl. 20, á Kaffi Rósenberg og hefst með kvöldverði þar sem gefst tækifæri á að ræða sýn félagsins og almenn stofnfund- arstörf. Frístundir og námskeið Hótel Selfoss | Miðbæjarfélagi á Selfossi heldur borgarafundi um miðbæjarskipulag á Selfossi kl. 20, á Hótel Selfossi. Á fund- inum munu sérfræðingar um skipulags- og umhverfismál halda erindi. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.