Morgunblaðið - 14.02.2006, Side 37

Morgunblaðið - 14.02.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 37 MENNING Auglýsendur! Þið eigið stefnumót við áhugavert fólk - lesendur Tímarits Morgunblaðsins. Tímarit Morgunblaðsins er mest lesna tímaritið í áskrift á Íslandi. Því er dreift í 60 þúsund eintökum með sunnudagsblaði Morgunblaðsins til lesenda um land allt. Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Sigurðardóttir í síma 569 1378 eða sigruns@mbl.is, og Bylgja Björk Sigþórsdóttir í síma 569 1142 eða bylgjabjork@mbl.is FJÖLMENNASTA aðsóknin að at- burðum MM utan Háskólabíós sást líklega á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur á sunnudag, eða á að gizka 300 manns. Og í fyrsta sinn á hátíðinni sá maður að ráði áheyr- endur á ríflega miðjum aldri. Fóru þeir vel saman við elzta verk kvölds- ins frá 1960 og minntu á að jafnvel yngsti módernismi Norðurlanda, sá íslenzki, er tekinn að reskjast. Hann kom út hingað skömmu eftir vagg og veltu, enda er nú stutt í að fyrstu Presley-aðdáendur fari að setjast í helgan stein. Tíminn líður vissulega hratt á gervihnattaöld. Fyrstu þrjú atriðin voru fyrir strengjakvartett er skipuðu Rut Ingólfsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Hrafnkell Orri Egilsson. Upphafs- verkið átti Karólína Eiríksdóttir og nefndist Sex lög [9’], samið 1983 fyr- ir sænska Berwald-kvartettinn og líkt og „smámunir“ Atla Heimis Sveinssonar næst á eftir röð míníat- úra, allt niður í hálfrar mínútu lengd. Lögin voru skemmtileg áheyrnar enda innblásin af ferskri andagift, og bætti frískleg spilamennska enn um betur. Þótt býsna ólík væru að andrúmi, tengdust þau saman að a.m.k. einu leyti, nefnilega með meira eða minna stílfærðum „fugla- söng“ í anda Messiaens, er brá fyrir í öllum sex þáttum. Litlu ólíkari innbyrðis voru Sjö smámunir Atla Heimis frá 1960 [6’], þó að heildarsvipurinn bæri óneit- anlega tilurðartímans merki. Var samt athyglisvert hvað margt hafði elzt vel og viðhaldið stæltum æsku- frjóleika á tæpri hálfri öld, jafnvel þótt eitthvað kunni að hafa verið endurskoðað. Ekki var síður skemmtilegt að kenna rómantíska æðarsláttinn innst við bein unga framherjans, eins og gleggst kom fram í 3. bagatellunni. Hinn meistaralegi en stutti tví- þætti Þriðji strengjakvartett Leifs Þórarinssonar frá 1992 [10’] var frá hefðbundnum sjónarhóli séð aðeins hálft verk og má því vel harma að þættirnir urðu ekki fleiri, þó að það sem náði að líta dagsins ljós hafi að vísu verið afar þétt skrifað – og með öguðum klassískum undirtóni. Líkt og í fyrri verkum lék kvartetthópur Kammersveitarinnar af þróttmikilli innlifun, er bætti talsvert fyrir sum- ar hryndeigar innkomur á hvössustu stöðum. Bernharður Wilkinson hélt eftir hlé utan um tvö frumfluttu verk kvöldsins fyrir stærri hljóðfærahópa af alkunnri natni. Fyrst var verk fyrir flautu, alt-sax, bassaklarínett, 2 slagverkara (þ.á m. á víbrafón), pí- anó, strengjakvartett og kontra- bassa eftir æskuforseta höfunda, Þuríði Jónsdóttur, er nefndist „Hræddur í fótunum“ [8’] og vitnaði í skondin ummæli sonar hennar und- ir svefninn. Í mínum eyrum frekar sundurlaus smíð ef ekki beinlínis ka- ótísk, en lýsti á hinn bóginn ágæt- lega barnslegri martröð – hafi það verið meiningin, sem ekki er víst. Loks var frumfluttur konsert fyr- ir óbó og kammersveit (fyrrnefnda áhöfn en með klarínett, horn og bas- saklarínett í blásaraliði auk pákna) í einum þætti eftir John A. Speight er hann nefndi Cantus [16’]. Latneska orðið þýðir söngur, og mátti til sanns vegar færa að óbóið fékk víða að syngja fagurlega, þó einnig reyndi talsvert á fjöltyngda hraðtækni er Daði Kolbeinsson skilaði af óþving- aðri fagmennsku. Unaðsseimur óbósins hefur löngum þótt meðal erkiíhljóða náttúrusælu, og kom því ekki á óvart iðjagræn „pastoral“- stemning upphafsins, þótt fljótlega yrði brotin upp með háskafullu óviðri er síðan rauf blíðari kafla verksins með mismunandi löngum millibilum. Helzt sat eftir í minni kyrrlát örkadenza Daða í síðari hluta (á und- an aðalkadenzunni í bláenda), er studd var ævintýralegu klingi úr slagverki og píanói. Að öðru leyti fór frekar lítið fyrir bráðsmitandi frjó- leika í meðferð rytma, hljóma og lag- ferlis, þó að verkið virtist almennt hafa verið hið bezta flutt. Banginn í tásum TÓNLIST Ýmir Karólína Eiríksdóttir: 6 lög (1983). Atli Heimir Sveinsson: Sjö smámunir (1960). Leifur Þórarinsson: Strengjakvartett nr. 3 (1992). Þuríður Jónsdóttir: „Hræddur í fótunum“ (frumfl.). John Speight: Cant- us* (frumfl.). Daði Kolbeinsson óbó* og Kammersveit Reykjavíkur. Stjórnandi: Bernharður Wilkinsson. Sunnudaginn 12. febrúar kl. 20. Myrkir músíkdagar Ríkarður Ö. Pálsson ÁGÆTIS aðsókn var að gítartón- leikum MM í Norræna húsinu á laugardag um undornsleytið. Skv. enskuritaðri tónleikaskrá kom ein- leikarinn, hinn 48 ára Sergio Pucc- ini, alla leið frá Argentínu, þar sem hann mun vera deildarforseti tón- listarháskólans í Rosario. Viðfangs- efnin voru blanda af eldra og nýrra efni og hófust með Le Tombeau de Debussy frá 1920 eftir spænska tón- skáldið Manuel de Falla; stutt verk en fágað og spilað í samræmi við það. Annars urðu nokkur uppbrot á dagskránni – tvö verk féllu niður en önnur tvö komu í staðinn, auk þess sem röðinni var breytt – að því er gítaristinn kynnti sjálfur. Því miður lágum rómi, sem ásamt spænskuleit- um enskumálhreim gerði að verkum að eftirfarandi er sett fram með fyr- irvara um hugsanlega misheyrn. Þá reyndist ekki unnt að ganga nánar úr skugga um nafn og höfund 6. at- riðis í tæka tíð áður en undirr. þurfti að hendast á næstu tónleika dagsins, og var það því bagalegra sem verkið var eitt hið skemmtilegasta á pró- gramminu. Um fjölbreytniskort þurfti annars ekki að kvarta, hvorki að stíl né til- finningalegu inntaki. Elogio de la Danza og Lento-Ostinato Kúbverj- ans Leos Brouwers runnu ljúflega niður, og þeirra á milli alkunn ný- klassísk Prelúdía nr. 1 eftir Villa- Lobos. Síðan frumflutti Puccini h.u.b. 12 mín. langt þríþætt verk eft- ir Karólínu Eiríksdóttur er hún samdi í fyrra að beiðni hans og nefndi Within the Circle I-II-III. Ekkert var sagt frá neinu verki í tónleikaskrá og því á huldu hvað a.m.k. höfundur legði sjálfur í tit- ilinn. Verkið virkaði í fyrstu tveim þáttum frekar innhverft – einkum í hæga milliþættinum, þó á móti vægi festuaukandi þriggja tóna þrábas- sastef (stundum tónbreytt) – en skartaði síðan leiftrandi rapsód- ískum tónarunum í lokaþættinum í stuttum gusum, þó sjaldan yrði vart við rytmískan púls. Puccini túlkaði þessa afströktu medítasjón Karólínu af músíkalskri vandvirkni, jafnvel þótt vottaði aðeins fyrir stirðleika á kröfuhörðustu sprettum lokaþátt- arins. Nokkuð svipsterkt þríþætt verk eftir Bandaríkjamanninn Manly Ro- mero, Self Portrait frá 2005 er hér var frumflutt kom næst á eftir; ep- ísódískt í I., stundum hvassara í II. og púlsrytmískt snertlukennt í III., er hófst með fallegum flaututónum. Þá kom fyrrnefnt 6. atriði, er leiddi úr fírugu upphafi í syngjandi tónalan miðkafla og loks í 3⁄2 þjóðlegan göngudans. Hverrar þjóðar greind- ist sem sagt ekki úr kynningu, en eftir smitandi túlkun Puccinis hefði maður verið þess albúinn að rjúka í næstu plötubúð, hefði aðeins verið ljóst um hvaða verk var að ræða, og eftir hvern. Næst var frumflutt á Íslandi þrí- þætt Gítarsónata eftir Spánverjann José Buenagu (f. 1936) frá 1968; tok- kötuleg i útþáttum en nk. epísódísk kvöldlokka í II. Fínallinn („Bár- baro“) var afar krefjandi og takt- skiptin tíð, enda stóðst tiltæk fingra- lipurð spilarans ekki öllu fullan snúning. Loks voru leiknir tveir þættir úr Sónötu Op. 47 eftir landa gítaristans Alberto Ginastera (1916– 83) er jós úr þjóðlegri arfleifð gauc- hoa og málaði fyrst kyrrláta næt- urstemmningu á pömpunni en síðan rytmískan kúrekadans, hvort tveggja í prýðilegri útfærslu, þó að hér sem fyrr væri allt spilað eftir nótnablaði. Með fágaðri yfirvegun TÓNLIST Norræna húsið Verk eftir de Falla, Brouwer, Ponce, Ro- mero, Buenagu, Cáceres og Ginastera. Karólína Eiríksdóttir: Within the Circle I- II-III (frumfl.). Sergio Puccini gítar. Laug- ardaginn 11. janúar kl. 15. Myrkir músíkdagar Ríkarður Ö. Pálsson „ÞAÐ kemur fyrir að ég sendi vinum mínum litlar melódíur,“ segir Atli Heimir Sveinsson, sem er höfundur allra verkanna á næstu Háskóla- tónleikum. Tónleikarnir verða að vanda í Norræna húsinu á morgun, og hefjast kl. 12.30. Á tónleikunum syngur Bergþór Pálsson lög eftir Atla við meðleik tónskáldsins, en í einu þeirra leikur Elísabet Waage með á hörpu. „Þetta er því svolítill vinaspegill,“ segir Atli um lögin sín. „Þarna er lag sem ég gerði fyrir frænku mína, Jónínu Benediktsdóttur. Ljóðið er Svolítil órækt, eftir Þuríði Guð- mundsdóttur, sem yrkir svo fallega texta. Þarna er líka Vögguvísa eftir Steingrím Thorsteinsson, óskaplega fallegt kvæði, og Haust eftir Krist- ján Jónsson fjallaskáld. Við þessi ljóð og fleiri hef ég gert lög sem hafa farið til vina og kunningja. Ave Maria er með hörpuleik, en það var flutt við messu í Landakoti og gert fyrir Gunnar Eyjólfsson sem er guð- faðir minn í katólskunni. Það er því líka vinaspegill,“ segir Atli. Síðustu þrjú lögin á tónleikunum eru minning um vin Atla Heimis, Þorstein heitinn Gylfason, og öll tengjast þau Þorsteini beint. „Ég samdi lagið, Það kom söngfugl að sunnan við kvæði sem hann þýddi. Annað heitir, Af hreinu hjarta, og það sendi ég honum einhvern tíma á afmælisdag. Á því er svolítill óper- ettustíll frá Búdapest. Það síðasta er Tittlingsminning við ljóð Jóns Þor- lákssonar á Bægisá, en það var sam- ið að áeggjan Þorsteins,“ segir Atli Heimir. „Það tókum við einhvern tíma á þýðingakvöldi í Þjóðleik- húskjallaranum og lagið er skop- stæling á Bach og Händel við þenn- an sérkennilega skemmtilega texta.“ Lögin er flest frá síðustu árum að sögn Atla Heimis, fyrri hlutinn í al- varlegum dúr, en endar í dálitlum ærslum. Atli Heimir hefur lengi samið sönglög, en kveðst þó gera meira af því í seinni tíð. Og lögin eru mismun- andi. „Í fyrstu lögunum, sem eru al- varlegri, er til dæmis algjört jafn- ræði með rödd og píanói. Á sínum tíma gerði ég lög í gömlum stíl – fyr- ir Tónlistarskólann í Reykjavík, Ljóðakorn fyrir Göggu Lund og fleira. Þá komu Jónasarlögin, og margt hef ég samið fyrir leikhúsið. Ég hef líka farið í metnaðarfyllri lagasmíðar.“ Það er skáldskapurinn sem kveik- ir neista Atla Heimis til sönglaga- smíði. „Ég hef alltaf lesið ljóð, og fylgist með ljóðagerð. Ljóðið er ekki ýkja mikill fjölmiðlamatur en margt samt að gerast í okkar ljóðagerð. Ljóð hafa aldrei orðið metsölu- bækur, en eiga sennilega nokkuð góðan hóp eins og nútímatónlistin.“ Tónlist | Sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson Svolítill vinaspegill Morgunblaðið/SverrirAtli Heimir Sveinsson og Bergþór Pálsson. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.