Morgunblaðið - 14.02.2006, Síða 39
M YKKUR HENTAR ****
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is
walk the line
STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND UM ÆVI JOHNNY CASH.
BESTA MYND ÁRSINS, BESTI
LEIKARI OG LEIKKONA ÁRSINS
V.J.V Topp5.is
S.V. Mbl.
M.M.J Kvikmyndir.com
F
U
N
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR
ÞEGAR RÖÐIN KEMUR
AÐ ÞÉR ÞÁ FLÝRÐU EKKI
F
U
N
Sýnd kl. 6 og 8 Sýnd kl. 10 B.i. 16Sýnd kl. 8
ÆVINTÝRIÐ ER RÉTT AÐ BYRJA!
Sýnd kl. 6 Ísl. tal - B.i. 10 ára
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
VINSÆLASTA MYNDIN
á Íslandi í dag!
eee
DÖJ – kvikmyndir.com
Epískt meistarverk frá Ang Lee
eeeee
L.I.B. - Topp5.is
Sími - 551 9000
MRS HENDERSSON kl. 5.45, 8 og 10.15
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 9
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6 SÍÐUSTU SÝNINGAR B.I. 14 ÁRA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 39
Að gera góða auglýsingu betri
Morgunblaðið býður hönnuðum upp á námskeið þar sem farið verður yfir
helstu tæknilegu þætti þess hvernig hægt er að gera góða auglýsingu betri.
Meðal þess sem farið verður yfir er:
● Að velja liti í Morgunblaðið, auk blaða sem eru prentuð
á 60 gr pappír.
● Stillingu tölvuskjáa og gerð skjá- og prentprófíla.
● Að setja upp Photoshop forritið þannig að það henti
vinnslu fyrir Morgunblaðið.
● Notkun prófíla.
● Helstu atriði í myndvinnslu og nýjungar í Photoshop.
● Gerð prófarka, þannig að þær endurspegli endanlega útkomu.
● Gerð pdf skráa.
● Sendingu auglýsinga til Morgunblaðsins.
● Margháttaðir möguleikar með tilkomu nýju prentvélarinnar.
Um er að ræða fjögur hálfs dags námskeið, sem standa munu yfir frá
kl. 13:15 til kl. 17:00, í Morgunblaðshúsinu í Kringlunni 1, og eru ókeypis.
Þátttakendur geta valið milli fjögurra dagsetninga, 21., 23. og 28.
febrúar eða 2. mars.
Auk þess verður heimsókn kl. 14:00 í prentsmiðju blaðsins við
Hádegismóa föstudaginn 24. febrúar fyrir þátttakendur í tveimur fyrstu
námskeiðunum, en 3. mars fyrir þátttakendur í tveimur seinni
námskeiðunum.
Leiðbeinendur verða Ólafur Brynjólfsson og Snorri Guðjónsson.
Heimsókn í prentsmiðju munu þau Helga F. Edwardsdóttir,
Stefán Stefánsson og Sölvi Ólafsson sjá um.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku til auglýsingadeildar Morgunblaðsins í
netfang namskeid@mbl.is, þar sem fram kemur nafn, símanúmer,
vinnustaður eða skóli og hvaða dagur hentar best.
FYRIR HÖNNUÐI AUGLÝSINGA
UNNUR Birna Vilhjálmsdóttir feg-
urðardrottning er nýkomin frá Pól-
landi þar sem hún var í sinni fyrstu
opinberu heimsókn sem ungfrú
heimur en þar mun næsta keppni
um fegurstu konu heims einmitt
fara fram. Unnur Birna segir að
heimsóknin hafi fengið gríðarlega
athygli en til marks um það má
nefna að um 200 blaðamenn voru
þar samankomnir til að gera grein
fyrir heimsókn Unnar Birnu og
hófst undirbúningur heimsókn-
arinnar þremur dögum áður í Lond-
on.
Unnur Birna mun sem áður halda
úti dagbók á Fólksvef mbl.is en
fram undan eru mikil ferðalög og
því viðbúið að hún hafi frá mörgu
forvitnilegu að segja. Næst á dag-
skrá Unnar Birnu eru tvær stuttar
ferðir til London, heimsókn til
Bandaríkjanna, nánar tiltekið Chi-
cago og þá fer hún til Grikklands
um miðjan mars. Í apríl leggur hún
svo upp í stærðarinnar ferðalag um
Asíu en frá öllu þessu verður nánar
sagt á bloggsvæði Unnar Birnu auk
þess sem hún hyggst reglulega
birta myndir frá ferðalögum sínum.
Nýjustu færslu Unnar Birnu má
nú lesa á Fólksvef mbl.is.
Fólk | Unnur Birna bloggar á ný á mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Unnur Birna og Jón Agnar á markaðsdeild Morgunblaðsins handsala dagbókarsamninginn.
Mikil ferðalög
fram undan
Söngkonan Björk Guðmunds-dóttir er nýlega komin heim til
New York eftir að hafa heimsótt
Banda Aceh, nyrstu borgina á Súm-
ötru í Indónesíu, þar sem hún kynnti
sér verkefni og uppbyggingarstarf
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna
eftir flóðbylgjuna sem skall á strönd-
um landanna við Indlandshaf fyrir
rúmu ári. Björk var tvo daga í borg-
inni, en leiðsögumaður hennar um
borgina var kona sem missti bæði
móður sína og bróður í hamförunum.
Í samtali við breska blaðið The
Guardian sagði Björk frá kynnum
sínum af konunni. „Hún var mjög
hress í upphafi, fór með okkur um
allt, túlkaði fyrir okkur og hló mikið.
Það var svo rétt áður en við fórum út
á flugvöll að hún fór með okkur að
því sem eftir var af hennar eigin
húsi. Húsið hafði algjörlega horfið af
yfirborði jarðar og það eina sem var
eftir af því voru gólfflísarnar. Þarna
fann konan gamlan kjól af móður
sinni sem lá í rústunum, og brotnaði
algjörlega niður. Það var mjög erfitt
að horfa upp á það vegna þess að við
vorum farin að þekkja hana nokkuð
vel. Þetta var ansi mikið að meðtaka
á einungis tveimur dögum,“ sagði
Björk.
Björk fór í heimsóknina í kjölfar
þess að hún gaf út sérstakan geisla-
disk með endurhljóðblöndunum af
laginu Army of me í byrjun maí á
síðasta ári, en allur ágóði af disk-
inum rann til neyðaraðgerða UNI-
CEF um allan heim.
Leikstjórinn og eiginmaður Mad-onnu, Guy Ritchie, blæs á
sögusagnir þess efnis að illa gangi í
hjónabandinu, en oðrómur var uppi
um að Ritchie væri æfur vegna þess
hve miklum tíma Madonna eyddi
með upptökustjóranum Stuart
Price. Orðróm-
urinn fékk byr í
seglin í síðustu
viku þegar Ritc-
hie fylgdi ekki
eiginkonu sinni á
Grammy-verð-
launin þar sem
Madonna kom
fram með teikni-
myndabandinu
Gorillaz. Nú hef-
ur Ritchie hins
vegar útskýrt að ástæðan fyrir því
hefði verið sú, að hann hefði þurft að
passa tvö börn hjónanna, Rocco og
Lourdes.
„Ég varð að passa börnin. Hún
[Madonna] var ekki að taka á móti
verðlaunum en það var henni mik-
ilvægt að vera viðstödd.“ Madonna
hefur einnig látið orðróm um erfið-
leikana sem vind um eyru þjóta og
sagði meðal annars í viðtali á dög-
unum að Ritchie hringdi í hana á
fimm mínútna fresti þegar þau eru
aðskilin. „Við erum mjög upptekin
bæði tvö, en tvær vikur er það mesta
sem við höfum verið í sitt hvoru lagi
og það var fyrir fimm árum.“
Fólk folk@mbl.is