Morgunblaðið - 19.02.2006, Side 6

Morgunblaðið - 19.02.2006, Side 6
6 C SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Bílaryðvörn Óskum eftir að ráða góðan og duglegan starfs- kraft í ryðvarnarstöð okkar. Bílahöllin-bílaryðvörn hf. Jón Ragnarsson — 664 8090. Ráðgjafi í samþættingu upplýsingakerfa Óskum eftir kröftugum sérfræðingi til að sinna ráðgjöf og verkefnastjórnun fyrir samþættingu upplýsingakerfa. Viðkomandi mun vera ábyrgur fyrir greiningu og ráðgjöf í samþættingu upplýsingakerfa til viðskiptavina og mun taka virkan þátt í stefnumótun og þróun lausna félagsins á þessu sviði. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt. • Minnst þriggja ára reynsla í ráðgjöf og verkefnastjórnun nauðsynleg. • Reynsla og þekking af samþættingarverkefnum nauðsynleg. • Reynsla og innsýn á forritun í samþættingu er kostur. • Sjálfstæði, ábyrgð og skipulögð vinnubrögð. Sérfræðingur netkerfa Leitum að framúrskarandi sérfræðingi í hönnun netkerfa. Auk ráðgjafar til viðskiptavina Nýherja mun viðkomandi annast verkefnastjórnun á uppsetningu og þjónustu á netbúnaði. Viðkomandi mun einnig taka þátt í að kynna nýjar lausnir fyrir viðskiptavinum. Hæfniskröfur: • Lágmark CCNA eða CCDA. • Reynsla af uppsetningu og rekstri netkerfa. • Háskólamenntun á sviði tæknifræði, verkfræði eða tölvunarfræði æskileg. • Góð mannleg samskipti, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð. Nýherji leitar eftir að ráða kraftmikla og heilsteypta einstaklinga, en fyrirtækið byggir á langri hefð í sérfræðiþjónustu við öflugustu fyrirtæki landsins. Við kappkostum að skapa frjótt umhverfi fyrir okkar starfsfólk og sækjumst aðeins eftir að ráða hæfileikaríka og vel menntaða einstaklinga. Við höfum jafnframt lagt metnað okkar í að fjárfesta markvisst í þekkingu starfsmanna með það að leiðarljósi að búa ávallt yfir dýpstu þekkingunni á þeim sviðum sem við keppum. Frjótt umhverfi fyrir sérfræðinga ATVINNA Krefjandi störf hjá kröftugu fyrirtæki Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda umsókn til Sturlu J. Hreinssonar, starfsmannastjóra Nýherja, sturla.j.hreinsson@nyherji.is, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Umsækjendur geta einnig haft beint samband við starfsmannastjóra í síma 569 7719 alla virka daga á milli 13:00 og 13:30. Læknir Starf læknis við líknardeildina í Kópavogi er laust til umsóknar. Starfið er tímabundið og veitist það frá 1. apríl 2006. Starfshlut- fall eftir samkomulagi. Sérfræðiviðurkenning í þeim sérgreinum sem mikilvægar eru í líknarmeðferð, svo sem lyflækningum, heimilislækningum eða krabbameinslækningum, er æskileg en einnig kemur til álita að ráða áhugasaman deildarlækni. Starfið fer fram á líknardeildinni í Kópavogi og í heimaþjónustu við þennan sjúklingahóp. Möguleikar eru á þátttöku í vísindavinnu. Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum eyðublöðum, fylgi vottfestar upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsóknargögn berist í tvíriti fyrir 6. mars nk. til Valgerðar Sig- urðardóttur, yfirlæknis líknardeildar LSH í Kópavogi, og veitir hún jafnframt upplýsingar í síma 543-6337, netfangið er val- gersi@landspitali.is. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim. Laun eru skv. kjarasamningi sjúkrahúslækna og er starfið bundið við sjúkrahúsið eingöngu, sbr. yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings við sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002. Hægt er að nálgast umsókn um lækn- ingaleyfi eða læknisstöðu á heimasíðu LSH. Tekið er mið af jafnréttis- stefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður. Hjúkrunardeildarstjóri óskast á skurðdeild 12CD á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði við Hringbraut. Staðan veitist frá 1. apríl 2006. Starfsemi skurðstofu við Hringbraut tekur mið af þeim sérsvið- um skurðaðgerða sem þar eru framkvæmdar, þ.e. hjarta- og brjóstholsskurðaðgerðum, þvagfæraskurðaðgerðum, almennum skurðaðgerðum og augnskurðaðgerðum. Deildin þjónustar jafnt fullorðna sem börn og sinnir skipulögðum sem bráðum skurð- aðgerðum. Á deildinni fer einnig fram kennsla nemenda á heil- brigðissviði. Starfsemi deildarinnar er í tveimur húsum, þ.e. við Hringbraut þar sem meginhluti starfseminnar fer fram og á augnskurðstofu dagdeildar við Eiríksgötu. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni, stjórnar og ber ábyrgð á dag- legum rekstri hennar. Hjúkrunardeildarstjóri ber ábyrgð á upp- byggingu og þróun hjúkrunar, starfsmannahaldi, rekstrarþáttum og áætlanagerð. Hann skal stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun, m.a. með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniður- stöður. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. fimm ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í starfsmannastjórnun. Umsækjandi skal hafa viðbótarnám í skurðhjúkrun. Leitað er eftir framsæknum og dugmiklum leiðtoga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi. Einnig afrit af ritgerðum, þróunarverkefnum og vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í að vinna eða birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, um- sögn stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH og viðtölum við umsækj- endur. Umsókn skal leggja inn á skrifstofu hjúkrunar, Landspítala Hringbraut/ Fossvogi, fyrir 10. mars 2006. Upplýsingar veitir Kristín I. Gunnarsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar, í síma 824 5986, netfangið er krisgunn@landspitali.is. Hjúkrunardeildarstjóri Hjúkrunardeildarstjóri óskast á smitsjúkdómadeild, lyflækninga- sviði I. Staðan veitist frá 1. maí 2006. Deildin er 23 rúma lyf- lækningadeild þar sem sérstök áhersla er lögð á þjónustu við sjúklinga með smitsjúkdóma og innkirtlasjúkdóma. Á deildinni er hafið tilraunaverkefni sem felst í því að innleiða breytingar samkvæmt hugmyndafræði Planetree-sjúkrahúsa. Hugmynda- fræðin miðar að því að auka vellíðan sjúklinga og starfsfólks, m.a. með notkun sértækra hjúkrunarmeðferða og breytinga á umhverfi. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni og stjórnar daglegum rekstri hennar. Hann ber ábyrgð á uppbygg- ingu og þróun hjúkrunar, starfsmannahaldi, rekstri og áætlana- gerð. Hann skal stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun, m.a. með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður. Um- sækjendur skulu hafa a.m.k. fimm ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í starfsmannastjórnun. Leitað er eftir framsæknum og dugmiklum leiðtoga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfs- ferilskrá. Jafnframt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi. Einnig afrit af ritgerðum, þróunarverkefnum og vísindastörfum sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í að vinna eða birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH og viðtölum við umsækjendur. Umsóknir berist fyrir 13. mars nk. til Herdísar Herbertsdóttur, sviðsstjóra hjúkrunar, E-7 í Fossvogi og veitir hún jafnframt upp- lýsingar í síma 543-6430, netfangið er herdish@landspitali.is. Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunar- ráðs LSH á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórn- unarstöður í hjúkrun. Laun eru samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár- málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum í Fossvogi og á Hringbraut, á skrifstofu starfsmannamála á Eiríksgötu 5 og á heimasíðunni www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali - háskóla- sjúkrahús er reyklaus vinnustaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.