Morgunblaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 12
12 C SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands,
Hornafirði
Hjúkrunarfræðingar
á hjúkrunardeild og heilsugæslu
Hjúkrunarfræðingar óskast á hjúkrunardeild,
heimahjúkrun og heilsugæslu HSSA. Starfs-
hlutfall samkomulagsatriði. Kynnið ykkur kjör
og hlunnindi. Umsóknarfrestur er til 15 mars
nk.
Afleysing ljósmóður
hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og
sjúkraþjálfara í sumar
Sjúkraþjálfara vantar í afleysingu frá 1. maí
til 1. sept. eða eftir nánara samkomulagi.
Möguleiki að vinna sem 50% launþegi á hjúkr-
unarheimili og 50% verktaki á stofu. Ljósmóðir,
sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar óskast til
afleysinga í sumar á fæðingar- og hjúkrunar-
deild og heilsugæslu.
Nánari upplýsingar um þessi störf veitir
Guðrún J. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
HSSA, sími 478 1400 og 866 3051, gjj@hssa.is.
Vefverslunarstjóri
Viltu taka þátt í spennandi og metnaðarfullu
verkefni með Pennanum? Við leitum að dríf-
andi starfsmanni með brennandi áhuga á
markaðsmálum og vefverslun í starf vefversl-
unarstjóra. Hér er um nýtt starf að ræða með
mikla möguleika fyrir réttan aðila. Vefverslun-
arstjórinn mun taka þátt í þróun og uppbygg-
ingu vefverslunar og bera ábyrgð á rekstri
hennar. Verkefnið krefst góðra skipulags- og
samskiptahæfileika.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður
í vinnubrögðum og með brennandi áhuga á
markaðsmálum og notkun internetsins.
Góðir samskiptahæfileikar.
Sjálfstæði og drifkraftur.
Íslensku- og enskukunnátta.
Háskólamenntun á sviði viðskipta- og
markaðsfræða.
Ritfærni.
Reynsla af verslunarstörfum er kostur.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að
sækja um starfið á heimasíðu okkar
www.penninn.is.
Nánari upplýsingar fást með því að senda fyrir-
spurn á atvinna@penninn.is. Umsóknarfrestur
er til 24. febrúar nk.
Vilt þú
slást
í hópinn?
Vegna aukinna umsvifa leitar sölu- og markaðssvið
Árvakurs hf. að flinku sölufólki sem er reiðubúið að
leggja töluvert á sig til að sýna árangur og hafa gaman
af vinnunni sinni. Markmiðið er að efla og stækka
vörumerkin sem Árvakur hf. á og rekur um þessar
mundir.
Það er gott ef þú hefur reynslu af því að selja en það er
líka í lagi ef þú hefur trú á því að þú getir selt og viljir
sýna fram á það. Það skiptir líka máli að vera góð eða
góður í mannlegum samskiptum og áræðin(n) í
framkomu. Fyrir metnaðarfulla einstaklinga er hér
skemmtilegt tækifæri til að sanna hæfni sína. Ef þetta á
við þig sendu þá endilega til okkar umsókn sem allra
fyrst.
Ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsingar hafðu
samband við forstöðumann sölu- og markaðssviðs,
Margréti Kr. Sigurðardóttur í síma 5691173 eða
margret@mbl.is
Umsóknum með ferilskrá þarf að skila inn fyrir 1.mars
í afgreiðslu Morgunblaðsins í Kringlunni 1. Einnig er
hægt að fylla út umsókn á mbl.is. Neðst á forsíðu er
valið 'Sækja um starf' og síðan valið auglýsingasala.
Í reitinn ástæða umsóknar þarf að skrifa "sölufulltrúi".
Ferðaþjónusta
Ferðaskrifstofan Katla DMI ehf sem sérhæfir sig
í móttöku erlendra ferðamanna, óskar eftir að
ráða starfsmenn á skrifstofu sína í Reykjavík.
Um er að ræða annars vegar fast starf í hópa-
deild og hins vegar sumarafleysingar.
Starfsmennirnir þurfa að:
Hafa mjög góða þýskukunnáttu jafnt í töluðu
sem rituðu máli,
hafa góða skipulagshæfileika, eiga auðvelt
með að umgangast fólk og geta unnið sjálf-
stætt og undir álagi.
Menntun og/eða reynsla af sambærilegum
störfum æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Óskarsson í
síma 561 7550
Skriflegum umsóknum ásamt ferilsskrá skal
skila til Katla DMI ehf, Suðurlandsbraut 6, 108
Reykjavík eða á netfangið info@katla-dmi.is,
fyrir 01.03.2006.