Morgunblaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 18
18 C SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkur til Noregsfarar
Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
vegna Noregsferða á árinu 2006
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er til-
gangur hans “að auðvelda Íslendingum að
ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita við-
urkenndum félögum, samtökum og skipulögð-
um hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni
að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku
í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem
efnt er til á tvíhliða grundvelli“. Ekki eru veittir
styrkir til þátttöku í fjölþjóðlegum mótum,
þ.m.t. samnorrænum sem haldin eru til skiptis
á Norðurlöndum, og ekki er úthlutað ferða-
styrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru
styrkhæfir af öðrum aðilum.
Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli
lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferða-
kostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalar-
kostnað í Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum frá aðilum
sem uppfylla framangreind skilyrði. Í umsókn
skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda
þátttakenda, tilgang fararinnar og tengilið í
Noregi. Auk þess skal tilgreina þá fjárhæð, sem
farið er fram á.
Umsóknir skal senda beint til stjórnar sjóðsins
og sendar Norðurlandaskrifstofu forsætisráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, 5. hæð, 150 Reykjavík,
fyrir 22. mars 2006.
Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á
vefsíðu forsætisráðuneytisins, forsaetisradu-
neyti.is.
Í forsætisráðuneytinu,
14. febrúar 2006.
Styrkir úr Grænlandssjóði
Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsókn-
um um styrki úr sjóðnum á árinu 2006.
Grænlandssjóður er starfræktur í samræmi
við lög nr. 102/1980 til að veita styrki til kynnis-
ferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga
og annarra málefna á sviði lista, vísinda og
tæknimála, er eflt geta samskipti Grænlend-
inga og Íslendinga.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki
til verkefna sem uppfylla framangreind skil-
yrði.
Umsóknum skal beint til stjórnar Grænlands-
sjóðs og sendar Norðurlandaskrifstofu forsæt-
isráðuneytisins, Hverfisgötu 6, IS-150 Reykjav-
ík, fyrir 29. mars 2006.
Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á
vefsíðu forsætisráðuneytisins,
www.forsaetisraduneyti.is/Graenlandssjodur.
Í forsætisráðuneytinu,
13. febrúar 2006.
Tilkynningar
Tilkynning
um framboðsfrest til
stjórnarkjörs í Félagi rafeindavirkja
Samkvæmt 34. gr. laga Félags rafeindavirkja
skal auglýsa frest til framboðs í trúnaðarstöður
félagsins tveimur mánuðum fyrir aðalfund.
Stjórn félagsins er skipuð 7 mönnum, for-
manni, varaformanni, ritara, gjaldkera og
þremur meðstjórnendum. Auk þess eru kosnir
þrír varamenn. Í trúnaðarráð skal kjósa 5 full-
trúa og jafnmarga til vara. Með hliðsjón af
framansögðu tilkynnist hér með að framboðs-
frestur er til kl. 16:00 föstudaginn 17. mars
2006. Skila ber framboðslista á skrifstofu fé-
lagsins fyrir þann tíma. Hverjum lista skal
fylgja skrifleg staðfesting þeirra sem eru á list-
anum.
Reykjavík, 17. febrúar 2006.
Stjórn Félags rafeindavirkja.
Minningarsjóður
Margrétar Björgólfsdóttur
auglýsir eftir umsóknum.
Markmið sjóðsins er að stuðla að heilbrigðu líf-
erni og bættu mannlífi og efla menntir, menn-
ingu og íþróttir. Markmiðum sínum hyggst
sjóðurinn ná með því að styrkja einstaklinga,
verkefni og félög til mennta, framtaks, athafna
og keppni - ekki síst á alþjóðlegum vettvangi.
Skilafrestur er til 7. mars 2006.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð er
að finna á vef sjóðsins
www.minningmargretar.is
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms
í Kína, Rússlandi og
Tékklandi
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða
fram styrk handa Íslendingi til náms í kínversku
við háskóla í Kína námsárið 2006—2007. Um-
sækjendur um styrki til grunnnáms í háskóla
skulu vera yngri en 25 ára og yngri en 35 ára
ef þeir sækja um nám á meistarastigi. Um-
sóknarfrestur er til 30. mars nk.
Stjórnvöld í Rússlandi bjóða einnig fram
einn styrk handa Íslendingi til háskólanáms
skólaárið 2006—2007 og þrjá styrki til skemmri
námsdvalar eða rannsókna í Rússlandi á sama
námsári. Umsækjendur um styrki til háskóla-
náms í Rússlandi skulu að öðru jöfnu vera yng-
ri en 25 ára og umsækjendur um styrki til
skemmri námsdvalar eða rannsókna skulu vera
yngri en 35 ára og hafa lokið MA- eða MS-prófi.
Fyrrnefndu styrkirnir nema 600 rúblum á
mánuði (u.þ.b. 1.350 ísl. kr.) en þeir síðar-
nefndu 1.500 rúblum á mánuði (u.þ.b. 3.400
ísl. kr.). Að auki verður styrkþegum séð fyrir
herbergi á stúdentagarði sem þeir greiða fyrir
sömu leigu og rússneskir námsmenn.
Styrkþegar greiða sjálfir allan ferðakostnað.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást
í menntamálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur
er til 30. mars nk.
Einnig er gert ráð fyrir að tékknesk stjórn-
völd bjóði fram styrk til átta mánaða náms-
dvalar við háskóla í Tékklandi skólaárið 2006-
2007. Styrkir til skemmri námsdvalar koma
einnig til greina, þó ekki skemur en til þriggja
mánaða. Umsóknarfrestur er til 15. mars
nk.
Umsóknir skal senda til menntamálaráðuneyt-
is, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum
fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt með-
mælum og læknisvottorði.
Menntamálaráðuneyti,
17. febrúar 2006.
menntamalaraduneyti.is
Verkefnastyrkir
2006
NORA auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki til samstarfsverkefna á milli Íslands og
hinna NORA landanna þ.e. Grænlands,
Færeyja og Noregs
Nora veitir árlega styrki til verkefna sem stuðla
að auknu samstarfi og yfirfærslu þekkingar í at-
vinnulífi á milli landanna á eftirtöldum sviðum:
Auðlindir sjávar
Verkefni sem stuðla á sjálfbæran hátt að ný-
tingu auðlinda sjávar, eldi sjávardýra og sjá-
varvöruframleiðslu til manneldis og tengdra
greina.
Ferðamál
Verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun nátt-
úru- og menningartengdrar ferðaþjónustu í
löndunum.
Upplýsingatækni
Verkefni sem stuðla að hagnýtingu upplýsinga-
tækni á svæðinu.
Annað samstarf
Verkefni sem efla fámenn byggðarlög í löndun-
um.
Fjárstyrkir verða helst veittir fyrirtækjum, ein-
um eða í samstarfi við rannsóknar og þróunar-
stofnanir. Styrkir eru veittir til að koma á
tengslanetum, til rannsóknatengdra forverk-
efna og aðalverkefna t.d. innan Norðurslóða-
áætlunarinnar (NPP). Umsóknir sem fela í sér
samstarf við fyrirtæki og stofnanir í norður
Skotlandi og á austurströnd Kanada eru eftir-
sóknarverðar.
Styrki er lengst unnt að veita til 3 ára og aðeins
sem hluti af heildarfjármögnun verkefnis, gegn
mótframlagi viðkomandi aðila. Umsóknir skula
fela í sér samstarf á milli tveggja Nora landa
eða fleiri.
Sækja má umsóknareyðublöð á dönsku,
norsku og sænsku á heimasíðu NORA,
www.nora.fo og skila til:
NORA, NORDISK ATLANTSAMARBEJDE
Bryggjubakki 12, Box 259, FO-110 Tórshavn,
Sími: +298 353110, Fax: +298 353101,
nora@nora.fo
Umsóknir skulu hafa borist NORA í síðasta lagi
3. apríl 2006.
Frekari upplýsingar veitir:
Þórarinn Sólmundarson, Byggðastofnun,
Ártorgi 1, 550 Svf. Skagafjörður. Sími 455 5400
netfang thorarinn@byggdastofnun.is .
Jafnframt er að finna upplýsingar á heimasíðu
Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is