Morgunblaðið - 19.02.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 C 9
Aukavinna á kvöldin
Söluver Miðlunar tekur að sér úthringi-
og söluverkefni á kvöldin.
Vegna anna vantar okkur traust og gott
starfsfólk í ný og spennandi verkefni.
Í boði er vel launuð kvöldvinna frá kl.
17:30 til 21:30. Unnið er 2-4 kvöld í viku.
Góð vinnuaðstaða.
Umsókn óskast send til Miðlunar ehf.
Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík, eða á bjorn@midlun.is.
Laust er til umsóknar starf iðjuþjálfa á fagsviði þroskahamlana.
Um er að ræða 70% starf.
• Starfið felst einkum í greiningu á börnum og unglingum með
þroskahömlun á grunnskólaaldri og ráðgjöf til foreldra og fagfólks. Starfið
fer fram í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga sviðsins. Einnig er gert
ráð fyrir þátttöku í rannsóknar- og fræðslustarfi stofnunarinnar.
• Leitað er eftir iðjuþjálfa, sem hyggur á starfsferil á þessum vettvangi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af að meta þroska og færni barna
og unglinga og hafi áhuga á fræðslu og rannsóknum. Umsækjandi þarf
að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og þarf að vera tilbúinn til
þátttöku í þverfaglegu samstarfi.
• Laun og kjör eru skv. gildandi kjarasamningi ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags.
Frekari upplýsingar gefur sviðsstjóri fagsviðs þroskahamlana í síma 510 8400.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar-
og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi fyrir 1. mars nk.
Meginhlutverk Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins er greining
og ráðgjöf vegna barna með
fatlanir og aðrar alvarlegar þroska-
raskanir, auk rannsókna og fræðslu
á sviði fatlana.
Störf í þverfaglegu vinnuumhverfi
á Greiningar- og ráðgjafarstöð veita
góða innsýn í fjölþættar þarfir barna
og ungmenna með ýmis konar
fatlanir. Nýir starfsmenn fá hand-
leiðslu á aðlögunartíma og er lögð
áhersla á tækifæri til sí- og endur-
menntunar.
Nánari upplýsingar eru á
www.greining.is
IÐJUÞJÁLFI
Ríkisstjórnasamstarf Norðurlandanna í Norrænu ráðherrane-
fndinni tekur breytingum í ár.
Verið er að aðlaga það nýju alþjóðlegu og evrópsku umhverfi,
þar sem stækkun ESB býður bæði upp á möguleika og áskoranir.
Áhersla verður á starfsemi þar sem virðisauki af norrænu
samstarfi er mikill.
Markmið með samstarfinu er meðal annars, að styrkja stöðu
Norðurlandanna og samkeppnishæfni, að stuðla að samstöðu
landa sem liggja að Eystrasalti, að tryggja sameiginlegan
norrænan hag í norðri og vestri og að þróa áfram þau tengsl sem
eru til staðar milli landanna í gegnum tungumál og menningarlega
samkennd.
Til að mæta þessum markmiðum auglýsir Norræna
ráðherranefndin í Kaupmannahöfn eftir nýjum starfsmönnum
til að vinna að samstarfi norrænu ríkisstjórnanna.
Ráðgjafa í
menningarmálum
Við leitum at reyndum ráðgjafa í deild sem vinnur
aðallega að málefnum lista, barna og unglinga,
kvikmynda- og fjölmiðlasamstarfi auk þess að vinna
ýmis þverfagleg verkefni.
Norræna ráðherranefndin auglýsir eftir:
Umsóknarfrestur er til 6. mars 2006
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarferli: www.norden.org
Ráðgjafa í menntun,
rannsóknir og
vinnumarkaðsmál
Við leitum að reyndum ráðgjafa í deild sem starfar á
ofangreindum sviðum, æskilegt er að viðkomandi hafi
breiða þekkingu á vinnumarkaðsmálum.
3 deildarriturum
Störf deildarritara eru laus til umsókna í þremur
mismunandi deildum, æskilegt er að ritararnir hafi
reynslu af því að vinna með þeim sem starfa á
vettvangi stjórnmála.
Norræna ráðherranefndin
Store Strandstræde 18,
DK-1255 Kaupmannahöfn K
- Einn vinnustaður
Áhugaverð störf í boði
Menntasvið - Grunnskólar
Borgaskóli, sími 577 2900
• Forfallakennari óskast á vorönn 2006.
• Kennari óskast vegna forfalla í 100% stöðu í 4. bekk til 30. apríl.
Foldaskóli, sími 540 7600
• Forfallakennari óskast í 4. bekk. Um er að ræða 19 kennslustundir á viku
fram til 1. apríl næstkomandi.
Ingunnarskóli, sími 411 7282/411 7848
• Kennari óskast í hönnun og smíði næsta skólaár. Æskilegt er að viðkomandi
hafi áhuga og/eða reynslu af nýsköpun í skólastarfi.
Vesturbæjarskóli, sími 562 2296
• Kennari óskast í 100% stöðu á miðstig.
Hæfniskröfur:
Kennarapróf.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
Grunnskólakennarar
Fellaskóli, sími 557 3800
• Þroskaþjálfi óskast í allt að 100% stöðu fram á vor.
Hæfniskröfur:
Réttindi sem þroskaþjálfi.
Færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði í starfi.
Jákvæðni og áhugasemi.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Þroskaþjálfi
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla og leik-
skóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leikskólastarfs, undir-
búningur stefnumörkunar, mat og eftirlit með skólastarfi og
upplýsingamiðlun fyrir menntaráð og starfshópa á vegum
ráðsins.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
4 11 11 11, símaver Reykjavíkurborgar, þar færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband
við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar í
viðkomandi skólum. Umsóknir ber að senda til viðkomandi
skóla. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkur-
borgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um
laus störf er að finna á www.grunnskolar.is.
Grunnskóli
Borgarfjarðarsveitar
þarf á næstu dögum að ráða kennara að
Kleppjárnsreykjum vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða kennslu í 1.—7. bekk og er
starfshlutfall 100%.
Einnig vantar starfmann í skólasel á Hvann-
eyri frá 1. mars. Starfshlutfall er u.þ.b. 35%
og vinnutími er eftir hádegi mánudaga til
fimmtudaga.
Nánari upplýsingar veita Guðlaugur Óskarsson
skólastjóri í símum 435 1171 og 861 5971 og
Elísabet Haraldsdóttir deildarstjóri á Hvanneyri
í síma 437 0009.