Morgunblaðið - 19.02.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.02.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 C 11 Leikskólastjóri Djúpavogshreppur auglýsir eftir leikskólastjóra við Leikskólann Bjarkatún á Djúpvogi. Um er að ræða tveggja deilda leikskóla. Hús- næðið var tekið í notkun í okt. 2005 og er full- búið. Lóð hússins er nánast fullfrágengin. Í leikskólanum eru í dag um 25 nemendur. Stöðugildi eru u.þ.b. 7. Um er að ræða áhugavert starf og mun nýr leikskólastjóri leiða uppbyggingarstarf og þróunarvinnu í hinu nýja húsnæði. Í sveitarfélaginu er hátt þjónustustig. Þar eru t.d., auk hins nýja leikskóla, góðar stofnanir, svo sem grunnskóli, tónlistarskóli og íþrótta- miðstöð með frábærri innisundlaug. Á Djúpvogi er gott atvinnuástand, m.a. í sjávar- útvegi, ferðaþjónustu og öðrum grunnþáttum atvinnulífsins. Umsóknir berist til: Skrifstofa Djúpvogshrepps v/ leikskólastjóri Bakka 1 765 – Djúpivogur. Umsóknarfrestur er til 6. marz 2006. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Djúpavogshrepps, sími 478 8288. Sveitarstjóri. Rekstrarstjóri óskast að Þróunarsetri Hólaskóla á Sauðárkróki Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins hafa ásamt fleiri aðilum samstarf um rekstur Þróunarseturs Hólaskóla við höfnina á Sauðárkróki. Þar er góð aðstaða til kennslu og rannsókna, m.a. í fiskeldi, fiskalíf- fræði og matvælavinnslu. Þar fer fram kennsla við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Hólaskóla og ýmis rannsókna- og þróunarverkefni á veg- um Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins og Hólaskóla, m.a. í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og FISK Seafood. Starfssvið rekstrarstjórans verður að hafa um- sjón með rekstri Þróunarsetursins á Sauðár- króki og bera ábyrgð á honum gagnvart stjórn setursins og Hólaskóla. Rekstrarstjórinn mun taka þátt í frekari uppbyggingu Þróunarseturs- ins með þátttöku í gerð kynningaráætlana, ef- lingu tengsla á milli atvinnulífs, skóla og rann- sóknarstofnana og hafa umsjón með samning- um við aðila sem nýta aðstöðuna eða koma að frekari uppbyggingu setursins. Hæfniskröfur: Auglýst er eftir dugmiklum einstaklingi með haldgóða menntun á sviði viðskiptafræði, rekstrarfræði eða véla- eða rekstraverkfræði. Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt, hafa frumkvæði og metnað í starfi og hafa færni í mannlegum samskiptum. Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Umsóknarfrestur er til 13. mars 2006. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf ásamt afritum af prófgögnum óskast sendar með tölvupósti (skuli@holar.is eða sjofn@rf.is) eða til Hólaskóla, Hólum í Hjalta- dal, 551 Sauðárkróki. Upplýsingar um starfið veita Skúli Skúlason í síma 455 6300 og Sjöfn Sigurgísladóttir í síma 530 8600. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) er sjálfstæð ríkisstofnun og heyrir undir sjávarútvegsráðuneytið. Stefna Rf er að auka verðmæti og öryggi sjávarfangs með rannsóknum, þróunarvinnu, miðlun þekkingar og ráðgjöf. Háskólinn á Hólum er miðstöð rannsókna og kennslu í fiskeldi á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.