Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Benidorm 1. - 8. apríl. Gisting á hinu glæsilega Hotel Mediterraneo ****, sem slegið hefur í gegn hjá Íslendingum, með hálfu fæði í 8 nætur á hreint frábæru tilboðsverði. Einstakt tækifæri til að ná úr sér hrollinum eftir veturinn og njóta frábærs aðbúnaðar og þjónustu. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Benidorm 1. - 8. apríl frá kr. 44.990 Glæsileg gisting & hálft fæði Verð kr. 44.990 8 nætur Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi á Hotel Mediterraneo með hálfu fæði. Flug, skattar, gisting, hálft fæði og íslensk fararstjórn. Munið Mastercard ferðaávísunina ÞINGFLOKKUR framsóknar- flokksins kom saman á stuttum fundi kl. 17 í gær þar sem ákveðnar voru breytingar á ráðherraskipan flokks- ins að tillögu formanns. Að fundinum loknum gerði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, fréttamönn- um grein fyrir breytingunum og nýrri verkaskiptingu í ráðherra- hópnum, sem munu fara fram á þriðjudaginn en stefnt er að ríkis- ráðsfundi á Bessastöðum kl. 11. Halldór sagði í samtali við Morg- unblaðið að mikil eindrægni hefði verið í þingflokknum um tillögu hans. Árni Magnússon, félagsmálaráð- herra, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum og segja af sér embætti ráðherra. Siv Friðleifsdóttir kemur á ný inn í ríkisstjórnina og tekur við embætti heilbrigðis- og trygginga- ráðherra og Jón Kristjánsson, sem gegnt hefur starfi heilbrigðisráð- herra, verður félagsmálaráðherra. Af persónulegum ástæðum Halldór sagði að ástæða þing- flokksfundarins hefði verið sú að Árni Magnússon hefði ákveðið að draga sig út úr stjórnmálum. „Þetta er ákvörðun sem hann hefur tekið af persónulegum ástæðum. Við munum sakna Árna mikið. Hann hefur reynst okkur afar góður liðsmaður, staðið sig með prýði í sínu ráðuneyti og starfað mjög vel fyrir Framsókn- arflokkinn. Ég óska honum velfarn- aðar,“ sagði Halldór. Siv Friðleifsdóttir kemur nú á nýj- an leik inn í ríkisstjórnina en hún lét af embætti umhverfisráðherra í september 2004. „Hún hefur starfað lengi sem ráðherra eða í tæp sex ár og reyndist afskaplega vel sem ráð- herra,“ sagði Halldór. ,,Siv hefur mikinn áhuga á heilbrigðismálunum. Því er ekki að neita, að þessi mála- flokkur er erfiður. Jón Kristjánsson er búinn að sinna því starfi með miklum sóma í rúm fimm ár. Heilbrigðisráðherrann sem var á undan honum, Ingibjörg Pálmadóttir, var í sex ár og það hafði enginn heilbrigðisráðherra setið lengur,“ sagði Halldór ennfremur. Hann sagði einnig að Jón Krist- jánsson gjörþekkti málefni félags- málaráðuneytisins. Hann hefði á ár- um áður unnið í mörgum nefndum á vegum þess og þekkti sveitarstjórn- armálin einstaklega vel. ,,Við höfum því ákveðið að gera þetta svona og erum öll ánægð með það. Siv er ánægð með það hlutverk sem hún fær. Það er mjög krefjandi verkefni. Ég veit að hún mun sinna því vel. Hún hefur fengið svolitla hvíld og kemur afskaplega hress inn í þetta á nýjan leik. Það er stundum ágætt að fá tækifæri til þess að horfa á rík- isstjórnina svona utan frá. Það er þroskandi og Jón þekkir þetta allt saman afskaplega vel hinum megin, þannig að ég tel að þetta séu góðar breytingar sem við erum að fara út í og ég er viss um að þær verða rík- isstjórninni farsælar,“ sagði Halldór. Halldór sagði einnig við frétta- menn að framsóknarmenn ætluðu sér stóra hluti í næstu kosningum. „Það verður að viðurkennast að okk- ar hlutur í skoðanakönnunum hefur ekki verið neitt sérstaklega góður þó það hafi nú oft gerst fyrr. Við erum ákveðin í að standa okkur vel það sem eftir er af þessu kjörtímabili og ég er alveg viss um að það mun ganga vel hjá okkur,“ sagði Halldór. Aðspurður hvort komið hafi til álita að tilnefna einhvern annan úr þingflokknum í ráðherraembætti, sagðist Halldór hafa gert tillögu um Siv og hún verið samþykkt. „Það koma allir þingmenn til greina í þessu sambandi, en það er mikil ein- ing um Siv.“ Siv heilbrigðisráð- herra og Jón félags- málaráðherra Breytingar verða á morgun á ráðherraliði Framsóknarflokksins. Árni Magnússon lætur af embætti félagsmálaráðherra og þingmennsku og hættir afskiptum af stjórnmálum. Siv Friðleifsdóttir verður heilbrigðis- og tryggingaráðherra og Jón Kristjánsson félagsmálaráðherra. Morgunblaðið/Sverrir Breytingarnar kynntar. Jón Kristjánsson, Halldór Ásgrímsson og Siv Frið- leifsdóttir gera fréttamönnum grein fyrir ráðherrabreytingunum sem verða gerðar á morgun. Jón tekur við embætti félagsmálaráðherra og Siv verður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „ÉG HEF á undanförnum vikum farið í gegnum ákveðið endurmat á mínu lífi, og hef tekið þá ákvörðun að starfa ekki áfram á opinberum vettvangi. Ég tók um það ákvörðun fyrir tveimur, þremur vikum að fara ekki fram í næstu alþing- iskosningum, og við þær aðstæður finnst mér rétt að víkja af velli og víkja fyrir nýju fólki sem hefur mikinn áhuga á því að starfa í póli- tík,“ sagði Árni Magnússon á fréttamannafundi, eftir að tilkynnt var að hann ætlaði að hætta af- skiptum af stjórnmálum. „Síðan hefur það gerst núna á síðustu dögum að mér hefur boðist spennandi starf sem ég hef ákveðið að taka, og hverf þá til þeirra starfa sáttur við Guð og menn. [...] Ég tek við starfi hjá Íslandsbanka á al- þjóða- og fjárfestingasviði bankans og leiði þar starf bankans á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. [...] Þetta er mín persónulega ákvörð- un, og þarna er ég fyrst og fremst að hugsa um hag minn og minnar fjölskyldu,“ sagði Árni. „Stjórnmálin eru heillandi fyrir þá sem eru tilbúnir að gefa sig í þau af fullum krafti. Ég hef verið það til þessa, en ég er það ekki lengur. Þess vegna finnst mér heiðarlegast að standa þá upp og gefa nýju fólki tækifæri til að hasla sér völl á þessu sviði,“ sagði Árni. Í samtali við Morgunblaðið eftir að tilkynnt var um ákvörðunina sagði Árni að hann hafi ákveðið að draga sig út af hinum pólitíska vett- vangi, og því áreiti sem honum fylgi. „Ástæðan er persónuleg, ég er að taka ákvörðun um að haga lífi mínu öðruvísi í framtíðinni en ég hef gert í nánustu fortíð.“ Árni staðfesti að eiginkona hans hafi glímt við veikindi, en sé á batavegi. „Ég hef haft atvinnu af stjórn- málum í 11 ár, þannig að ég þekki þann vettvang orðið mjög vel, og hef öðlast þar mikla reynslu og kynnst mörgu frábæru fólki. En þetta er starf sem felur í sér mikið álag og áreiti, ekki bara á sjálfan mann heldur ekki síður fjölskyld- una. Það eru mörg störf í okkar samfélagi, sem betur fer, sem eru spennandi og krefjandi, en fela ekki í sér sömu aðkomu á opinber- um vettvangi, og sama áreiti og pólitíkin gerir,“ sagði Árni. Spurður hvort þetta þýði að hann sé alfarinn úr stjórnmálum sagði Árni: „Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta í pólitík. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er, en ég er ekki á þeim buxunum að koma til baka.“ „Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta í pólitík“ Morgunblaðið/Sverrir Árni Magnússon hættir sem félagsmálaráðherra eftir ríkisráðsfund sem fyrirhugaður er á morgun, og tekur við starfi hjá Íslandsbanka. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is JÓN Kristjánsson, fráfarandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sagði að sér litist mjög vel á að söðla um og taka við ráðherra- embætti í félagsmálaráðuneytinu, á fundi með fréttamönnum eftir að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tilkynnti um uppstokkun í ráðherraliði Framsóknarflokksins. „Ég vann fyrir Pál Pétursson [fyrrverandi félagsmálaráðherra], mikið í nefndum og meðal annars í kringum sveitarstjórnarmál hér á árum áður. Ég bara hlakka til og er ánægður með þetta. Ný verkefni gefa alltaf ný tækifæri og það er ágætt að skipta um. Ég er búinn að vera í fimm ár í heilbrigðisráðuneyt- inu, það var góður tími og skemmtilegur. Það er erfitt ráðuneyti, eins og hefur komið fram hér, en þetta var viðburðaríkur og skemmti- legur tími, og ég hlakka bara til að takast á við ný verkefni í nýju ráðuneyti,“ sagði Jón. Hann sagðist ekki sjá fram á rólega tíma í félagsmálaráðuneytinu. „Það er alltaf nóg að gera í öllum ráðuneytum, það er alveg víst með það. Það eru erfiðir málaflokkar líka í fé- lagsmálaráðuneytinu.“ Spurður um þau mál sem hann hyggist leggja áherslu á í nýju ráðu- neyti sagði Jón: „Það eru nú sveitarstjórn- arkosningar framundan, sveitarstjórnarmál eru auðvitað stór þáttur. Þar er hluti af trygg- ingakerfinu, atvinnuleysistryggingarnar, vinnumálastofnun, húsnæðismál, það er fullt af verkefnum, en ég vil ekki segja á þessari stundu hvernig mál munu ráðast á næstunni.“ „Ný verkefni gefa alltaf ný tækifæri“ „ÞETTA er mikil áskorun, þetta er mjög stórt ráðuneyti og um40% af útgjöldum ríkisins sem fara til heilbrigðis- og trygginga- mála,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, verðandi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra. Hún sagði það leggjast vel í sig að taka við embættinu. „Ég er að taka við mjög góðu búi hjá Jóni Kristjánssyni, þannig að ég er bara full tilhlökkunar og veit að þetta mun takast mjög vel til hjá okkur,“ sagði Siv á fundi með fréttamönnum. Spurð hvort hún óttaðist ekki að tími hennar í heilbrigðisráðuneytinu verði erfiður sagði Siv: „Nei, alls ekki. Ég veit að þetta er mjög erfitt ráðuneyti og þungir málaflokkar, en það eru mörg tækifæri í þessum málaflokki, og hann snertir hvert einasta heimili í landinu og hvern einasta einstakling. Þannig að ég geng til þessa verk- efnis bljúg, en full tilhlökkunar.“ Siv sagðist ekkert vilja gefa út með áherslubreytingar í ráðu- neytinu á þessu stigi. „Þetta ber að mjög óvænt, ég tek við góðu búi, en það eru mörg mál sem við munum að sjálfsögðu skoða á næstunni. Heilbrigðismálin eru í mjög góðu ástandi á Íslandi, sama á hvaða mælikvarða það er mælt, þannig að við erum búin að vinna gott verk, en að sjálfsögðu ætla ég að standa mig áfram vel fyrir hönd Framsóknarflokksins í þessum málaflokki.“ Fjölmörg verkefni framundan Siv sagði í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn að hún hafi verið að vinna lengi í heilbrigðismálunum. „Ég var oddviti rík- isstjórnarflokkanna í þessum málaflokki frá árunum 1995–1999, og hef svo verið í heilbrigðisnefnd í rúmlega eitt og hálft ár eftir að ég fór úr ríkisstjórninni. Þannig að ég hef unnið í þessum mála- flokki um langt skeið, og það eru fjölmörg verkefni sem eru fram- undan.“ Spurð hvaða verkefni hún á við sagði Siv: „Ég vil ekki fara mjög náið út í það á þessu stigi, en það er alveg ljóst að m.a. þarf að fara vel yfir öldrunarmálin, en ég vil ekki fara djúpt ofan í það núna. En það er málaflokkur sem við munum skoða núna á næstunni.“ „Þarf að fara vel yfir öldrunarmálin“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.