Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 31
Baldvin var nú búinn að halda þetta lengi út og lifa tímana tvenna. Mikið óskaplega er nú gaman að kynnast svona öðlingum eins og Baldvini. Sem stráklingur hitti ég ekki þennan frænda minn oft. Það var eiginlega þannig að ég rétt vissi af því að hann væri bróðir föður míns og að hann væri búsettur í Vestmannaeyjum. Hann hafði einstaka sinnum komið í heimsókn til foreldra minna þegar ég var enn á unglingsaldri. Þá verður gosið í Helgafelli til þess að breyta öllu hvað varðar samgang fjölskyldu minnar við ættmenni úr Vestmanna- eyjum. Nú fór ég að þekkja þessi and- lit mun betur, og ekki grunaði mig þá að ég ætti eftir að kynnast þessum frábæra dreng, Baldvini föðurbróður mínum, betur en öðrum fjölskyldu- meðlimum úr Eyjum. Þannig var mál með vexti að við vorum strákahópur úr Kópavoginum sem höfðum stofnað íþróttafélag og nefnt það Handknatt- leiksfélag Kópavogs. Þetta strákaæv- intýri var nú búið að leiða okkur út í keppni í meistaraflokki í handboltan- um. Aðstaða í Kópavogi var nú ekki glæsilegri en svo að við urðum að leita á náðir Mosfellinga til að æfa og eiga Varmá sem okkar heimavöll. Já, það var ekki stórum íþróttahúsum fyrir að fara í Kópavoginum á þessum tíma. Við vorum guttarnir að samein- ast um að fara á bílum okkar og fjöl- skyldna okkar þrjú til fjögur kvöld í hverri viku. Þetta var því alltaf nokk- urt ferðalag fyrir okkur guttana. Það var síðan á fyrstu æfingunni í íþrótta- húsinu að Varmá að mér varð það ljóst að þeir í Mosfellsbænum höfðu haft rænu á því að ráða toppmann í húsvarðarstarfið. Þarna hitti ég strax á Baldvin föðurbróður minn og það var strax eitthvað sem gerði þessar ferðir upp að Varmá enn skemmti- legri en ella. Það var alveg nákvæm- lega sama hvað gekk á, alltaf var þessi öðlingur í sama ljúfa skapinu. Æf- ingatími okkar var alltaf í síðustu tím- unum á kvöldin og varð hann því oft að hanga yfir æfingum okkar langt fram undir miðnættið. En það breytti því ekki að ég og félagar mínir gátum alltaf sest inn í húsvarðarherbergið hjá Baldvini til þess að spjalla um daginn og veginn eftir æfingar. Þessi góði drengur, Baldvin Skæringsson, varð því strax eins og einn af okkur HK-mönnum, mikill vinur allra í meistaraflokki þessa litla félags. Á þessum tíma vorum við að vinna afrek í sögu handknattleiks á Íslandi, með því að fara upp úr þriðju deild og upp í þá fyrstu á tveimur árum. Og hver haldið þið að hafi verið einn harðasti stuðningsmaður okkar strákanna? Auðvitað enginn annar en Baldvin frændi, sem greinilega hafði gaman af því að fylgjast með okkur berjast þetta áfram í boltanum. Á þessum tveimur árum sem við vorum þarna nær því annan hvern dag, þá var alltaf hægt að setjast inn hjá Baldvini frænda í spjall og bið eft- ir því að félagarnir væru allir reiðu- búnir til heimfarar, eða þá fyrir æf- ingar ef maður var kominn tímanlega. Þá var spjallað um heima og geima, fluttar fréttir af högum fjölskyldna okkar og að sjálfsögðu skipst á gríni og glensi inn á milli. Ég get fullyrt það að Baldvin frændi ávann sér virðingu og vinskap allra minna félaga með einstakri og ljúfmannlegri framkomu sinni. Það eru forréttindi að fá að kynnast svona ljúflingum eins og Baldvini og slíkt er eitthvað sem maður býr að til æviloka. Mikið væri nú óskandi að manni tækist að taka þetta sér til eft- irbreytni, því slík framkoma og hátta- lag skilar öllum glaðari og hamingju- samari dögum. Kæri Baldvin, frændi minn, ég þakka þér fyrir þessi kynni, um leið og ég veit að vera þín hér gerði ekkert annað en að bæta mannlífið. Ég óska frændum mínum og frænkum, afkom- endum Baldvins frænda, styrks í sorginni við fráfall hins mikla heið- ursmanns. Gissur Kristinsson. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 31 MINNINGAR ✝ Magnús Jónssonfæddist í Reykjavík 21. sept- ember 1935. Hann lést föstudagin 24. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ágústa Magnúsdótt- ir frá Hofi í Dýra- firði, f. 16. ágúst 1906, d. 23. júní 1977, og Jón Svein- björnsson, f. í Reykjavík 25. nóv- ember 1899, d. 2. nóvember 1989. Systkini Magnúsar eru Kristbjörg María, f. 1931, Sveinbjörn, f. 1932, og Helgi Þór, f. 1943. Á jóladag 1961 giftist Magnús Laufeyju Símonardóttur frá Reykjavík, f. 20. janúar 1939, d. 30. janúar 2006. Foreldrar hennar voru Símon Bjarnason, f. 21. sept. 1897, d. 11. okt. 1981, frá Hall- stúni í Holtum í Rang., og María Hrómundsdóttir, f. 14. nóv. 1902, d. 11. des. 1974, frá Áftanesi, Gull. Börn Magnúsar og Laufeyjar eru: 1) Ágústa, f. 1956, maki Kristján Þór Sigfússon, f. 1958. Sonur Ágústu frá fyrri sambúð er Frið- rik Þór, f. 1976, hann á dótturina Anítu Ágústu, f. 2003. Ágústa og Kristján eiga soninn Magnús Viðar, f. 1979. 2) Evert Sveinbjörn, f. 1959, maki Hugrún Stef- ánsdóttir, f. 1959. Evert hefur alið upp Jóhannes Pál, f. 1979, son Hugrúnar. Saman eiga þau Stefaníu Huld, f. 1992, og tvíburana Elvu Rún og Evu Kristínu, f. 1996. Jó- hannes Páll á soninn Gabríel Snæ, f. 1997. 3) Sigrún, f. 1962. Með fyrr- verandi eiginmanni Ármanni Sig- urðssyni á Sigrún tvíburana Sig- urð Evert og Katrínu Lind, f. 1995. 4) Hildur Kolbrún, f. 1966, börn hennar eru Laufey, f. 1984, hún á dótturina Elísabetu Lilju, f. 2002; María Tinna, f. 1986; og Berglind, f. 1989. 5) Berglind Agnes, f. 1971, börn hennar eru Sigrún Snædís, f. 1993, William Þór, f. 2001, og Erykah Lind, f. 2004. Börn, barnabörn og barna- barnabörn Magnúsar eru alls tutt- ugu og tvö. Útför Magnúsar verður gerð frá Garðakirkju á Álftanesi í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Pabbi. Elsku pabbi, nú er baráttu þinni lokið. Við þann sjúkdóm sem þú háðir við undanfarin ár. Það er ekki hægt annað en að dást að þér við þessa baráttu, annaðhvort varstu hér eða þar, en alltaf komstu aftur. Þar kom að því, að þú lést undan, kannski sér- staklega þar sem mamma fór frá okkur í janúar síðastliðnum. Þá var lífsviljinn orðin lítill hjá þér og þú sagðir að það væri ekki langt í að þú færir til hennar. Mig langar að þakka þér fyrir upp- vaxtarárin mín, þú varst alltaf tilbú- inn að rétta mér hjálparhönd þegar ég leitaði til þín. Þá skipti ekki máli hvort um væri að ræða hrossin, bíl- inn eða heimilið, alltaf áttir þú tíma til að hjálpa mér. Þú mátt eiga það einn, hvað þú varst handlaginn, það var alveg sama hvað þú tókst þér fyr- ir hendur, allt lék í höndunum þínum. Það var alltaf gott að leita til þín, t.d. þegar ég lenti í vandræðum með bíl- inn þá vantaði ekki viljann eða get- una, að veita mér góðar leiðbeining- ar. Ég vil þakka þér fyrir þær góðu stundir sem við áttum saman, þegar við unnum saman í Slippnum og á sjónum, þá gafst okkur oft tími til að spjalla um lífið og tilveruna og gera að gamni okkar. Einnig þakka ég fyr- ir góðar samverustundir með mér og minni fjölskyldu. Þinn sonur, Evert. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get ekki breytt og vit til að greina þar á milli. Til að lifa einn dag í einu njóta hverrar stundar meðan hún líður: sætta mig við að vegurinn til friðar sé varaður erfileikum: taka, svo sem hann gerði, þessum synduga heimi eins og hann er, ekki eins og ég vildi að hann væri, treysta því að hann láti allt ganga mér í hag ef ég gef mig Honum á vald: svo ég megi njóta þeirrar hamingju sem mér gefst í þessu lífi og ómælanlegrar hamingju með Honum á hinu næsta, Amen. Hjartans gullið mitt, elsku kallinn minn, það kom að því að þú lést und- an, enda varstu kominn með heimþrá eins og þú kallaðir það, að komast til mömmu sem lést hinn 30. jan. sl. Hjartanu mínu blæðir en samt er ég sátt, vitandi það að þú ert kominn í faðm hennar mömmu. Allt hefur gengið svo hratt fyrir sig. Ekki átti maður von á að mamma færi á undan þér þar sem þú varst búin að glíma við þinn sjúkdóm sl. sex ár og oft á tíðum varstu við dauðans dyr en aldr- ei gafstu upp, karlinn minn, fyrr en núna þegar stóra ástin þín var farin frá þér. Pabbi, það er margt sem þú hefur gefið mér í gegnum tíðina og það geymi ég í hjarta mínu. Ég á margt að þakka fyrir eins og þær stundir sem við áttum saman fyrir og eftir fráfall mömmu þú veittir mér styrk, ást og umhyggju á þessum erfiða sorgartíma. Ég verð ykkur alltaf þakklát fyrir þessi ár sem þið veittuð mér. Ég hefði ekki viljað fá aðra for- eldra til að leiðbeina mér í lífinu. Hjartans þakkir fyrir allt og að gefa börnunum mínum tíma og ást þína í þessi ár. Elska þig mjög mikið, þín dóttir Sigrún. Elsku besti pabbi minn og vinur. Hjarta mitt er brostið og ég trúi ekki að þú hafir kvatt mig svo fljótt, eftir að mamma kvaddi mig og okkur öll hin. Ég er samt glöð að þið hafið nú sameinast á ný því að hjarta þitt brast þegar þú misstir stóru ástina í lífi þínu. Engan grunaði að svo stutt yrði á milli ykkar, elsku pabbi minn. Sárs- aukanum við að missa ykkur bæði er ekki hægt að lýsa með orðum. Við vorum öll svo tengd og þið voruð styrkur minn, stoð og gáfuð mér ólýsanlega ást og gleði sem ég mun alltaf njóta góðs af. Elsku pabbi, þú leiddir mig veg- inn, hlustaðir á mig þegar ég þurfti að spjalla, varst mér stoð og stytta í svo mörgu og leiðbeinandi fyrir mig og stelpurnar mínar sem nú syrgja afa sinn og langafa sárt. Þú varst þeim svo góður og í þeirra augum svo mikill og hjartahlýr. Þeim fannst allt- af svo gott að koma til afa og ömmu sinnar í heimsókn, þið sýnduð þeim alltaf hversu mikilvægar þær væru og settuð hagsmuni þeirra ofar ykk- ar eigin. Fyrir það þakka ég þér af öllu hjarta, elsku pabbi minn. Það er svo margs að minnast í lífi okkar allra saman og of langt upp að telja hér, en við eigum það í okkar hjarta og berum það með okkur uns tími okkar mun koma. Já, lífið er svo óréttlátt oft á tíðum og við skiljum stundum ekki hvað á okkur er lagt, en samt megum við ekki vera eigingjörn og því, elsku pabbi, er ég nokkru sáttari í hjarta mínu þar sem ég veit að þú ert hjá elskunni þinni fallegu, henni mömmu, og ég veit að þið passið hvort annað og lítið eftir okkur hin- um í leiðinni. Þú vildir fara til hennar og varst einhvern veginn svo sáttur við að fara, enda búinn að þjást nógu lengi, elsku besti pabbi minn. Með harm í hjarta mínu kveð ég þig, elsku pabbi minn og vinur. Megi guðs englar passa þig og vernda. Þakka þér fyrir að vera til fyrir mig, án þín væri ég ekkert, vegna þín er ég allt sem ég er. Kysstu mömmu frá mér. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alúð þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Elska þig alltaf. Þín dóttir, Kolbrún. Elsku pabbi minn. Hvernig á ég að lifa án ykkar mömmu sem lést hinn 30. janúar sl.? Þið voruð mér allt, ég er ekki farin að átta mig á þessu ennþá. Missirinn er það mikill fyrir mig en ég er svo þakklát fyrir þessi ár sem við áttum og ekki síður þau ár sem ég gekk í gegnum með þér í þínum veikindum. Þrátt fyrir að oft á tíðum væri erfitt að takast á við sjúkdóminn og þú stæðir oft við dauðans dyr, var samt sem áður ekki hægt að hugsa sér rík- ari manneskju en mig. Alltaf var viss tilhlökkun að sækja þig og fara með þig á rúntinn eða bara heim. Þú varst svo glaður að fá að komast heim til mömmu og kúra í rúminu þínu og ekki síður að borða matinn hennar. Eftir lát mömmu varst þú mér allt, við spjölluðum saman oft á dag sem við nutum bæði tvö. Við gátum talað saman um mömmu og það veitti okk- ur báðum styrk og huggun. Jólin 2005 gastu ekki komið heim til okkar en undanfarin ár höfum við átt jólin saman þú, mamma, ég og börnin, það vantaði mikið þessi jól en ég kom með börnin mín á jóladag til þín þar sem þau færðu þér gjafir og átu stund mér þér sem er ómetan- legt, svo næstu jól verða tómleg fyrir mig og börnin en ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að létta þeim jólin. Eins er það með ferðalögin sem við höfum farið sam- an í gegnum tíðina. Þau voru alltaf skemmtileg og þú varst viskubrunn- ur um staði, fjöll og firði og þér leidd- ist aldrei við að segja frá og kenna. Börnin mín minnast þess um ókomna tíð. Elsku hjartans pabbi minn, ég sakna þín svo mikið en ég veit að mamma tók á móti þér eins og þú vildir enda var hún ástin þín, stoð og stytta. Pabbi, ég kveð þig núna en veit að þú og mamma takið á móti mér þegar minn tími kemur. Takk fyrir að vera pabbi minn. Ég elska þig mjög mikið, pabbi minn. Þín dóttir, Berglind Agnes. Elsku afi minn. Það var stuttur tíminn hjá okkur saman en hann var góður, það er svo skrítið að það er eins og sálir okkar væruskyldar þegar ég kom í heim- inn, mér leið svo vel hjá þér, elsku afi minn. Eins og þegar við sátum sam- an og mötuðum hvort annað á góð- gæti, það þótti okkur ekki leiðinlegt. Þrátt fyrir að ég sé bara tveggja ára á ég margar góðar minningar um ykkur ömmu sem ég geymi í hjarta mínu. Mamma og systkini mín munu halda minningu ykkar á lofti. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Ég elska þig, afi minn, stelpan þín Erykah Lind. Elsku besti afi minn. Maður skilur það núna hversu ástin er heit, þegar þú kveður okkur nú aðeins 25 dögum eftir að ástin þín hún amma lést. Það er ótrúlegt hvað þið voruð sterk og virkilega samrýnd. Þú sagðir við mig þegar amma lést að þú hefðir ekkert að gera hér fyrst ástin þín væri dáin. Það var svo sárt að horfa á þig þessa síðustu daga því maður sá alla sorg- ina í augum þínum og ég vissi að þú myndir ekki staldra lengi við nú er amma var farin. Orðin sem endurspegla þig og per- sónuleika þinn eru svo mörg, þú varst besti og sá fallegasti maður sem ég hef nokkurn tímann þekkt bæði að utan og innan. Hjarta þitt var á stærð við heiminn, þú gafst svo mikla ást til okkar allra og þá sér- staklega hennar ömmu. Þú varst aldrei í rónni fyrr en amma var búin að koma upp á spítala að heimsækja þig á daginn. Þið voruð svo falleg saman og eins og ég sagði í minning- argrein ömmu mun ég óska þess að finna sömu ást og þið áttuð saman. Síðustu orð þín við mig voru: „Er afi að fara frá þér?“ Ég man að þú kallaðir mig alltaf afastelpu númer eitt og það er eitthvað sem ég mun vera að eilífu. Þú ert maðurinn sem ólst mig upp og áttir allt mitt hjarta. Já, elsku afi, nú ertu kominn í faðm ömmu og englanna og ég vona að þér líði vel þó svo að sorgin sé sár. Þið amma voruð ljósið sem lýsti veginn fyrir mig og ég mun halda áfram að ganga í því og fara réttar leiðir í líf- inu. Ég elska ykkur að eilífu og ég mun aldrei gleyma ykkur. Ykkar barnabarn, María Tinna. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. (Úr 23. Davíðssálmi.) Elsku besti afi minn, þetta er svo ósköp sárt að missa ykkur ömmu svona fljótt frá mér. Þið voruð mér svo mikils virði alveg frá mínum fyrsta degi, við höfum búið saman og ferðast saman og þið hafið tekið þátt í mínu lífi eins og ég hafi verið barnið ykkar. Mikill er minn missir, en núna eruð þið amma saman og það huggar mig. Ég veit að ég á eftir að sakna ykkar mikið, öll ferðalögin okkar og það sem við höfum brallað saman, afi minn. Ég þakka þér og ömmu fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig. Ég mun alltaf geyma ykkur í hjarta mínu, hjartans afi minn. Elska þig, afi minn. Afa-stelpa, Sigrún Snædís. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Elsku hjartans afi minn. Það er erfitt að kveðja þig, ég er nýbúin að kveðja ömmu, og er varla farin að fatta það. En nú ert þú komin til hennar. Ég hugsa oft til þín, þegar þú varst að biðja mig að taka niður húf- una mína og brostir til mín, þú varst alltaf að stríða mér. Þú varst alltaf svo góður og skemmtilegur. Ég elska þig afi minn, kysstu ömmu frá mér. Þín skotta, Katrín Lind. Elsku afi minn. Það er sárt að missa ykkur bæði ömmu og þig á stuttum tíma. Ég bið Guð að passa ykkur. Mig langar að fara með bæn- ina mína. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Afi takk fyrir allar góðu samveru- stundirnar okkar, þar á meðal ferða- lögin með ykkur. Nú eigum við Katr- ín systir tvo verndarengla til viðbótar. Elska þig, afi. Þinn Sigurður Evert. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Elsku besti afi. Ég elska þig alltaf, á jólunum og alltaf. Ég sakna ykkar ömmu rosa- lega mikið. Alltaf tókuð þið amma okkur systkinin með í útilegu, það var gaman að ferðast í húsbílnum og heyra afa segja okkur sögur. Eins þegar þið voruð að spyrja okkur um fjöll og staði, hvað það hét. Við lærð- um mikið á þessum ferðalögum með ykkur. Mínar minningar eru ljúfar og skemmtilegar sem við áttum sam- an. Ég mun varðveita okkar stundir. Þinn afastrákur, William Þór. MAGNÚS JÓNSSON  Fleiri minningargreinar um Baldvin Skæringsso bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Kjartan Þór Birgisson og Guðjón Trausta- son og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.