Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 29
raunar í föðurhúsum alla tíð og reyndist ömmu mikil hjálparhella eftir að afi dó haustið 1971. Að loknu skyldunámi hóf hann störf í almennri verkamannavinnu og var hamhleypa til verka, þótt hann væri augljóslega á rangri hillu í ljósi hins ákafa áhuga síns á bókum. Ein- hverju sinni hafði ég orð á því við móður mína að mér þætti skrítið að bókakarl og fræðagrúskari eins og Maggi frændi hefði ekki farið í lang- skólanám. Hún svaraði því til að hann hefði einfaldlega ekki haft tækifæri til þess, raunar eins og svo margir aðrir unglingar í þá daga. Þetta var á eftirstríðsárunum, þjóð- in fátæk, nýgengin úr kreppu og framleiðsluhugsun mjög áberandi og í hávegum höfð. Það var víða verk að vinna. En hann bætti sér það upp síðar á ævinni með því að taka sér býsna löng frí frá vinnu, sem mörgum fannst harla óvenju- legt, til að sinna áhugamáli sínu; lestri bóka. Bækur voru líf hans og yndi. Ég umgekkst Magga auðvitað mest sem strákur og unglingur og gerði mér sömuleiðis far um að skjótast í heimsókn á Grettisgötuna á háskólaárum mínum. Eins og gengur dró verulega úr samskiptum okkar eftir að ég var sjálfur kominn með fjölskyldu og annir hversdags- ins urðu meira krefjandi. Síðustu árin voru samskipti okkar sáralítil. Fyrir nokkrum árum veiktist Maggi svo mjög að honum var vart hugað líf um tíma. Hann glímdi við þessi veikindi æ síðan – síðustu árin á Elliheimilinu Grund – og átti ekki afturkvæmt á heimili sitt við Grett- isgötuna. Fyrir vináttu og ræktarsemi hans, þegar samskipti okkar voru sem mest, verð ég ævinlega þakk- látur. Það er komið að skilnaðar- stundu. Sómamaður er genginn. Blessuð sé minning Magnúsar Jóns- sonar, Magga frænda. Jón G. Hauksson. Ó, dauði. taktu vel þeim vini mínum, sem vitjað hefur þreyttur á þinn fund. Oft bar hann þrá til þín í huga sínum og þú gafst honum traust á banastund. Nú leggur hann það allt, sem var hans auður, sitt æviböl, sitt hjarta að fótum þér. Er slíkt ei nóg? Sá einn er ekki snauður sem einskins hér á jörðu væntir sér. (Tómas Guðm.) Nú kveðjum við Magga frænda, eldri bróður pabba okkar, sem bjó hjá Gurrý ömmu í litla gula húsinu á Grettisgötunni. Við eigum margar minningar um Magga frænda. Fyrstu minningarnar um hann eru frá því að hann tók á móti manni þegar við heimsóttum þau ömmu og hann. Þá togaði maður stundum í jakkavasann hjá honum og þá laum- aði hann oft nammi í vasann og gaf okkur. Þær eru ofarlega í huganum minningarnar um hjólreiðatúrana sem voru þvílíkt sport. Stundum var setið á bögglaberanum og stundum á stýrinu. Hjólreiðatúrarnir enduðu oft niður á tjörn að gefa öndunum brauð sem var alveg æðislegt. Seinna fengu elstu barnabörn föður okkar að upplifa þetta. Þegar við fengum að fara í heim- sókn til Gurrý ömmu og Magga frænda með strætó þá tók Maggi ekki annað í mál en að ganga með okkur upp á Hlemm þegar við vor- um að fara heim og beið með okkur þar til við vorum komnar upp í strætó á leið heim. Maggi frændi dó 27. feb. um morguninn en þann dag fæddi ein af okkur litla dóttur. Þannig er nú lífið þegar einn kveður er annað líf sem fæðist. Við viljum þakka fyrir alla góðu stundirnar með þér, Maggi frændi, og vitum að nú ert þú kominn á betri stað. Guðríður, Hafdís og Díana Guðjónsdætur. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 29 MINNINGAR ✝ Teitur Krist-jánsson fæddist í Litla Laugardal í Tálknafirði í V-Barðastrandar- sýslu hinn 16. októ- ber 1928. Hann lést á heimili sínu hinn 24. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Kristófers- son og Jóhanna Pálsdóttir. Systkini Teits eru: Jóna, f. 1917, Páll, f. 1918, látinn, Kristín, f. 1920, látin, Kristófer, f. 1922, látinn, og Gísli, f. 1924, látinn. Teitur kvæntist Margréti Birnu ur Hrafn, f. 1992, b) Egill Óskar, f. 1994, c) Eiríkur Rúnar, f. 1997. 3) Ingvar, f. 1958. Synir hans: a) Teit- ur Þór, f. 1982, b) Haukur Már, f. 1984, c) Bjarki Freyr, f. 1993. 4) Birgir, f. 1960, kvæntur Þuríði Helgu Benediktsdóttur. Börn þeirra eru: a) Benedikt Orri, f. 1988, b) Tinna Björk, f. 1994. 5) Aðalsteinn Þór, f. 1961. 6) Jóhanna Kristín, f. 1963, gift Gísla Ágústs- syni. Dóttir þeirra er: Selma Mar- grét, f. 2000. Dóttir Jóhönnu er Elsa Rut Gylfadóttir, f. 1989. Sem ungur maður stundaði Teitur sjómennsku á vetrum á Gylfanum og Verði frá Patreks- firði en vann á jarðýtu og við bú- störf á sumrin. Árið 1955 flytjast Teitur og Margrét til Reykjavíkur og stofna heimili. Teitur lærði húsasmíði og varð það hans ævi- starf. Útför Teits verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Aðalsteinsdóttur frá Fáskrúðsfirði hinn 31. mars 1956. For- eldrar hennar voru Aðalsteinn Valdimar Björnsson og Þórunn Jóhannesdóttir Mich- elsen. Börn Teits og Margrétar eru: 1) Hilmar, f. 1955, kvæntur Ingibjörgu Þóru Marteinsdóttur. Dætur þeirra eru: a) Hildur, f. 1980, gift Jóhanni Erni Sigur- jónssyni, dóttir þeirra er Alda Marín, f 2002. b) Katrín, f. 1984. 2) Sigrún, f. 1957, sambýlismaður Gísli Rúnar Har- aldsson. Synir þeirra eru: a) Giss- Sálin fleyg og höndin hög hlýða sama dómi. Eilíf ráða listar lög litum, svip og hljómi. (Einar Ben.) Hjartkær tengdafaðir minn er lát- inn 77 ára að aldri. Það er enginn ald- ur nú til dags og alls ekki hjá honum sem okkur öllum fannst sterkastur allra, hraustur, keikur, eilífur, ný- hættur í formlegri vinnu. Hann var þó alls ekki hættur, sífellt eitthvað að vinna fyrir sig og sína. Frár á fæti, hljóp upp um fjöll og firnindi og höfðum við yngra fólkið ekki roð við honum, hann á vaðstígvélum, við á fullkomnustu gönguskóm. Já, minn- ingarnar streyma fram. Tjaldferð- irnar góðu sem farnar voru um sveit- ir landsins, þar var Teitur á heimavelli, þekkti nánast hvern bæ, fjöll og fugla og ef hann var ekki viss þá var „bókin góða“ tekin fram, Vegahandbókin, sú var sko notuð, mikið flett. Teitur var mikill hag- leiksmaður, vinnusamur mjög, ekta Vestfirðingur enda úr Arnarfirðin- um. Hann fæddist í Tálknafirði og fluttist með foreldrum sínum ungur að Öskubrekku í Fífustaðadal og seinna að Feigsdal í Bakkadal í Arn- arfirði. Ég var svo lánsöm að fara í Vest- fjarðaferð með tengdaforeldrum mínum fyrir nokkrum árum, það er stór perla í minningasjóði mínum. Hann var alveg hreint óendanlega fróður um land og þjóð. Alltaf mun ég minnast orða hans þegar við vor- um fyrir utan Hrafnseyri: „Sjáðu Ingibjörg, hve þeir eru fallegir Ket- ildalirnir mínir,“ og seinna um dag- inn þegar búið var að tjalda við Dynj- anda þá var elduð ýsa sem hann hafði fengið að gjöf hjá sjómönnunum á Flateyri, yndislegar minningar, ómetanlegur fjársjóður. Stundirnar allar í bústaðnum góða í Eilífsdal, þar sjást mörg handarverkin hans, melur einn svæðið í kring, nú uppgróið og fallegt. Þar voru barna- börnin í fyrirrúmi sem og heima, allt- af að gera eitthvað fyrir þau eða með þeim. Betri afa er vart hægt að hugsa sér fyrir barnabörnin, alltaf til í allt, óþrjótandi kraftur í leik og starfi. Engum er ljóst, hvaðan lagt var af stað né hver lestinni miklu ræður. Við sláumst í förina fyrir það, jafnt fúsir sem nauðugir, bræður! Og hægt hún fer, en hún færist um set, þessi fylgd yfir veginn auðan, kynslóð af kynslóð og fet fyrir fet. Og ferðinni er heitið í dauðann. (Tómas Guðm.) Lokið er farsælli ævi góðs manns. Ég kveð Teit með sorg og söknuði og er þakklát fyrir samvistir okkar sem aldrei bar skugga á. Hugurinn dvel- ur hjá Margréti, sem sér á eftir lífs- förunaut sínum, hennar er missirinn mestur. Megi henni hlotnast styrkur í sorginni. Ingibjörg Þóra Marteinsdóttir. Hafðu þakkir fyrir allt og allt, kæri Teitur, alla óeigingjarna og mikla hjálp hér heima við, við hinar sífelldu endurbætur og uppbyggingu í húsinu okkar. Hér við lok mikils og langs vinnudags óska ég þér friðar og góðrar hvíldar og bið góðan guð að styðja eftirlifandi eiginkonu, börn og fjölskyldur þeirra. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín tengdadóttir, Þyrí. Mig langar til að skrifa nokkur orð til að minnast afa. Hann var raunar ekki afi minn heldur meira pabbi minn. Hann kenndi mér allt sem ég þarf að kunna um muninn á því að nota skrúfu og nagla, hvernig best er að saga og þótt það hafi einhvern veginn hljómað furðulega frá honum, þá eru kraftarnir víst ekki allt. Stundirnar í bílskúrnum eru ómet- anlegar, þar sat maður oft og ann- aðhvort horfði á hann vinna eða þá að maður fékk lítinn spýtukubb til að smíða úr eða tálga. Hann sýndi alltaf mikinn áhuga á því hvernig mér gekk í skólanum og þótt ég kynni lítið sem ekkert í hlut- unum sagðist hann alltaf vera viss um að ég fengi tíu á prófinu, en ef það rættist ekki sagði hann rólega: „Ertu nokkuð búin að fá miklu hærra á þessu ári?“ Stundum efaðist ég um það hver ætti áhugamálin, ég eða hann. Þá sérstaklega í þau þrjú ár sem ég var með kanínurnar, hann var ótrúlega natinn við að hanna og byggja kofa, grindur og alls konar krúsidúllur og stundum þótti ömmu nú nóg um ruglið í okkur. Svo þegar kanínu- greyin voru orðin flestum til ama þá fór hann með þær upp á dýraspítala og lét svæfa þær, og ég held bara að það sé eitt af fáum skiptum sem ég sá honum vökna um augun. Ef maður kom með smávægilegt vandamál eða hugmynd til hans fór alltaf í gang mikil hugmyndavinna um það hvernig best væri að laga það og oftast kom hluturinn margendur- bættur til baka. Sumarbústaðarferðirnar voru líka æði margar og þar var margt brall- að, náð í vatn, höggvinn eldiviður og gruflað í garðinum, alltaf var jafn gaman að hjálpa til við það, þó að í dag sé manni ljóst að líklega þvæld- ist maður nú bara mest fyrir. Ég býst ennþá við því að hann gangi inn um dyrnar, fari í inniskóna, og segi svo: „Elsa Rut, hefurðu séð gleraugun mín?“ Og ég svara: „Nei, af hverju ætti ég að vita um þau?“ Þá svarar hann: „Nú, þú átt að sjá um að passa þau.“ Takk afi, fyrir að hafa alltaf verið þú sjálfur og leyft mér að dandalast svona mikið í kringum þig. Þín Elsa Rut. Elsku Teitur afi, okkur bræðurna langar til að kveðja þig og segja nokkur orð. Minningarnar um þig og þær ánægjulegu og góðu stundir sem við áttum saman yfir ævina munu lifa með okkur að eilífu. Heimsóknirnar á Digranesheiðina voru okkur alltaf ljúfar í hjarta og var sérlega skemmtilegt að fara með þér um mó- ann bak við húsið og hlusta á þær skemmtilegu sögur sem þú sagðir okkur þá. Ferðirnar upp í bústað með þér og ömmu voru ávallt skemmtilegar, sérstaklega er okkur minnisstætt þegar við löbbuðum með þér upp á Eyrarfjall með fánann og ætluðum við að endurtaka þann leik þegar við værum orðnir jafn gamlir og þú á þeim tíma enda vorum við undrandi á formi og krafti þínum. Matarvenjur þínar þóttu okkur alltaf áhugaverðar og endurspeglaði það viðhorf þitt til að halda í gömlu siðina. Hin árlega skata uppi á Digranesheiði með þér og ömmu munu lifa með okkur að eilífu. Það var alltaf gaman að sjá hvað kraft- urinn í þér var rosalegur og munum við sérstaklega eftir því þegar við vorum að moka með þér fyrir vatns- inntakinu uppi í bústað og áttum við fullt í fangi með að halda í við þig. Þú varst afar kærleiksríkur, góður og blíður maður. Rosalega handlag- inn og voru það ófáir hlutirnir sem þú bjóst til sjálfur handa okkur. Þú komst alltaf vel fram við okkur og munum við ávallt elska þig. Hvíldu í friði, elsku besti afi okkar, þú munt alltaf eiga stóran hluta af hjarta okkar og munum við sakna þín. Teitur, Haukur og Bjarki. Við sitjum hér saman systurnar og trúum því ekki að það sé virkilega komið að kveðjustund þinni. Þú sem alltaf varst manna hressastur og til í allt. Stakkst fullbúna fjallakappa af í Esjunni klæddur vaðstígvélum og vindjakka, alltaf til í að leika við okk- ur barnabörnin í öllum þeim leikjum sem okkur datt í hug og þú varst allt- af til staðar ef eitthvað var. Elsku afi, til þín munum við alltaf hugsa með hlýju og kærleik. Takk fyrir allar frábæru stundirnar sem við áttum saman. Lífið verður mun litlausara án þín. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Þínar Hildur og Katrín. Nú er hann Teitur afi dáinn. Hann vissi svo margt og gat svo margt. Þegar við þurftum að vita eitthvað þá spurðum við þig og þú vissir alltaf svarið. Þegar við vorum í sumarbú- staðnum kenndir þú okkur að tálga með vasahníf svo við gætum tálgað spýtukalla eins og þú. Þegar við vor- um í smíði í skólanum og komum heim með smíðahlutinn gáði mamma alltaf hvort ekki væru vel pússaðar brúnirnar, hún sagði okkur að þú gerðir það alltaf, og þá gátum við sýnt þér stoltir það sem við smíðuðum, og mikið rétt þú straukst hlutinn með stóru höndunum þínum og gáðir hvernig við pússuðum hann. En hver á nú að hjálpa ömmu í sumarbústaðn- um með hakann til að ná steinunum upp? Kannski getum við gert það, við vorum búnir að sjá þig nota hann. Hann Teitur afi var ekki glaður ef við fórum ekki vel með gróðurinn og trén. Það var nú gaman þegar við vor- um að tefla. Þá var mikið hugsað. Gaman þótti okkur þegar við unnum þig eða gerðum góðan leik. Þá sagðir þú alltaf: „Sko þig,“ eða „þetta gastu“. Við eigum eftir að sakna þín mikið. Bless, Teitur afi, og þakka þér fyrir allt. Gissur Hrafn, Egill Óskar og Eiríkur Rúnar. Teitur afi var frábær. Hann gerði margt skemmtilegt með okkur eins og að spila á spil, tálga og smíða tré- karla, spila tennis og badminton og fara í göngutúra þegar við vorum í sumarbústaðnum með honum og ömmu. Afi var mjög sérstakur í okkar aug- um, við nutum vel þeirra stunda sem við áttum með honum. Hvíl þú í friði, og hafðu þakkir fyrir allt. Þín Tinna Björk og Benedikt Orri. TEITUR KRISTJÁNSSON REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning  Fleiri minningargreinar um Magnús Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Guðríður, Haf- dís og Díana Guðjónsdætur og Sveinn H. Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.