Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 44
44 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ***** S.V. Mbl. ***** L.I.B. Topp5.is eee S.K. DV Clive Owen Jennifer Aniston Vincent Cassel FREISTINGAR GETA REYNST DÝRKEYPTAR Sýnd með íslensku tali. Hér er á ferðinni frábært framhald einnar ástsælustu teiknimynd allra tíma. TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit, besta tónlist og besta klipping.5 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA m.a.: Charlize Theron sem besta leikkona í aðalhlutverki og Frances McDormand sem besta leikkona í aukahlutverki. Frá leikstjóra Whale Rider.2 eee V.J.V. Topp5.is eee S.V. MBL eee H.J. Mbl. eee S.K. DV StærSta kvikmyndahúS landSinS HRÍFANDI KVIKMYND UM MANNLEGAR TILFINNINGAR Syriana kl. 5:30 - 8 og 10:30 b.i. 16 ára Blóðbönd kl. 6 - 8 og 10 Casanova kl. 10:15 Munich kl. 5:50 og 9 b.i. 16 ára North Country kl. 5:30 b.i. 12 ára Pride & Prejudice kl. 5:45 og 8:15 "I´Esquive (Undansvik) kl. 8 Kvikmyndaklúbbur AF ***** S.V. Mbl. eee V.J.V. Topp5.is ***** L.I.B. Topp5.is ALLT TENGIST Á EINHVERN HÁTT Frá höfundi „Traffc“ eeee Ö.J. Kvikmyndir.com eeee V.J.V. Topp5.is TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Besta aukahlutverk karla/George Clooney og besta frumsamda handritið.2 eee H.J. Mbl. eee S.V. MBL eee V.J.V. topp5.is eeee S.V. mbl eeee A.G. Blaðið G.E. NFS eee Ó.H.T. RÁS 2 SÖNGVAKEPPNI Samfés fór fram á laug- ardag í íþróttamiðstöðinni Varmá í Mos- fellsbæ. Þrjú þúsund áhorfendur fylltu húsa- kynnin og var stemningin gríðarleg að sögn Hafsteins Snæland, framkvæmdastjóra Sam- fés. Þá lá við að þakið færi af húsinu þegar Wig Wam kom óvænt á svið, meðan dómarar réðu ráðum sínum, og lék nokkur af sínum þekktustu lögum. Sigurvegari keppninnar var félagsmið- stöðvin Ekkó í Kópavogi, og Kristjana Arnars- dóttir og Kristín Inga Jónsdóttir sem sungu til sigurs John Mayer-lagið „Daughters“. Í öðru sæti var félagsmiðstöðin Þeba, einnig úr Kópavogi, og var það Hugrún Þórbergs- dóttir sem söng lagið „Swallow your pride“. Í þriðja sæti hafnaði síðan Zelsíuz á Selfossi, og söng Guðmundur Þórarinsson fyrir þeirra hönd lagið „Living on a prayer“. Félagsmiðstöðin Þrykkjan frá Höfn í Hornafirði var bæði með besta frumsamda lagið og verðlaun FTT, Félags tónskálda og textahöfunda, fyrir besta íslenska frumsamda textann. Það var Ragnar Ægir Fjölnisson sem samdi lag og texta og flutti lagið „Hættiði að hlæja“. Loks var Elín Eyþórsdóttir frá fé- lagsmiðstöðinni Gufunesbæ í Grafarvogi með athyglisverðasta atriðið. Dómnefndin var vel skipuð, og var Har- aldur Freyr Gíslason úr Botnleðju formaður. Aðrir í dómnefnd voru Guðmundur Jónsson úr Sálinni hans Jóns míns, Andrea Jónsdóttir útvarpskona, Guðrún Árný söngkona og Sölvi Blöndal tónlistarmaður. Sigurvegarinn hlaut farandbikar, pen- ingaverðlaun, inneign til hljóðfærakaupa og heilan dag í hljóðveri. Þrjátíu atriði kepptu til sigurs, en áður höfðu farið fram undankeppnir í félagsmið- stöðvum um allt land, og alls 100 atriði sem flutt hafa verið í keppninni á landsvísu. Tónlist | Félagsmiðstöðin Ekkó í Kópavogi söng til sigurs Hörkufjör á Söngva- keppni Samfés Morgunblaðið/Sverrir Sumir áhorfenda voru svo hrifnir af frammi- stöðu flytjenda að þeir hófu hendur á loft. Morgunblaðið/Sverrir Húsfyllir var á Varmá og gleðin skein úr hverju andliti, eins og hjá þessum ungu stúlk- um sem mættar voru til að styðja sína menn. Morgunblaðið/Sverrir Snorri Eldjárn frá félagsmiðstöðinni Pleizinu á Dalvík vakti lukku með Guns n’ Rozes- laginu „Patience“. Ljósmynd/Sigurgeir Birgisson Sigurvegarar kvöldsins: Kristín Inga Jónsdóttir og Kristjana Arnarsdóttir. HINN almenni borgari er löngu hættur að kippa sér upp við okrið á besínstöðvunum, þar er fyrir löngu búið að níða niður af honum skóinn, eilífar hækkanir virðast fara eftir ein- hverju undarlegu náttúrulögmáli. Myndin Syriana fær mann til að hugsa aðeins lengra en til höf- uðstöðva Esso, Shell og Olís, hún gef- ur leikmanninum ákveðna innsýn í baktjaldamakkið sem býr að baki hverjum dropa sem dælt er á blikk- beljur veraldar. Heimsmarkaðsverð, hvernig verður það til? Gaghan held- ur fram að því sé stjórnað heima fyr- ir, þ.e. í Bandaríkjunum, í magnaðri og vel gerðri mynd sem skilur við mann skrælnaðan á tank og líkama. Syriana er ein fjölda mynda þessa dagana sem sagðar eru af mörgum persónum, í tilfelli Syriönu full- mörgum, sem er helsti galli hennar, en hún krefur mann jafnframt um að depla ekki auga. Gaghan gætir þess líka að hver sögupersóna sé skýr og hver saga vel afmörkuð. Clooney leikur Bob Barnes, langsjóaðan leyniþjónustumann, sem staðið hefur í skítverkum alla tíð. Að því kemur að mælirinn fyllist og hann rís upp á afturfæturna. Kannski of seint. Einn lykilmanna er ungur lögmað- ur á uppleið (Wright), sem leikur tveimur skjöldum við rannsókn á samruna tveggja olíurisa. Woodman (Damon) er fjármálaráðgjafi á upp- sveiflu og verður hægri hönd Nasirs (Alexander Siddig), annars sona olíu- fursta ónefnds ríkis í arabaheiminum. Nasir er í baráttu við bróður sinn um að taka við völdum af karli föður þeirra, sem kominn er að fótum fram. Úti í garðshorni furstadæmisins er níðfátækur verkamaður, tilbúinn að fórna sér fyrir ónefndann spámann. Þá morar myndin af litríkum hlið- arpersónum og vel leiknum af Hurt, Plummer og Cooper, sem á jafn- auðvelt með að leika einn af valda- mönnum heims og tannlausan hass- haus. Ekki má gleyma Mark Strong í hlutverki pyntingameistarns Muss- awis. Því fékk enginn þeirra tilnefn- ingu? Hér eru aðeins fáeinir nefndir í sjóðbullandi hringiðu olíuauðs, spill- ingar, tvískinnungs, baktjaldamakks og trúarofstækis. Enginn er saklaus, hver einasta persóna burðast með sitt óhreina mjöl í pokahorninu. Syriana verður fyrir vikið það umfangsmikil að innihaldið rúmast varla innan vel rýmilegs sýningartímans. Áhorfand- inn hefur að vísu litla sem enga hug- mynd um hvað er satt eða logið í heimi Gaghans, frekar en raunveru- leikanum. Myndin er engu að síður furðu trúverðug og skynsamlega skrifuð og fær mann m.a. til að velta fyrir sér stjarnfræðilegum gróða þeirra sem stjórna olíumálunum. Ekki aðeins dvergrisanna hér heima, heldur Exxon, Statoil, British Petrol- eum, Royal Dutch Shell eða hvað þau heita. Öll erum við misnotuð gróflega án þess að fá rönd við reist. Gaghan beinir spjótum sínum í ýmsar áttir, ekki síst að eigin stjórn- völdum og stjórnarháttum, og odd- arnir ýta við áhorfandanum en Gaghan gætir þess jafnframt að ádeilan kæfi aldrei afþreyinguna, framvindan er hröð og spennandi í sínum mörgu og mislitu lögum. Clooney, grár og bólginn, skilur glansímyndina eftir heima, nú er hann sleipur, lítill kall sem hefur auð- mjúkur látið misnota sig sem hand- bendi enn sleipari og stærri karla í kerfinu. Það er gott til þess að vita að til eru menn sem láta sér ekki nægja að vera frægir og flottar stjörnur en þora að taka gallharða pólitíska af- stöðu, menn hafa valið, að trúa eða ekki. Clooney er einn fárra slíkra og hefur greinilega gaman af og þeir Gaghan eru hvergi bangnir við kóng né prest. Útkoman krefjandi og spennandi pólitískur tryllir. Óhreinn þvottur KVIKMYNDIR Hákólabíó, Sambíóin Leikstjóri: Stephen Gaghan. Aðalleik- arar: George Clooney, Matt Damon, Jeffrey Wright, Chris Cooper, William Hurt, Tim Blake Nelson, Amanda Peet, Christopher Plummer. 122 mín. Banda- ríkin 2005. Syriana  Sæbjörn Valdimarsson „Það er gott til þess að vita að til eru menn sem láta sér ekki nægja að vera frægir og flottar stjörnur en þora að taka gallharða pólitíska afstöðu, menn hafa valið, að trúa eða ekki,“ segir í umsögn gagnrýnanda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.