Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 6

Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 6
6 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LANDBÚNAÐARVERÐLAUNIN voru veitt í tíunda sinn við setningu Búnaðarþings. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði verð- launin viðurkenningu „… fyrir vel rekinn búskap í sátt við land og náttúru. Fyrir ræktun jarðargróða, búfjár eða nýtingu annarra land- gæða allt í samræmi við fjölþætt gildi landbúnaðar í samfélaginu, jafnt fyrir nýjungar og frumkvæði, sem varðveislu menningararfs.“ Verðlaunin voru að þessu sinni veitt fjórum býlum og ábúendum þeirra. Hjónin Guðlaug Sigurð- ardóttir og Hjálmar Pálmason bjuggu á Bergsstöðum á Vatnsnesi við Húnaflóa frá árinu 1972 til síð- astliðins hausts. Voru þau verð- launuð fyrir árangursrík störf að sauðfjárbúskap og kynbótum og fyrir merkileg félagsmálastörf. Hjónin í Hestheimum í Ásahreppi, Ásta Berghildur Ólafsdóttir og Gísli Sveinsson hlutu verðlaun fyrir bjartsýni og dugnað í fram- kvæmdum og frumkvæði við að samtvinna hrossarækt og ferða- þjónustu. Bændur á Miðhúsum í Fljótsdalshéraði, Edda Björnsdóttir og Hlynur Halldórsson hlutu Land- búnaðarverðlaunin fyrir listmuna- gerð, skógræktarstörf og forystu í félagsmálum skógarbænda. Síðast en ekki síst hlutu verðlaunin þau Ragnheiður Margrét Þorsteins- dóttir og Helgi Steinsson, bændur á Syðri-Bægisá í Öxnadal,fyrir „myndarlegan og traustan rækt- unarbúskap, sem öll nautgriparækt í landinu hefur notið“. Átta ársverk á nýbýli Hjónin að Hestheimum keyptu land út úr Sumarliðabæ í Ásahreppi og hófu að búa þar árið 2001. Á fimm ára búskapartíma hafa þau byggt upp svo öflugt starf í tengslum við hestamennsku og ferðaþjónustu að á búinu eru unnin um átta ársverk. „Við vorum í raun heppin, þetta hefur gengið ótrúlega vel fyrir sig. Við höfðum raunar áð- ur rekið bú fyrir aðra aðila og erum bæði hjónin úr sveit,“ segir Ásta. Fyrir utan ýmsa hestatengda ferðaþjónustu bjóða þau gistingu og mat fyrir ferðalanga. „Einnig nýtum við okkur mikið þjónustu í kringum okkur; gallerý, hell- askoðun, sundlaug og allt mögulegt eins og hestasýningar,“ segir Ásta sem viðurkennir að aldrei hafi ann- að komið til greina en hestabúskap- ur. Dóttir hennar Katla hefur nýlok- ið stúdentsprófi og vinnur nú öllum stundum á búinu. Í haust segist hún þó ætla í nám. „Ég er ekki ákveðin en hestabrautin á Hólum heillar.“ Morgunblaðið/Sverrir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, og verðlaunahafarnir Ásta Berghildur Ólafsdóttir og Katla Gísladóttir í forföllum Gísla Sveinssonar, Helgi Steinsson og Ragnheiður Margrét Þorsteinsdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir og Matthildur Hjálmarsdóttir í forföllum Hjálmars Pálmasonar, Edda Björnsdóttir og Hlynur Halldórsson á Miðhúsum. Lengst til hægri er Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. „Vel rekinn búskapur í sátt við land og náttúru“ GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði við setningu Búnaðarþings í gær að það kynni að vera heppilegra fyrir bændur að hefja nauðsyn- lega aðlögun að breyttu umhverfi fyrr en síðar. Átti hann þar við fyrirsjáanlegar breytingar að loknum samningaviðræðum innan Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar (WTO). „Þar er m.a. stefnt að auknum markaðsaðgangi í milliríkjaviðskiptum með búvörur og skerðingu á heimildum aðildarríkjanna til að stunda fram- leiðslu- og markaðstruflandi stuðning. Stefna stjórnvalda hefur verið að tryggja landbúnaðinum tækifæri til að laga sig farsællega að þessari þró- un. Við höfum ákveðna valkosti í því hvernig við bregðumst við hinum væntanlegu nýju skuldbind- ingum, en huga þarf að þeim við endurskoðun á mjólkursamningi og gerð nýs sauðfjársamnings. Best er fyrir bændur að búa við stöðugleika og fyrirsjáanleika á rekstrarumhverfi sínu og forðast kollsteypur ,“ sagði Guðni. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasam- takanna, lýsti áhyggjum bænda af þessum breyt- ingum. „Enn liggur ekki fyrir niðurstaða í við- ræðulotu WTO. Sú óvissa sem því fylgir er okkur erfið. Bændasamtökin hafa verið í góðu sambandi við utanríkisþjónustu okkar og samningafólk Ís- lands og komið á framfæri sjónarmiðum sínum. Á þeim hefur verið allgóður skilningur, en það breytir því ekki að ástæða er til að óttast hver lendingin verður.“ Gæði og aftur gæði Báðir gerðu ráðherra og formaður Bændasam- takanna að umtalsefni mikla eftirspurn eftir ís- lenskum landbúnaðarvörum. „Bóndinn á fullt í fangi með að anna eftirspurninni; það ríkir því sóknarstaða í flestum búgreinum, sem er sam- kvæmt öllum lögmálum kjöraðstæður,“ sagði Guðni. „Áreiðanlega hefði ekki þótt gáfuleg spá fyrir nokkrum misserum að helstu framleiðslubú- greinar okkar hefðu vart undan eftirspurn neyt- enda. En skjótt skipast veðrin. Hagsæld í landinu, aukinn kaupmáttur, samhliða öflugu markaðs- starfi innanlands og utan, hefur breytt stöðunni. Aukinn áhugi á gæðum, vöruvöndun og vöruþróun okkar afurðafyrirtækja gefur okkur ný tækifæri. Þetta gerist á sama tíma og við erum markvisst að létta af okkur þungum höftum sem á bændur voru lögð við átökin við offramleiðsluna. Þróunin er í rétta átt, frjálsræði er meira til athafna,“ sagði Haraldur. Hann átaldi þó þjóðfélagið fyrir umræðu um landbúnað og matvælaverð. „Hvernig má það vera meginniðurstaða virtra fræðimanna og fjölmiðla að íslenskar búvörur þrýsti verðlagi á matvörum upp á við þegar þær í raun draga meðaltalsverð innkaupakörfunnar niður?“ Guðni benti á að íslenskar landbúnaðarvörur væru ekki hlutfallslega dýrari en aðrar matvörur hérlendis. „… Hitt er annað mál að umræðan und- irstrikar að íslenskur landbúnaður þarf að leitast við að tryggja neytendum sínar góðu afurðir á við- unandi verði; finna verður hverju sinni hinn gullna meðalveg verðs og gæða … En það er mín skoðun að hér megi helst lækka vöruverð með lækkun vörugjalda og virðisaukaskatts á matvæli og efldu eftirliti með samkeppnisskilyrðum á smásölu- markaði,“ sagði Guðni sem jafnframt lagði áherslu á að styrkur íslensks landbúnaðar fælist í „gæðum og aftur gæðum“. Haraldur benti á að Ísland yrði ekki magnfram- leiðsluland: „… við erum of smá til afreka á þeim sviðum, en við getum haft forskot á sviði þekk- ingar. Landbúnaður framtíðarinnar verður þekk- ingaratvinnugrein.“ Bændur hefji nauðsynlega aðlögun fyrr en síðar Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is ÞETTA gekk bara mjög vel hjá okkur, takk, aðstæður voru góðar í dag og sunnudagur svo fáir voru á ferðinni,“ sagði Ásgeir Ei- ríksson framkvæmdastjóri Strætó bs. í gærkvöldi. Nýju leiðakerfi fyrir höf- uðborgarsvæðið var komið í gagnið í gærkvöldi, en tvær leiðir bættust þá við í Reykjavík og tvær í Kópavogi. „Við höfum fengið fínar viðtökur og þetta lof- ar góðu,“ segir Ásgeir. Nokkurt öngþveiti myndaðist við biðstöðina á Hlemmi í gær, en hann segir það ekki vandamál. „Tvær leiðanna sem við bættum við stóð til að hefðu endastöð á Hlemmi. Við ætluðum að hafa biðstöðina við Hlemm en þurftum að færa hana fyrir hornið inn á Rauðarárstíg. Það er nú bara smávegis tæknilegt atriði. Ásgeir segir að þótt reynslan í gær hafi verið góð, þurfi nokkra virka daga til að fá betri mynd af áhrifum breytinganna. „Í dag lögðu nokkrir það á sig að hringja í stjórnstöðina okkar, til að þakka fyrir að fá þessar teng- ingar aftur. Það var ósköp nota- legt.“ Strætó fer vel af stað KÆRUM vegna hraðaksturs hefur fjölgað verulega í umdæmi lögregl- unnar á Selfossi frá því í fyrra. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins var 341 ökumaður kærður vegna of hraðs aksturs. Á sama tímabili á árinu 2005 voru þeir 103, 147 árið 2004 og 101 á árinu 2003. Í tilkynningu frá lögreglu segir að hafa verði í huga að tíðarfar gæti átt þátt í þessum mun á milli ára. 341 tekinn fyrir hraðakstur á tveimur mánuðum JARÐSKJÁLFTI sem mældist 4,3 á Richter samkvæmt sjálfvirkum mælum Veðurstofunnar varð um 38 km norðnorðvestur af Grímsey um kl. 10:20 í gærmorgun. Talsverð skjálftavirkni hefur verið á þessum slóðum að undanförnu og höfðu um 30 smærri skjálftar mælst hjá Veð- urstofunni á svæðinu á einum sólar- hring í gærkvöldi. Upptök skjálftanna eru norð- arlega á svonefndu Tjörnes- brotabelti, en jarðskjálftahrinur eru algengar á svæðinu. Skjálftahrina við Grímsey

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.