Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Þ au Jón Gerald og Jóhanna Guð- mundsdóttir kona hans, búa ásamt sonum sínum, þeim Tómasi og Símoni, í fallegu húsi í Coral Gables á Miami. Húsið var reist 1924, í spænskum stíl og er að mestu leyti í sinni upprunalegu mynd. „Þetta er hús með sál og hér líður okkur vel,“ segja þau Jón Gerald og Jóhanna. Ég hitti fjölskylduna nokkrum sinnum á með- an á dvöl minni stóð í Flórída og Jón Gerald varði með mér miklum tíma. Hann virðist vera sallarólegur gagnvart þeim réttarhöldum sem framundan eru, þar sem hann hefur stöðu sak- bornings, en hefur hingað til haft stöðu vitnis, eins og alþjóð veit. Með sannleikann að vopni „Nei, ég hef engar áhyggjur af því. Þetta er bara eitt verkefni enn, sem ég geng í, með sannleikann að vopni, eins og alltaf. Ég tel ein- faldlega að sannleikurinn verði að koma í ljós, og það gerir hann ekki, nema ég komi fram og leysi frá skjóðunni. Góður maður sagði eitt sinn við mig setningu sem ég hef gert að minni: Það eru þrír menn sem þú verður ávallt að segja satt: Það er lögfræðingurinn þinn, læknirinn þinn og þú sjálfur. Með sannleikann að vopni mun ég sigra og hef raunar sigrað að stórum hluta, þannig að sakfelling eða sýkna í þeirri ákæru sem ég sæti nú, skiptir ekki öllu máli. Raunar finnst mér einnig hægt að skoða þá ákæru sem ég sæti, í jákvæðu ljósi. Ákæru sem Baugsmenn og verjendur þeirra hafa knúið fram af ótrúlegu offorsi. Þar á ég við, að ég hef nú, sem sakborningur, fengið öll máls- skjöl í hendur, sem mér býður í grun að gleðji þá Baugsmenn ekki mjög. Þeir hafa því með offorsi, yfirgangi og linnulausum áróðri skotið sig í fótinn, eina ferðina enn. Mér finnst líka með ólíkindum hvernig verj- endur þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Tryggva Jónssonar, Jóhannesar Jónssonar og Kristínar Jóhannesdóttur, hafa komið fram, frá því að dómurinn féll í aprílmánuði og verið með ótal yfirlýsingar um að ég sé ótrúverðugt vitni. Í sömu veru hefur Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, talað æ ofan í æ. í ræðu og riti. Í áróðursskyni hafa þeir end- urtekið staðhæfingar um ótrúverðugleika minn í síbylju. Mér finnst rétt að árétta hér í upphafi, að hvergi nokkurs staðar segir í dómnum að ég sé ótrúverðugt vitni, eins og Kristján Kristjánsson sýndi með eft- irminnilegum hætti fram á í Kastljósþætti í vor, þar sem hann talaði við Gest Jónsson, verjanda Jóns Ásgeirs. Satt best að segja, fannst mér Kristján taka þennan flinka lög- mann í nefið! Í dómnum segir orðrétt á bls. 28: „Eins og fram er komið bendir ýmislegt til þess að Jón Gerald Sullenberger beri þungan hug til ákærða og jafnvel annarra í fjölskyldu hans. Hlýtur það að rýra sönnunargildi vitn- isburðar hans.“ Í sama dómi á bls. 33 segir ennfremur: „Beinar skjallegar upplýsingar hafa þó komið fram sem styðja framburð Jóns Geralds.“ Þetta er allt með miklum ólíkindum og afar sérkennileg dómsniðurstaða. Ekkert kom fram í dómnum, um að þau gögn sem ég hafði lagt fram og yfirheyrslurnar yfir mér, hafi ekki verið í samræmi við þann vitnisburð sem veittur var í Héraðsdómi Reykjavíkur 21. febrúar sl. Ég veit ekki betur en það sé svo í flestum sakamálum, að kærandi eða brotaþoli beri ekki neinn sérstakan hlýhug til sakborn- ings, án þess að sönnunargildi vitnisburðar kæranda sé úrskurðað rýrt. Þá finnst mér það líka kostulegt, svo ekki sé meira sagt, að verjendur þeirra Jóns Ásgeirs og Tryggva hafi sagt, að ekki mætti ræða þessi mál í fjölmiðlum heima á Íslandi, því slíkt kalli bara á að dómstóll götunnar dæmi í þessu máli. Þessir sömu menn hafa einhliða ráðið allri fjölmiðlaumræðu um Baugsmálið í allt of langan tíma, með því að skammta upp- lýsingar, ákveða hvað má ræða og á hvaða for- sendum. Auk þess hafa þessir sömu menn ráð- ið Gallup til þess að framkvæma skoðanakönnun um það hvernig eigi að dæma í þessu máli. Ef það er ekki að kalla fram dóm- stól götunnar og gera hann virkan, þá veit ég ekki hvað það er!“ Boðinn feitur tékki Jón Gerald segir að í sínum huga hafi aldrei komið til álita að hætta við að leggja fram ákæru, eftir að hann hafði gert upp hug sinn í þeim efnum í júní 2002. „Þegar ég var á leiðinni út á flugvöll, í byrj- un september 2002, eftir að hafa lagt fram kæru, fékk ég upphringingu, þar sem sagt var við mig, að ef ég hætti við allt saman, drægi kæruna til baka og segði að þetta hefði allt verið á misskilningi byggt, þá biði mín feitur tékki upp á tvær milljónir dollara. Ég sagði að þótt tilboðið hefði hljóðað upp á tíu milljónir dollara, þá hefði það engu breytt,“ segir Jón Gerald. Bætir svo við: „Í maí 2002 hefðu þeir enn getað bjargað málum, með því að greiða mér það sem mér bar og hreinsa út þann ágreining sem upp var kominn. Ég hef marg- farið yfir það í huganum, að Jón Ásgeir hefði svo léttilega getað sagt við Tryggva Jónsson að hann yrði bara að fara til Flórída og klára þessi mál með mér, en þeir kusu að fara aðra leið, beittu mig frekju og yfirgangi og hunsuðu mig svo algjörlega. Þar misreiknuðu þeir sig hrapallega.“ Upphafið að viðskiptum Á meðan Jón Gerald var enn við nám, kynntist hann mönnum sem seinna áttu eftir að hafa mikla viðskiptalega þýðingu, bæði fyr- ir hann og fyrir þá Bónusfeðga, Jóhannes og Jón Ásgeir. Meðal þeirra voru Kevin Griffin og Jim Schafer, sem voru báðir í áhrifastöðum hjá Wal Mart, annar framkvæmdastjóri en hinn svæðisstjóri. Þeir voru nágrannar þeirra Jóns Geralds og Jóhönnu og segir Jón Gerald að góður vinskapur hafi tekist með þeim. Hvenær kynntist þú svo Jóni Ásgeiri? „Það var reyndar mjög skömmu eftir að ég kynntist þeim Kevin Griffin og Jim Schafer. Ég kynntist Jóni Ásgeiri og þáverandi konu hans, Lindu Stefánsdóttur, heima á Íslandi í afmæli hjá Hildi, systur Jóhönnu. Hildur mág- kona mín er gift Jóni Erni Stefánssyni sem er bróðir Lindu. Þeir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir voru, þegar þetta var, nýbúnir að stofna Bónus og opna fyrstu Bónus-versl- unina. Við Jón Ásgeir tókum tal saman í þessu afmælisboði og ég fer að segja honum frá því hvað ég sé að gera hér úti á Flórída og segi honum jafnframt frá því að ég eigi góða vini í lykilstöðum hjá verslanakeðjunni Wal Mart. Niðurstaða okkar samtals verður sú, að Jón Ásgeir ákveður að koma og heimsækja okkur í Flórída og það var hans fyrsta ferð til Banda- ríkjanna. Hann kom til okkar, ásamt Lindu konu sinni og dóttur þeirra. Ég skipulagði heimsókn fyrir hann í Wal Mart og kynnti hann fyrir Kevin og Jim Scha- fer og benti honum á að hér gæti verið gott viðskiptatækifæri, því Wal Mart væri stærsta verslanakeðja í heimi og að við gætum fengið kjör frá þeim, vegna vináttu minnar við þessa menn, sem engum öðrum heima á Íslandi stæði til boða. Við gátum einfaldlega gengið beint inn í þeirra innkaupakerfi og fengið þannig frábært verð. Þér er óhætt að trúa því, að slík kjör stóðu ekki hverjum sem var til boða. Þetta var auðvitað mjög dýrmætt, því á þessum tíma rak Wal Mart um 2.500 verslanir í Bandaríkjunum. Í framhaldi af þessari fyrstu heimsókn Jóns Ásgeirs fer hann að venja komur sínar hingað til Flórída. Hann kom hingað m.a. með versl- unarstjóra frá Bónus og innkaupastjóra. Ég sýndi þeim verslanir Wal Mart og hvernig smásalan væri rekin í Bandaríkjunum. Vinir mínir Kevin og Jim reyndust miklir haukar í horni og veittu þeim dýrmætar upp- lýsingar. Við fengum beinan aðgang að inn- kaupakerfinu og fengum allar vörur á sama verði og Wal Mart-verslanirnar, alveg óháð því hversu lítið magn við keyptum. Til að byrja með tókum við allar vörur í gegnum eina Wal Mart-verslun hér í Miami og á fimmtudögum og föstudögum voru gámar fyrir Bónus á Íslandi hlaðnir og svo sendir sjó- leiðis heim. Þetta voru orðin það mikil við- skipti um miðjan tíunda áratuginn, að ekki gekk lengur að nota þessa verslun hér á Miami. Ég samdi því við höfuðstöðvar Wal Mart í Arkansas um að við keyptum beint í gegnum þá og þeir sendu svo vöruna til Eim- skips í Norfolk og þar voru gámarnir hlaðnir. Heima á Íslandi vakti þetta auðvitað upp ákveðnar spurningar hjá öðrum innflytjendum og heildsalar heima voru síður en svo ánægðir með þetta framtak okkar. Hagkaupsmenn höfðu samband við mig og óskuðu eftir að fara í heimsókn til Wal Mart, því þeim hafði ekki orðið neitt ágengt við að koma á beinu inn- kaupasambandi við Wal Mart. Ég fór með þessa menn í heimsókn til höfuðstöðva Wal Mart í Arkansas þar sem við fengum mjög góðar móttökur. Eftir það vissu þeir að ég hafði raunveruleg viðskiptasambönd við þessa risavöxnu viðskiptakeðju, sem var auðvitað fyrst og fremst vegna vináttu minnar við þá Kevin og Jim og einnig við Al Johnson, sem var aðstoðarforstjóri Wal Mart. Í framhaldi af þessu fékk fyrirtæki mitt Nordica sérstakt innkaupanúmer hjá Wal Mart, rétt eins og Nordica væri verslun innan keðjunnar. Það er ekki víst að allir átti sig á hvers konar þýðingu þetta hafði, því í raun og veru vorum við eina fyrirtækið í heiminum, sem ekki tilheyrði Wal Mart, en fengum samt sem áður að nota þeirra ERU MEÐ KVERKATAK Á Jón Gerald Sullenberger, upphafsmaður Baugs- málsins margumrædda, segir hingað og ekki lengra. Tímabært sé að íslenska þjóðin kynnist því hvernig vinnubrögðum Baugsmenn beita, til þess að ná sínu fram. „Ég get ekki þagað lengur. Sannleikurinn verður að koma í ljós. Þessir menn eru með kverka- tak á íslensku þjóðinni og geta ákveðið, einir og sér, hver lifir og hver deyr,“ segir Jón Gerald m.a. í ítarlegu viðtali við Agnesi Bragadóttur, sem ræddi við hann suður í Flórída, þar sem Jón Gerald fór yfir aðdraganda Baugsmálsins, eins og það horfir við honum, þá lífsreynslu sem undanfarin fjögur ár hafa fært honum og fjölskyldu hans og hvaða lærdóm þau hafa dregið af þessari reynslu sinni. UPPHAFSMAÐURINN Jón Gerald Sullenberger: „Með sannleikann að vopni mun ég sigra og hef raunar Jón Gerald Sullenberger

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.