Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 49 DAGBÓK HM í Veróna. Norður ♠Á4 ♥Á9 N/NS ♦986 ♣ÁD9643 Vestur Austur ♠DG106 ♠9752 ♥DG107632 ♥K54 ♦-- ♦ÁG3 ♣85 ♣G107 Suður ♠K83 ♥K54 ♦ÁG3 ♣G107 Norðmennirnir Helness og Hel- gemo eru þekktir fyrir frábæra úr- spils- og varnartækni, en þeir eru lítt gefnir fyrir flóknar kerfisflækjur - þær sagnvenjur sem þeir nota eru ein- faldar og síðan ræður tilfinningin för. En tilfinningin er oft glettilega góð. Spilið að ofan er frá úrslitaleiknum í Rosenblum-keppninni, milli Meltzer og Henner-Welland: Vestur Norður Austur Suður Bertheau Helgemo Nyström Helness -- 1 grand Pass 3 hjörtu * 4 hjörtu 5 lauf 5 hjörtu Pass Pass 6 lauf Pass 6 tíglar Allir pass Grandopnun Helgemos er ekki beinlínis hefðbundin, né heldur stökk- ið í þrjú hjörtu til að sýna stuttlit í hjarta. Þeir félagar hafa meðtekið þá hugmynd að skynsamlegt sé að sýna stuttlit á móti grandopnun, en þetta er nú sjölitur í tígli og margir hefðu frekar viljað leggja áherslu á þann eiginleika spilanna. Þessi byrjun reyndist þó vel þegar vestur tók upp á því að blanda sér í sagnir. Helgemo sá fyrir sér góða samlegu og sagði sex lauf við kröfupassinu, sem Helness breytti auðvitað í sex tígla og tók þar tólf slagi án þess að blása úr nös: 1370. Á hinu borðinu fóru NS mun hægar af stað: Vestur Norður Austur Suður Larsen Henner Meltzer Jacobus -- 1 lauf Pass 1 tígull 4 hjörtu Pass Pass 5 tíglar Pass Pass 5 hjörtu Dobl Allir pass Henner-Welland vekur „réttilega“ á einu laufi, en eins og sagnir þróast getur hún ekki með góðu móti komið spilum sínum til skila. Fimm hjörtu fór tvo niður (300), og sveit Meltzer vann 14 IMPa. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 Rc6 4. Rf3 Be7 5. O-O O-O 6. c3 d6 7. a4 Kh8 8. a5 a6 9. Db3 De8 10. Rg5 Rd8 11. f4 exf4 12. Bxf4 h6 13. Rf3 Re6 14. Rd4 Rxf4 15. Hxf4 c6 16. Hf1 Bd8 17. Dc2 d5 18. exd5 cxd5 19. Bb3 De5 20. Rd2 Bc7 21. R2f3 Dh5 22. h3 Dg6 23. Kh1 Rh5 24. Re2 Bd7 25. Bxd5 Hae8 26. Hae1 He3 27. Be4 Dd6 28. g4 Staðan kom upp í opnum flokki á Ólympíuskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Torínó á Ítalíu. Danski stór- meistarinn Lars Schandorff (2521) hafði svart gegn Knarik Mouradian (2190) frá Líbanon. 28... Hxf3! og hvít- ur gafst upp enda verður hann mát eft- ir 29. Hxf3 Dh2#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Fáanleg fyrirtæki: Þjónusta okkar felst í að tengja saman kaupendur og seljend- ur fyrirtækja. Sem fagfólk í fyrirtækjaviðskiptum erum við í lifandi tengslum við innlendan sem erlendan fyrirtækjamarkað. Aðili að Við erum sérfræðingar í fyrirtækjaviðskiptum. TENGINGVIÐ TÆKIFÆRIN H O R N / H a u k u r / 2 4 0 4 A ) Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýsingar um fyrirtæki eru ekki gefnar í síma. Vinsamlega hringið og pantið tíma, síminn er 414 1200 en einnig er hægt að nota tölvupóst: jens@kontakt.is eða brynhildur@kontakt.is. • Sérverslun með byggingavörur. Ársvelta 230 mkr. • Meðalstórt iðnfyrirtæki í miklum vexti. • Stórt innflutningsfyrirtæki með þekkt umboð í vélum og rekstrarvörum. Ársvelta 800 mkr. • Fyrirtæki með tvo stóra og vel staðsetta söluturna. Ársvelta 110 mkr. • Meðeigandi-fjármálastjóri óskast að lítilli heildverslun með ágætan hagnað. • Rótgróin heildverslun með ýmsar vörur. Ársvelta 280 mkr. • Lítið sérhæft þjónustufyrirtæki. Hentar vel til sameiningar við stærra fyrirtæki á auglýsinga- og prentmarkaði. • Þekkt útgáfufyrirtæki. Ágætur hagnaður. • Ein besta blómabúð bæjarins. Tilvalinn rekstur fyrir hjón eða tvo samhenta einstaklinga. • Merkjaland. Skilta- og merkjagerð. Góður hagnaður. • Vertakafyrirtæki með föst verkefni í vinnuvélum. • Meðalstórt fyrirtæki með gluggatjöld. EBITDA 15 mkr. • Lítið sérhæft ræstingafyrirtæki með mikla sérstöðu og vaxtamöguleika. Fastir samningar. • Mjög þekktur veitingastaður í nágrenni borgarinnar. Mikil sérstaða. Góð velta og hagnaður. • Þekkt húsgagnaverslun. Ársvelta 180 mkr. • Traustur meðeigandi-framkvæmdastjóri óskast að góðu fyrirtæki í miklum vexti. Ársvelta 150 mkr. • Þekkt þjónustufyrirtæki fyrir viðskiptalífið. EBITDA 20 mkr. • Iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu. Ársvelta 230 mkr. • Vinnuvélaverkstæði. Fastir viðskiptavinir. 4 starfsmenn. Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200 www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is, gsm 820 8658 Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is, gsm 868 8648 Guðni Halldórsson viðskiptalögfræðingur, gudni@kontakt.is, gsm 694 7722 Birgir Ómar Haraldsson verkfræðingur, birgir@kontakt.is, gsm 896 6070 Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is, Lilja Margrét Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri, lilja@kontakt.is, gsm 698 0989 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir 500-700 fm skrifstofuhúsnæði á einni hæð á einhverjum framangreindra staða. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI VIÐ BORGARTÚN, SKÚLATÚN EÐA Í MÚLAHVERFI ÓSKAST Síðumúla 35, s. 553 3770. Opið mán.-fös. kl. 10-18 Útsala - Útsala Nú er saumaveðrið Útsala hefst 26. júní Hefðbundin bútasaumsefni 850 kr. m Aðrar vörur 25% afsláttur Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000 Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500 www.terranova.is Terra Nova býður frábært tilboð til Salou. Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. kr. 29.995 M.v. 2 fullorðna og 2 börn. Súpersól tilboð 29. júní og 6. júlí í 5 daga. Netverð á mann. Aukavika kr. 10.000. kr. 39.990 M.v. 2 saman í gistingu. Súpersól tilboð 29. júní og 6. júlí í 5 daga. Netverð á mann. Aukavika kr. 10.000. Súpersól til Salou 29. júní og 6. júlí frá kr. 29.995 Aðeins örfá sæti - SPENNANDI VALKOSTUR Fólk til sveita horfir á sjónvarp Í LESBÓK Morgunblaðsins laug- ardaginn 17. júní síðastliðinn er grein eftir Elfu Ýri Gylfadóttur um hvort það sé hlutverk Ríkisútvarps að sýna Aðþrengdar eiginkonur? Og get ég ekki annað en komið skoðun minni á framfæri vegna þessa. Ef Ríkisútvarpið /sjónvarp ætlar að sýna einungis fræðsluefni og því tengt, verða þeir fyrst að tryggja þeim Íslendingum, sem ekki hafa neitt annað að horfa á en RUV, aðr- ar rásir til afþreyingar. Það er nú svo að fjöldinn allur af fólki til sveita sér ekki aðrar stöðvar og tel ég mig fullvissa um það að aðrir landsmenn hafa enga hugmynd um það. Það sannast best á því að þegar Gallup gerir könnun fyrir aðra miðla er spurt hvaða stöðvar við kaupum? Sem svarað er á einn veg: Hér er ekkert annað í boði. Ég skora hér með á þá sem í hlut eiga að gera gott betur og leyfa fleir- um að njóta þess sem í boði er. Fólk til sveita horfir líka á sjónvarp og þætti ekki verra að geta valið hvað það horfir á, ekki bara gömlu gufuna sem er ekki alltaf þannig að horfandi sé á það sem á dagskránni er. Á meðan viljum við ekki að tekið sé af dagskrá og flutt á aðrar stöðvar það eina sem við horfum á. Sveitakona. Lyklar í óskilum 2 LYKLAR á kippu fundust á Óðins- götu 21. júní sl. Upplýsingar í síma 552 5886 eða 865 3407. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 50 ÁRA afmæli. Á morgun, 26.júní, verður fimmtugur Ingi- mar Sigurðsson, forstöðumaður endurtrygginga hjá TM. Hann tekur ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Hrönn Einarsdóttur, á móti gestum á heimili þeirra, Selbraut 70, Seltjarnar- nesi, á afmælisdaginn frá kl. 17 til 20. 85 ÁRA afmæli. Í dag, 25. júní, eráttatíu og fimm ára Sigurbjörg Einarsdóttir, Miðvangi 22, Egils- stöðum. Sigurbjörg var áður til heim- ilis að Selnesi 36, Breiðdalsvík og er fyrrum húsfreyja á Streiti í Breiðdal. Sigurbjörg mun dvelja á heimili dóttur sinnar á afmælisdaginn, að Beiti- stöðum í Leirársveit. Árnaðheilla ritstjorn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.