Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.06.2006, Qupperneq 11
einkavörumerki (House Brand), sem þýddi að kostnaðinum var náð niður um nokkur pró- sentustig, sem er ekkert smáræði í viðskiptum sem þessum.“ Fékk staðfestingu – Svo verður breyting á, þegar sérstök lög um vörumerkingar á vörum frá Bandaríkj- unum taka gildi í Evrópu, ekki satt? „Jú, rétt. Það var um áramótin 1998–1999 að sérmerkja þurfti eftir evrópskum staðli all- ar vörur sem fluttar voru inn frá Bandaríkj- unum. Við byrjuðum á því að heimsækja nokkrar heildsölur heima á Íslandi, til að kanna hvort þeir væru tilbúnir til að vera með okkur í þessum vörumerkingum, en und- irtektir voru neikvæðar, því þetta var bæði kostnaðarsamt og tímafrekt. Eftir fundahöld á milli mín, Jóns Ásgeirs og Jóhannesar, var ákveðið að ég færi í það að flytja alla starfsem- ina frá Norfolk, vörumóttöku og vöruhleðslu í gámana, hingað til Miami. Ég myndi leigja vöruhús og kaupa allan nauðsynlegan búnað, tæki og tól, til að taka á móti vörunum, merkja þær, endurpakka og senda áfram til Íslands. Þetta var fjárfesting fyrir mig upp á um hálfa milljón dollara. Ég kvaðst ekki vera tilbúinn til þess að ráðast í svona fjárfestingu, nema ég fengi staðfestingu frá þeim um að þeir keyptu vörur frá mér fyrir að lágmarki þrjár milljónir dollara á ári, sem voru þau innkaup sem ég þurfti á að halda, til þess að standa undir fjár- festingunni, miðað við það að álagningin frá mér væri á bilinu 6–8%. Þá staðfestingu fékk ég frá þeim feðgum og réðst við svo búið í fjár- festinguna. Okkur samdist um það, að ef inn- kaup þeirra frá Nordica væru innan við þessi lágmarksviðskipti, þá myndu þeir greiða mér mismuninn. Til þess að gera langa sögu stutta, get ég upplýst að þeir stóðu aldrei við þennan samn- ing. Það kom strax á daginn á árinu 1999 og aftur á árinu 2000 að þeir stóðu ekki við sinn hluta samningsins og innkaup þeirra frá mér voru mun minni en um hafði verið samið. Strax þá var ég kominn í fjárhagslega erf- iðleika. Það verður að halda öllu til haga og auðvitað einnig því sem vel er gert. Þeir greiddu mér, á árinu 2001, 80 þúsund dollara, vegna vanefnda á samningum á árunum 1999 og 2000. Það er rétt að það komi fram. Það hjálpaði mér, en dugði engan veginn til, því ég var kominn með tap upp á fleiri hundruð þúsund dollara. Þegar grannt er skoðað, þá er myndin ekki sú, sem þeir Bónusfeðgar hafa alltaf viljað vera láta, þ.e. að þeir tveir eigi allan heiðurinn af því að matvöruverð á Íslandi lækkaði, með tilkomu Bónusverslananna. Það lækkaði, það er ekki spurning, en það hafði ekki lítil áhrif hvernig hagstæð innkaup þeirra í gegnum Simons Agitur í Danmörku og í gegnum Nor- dica, fyrirtæki mitt hér í Bandaríkjunum, gerðu þetta mögulegt, að ekki sé nú minnst á margt það frábæra starfsfólk sem Bónus hafði á að skipa heima á Íslandi, sem vann hörðum höndum myrkranna á milli. Um þetta hafa feðgarnir alla tíð þagað þunnu hljóði og baðað sig einir í ljómanum og látið eins og þeir tveir væru bjargvættir þjóðarinnar. Auðvitað sjáum við það nú, sem við ekki sáum þá, að þeir voru að nota okkur, bæði Nordica og Simons Agitur í Danmörku, ekki síst til þess að ógna heildsölum heima á Ís- landi og ná niður innkaupsverðinu frá þeim. Það er staðreynd, enda staðfestir Jón Ásgeir það í yfirheyrslunum hjá Ríkislögreglustjóra. Baugur fékk sérstaklega góð kjör frá heild- sölum á Íslandi, því þeir höfðu okkur og gátu alltaf vísað til okkar og okkar innkaupagetu, ef þeir voru ekki ánægðir með verðið sem þeim stóð til boða hjá íslensku heildsölunum.“ Óhagstæð gengisþróun – Hafði gengisþróun á þessum tíma einhver áhrif á það, að innkaupin frá Baugi voru ekki jafnmikil og um hafði verið samið, því doll- arinn hækkaði jú upp úr öllu valdi, ekki satt? „Það er rétt, gengisþróunin var mjög óhag- stæð árið 2000 og ég tel engan vafa leika á að hún hafði áhrif á það, að stórlega dró úr inn- kaupunum. En það er ekki nema hluti af skýr- ingunni. Ég reiknaði út álagninguna hjá Baugi og gerði verðkönnun í verslunum Baugs á Ís- landi. Ég tók verðið eins og það var frá Nor- dica með 6–8% álagningu og reiknaði svo út hver álagningin var hjá Baugsverslunum á þær vörur sem þeir keyptu frá mér og satt best að segja, þá var útkoman ótrúleg, því álagningin var svo há og fjarri öllu sem þeir höfðu gefið til kynna. Um þetta á ég öll gögn, þar sem fram kemur að álagningin hjá þeim var á bilinu 42%, þar sem hún var lægst, þ.e. í Bónusverslununum og upp í 87% í Nýkaup. Meðalálagning á vörum frá mér í Baugs versl- unum var 70%, þannig að það er ekki beinlínis hægt að segja að þeir hafi ekki verið að hagn- ast á þessum viðskiptum. Þetta var nú svona, ÍSLENSKU ÞJÓÐINNI Morgunblaðið/Agnes Bragadóttir SAMHENT FJÖLSKYLDA Jóhanna, eiginkona Jóns Geralds, synir þeirra, Tómas og Símon, og Jón Gerald Sullenberger á góðri stundu í Coral Gables á Miami í Flórída. Morgunblaðið/RAX sigrað að stórum hluta, þannig að sakfelling eða sýkna skiptir ekki öllu máli.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 11 Jón Gerald Sullenberger er ekki fædd-ur með silfurskeið í munni. Jón Ger-ald fæddist í Reykjavík 24. júní 1964 á Jónsmessunni. Frumbernska hans og uppvaxtarár voru ekki með hefðbundnum hætti – það er síst of djúpt í árinni tekið að segja, að hann hafi verið rændur æskunni. Fyrstu æviárin bjó hann með foreldrum sínum í Washington, en foreldrar hans, Guðlaug Gunnarsdóttir og Gerald E. Sul- lenberger, kynntust í Reykjavík, þegar faðir hans starfaði sem hermaður við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi. Á fjórða ári kom hann heim til Íslands með móður sinni og var þá komið fyrir í fóstri vestur í bæ. Þegar fósturforeldrar hans fluttu til Danmerkur var honum komið fyrir á öðru fósturheimili í Blesugróf, þar sem honum leið ekki vel og skömmu síðar á öðru fóst- urheimili í Mosfellsbæ. Þá var hann sex ára gamall. Þar óx hann upp við mikið harðræði og 12 ára gamall strauk hann þaðan. Hjólaði til Reykjavíkur og bjó eftir það með móður sinni, sem hann kynntist þá fyrst. Jón Gerald kynntist föður sínum ekki fyrr en eftir að hann flutti til Banda- ríkjanna, en þá leitaði hann Gerald E. Sul- lenberger uppi og komst m.a. að því að hann á yngri bandarískan hálfbróður. Jón Gerald á einnig eldri hálfsystur, Bryndísi – þau eru sammæðra. Það má kannski leita skýringa í bernsku Jóns Geralds og uppvexti, á ástæðum þess, að hann tók þá ákvörðun fyrir fjórum ár- um að segja Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Baugsveldinu stríð á hendur. Hann segir að sér hafi fundist Jón Ásgeir hafa gert til- raun til þess að vega að rótum alls þess sem honum er dýrmætast og helgast. Þetta hafi verið hans viðbrögð þegar Jóhanna kona hans sagði honum frá því að Jón Ás- geir hafi áreitt sig. Þegar ég hitti Jón Gerald í faðmi fjöl- skyldunnar, í Coral Gables á Flórída, fæ ég nýjan skilning á því hvers vegna hann sagði Baugsveldinu stríð á hendur. Jón Gerald er kvæntur Jóhönnu Guðmunds- dóttur og eiga þau synina Tómas, að verða 17 ára og Símon, nýorðinn 15 ára. Fyrir á Jón Gerald son, Róbert Gerald, 22 ára, sem býr heima á Íslandi. Fjölskyldan er Jóni Gerald allt, það fer ekki á milli mála. Það þarf ekki að verja löngum tíma með fjórmenningunum, til þess að sjá að fjölskyldan, samvera, sam- staða, hlýja, virðing og væntumþykja eru í heiðri höfð í þessu litla íslenska samfélagi suður á Flórída. Íslenskt er það, þrátt fyrir 20 ára búsetu í Bandaríkjunum og tilhneig- ingu strákanna, einkum Símonar, til þess að grípa fyrst til enskunnar. Ræturnar eru rammíslenskar og þannig á það að vera, segir Jóhanna stolt. Jón Gerald hefur búið sér og sínum lífið sem hann sjálfur fór á mis við í uppvext- inum, og við því skyldi enginn reyna að hrófla, því sá sem það reynir, finnur fyrir Jón Gerald í vígahug. Það hafa Baugsmenn mátt reyna undanfarin ár. Jón Gerald lærði matreiðslu heima á Ís- landi fyrir margt löngu. Að því loknu lá leiðin til Sviss, þar sem hann bætti við sig í faginu og nam hótelrekstur. Því næst lá leiðin til Flórída, í Florida International University, þar sem hann lauk námi í Ho- spitality Management (hótel- og rekstr- arfræði). Hann og Jóhanna kynntust í London árið 1986, ástin blómstraði og skömmu síðar, eða vorið 1987, kom hún að heimsækja hann í Flórída og þau hafa ver- ið saman síðan. Jóhanna er fædd og uppalin á Seltjarn- arnesi og þar er mér sagt að hún hafi ávallt þótt ein allra fallegasta stúlkan, sem allir strákar renndu hýru auga til. Það eru áreiðanlega engar ýkjur, því Jóhanna er stórglæsileg og frá henni stafar bæði innri ró og hlýju. Hennar helsta stolt eru aug- ljóslega drengirnir, Tómas og Símon. Tóm- as, sá eldri, er staðráðinn í að verða læknir og Símon hefur tekið stefnuna á flugmann- inn. Er reyndar búinn með sextán flugtíma nú þegar, 15 ára síðan 25. apríl sl.! En gests augað stöðvar ekki síður við það hversu miklir félagar og vinir þau hjónin eru. Segja reyndar bæði, að undanfarin fjögur ár hafi gert þau enn nánari og að samband þeirra hafi bara herst og orðið traustara í eldi þeirra átaka sem þau hafa gengið í gegnum. Unga parið byrjaði búskap sinn í lítilli leiguíbúð á Miami, Jóhanna vann við förð- un, en hún hafði lært förðun og fékk fljót- lega vinnu við iðn sína og Jón Gerald hjól- aði í skólann á gömlu lánsreiðhjóli og lagði sig hart fram við námið, sem hann lauk 1991. „Við áttum náttúrlega ekki neitt. Höfðum um 500 dollara á mánuði úr að spila, og af því fóru 270 dollarar í húsa- leiguna,“ rifjar Jón Gerald, lygnir aftur augunum og brosir við minninguna. Jó- hanna bætir við: „Það er alveg rétt, við áttum lítið, en við áttum hvort annað og þetta voru yndislegir tímar.“ Hjónin segjast nú horfa fram á veginn og ætla ekki að dvelja við undanfarin fjög- ur ár. Jóhanna segir: „Við setjum það á oddinn núna, að halda áfram að hugsa vel hvort um annað – halda áfram að láta okk- ur líða vel. Við höfum allt sem við þurfum og höfum margt til að þakka fyrir. Það er með ólíkindum hversu mikinn stuðning við höfum fengið undanfarin fjögur ár, stuðn- ing frá fjölskyldu, vinum og kunningjum, en einnig stuðning frá bláókunnugu fólki.“ Jón Gerald tekur undir með konu sinni og segir: „Þegar þetta var allt að byrja fyrir fjórum árum, þá fékk ég símtöl frá ólíkleg- asta fólki, sem ég þekkti ekki neitt. Fólk hringdi í mig úr öllum landshornum til þess að sýna mér stuðning og hvetja mig áfram: útgerðarmaður af Vestfjörðum, bóndi austan úr sveitum, og svo framvegis. Ég undraðist auðvitað þennan mikla stuðn- ing og skildi ekkert í því hvernig fólk hafði grafið upp símanúmer mitt, en ég er öllu þessu fólki afar þakklátur og ég þakka líka fyrir það hvað við höfum kynnst frábæru fólki þessi fjögur ár, fólki sem verða vinir okkar svo lengi sem við lifum.“ Engin silfurskeið 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.