Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 48

Morgunblaðið - 25.06.2006, Side 48
Kalvin & Hobbes MIÐBORG TOKÝÓ GODZILLA! Kalvin & Hobbes ROSALEGA ER KALT ÚTI ÞÚ ÆTTIR AÐ FÁ ÞÉR LOÐFELD EINS OG ÞENNAN SEM ÉG ER Í HVAÐ VARSTU EIGINLEGA AÐ BORÐA? STEYPU? ÞETTA VAR ÞÍN HUGMYND Kalvin & Hobbes ÉG ER BÚINN AÐ TÝNA TÍU KRÓNUM HVAR TÝNDIRÐU ÞEIM? EINHVERS STAÐAR Í SNJÓNUM VIÐ VERÐUM AÐ BÍÐA ÞANGAÐ TIL SNJÓRINN BRÁÐNAR BÍÐA ÞANGAÐ TIL SNJÓRINN BRÁÐNAR?! ÞETTA ERU 10 KRÓNUR!! Kalvin & Hobbes HVERNIG HEFURÐU ÞAÐ? BARA FÍNT ÉG VIL AÐ ÞÚ RAKIR AF ALLT HÁRIÐ Á HÖFÐINU Á MÉR, NEMA NOKKRAR RENDUR Á HLIÐUNUM SEM ÉG VIL AÐ ÞÚ LITIR BLEIKAR FRÚ? ÞETTA VENJULEGA PÉTUR ÞAÐ ER GREINILEGT AÐ HANN VEIT HVAÐAN PENINGARNIR KOMA!! Kalvin & Hobbes HVERNIG FINNST ÞÉR KLIPPINGIN? ÞETTA ER ALVEG FRÁBÆRT! ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ EKKI VAFI Á ÞVÍ AÐ ÞETTA ER FLOTTASTA KLIPPING SEM ÉG HEF FENGIÐ Á ÆVINNI MAÐUR Á ALDREI AÐ GAGNRÝNA MANN MEÐ RAKHNÍF Kalvin & Hobbes ÞAÐ ER NÚ MEIRA VESENIÐ AÐ HEIMURINN SÉ AÐ FARAST HVAÐ ERTU AÐ MEINA? HOBBES, ÞESSI HALASTJARNA ER FYRIRBOÐI UM DÓMSDAG NEI! ÞAÐ ER BARA HJÁTRÚ. ÞETTA ER BARA HALASTJARNA ER ÞAÐ? ÉG ÆTTI ÞÁ KANNSKI AÐ FARA AÐ SKRIFA ÞESSA RITGERÐ Dagbók Í dag er sunnudagur 25. júní, 176. dagur ársins 2006 Greinilegt er aðmenn á torfæru- hjólum láta ekki segj- ast og það þrátt fyrir að lögreglan hafi oft þurft að hafa afskipti af mönnum sem aka um á mótorfákum – utan vegar á við- kvæmum svæðum. Á dögunum hafði lög- reglan – á ferð í þyrlu – afskipti af nokkrum knöpum sem óku utan vegar á Hengils- svæðinu. Þá komu upp raddir sem vildu hreinlega banna akst- ur á torfæruhjólum á Íslandi. Vík- verji sagði frá því fyrir ári síðan er ófögur sjón blasti við honum er hann var á ferð á gönguleiðinni um Ólafs- skarð. Knapar á torfæruhjólum höfðu spænt upp gönguleiðina suður með austurhlíðum Bláfjallanna og ekið upp hlíðar á Ólafsskarðshnúk- um. Víkverji átti svo fótum fjör að launa er hann var á göngu við Helga- fell á dögunum, þar sem brunandi á móti honum kom grímuklæddur riddari á mótorfák sínum – með til- heyrandi óhljóðum. Síðan sást að riddararnir voru tveir á ferð og voru þeir í kappakstri í kringum Helga- fellið, er þeir fóru hvor í sína áttina. Já, eins og strætóbílstjórarnir sem óku á leiðunum Vesturbær-austur- bær og Austurbær-vesturbær á ár- um áður, er þeir lögðu frá Kalkofns- vegi á sama tíma. Keppt var um hvor væri fljótari hringinn. Víkverji fór í sumar- sólstöðugöngu um Blá- fjallasvæðið sl. mið- vikudagskvöld og er hann og félagar hans voru á göngu í hlíðum Stóra-Kóngsfells um kl. 23.15, glumdi við hávaði frá skíðasvæð- unum í Bláfjöllum. Þegar horft var upp í hlíðarnar sáust þar tveir knapar geysast um á mótorfákum sín- um og var ekkert gefið eftir í að spóla upp jarðveginn á skíðasvæðinu. Það er næsta víst að þeir sem voru þar á ferð – voru ekki í fyrsta skipti á svæðinu og þeir og aðrir verða þar aftur á ferð, verði þeir ekki stöðvaðir. x x x Það er víða en í Bláfjöllum semgengið er illa um umhverfið. Vinkona Víkverja gekk á Hvanna- dalshnúk á dögunum – daginn eftir að um 150 manns fóru þangað upp um hvítasunnuna. Vinkonan var ekki ánægð er hún kom á toppinn – hópur manna hafði kastað af sér vatni á svæðinu, þannig að óþefurinn var mikill og lítt skemmtilegt að ganga í hlandpollum um hnúkinn. Þarf ekki að setja ákveðnar reglur um þvaglát manna á vinsælum ferðamannastöðum? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is             Uppákoma | Gestum Árbæjarsafns býðst að upplifa diskó- og pönkstemn- ingu sunnudaginn 25. júní. Á sýningunni „Diskó & pönk – ólíkir straumar?“ geta gestir safnsins virt fyrir sér ýmsa muni frá árunum 1975–1985 og fengið tilfinningu fyrir tíðarandanum. Klukkan 14 munu leikarar Götuleikhússins, sem starfar á vegum Hins hússins, standa fyrir fjörugum uppákomum í tengslum við sýninguna. Götuleikhúsið í Árbæjarsafni MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert og öndvert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra. (Hebr. 3, 13.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.