Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 25.06.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2006 51 DAGBÓK Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Barcelona 29. júní eða 6. júlí frá kr. 19.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr.19.990 Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir einn tilboð, 29. júní eða 6. júlí. Allra síðustu sætin Barcelona er einstök perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta sumarsins í þessari einstöku borg á frábærum kjörum. Þú kaupir tvö flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Takmarkaður sætafjöldi í boði. Til sölu er ein áhugaverðasta húsgagna- og gjafavöruverslun landsins Skúlagata 17, 101 Reykjavík Sími 566 8800 Fax 566 8802 Gsm 863 6323 Verslunin er með mikið af góðum umboðum og hefur að skipa glæsilegu vöruúrvali og faglegu starfsfólki. Rekstur félagsins hef- ur einkennst af mikilli fagmennsku og metnaði en fyrir liggja upp- gjör og áætlanir til ársins 2008. Nánari upplýsingar gefur Jóhann Ólafsson í síma 863 6323. www.vidskiptahusid.is Jóhann Ólafsson, Löggiltur FFS. Gsm: 863 6323 johann@vidskiptahusid.is Jón Sigfús Sigurjónsson, Hdl.& Löggiltur FFS. gsm: 893 3003, jon@vidskiptahusid.is Jóhann Ólafsson, Löggiltur FFS. gsm: 863 6323, johann@vidskiptahusid.is Skipholt, Reykjavík Gott skrifstofu- og verslunar- húsnæði á þremur hæðum, alls um 323 m2. Á jarðhæð með sérinngangi eru tvö rými, alls um 70 m2. Á 2. hæð er gott skrifstofu- húsnæði sem skiptist í mót- töku, fundarherbergi, fjögur skrifstofuherbergi, kaffistofu o.fl. Á 3. hæð er góð kaffistofa, salur o.fl. Nánari upplýsingar: Þórhallur gsm: 899 6520 og Jón Sigfús gsm: 893 3003 Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • sími: 566 8800 • e-mail: vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is Tónlist Garðatorg | Hljómsveitin Narodna Musika leikur kl. 21–23, á Garðatorgi í Garðabæ tónlist frá Balkanskaga. Myndlist 101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir til 22. júlí. Opið fim., föst. og laug. kl. 14–17. Byggðasafnið á Garðskaga | Vaddý (Val- gerður Ingólfsdóttir) heldur málverkasýn- ingu dagana 15.–30. júní nk. Á sýningunni verða akrýl-, vatnslita-, olíu- og pastel- myndir málaðar eingöngu eftir íslenskum fyrirmyndum. Café Karólína | Sunna Sigfríðardóttir. Myndirnar eru af blómum allar unnar með bleki á pappír. Til 30. júní. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson - Reyno- matic myndir, nærmyndir af náttúrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Skart- gripir fjallkonunnar sem vakið hafa mikla athygli. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga. DaLí gallerí | Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður sýnir til 9. júlí. Energia | Sandra María Sigurðardóttir – Málverkasýningin moments stendur yfir. Til 30. júní. Gallerí Úlfur | Nú stendur yfir sýning Fjöln- is Bragasonar „Úlfur Úlfur“ og stendur hún út júní. Opnunartími er 14–18 virka daga. Gallery Turpentine | Þáliðin Nútíð – Hlað- gerður Íris Björnsdóttir sýnir olíumálverk. Sýningunni lýkur mánudaginn 26. júní og þann dag verður galleríið opið til kl. 18. Gerðuberg | Guðjón Stefán Kristinsson – Sagnir og seiðmenn. Á sýningunni er að finna verk úr rekaviði og vegghleðslu úr grjóti og gleri. Ketill Larsen – Andblær frá öðrum heimi. Ketill sýnir ævintýraleg landslagsmálverk. Jón Ólafsson – Kvunn- dagsfólk. Portrettmyndir málaðar með akrýllitum. www.gerduberg.is Til 30. júní. Hafnarborg | Sýning á ljósmyndum og mál- verkum norska listmálarans og ljósmynd- arans Patrick Huse til 3. júlí. Myndhöggvarar eru kynntir sérstaklega í Hafnarborg í samstarfi við Mynhöggvara- félagið í Reykjavík. Sólveig Baldursdóttir sýnir í anddyri eitt skúlptúrverk unnið í Marmara Rosso Verona. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Til 26. ágúst. Hrafnista Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menning- arsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning- unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákonar Magnússonar. Meðal lista- manna má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dagverðará, Stórval og Kötu sauma- konu. Til 31. júlí. Ís-café | Bjarney Sighvatsdóttir sýnir teikningar frá tveimur námskeiðum árin 1953 og 1998. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berja- landi, Kjós með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Kirkjuhvoll Akranesi | Sossa Björnsdóttir sýnir olíumálverk í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi til 2. júlí. Opið alla daga nema mán. kl. 15–18. Sýningunni lýkur 2. júlí. Listasafn ASÍ | Huginn Þór Arason og Unnar Örn Auðarson sýna í Listasafni ASÍ. List er ekki spegill – list er hamar. Opið 13– 17. Aðgangur ókeypis. Til 25. júní. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Síðasta sýningarhelgi á sýningum Birgis Andréssonar og Stein- gríms Eyfjörð. Leiðsögn um báðar sýning- arnar kl. 14 í fylgd Rakelar Pétursdóttur. Sýningarskrár um sýningarnar eru á til- boðsverði í Safnbúð Listasafnsins meðan á sýningum stendur. Ókeypis aðgangur. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits- sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Safnbúð og kaffistofa. Til 3. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlutum í skúlptúra og innsetningar. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna út- hlutunar listaverkaverðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Sýningin endur- speglar brot af því helsta í norrænni sam- tímalist en meðal sýnenda eru fjórir ís- lenskir listamenn, meðal annars listmálarinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabil- um í list Errós, þær nýjustu frá síðastliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Til 3. des. Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verkanna og hefðbundin listasöguleg við- mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinnar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portrettum Sigur- jóns Ólafssonar. Opið daglega nema má- nud. kl. 14–17. Kaffistofan opin á sama tíma. Sumartónleikar hefjast 11. júlí. Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laug. og sunnud. kl. 12–17. Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Mál- verkasýning Sesselju Tómasdóttur mynd- listarmanns til 17. júlí. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. Aðgangur er ókeypis. Saltfisksetur Íslands | Í Saltfisksetrinu stendur yfir sýning í máli og myndum um fiskveiðar Portúgala á norðurslóðum. Sýn- ingin kemur frá Ílhavo, vinabæ Grindavíkur, og segir frá fiskveiðum Portúgala frá árinu 1500 til dagsins í dag. Þetta er bæði skemmtileg og fræðandi sýning sem vert er að sjá. Til 10. júlí. Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Krist- jáns Guðmundsonar í Skaftfelli, menning- armiðstöð myndlistar á Austurlandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 14–21 í sumar. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda- mótum. Þjóðminjasafn Íslands | Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sumarið 1938. Af mynd- um ferðalanganna má sjá hve ljósmyndin getur verið persónulegt og margrætt tján- ingarform. Söfn Árbæjarsafn | Á Árbæjarsafni hefur verið opnuð sýningin Húsagerð höfuðstaðar, saga byggingatækninnar í Reykjavík frá 1840–1940. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning Borgarskjalasafns í anddyri Laugardals- laugar um Laugarnesskóla í 70 ár. Sögu- legur fróðleikur, ljósmyndir og skjöl. Opin á opnunartíma laugarinnar. Allir velkomnir. Til 30. júní. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is og í 586 8066. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn- arfirði sem er bústaður galdramanns og lit- ið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og fylgst með hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gær- daginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef þú giftist. Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaups- siði í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er opin alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept. Perlan | Sögusafnið Perlunni er opið alla daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda leikmynda sem segja sög- una frá landnámi til 1550. ww.sagamu- seum.is Veiðisafnið - Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr og veiðitengdir munir, skotvopn o.fl. Opið 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is Þjóðminjasafn Íslands | Fornleifaupp- greftir fara nú fram víðs vegar um land og í Rannsóknarýminu á 2. hæð má sjá úrval gripa sem fundist hafa á undanförnum ár- um. Til 31. júlí. Vaxmyndasafnið hefur löngum verið sveip- að ævintýraljóma og í sumar gefst tæki- færi til að sjá hluta þess á 3. hæð safnsins. Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjöl- breyttar sýningar, fræðslu og þjónustu. Þar er safnbúð og kaffihús. Bækur Listasafn ASÍ | ASÍ-FRAKTAL-GRILL Hug- inn Þór Arason og Unnar Örn J. Auðarson unnu sýninguna í sameiningu með safnið í huga. Listamennirnir reyna að fletta ofan af illsýnilegum, óskráðum en kannski aug- ljósum hliðum þess samfélags/umhverfis sem þeir starfa innan. Opið 13–17. Aðgang- ur ókeypis. Til 26. júní. Uppákomur Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fimm- kallahringurinn eftir fjöllistahópinn Norðan Bál. Lifandi ljósastaurar. Að sjá er upplifun. Staðsetning verksins er á túnreitnum fyrir utan Gerðarsafn í Kópavogi. Mannfagnaður Árnesingafélagið í Reykjavík | Árnesinga- félagið í Reykjavík ætlar að koma saman að Áshildarmýri á Skeiðum 25. júní kl. 13. Spáð og spekúlerað og tekið lagið. Gestir taki með sér nesti. Allir velkomnir. Reiðhöll Fáks í Víðidal | Rúmlega 550 hundar af um 60 tegundum verða á árlegri sumarsýningu HRFÍ í reiðhöll Fáks í Víðidal 24. og 25. júní kl. 9–15. Á sérstökum kynn- ingarbásum er jafnframt hægt að ræða við ræktendur og sérfræðinga um ólíkar hundategundir. Þetta er sýning sem enginn áhugamaður um hunda má missa af. Fyrirlestrar og fundir Alanon-húsið | 12 spora fundir kl. 11–12, fyrir skuldara, þar sem deilt er reynslu, styrk og vonum og DA kynna þér lausnir. Héðinshúsinu Seljavegi 2, herbergi 3. Fréttir og tilkynningar Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Fundir eru á hverjum degi víðsvegar um landið. Ferðaklúbbur eldri borgara | Ferðaklúbbur eldri borgara fer í dagsferð 27. júní. Hítar- dalur, Straumfjörður, Akrar, Reykjavík. Upplýsingar í síma 892 3011, allir eldri borgarar velkomnir. GA-fundir | Ef spilafíkn hrjáir þig eða þína er hægt að hringja í síma: 698 3888 Lónkot | Markaður verður haldinn í risa- tjaldinu að Lónkoti í Skagafirði í dag kl. 13– 17. Sölufólk getur haft samband við Ferða- þjónustuna Lónkoti og pantað söluborð í síma 453 7432. Kaffihlaðborð verður á Sölvabar. Frístundir og námskeið Zedrus | Frí talnaspeki á www.zedrus.is Börn Reykjavíkurborg | Í sumar verða opnir leikvellir á vegum ÍTR fyrir 2–5 ára börn í hverfum borgarinnar. Þar er boðið upp á útivist og leik í öruggu umhverfi. Komu- gjald er 100 kr. Nánari upplýsingar á www.itr.is og í síma 411 5000. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos/ Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.