Morgunblaðið - 26.06.2006, Page 1

Morgunblaðið - 26.06.2006, Page 1
Reuters Sprengjusérfræðingur skoðar manninn. LÖGREGLA rýmdi hús og lokaði götum í Tensta, úthverfi Stokkhólms, í gær vegna manns sem lét vita af því að hann væri með sprengjubelti um sig miðjan. Talið er að honum hafi verið rænt, haldið föngnum í þrjá daga og mannræningjarnir fest á hann sprengjubelti sem þeir sögðu fjarstýrt. Lögreglan handtók í gærkvöldi þrítugan mann, grunaðan um aðild að mannráninu. Annars manns um fimmtugt er leitað. Sprengjusérfræðingum tókst eftir sex klukkustundir að ná beltinu af manninum með hjálp röntgenmyndavélar sem sýndi hvar óhætt var að losa það, að því er fram kemur í dagblaðinu Dagens Nyheter. Maðurinn, sem er norskur og 29 ára gam- all, bankaði upp á í íbúðarhúsi í gærmorgun og fékk að hringja í lögreglu. Hann sat svo grátandi á bílastæði klukkustundum saman og þorði ekki að hreyfa sig af ótta við að sprengjan myndi springa. Lögregla leitaði í íbúðinni sem manninum hafði verið haldið í og þar fundust vísbendingar sem leiddu til handtöku hins grunaða mannræningja. Festur við sprengju Einn maður í haldi lög- reglu og annars leitað Eftir Bryndísi Sveinsdóttur bryndis@mbl.is STOFNAÐ 1913 . TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA VEGALENGDIR VIÐ ALLRA HÆFI! Ótrúleg forréttindi Steinunn Sigurðardóttir sá The Inside Man í Selfossbíói | 36 Íþróttir | Sigurpáll og Ragnhildur sigruðu í Leirunni  Tuttugu spjöld í leik Portúgala og Hollendinga Fasteignir | Nýuppgerðar íbúðir í Steininum í Neskaupstað  Er gras það sama og gras? JÓN Gerald Sullenberger segir að hann hafi óttast um líf sitt og fjöl- skyldu sinnar, í árslok 2001, þegar í hann var hringt og „óður maður, sem segist reka fylgdarþjónustu í Fort Lauderdale, sem hefur í slík- um hótunum við mig, að mér stóð alls ekki á sama og óttaðist bókstaf- lega um líf mitt og fjölskyldu minn- ar“. Maðurinn hringdi í Jón Gerald til þess að krefja hann um greiðslu á 19 þúsund dollara reikningi, vegna við- skipta sem Jón Ásgeir Jóhannesson hafði átt við manninn, en maðurinn taldi að Jón Gerald hefði átt í áð- urnefndum viðskiptum, þar sem hann var skráður fyrir bátnum, Thee Viking. Frá þessu greinir Jón Gerald m.a. í síðari hluta viðtalsins við Morgunblaðið, sem birt er í dag. Jón Gerald upplýsti um hvað stæði á bak við áðurnefndan reikn- ing í réttarhöldum í Flórída í júní 2003, að kröfu bandarísks lögmanns þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Kristínar Jóhannesdóttur og Jó- hannesar Jónssonar, sem höfðuðu mál á hendur Jóni Gerald í Flórída. „Í framhaldi af þessum réttar- höldum gerðist það heima á Íslandi, að Baugsmenn höfðu samband við Jón Steinar, lögmann minn, og ósk- uðu eftir að ganga til samninga við mig. Þeir óskuðu eftir því að ganga frá málum gagnvart Nordica, greiða það sem þeir skulduðu mér, sem samkvæmt minni málshöfðun heima á Íslandi var, að þeir gengju frá ógreiddum gámasendingum og að þeir bættu mér vanefndir. Einnig krafðist ég þess að þeir greiddu mér þann lögfræðikostnað, sem ég hafði orðið fyrir, vegna ofsókna þeirra á hendur mér hér í Bandaríkjunum. Þeir samþykktu þetta allt og gengu frá öllum málum, féllu frá málsókn hér í Bandaríkjunum, greiddu mér allar mínar kröfur á Íslandi og ég féll frá málsókn á Íslandi,“ segir Jón Gerald. „Auðvitað gerði ég mér ekki hina minnstu grein fyrir því, þegar ég tók ákvörðun um að ákæra, hvers konar stórmál Baugsmálið ætti eftir að verða. Ég var ósköp einfaldlega maður í rekstri hér í Bandaríkjun- um sem hafði verið svikinn í við- skiptum. Ég var að leita réttar míns og réttlætis,“ segir Jón Gerald. Jón Gerald Sullenberger í viðtali við Morgunblaðið um Baugsmálið Vildu semja eftir réttarhöld í Flórída  Kverkatak | 12–13 Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is JÓN Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, sendi frá sér yfirlýs- ingu um helgina vegna fyrri hluta viðtalsins við Jón Gerald Sullen- berger þar sem hann segir m.a. að frjálslega sé farið með stað- reyndir í viðtalinu „og ósann- indum dælt yfir lesendur Morg- unblaðsins með stríðsfyrirsögnum“. Jón Ásgeir segir það „rakinn þvætting“ að tölvupóstum hafi verið skipulega eytt úr sinni tölvu, það sé hægt að sanna. | 10 „Frjálslega farið með staðreyndir“ Berlín. AP. | Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, þurfti að loka fyrir tölvupóst frá Suð- ur-Kóreu til að afstýra því að heimasíða sam- bandsins hryndi, vegna skeyta sem milljónir Suður-Kóreubúa höfðu sent. Voru þeir óánægð- ir með að þjóðin hafði dottið úr keppni á HM er þeir töpuðu fyrir Svisslendingum og kvört- uðu þeir sáran undan dómgæslunni. Sér- lega vonsvikinn aðdáandi liðsins hafði nefnilega komið þeim orðrómi af stað að ef FIFA bærust 5 milljónir kvartana yrði að endurtaka leikinn og því sendu 4,2 milljónir vongóðra Suður-Kóreubúa FIFA skeyti. Vonuðust eftir endurteknum leik ♦♦♦ ÞAÐ viðraði vel til flugs á Akureyri um helgina en þá voru haldnir Flugdagar á vegum Flugsafnsins og flugmálafélaga á Akureyri. Dag- skráin hófst með Íslandsmóti í listflugi þar sem Ingólfur Jónsson bar sigur úr býtum og er nú Íslandsmeistari í listflugi. Þá var boðið upp á útsýnisflug í þyrlum, listflugssýningar og fallhlífarstökk. Alls voru um 50 flugvélar, aðflognar og heimavélar, og gestir voru á fjórða þúsund. Morgunblaið/RAX Í sjöunda himni Íþróttir og Fasteignir í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.