Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 17 Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Nú þegar sumarið er gengiðí garð eru flestir komnirmeð áætlun um hvernigsé best að njóta þess. Framundan eru frí frá vinnu og hversdagsleika og við taka ferðalög, ættarmót, heimsóknir, grill, til- hlökkun að hitta ættingja og vini.Vit- að er samt að hjá sumum fjölskyldum veldur sumarið upplausn og streitu. Áhyggjur yfir því að fjárhagur leyfi ekki frí eða veikindi setja strik í reikninginn. Í öðrum fjölskyldum er ekki samstaða milli foreldra eða ein- stæðir foreldrar koma sér illa saman um hvernig eigi að skipta sumrinu. Rútínan sem veturinn hefur í för með sér riðlast, það þarf að kaupa endalaus námskeið til að hafa ofan af fyrir börnunum, leikskólum er lokað, sumarfrí foreldra stangast jafnvel á eða þeir reyna meðvitað að skiptast á um að vera í fríi til að gæta barnanna. Hvernig skyldi allt þetta fara með parsambandið? Hver fer hvert með hverjum? Hjá sumum er það einnig áhyggju- efni hvernig hægt er að gera eitthvað saman sem fjölskylda.Og hvað er yf- irhöfuð fjölskylda? Fjölskyldu- mynstur í nútímanum eru oft flókin; börnin mín, börnin þín, börnin okkar og hver fer hvert með hverjum. Heimilið á að vera skjól þar sem hver einstaklingur í fjölskyldunni á að finna fyrir hlýju, umhyggju og stuðningi. Ef vel á að vera er það staðurinn þar sem einstaklingurinn á að geta tjáð sig, fengið hlýlegt faðm- lag, hrós, hvatningu, deilt ánægju- legri upplifun og fengið huggun ef á móti blæs. Á heimilinu læra börnin að setja sig í spor annarra og að gefa og þiggja. Foreldrar eru fyrirmyndir barna sinna og því er mikilvægt að þau leysi ágreining sinn á ábyrgan hátt og rækti samband sitt, því annars er hætta á að erfitt sé að vera heima í þrúgandi andrúmslofti, spennu og togstreitu. Börn sem búa við óöryggi eða tog- streitu foreldra kvíða oft fyrir sumr- inu. Kvíðanum fylgir órói, vanlíðan, einsemd og jafnvel depurð. Þau verða oft upptekin af að segja hvað vinirnir ætla að gera með foreldrum sínum og langar svo sannarlega að geta sagt frá því í skólanum næsta vetur hvað þau gerðu með foreldrum sínum eða jafnvel ömmu og afa. Það hefur mikla þýðingu fyrir heilsu allra, og ekki síst barna, að vera með- vituð um að eiga góða að og geta glaðst með þeim. Þar sem fullorðna fólkið er enn að reyna að átta sig á hvað á að gera í sumar er mikilvægt að koma sér saman um markmið og segja börn- unum frá þeim. Þó þarf að gæta þess að vera ekki með stórar yfirlýsingar sem ekki er hægt að standa við. Börn eru mjög næm á svik og upplifa höfn- un sterkt sem getur haft veruleg áhrif á sjálfsmynd þeirra síðar. Þarf ekki að kosta mikið Þó svo að fjárhagur sé knappur eða veikindi setji strik í reikninginn er nauðsynlegt að taka sér frí og gera sér dagamun. Það er hægt að fara í alls kyns ferðir út í náttúruna allt í kring og það þarf ekki að kosta svo mikið. Það er í raun nánd, gleði og samstaða fjölskyldunnar sem börnin eru að biðja um. Það að geta sagt að þau hafi átt skemmtilegar stundir með mömmu og pabba, systkinum og öðrum ættingjum. Við þurfum að muna að við erum dýrmæt hvert og eitt í fjölskyldunni okkar, hvernig sem hún er samsett. Gleðjumst yfir því að við lifum núna og njótum þess. Að lokum langar mig til að biðja þig, lesandi góður, að íhuga orð Irwin Edman heimspekings sem sagði eitt sinn: „Hæfileikinn til að gleðjast kann í sjálfu sér að verða mesta ham- ingjan og áhrifamesta skrefið í átt til þroska.“ Daglegtlíf júní  HEILSA Verkjalyf og krón- ískur höf- uðverkur Ofnotkun á verkjalyfjum getur leitt til krónísks höfuðverkjar en í Noregi virðast börn allt niður í 11-12 ára taka verkjalyf án þess að spyrja fullorðna ráða, sam- kvæmt norskri rannsókn sem greint er frá á vefnum for- skning.no. Athugað var sambandið á milli notkunar á verkjalyfjum og höf- uðverkjar hjá börnum og ungling- um. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á samband ofnotkunar verkjalyfja og krónísks höf- uðverkjar bæði hjá börnum og fullorðnum. Taka verkjalyf án samráðs Því eldri sem börn verða, því algengara verður að þau taki verkjalyf án samráðs við foreldra eða aðra fullorðna. Um 11-12 ára aldur er orðið nokkuð algengt að þau geri það án samráðs. Þetta veldur áhyggjum því ofnotkun getur haft alvarlegar afleiðingar. Grete Dyb, forsvarsmaður rann- sóknarinnar, segir að börn séu ekki hæf til að meta lyfjatöku rétt og foreldrar verði að hafa augun opin ef börn þeirra eða unglingar kvarta oft um höfuðverk. Unglingar og höfuðverkir Nokkuð algengt er að börn sem eru að komast á unglingsárin fái höfuðverk. Algengastur er hann hjá stelpum sem eru nýbyrjaðar á blæðingum. 0,8% af stelpunum sem tóku þátt í rannsókninni sögðust fá höfuðverk daglega og oft taka verkjalyf. Hjá strákunum var hlutfallið 0,2%. 10% af stelpunum sem fengu höfuðverk a.m.k. einu sinni í viku tóku oft verkjalyf. Sama hlutfall hjá strákunum var 3%. Vísindamennirnir álykta að því oftar sem börn og unglingar fá höfuðverk, því oftar taki þau verkjalyf. Þetta geti leitt til ofneyslu og vítahrings þar sem vandamálið eykst og höfuðverkurinn getur orðið viðvarandi.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið Sumarið er komið og stundum er það flókið Það þarf ekkert endilega að fara á sólarströnd í fríinu. Dagsferð um næsta nágrenni í góðu veðri getur líka verið gefandi frí. Í raun er það bara nánd, gleði og samstaða fjölskyldunnar sem börnin eru að biðja um. Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, verkefnastjóri Þjóðar gegn þunglyndi, Landlæknisembættinu. Sólbrúnka í hylkjum Komin eru á markað hylki sem eiga að gefa sólbrúnku og auka styrk og þol vöðva. LifeStream AstaZan er karótín-andoxunarvörn úr rauð- þörungum sem samkvæmt frétta- tilkynningu frá Celcus á að laga harðsperrur, strengi, eymsli og bólgur í vöðv- um og sinum. AstaZan á einnig að auka styrk og þol vöðva og vinna gegn og laga sinaskeiðabólgu. AstaZan á að styrkja melanínvarnir húðarinnar þannig að húðin verði fljótt brún í sólinni eða í ljósabekk. Það á að nægja að byrja inntöku nokkrum dögum áður en farið er í sól til að árangur náist en muna þarf að það þarf að nota sólarvörn með. Fæst í apótekum og heilsuversl- unum. Umboð Celsus ehf. Róandi gel fyrir fæturna Snyrtivörufram- leiðandinn Biotherm hefur sent frá sér kælandi og róandi gel fyrir fætur. Gelið heitir Happy Gel og er með léttum app- elsínu og peruilm og inniheldur efni eins og magnesium og aspartic sýru, svo og plöntuseyði með efnum sem eiga að kæla, örva blóðrás og hafa vatnslosandi áhrif.  NÝTT Krem fyrir karla Þá hefur Biotherm einnig hafið framleiðslu á kremi fyrir karla sem vinna á gegn öldrun húð- arinnar. Kremið á að draga úr hrukkum og mýkja og næra húðina. Kremið er borið á húðina eftir rakst- ur eða á hreina húð kvölds og morgna. Fullkomnaðu verkið með Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700 ATVINNA mbl.is FASTEIGNIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.