Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 35
Sími - 551 9000
Just My Luck kl. 5.40, 8 og 10.20
RV kl. 5.50
The Omen kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára
Take The Lead kl. 8 og 10.30
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 6
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
S.V. MBL.
eee
B.J. BLAÐIÐ
Yfir 51.000
gestir!
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20
eee
L.I.B.Topp5.is
eee
H.J. Mbl.
Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 B.i. 14 ára
eee
DÖJ, Kvikmyndir.com
HVAÐ GERIST
EF LEIKURINN
SEM ÞÚ ERT AÐ
SPILA FER AÐ
SPILA MEÐ ÞIG.
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
-bara lúxus
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
YFIR 47.000 GESTIR!
SVAKALEG
HROLLVEKJA
SEM FÆR
HÁRIN TIL
AÐ RÍSA!
HÖRKUGÓÐUR
SPENNUTRYLLIR
MEÐ BRUCE
WILLIS FRÁ
LEIKSTJÓRA
LETHAL
WEAPON
MYNDANNA.
ÞRÖSTUR Jóhannesson hefur ver-
ið að gera tónlist í rúm tuttugu ár
þótt það sé fyrst núna sem hann
gefur út sólóplötu. Hann hefur áð-
ur gefið út hljómplötu með hljóm-
sveitinni Ofris, eina með Vonlausa
tríóinu, og eitthvað hefur komið út
með hljómsveitinni Hinum guð-
dómlegu Neanderdalsmönnum sem
hann var einnig í. Þótt þessar
sveitir hafi spilað lög og texta eftir
Þröst er það samt þegar Þröstur er
nær einn og óstuddur með kassa-
gítarinn í aðalhlutverki sem hann
nýtur sín best.
Nýi diskurinn, Aðrir sálmar, sýn-
ir glögglega hve góður lagahöf-
undur Þröstur er og skreytingum,
sem lagðar eru ofan á kassagít-
arsgrunna, er haldið í lágmarki.
Þar eru m.a. víólur, harmónikkur
og mandólín látin draga fram það
sem býr í hverju lagi, án þess að
ofhlaða þó nokkurn tímann. Listin
við að gera góða plötu er að vita
hvenær á að hætta, því það er auð-
velt að skemma frábært lag með of
miklum útsetningum.
Þröstur velur þjóðlaga- og
sveitatónlistarramma í kringum
lagasmíðar sínar, og útsetningar
eru einfaldar en miðast samt að því
að skapa þægilegt ris í lögunum.
Einnig er einhver gamaldags andi
sem svífur yfir vötnum og eykur
það mjög á þægindi og notalegheit
plötunnar. Það er því tilvalið að
hlusta á hana með mjúka púða allt
í kringum sig uppi í sófa með te,
eða í letikasti uppi í sumarbústað.
Það er þó svo að við síend-
urtekna hlustun kemur í ljós að út-
setningar eru ekki eins einfaldar og
þær virtust í byrjun, og alls kyns
stef og línur birtast hlustandanum
ljóslifandi, en það gerir það að
verkum að diskurinn vinnur á og
eykur gildi sitt við hverja hlustun.
Ef taka á út sérstök lög sem verða
betri við margar hlustanir er það
til dæmis lagið „Blessuð sólin“, sem
Gabríella Aðalbjörnsdóttir syngur
listavel, og „Skaltu vera glaður“
sem skartar yndislega hvetjandi
texta, frábæru samspili hljóðfæra
og grípandi laglínu. Þau lög sem
helst væri hægt að agnúast út í
væru „Eldsvoði“, sem er með voða-
lega KK-legri útsetningu, þótt lagið
sjálft sé flott, og „Sumardagsmorg-
unninn fyrsti“, sem er með afar
kunnuglegri sönglínu sem ég
heyrði fyrst í Nick Cave-laginu
„Into my Arms“.
Í heildina er platan miklu meira
en frábær, og undarlegt í raun og
veru, að Þröstur skuli hafa tekið
svona langan tíma í að gera sóló-
plötu með þessu sniði. Lögin 14
hafa öll eitthvað spennandi við sig,
en þó er ég ekki frá því að í þeim
lögum sem Þröstur semur líka
textann takist honum enn betur
upp í að gera einlægar og flottar
melódíur og skapa sinn persónu-
lega stíl. Hann hlýtur að vera kom-
inn af stað í plötuútgáfu eftir þessa
vel heppnuðu frumraun, og vona ég
persónulega að hann taki við af
öðrum trúbadorum sem hafa verið
að gefa út eina plötu á ári. Ég mun
kaupa þær allar.
Miklu meira
en frábær
Ragnheiður Eiríksdóttir
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur Þrastar Jóhannessonar,
sem heitir Aðrir sálmar. 14 lög, heild-
artími 54.44 mínútur. Öll lög eru eftir
Þröst en ljóð sömdu Þröstur Jóhann-
esson, Steinn Steinarr, Jónas Hall-
grímsson og Steingrímur Thorsteinsson.
Söngur: Þröstur Jóhannesson, Baldur
Trausti Hreinsson og Gabríella Að-
albjörnsdóttir. Gítarar: Stefán Freyr Bald-
ursson og Þröstur Jóhannesson. Bassi
og kontrabassi: Sverrir Ásmundsson,
Ingiþór Ingibergsson og Þröstur Jóhann-
esson. Harmónikka: Ingvar Alfreðsson.
Víóla: Kjartan Már Kjartansson. Mandól-
ín: Þröstur Jóhannesson. Tjarangó: Stef-
án Freyr Baldursson. Trommur: Ingiþór
Ingibergsson. Upptökumaður: Ingiþór
Ingibergsson.. Mastering: Jón Skuggi.
Útgefandi: Þröstur Jóhannesson 2006.
Þröstur Jóhannesson – Aðrir sálmar
ÞAÐ gilda ólík viðmið um ólíkar
tegundir tónlistar. Danstónlist
kemst t.a.m. langt á hljómnum ein-
um saman, meðan snjallar laglínur
og hljómar eru aðalmálið í stærst-
um hluta popp- og rokktónlistar.
Hæfileikinn til þess að spila af
fingrum fram skiptir mestu máli í
djasstónlist og orðfimi er oftar en
ekki lykilatriði í rapptónlist. Raf-
tónlist er til í öllum stærðum og
gerðum, þar má finna verk sem
leggja ýmist áherslu á frumleika,
stemningu, klifun eða smáatriði.
Lagræn raftónlist í ætt við múm
komst nokkuð í tísku fyrir hálfum
áratug síðan, og stuttu áður skipaði
færni við óskiljanlega flókna
trommuforritun manni í fremstu
röð. Raftónlist er að einhverju leyti
sér á báti því hún er oftar en ekki
háð þeirri tækni sem tónlistarmenn
hafa yfir að búa á hverjum tíma.
Þannig má heyra augljósan mun á
hljómi tíu, fimmtán og tuttugu ára
gamallar raftónlistar sé hún borin
saman við raftónlist nútímans.
Íslenska tvíeykið HuXun sendi
nýverið frá sér heimabrugguðu
plötuna Apocalyptik Lullabys (sem
stóð eflaust til að nefna Apocalyp-
tic Lullabies) þar sem hún reynir
sig við raftónlist ekki ólíka þeirri
sem Aphex Twin og Autechre voru
að flytja í kringum 1993. Sér-
staklega kemur lagið „On“ með
þeim fyrrnefnda oft upp í hugann.
Svo margar og ólíkar endur-
hljóðblandanir voru gefnar út af
því lagi að Apocalyptik Lullabys
gæti allt eins verið framhald af
þeirri vinnu!
Skemmst er frá því að segja að
HuXun mistekst á nær öllum þeim
sviðum sem raftónlist nær til. Lög-
in eru langt frá því að vera frum-
leg, þeim tekst ekki að skapa
stemningu, ekkert virðist hugsað
um smáatriði, dýnamík er engin –
hvorki í þunnum og flötum hljómn-
um né lagasmíðunum, laglínur eru
auðgleymanlegar, lítið hugað um
byggingu, trommuforritunin er oft-
ast óspennandi og þegar kemur að
tæknilegri fágun mætti halda að
tíminn hafi staðið í stað í hálfan
annan áratug.
Platan byrjar að vísu ágætlega.
Lögin „Between Worlds“ og „Play-
ing“ eru bæði skrýdd sópr-
ansöngkonu sem gerir mikið fyrir
annars löngu staðnaðan hljóminn.
Hún birtist aftur í fjórtanda lagi
plötunnar „Nothing Shallow“. Mér
skilst á vefsíðu sveitarinnar að
söngkonan sé Jóhanna, móðir Mar-
lons Pollocks, en hann virðist skipa
HuXun ásamt frænku sinni Tönyu.
Engar upplýsingar er að finna á
plötuumslaginu sjálfu. Söngurinn
er sérstaklega áhugaverður vegna
þess að gæði upptökunnar á rödd-
inni er mörgum klössum ofar en
upptaka á þeim röppurum sem
leggja HuXun lið í nokkrum lögum.
Apocalyptik Lullabys er nefni-
lega ekki hreinræktuð rafplata, á
henni er að finna fjögur rapplög.
Þessum fjórum lögum er ekki
dreift um plötuna, heldur númer 5,
6, 7 og 8. Þau brjóta því plötuna
óþægilega upp og maður fær á til-
finninguna að HuXun hafi ekki al-
veg vitað hvort til stæði að gera
rappplötu eða eitthvað annað. Það
fyrsta í röðinni – „Is This the Beg-
inning“ – er vart hægt að skoða
nema sem brandara og „Eldfjallið“
og „Ljós í myrkri“ eru gleymd áð-
ur en þeim lýkur. Hins vegar er
„Dauði fyrir alla“ nokkuð gott.
Taktgrunnur er skemmtilega ein-
manalegur, val á trommuhljóðum
smekklegt og sama gildir um for-
ritunina. Þó að söngurinn sé ekki
upp á marga fiska og textinn frem-
ur kjánalegur er línan grípandi og
fer vel við taktinn. Þá er rappið
sjálft áberandi best í þessu lagi.
Þegar rappsyrpunni lýkur snúa
HuXun sér aftur að raftónlist-
arforminu sem útgáfufyrirtækið
Warp fullkomnaði og afskrifaði fyr-
ir meira en áratug síðan. „Lita-
dýrð“ er best þessara laga, hefði
eflaust gert góða hluti ’93. Það er
ekkert að því að taka upp gamla
stíla eða form, en það verður þá að
vera gert í einhverjum tilgangi eða
til þess að bæta einhverju við. Það
gerir HuXun ekki. Apocalyptik
Lullabys er raunar ekki hægt að
skoða öðruvísi en sem æfingu eða
einkamál höfundanna, því að tón-
listin á þessari plötu á ekkert er-
indi á plast, og enn síður við al-
menning.
Heimsendaspár
TÓNLIST
Geisladiskur
Öll lög eru eftir HuXun. HuXun gefur út.
18 lög, 76:06.
HuXun - Apocalyptik Lullabys
Atli Bollason
Leikkonan Nicole Kidman giftistkærasta sínum, söngvaranum
Keith Urban, við kvöldathöfn í Sid-
ney. Kidman var klædd í hvítum kjól
og hélt á rósum er hún mætti í kirkj-
una í Manly-úthverfi borgarinnar
sem er staðsett við klettabrún.
Meðal þeirra sem voru viðstaddir
voru leikararnir Hugh Jackman,
Naomi Watts og fjölmiðlamógúllinn
Rupert Murdoch.
Í yfirlýsingu sem hjónin nýbökuðu
sendu frá sér saman var öllum þakk-
að fyrir að sýna þeim hlýhug.
„Við viljum þakka öllum í Ástralíu
og um allan heim sem hafa sent okk-
ur heillaóskir,“ sagði m.a. í yfirlýs-
ingunni.
Fólk folk@mbl.is
Richard Curtis og myndu þeir báðir
hafa hönd í bagga ef af gerð mynd-
arinnar yrði.
Í þáttunum er fylgst með hinum
fyrirlitlega Blackadder og hund-
tryggum en jafnframt ógeðfelldum
aðstoðarmanni hans, Baldrick. Fjór-
ar þáttaraðir voru framleiddar og
var sögusviðið mismunandi eftir
hverri og einni. „Ben vill að myndin
gerist í rússnesku byltingunni. Hann
er með nokkrar frábærar hug-
myndir,“ sagði Fry sem treysti sér
þó ekki til að fullyrða að myndin liti
dagsins ljós. „Kannski verður af
þessu.“
Hugmyndir eru uppi um að gerakvikmynd eftir hinum vinsælu
sjónvarpsþáttum Blackadder sem
framleiddir voru hjá BBC á sínum
tíma. Þetta segir leikarinn Stephen
Fry í viðtali við Contactmusic.com
en Fry fór með hlutverk Lord Melc-
hetts í þáttaröðinni.
Hann bætir því við að rétt eins og
í þáttunum færi Rowan Atkinson
með hlutverkið ef til þessa kæmi.
„Ég spjallaði við Rowan um helgina.
Hann er að gera mynd um Mr. Bean
í Frakklandi og trúði mér fyrir því
að hann saknaði stemningarinnar í
kringum Blackadder.“
Upprunalegu þættirnir voru skrif-
aðir af Ben Elton og leikstýrt af
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn