Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 25 MINNINGAR ✝ Hólmfríður Sig-ríður Thorlacius fæddist á Höfn á Bakkafirði 11. des- ember 1929. Hún lést á elliheimilinu Grund 13. júní 2006. Jarðarförin fór fram í kyrrþey frá Fossvogskirkju hinn 19. júní 2006. For- eldrar Hólmfríðar S. Thorlacius voru hjónin Þórarinn V. Magnússon bóndi í Steintúni, f. í Stykk- ishólmi 17. desember 1901, en lést í ágúst 1978, og Sigurbjörg Sig- urðardóttir húsmóðir, f. 29. maí 1900 á Snæbjarnarstöðum í Fnjóskadal, en lést á Vífilsstöðum í Garðabæ árið 1986. Systkini Hólmfríðar eru Theódóra Thorla- cius, hjúkrunarkona í Garðabæ, f. 29. maí 1927, Jórunn Sigríður Thorlacius, húsmóðir í Reykjavík, f. 14. ágúst 1928, Guðrún Anna Thorlacius, sjúkra- liði, f. 17. janúar 1931, Sigfríður Thorlacius, f. 8. maí 1932, d. 1965, og Magnús Thorlacius, f. 25. janúar 1941, d. 1972. Hólmfríður ólst upp í Steintúni en fluttist ung með fjöl- skyldunni fyrst til Siglufjarðar, síðan Eyjafjarðar og það- an til Reykjavíkur. Í Reykjavík vann Hólmfríður nokkur ár á Hót- el Borg en síðar ýmis umönnunar- og verksmiðjustörf . Árið 1957 giftist Hólmfríður Bernhard L. Payne. Þau skildu ár- ið 1967. Árið 1971 giftist Hólm- fríður Hauk Novai Henderson, þau skildu. Síðustu árin var Hólm- fríður búsett á Ási í Hveragerði. Hún Fríða frænka er dáin, í svefni leið hún úr þessum heimi í annan. Það var gott. Ég á slatta af minningum um Fríðu frænku og þannig er hún hluti af mér. Fyrstu minningarnar tengjast íbúð í Hlíðunum, þar sem hún bjó með eiginmanni sínum Börní, eða Bernhard L. Peyne eins og hann hét réttu nafni. Hann var Ameríkani og þess vegna var sjónvarp hjá þeim þar sem hægt var að horfa á „Fílixi’ katt“. Kannski á þessi minning líka við íbúð einhvers staðar annars stað- ar. Fríða flutti oft og í minningunni fór ég upp tröppur í sjónvarpsheim- sóknum til Fríðu en íbúðin var í kjall- ara og nóg af lakkrískonfekti í löngum lengjum. Fríða vann í lakkrísgerð en hún vann líka á fjölda annarra staða, verksmiðjum, sjúkrahúsum, skrif- stofum. Já, hún vann víða, hún Fríða, var aldrei lengi á sama stað því henni leiddist að leiðast. En hún átti ekki alltaf þann kraft sem þarf til að leið- ast ekki. Hún reyndi, fylgdi ástinni ótrauð og sannfærð um aðdráttarafl sitt en ástin þarfnast líka krafts sem Fríða átti ekki alltaf til. Myndin af Fríðu frænku sem ég ætla að varð- veita er af hárri, glæsilegri konu, dökkri yfirlitum og reykjandi. Hún var skvísa hún Fríða frænka mín. Þegar hún kom í heimsókn var hún ýmist upptendruð og sagði manni hvað maður væri fallegur og gáfaður eða hún var leið og skeytti þá engu um mann, stjakaði manni jafnvel frá. Það var allt annaðhvort eða hjá Fríðu, hún var ýmist glöð eða ekki glöð og slíkt er ekki auðvelt. Fyrir henni voru hlutirnir og lífið einfalt og samhengi þess fullkomlega lógískt út frá henni sjálfri. Þú átt gott að eiga börn sem hægt er að senda út í búð, sagði hún einu sinni við barnmarga systur sína. Þessi staðhæfing er ekki eins ein- feldningsleg og hún virðist. Það er gott að eiga einhvern að sem tekur þátt í lífinu með manni. Fríða eign- aðist ekki börn sem hún gat sent út í búð, en hún átti einu sinni kanarífugl sem ég minnist að hún talaði mikið um, hún vorkenndi vesalings fuglin- um í búrinu sem þó veitti henni mikla gleði. Líf fólks er alla jafna flókið, fullt af mótsögnum og málamiðlunum. Fríða hafði þann hæfileika að geta ýtt þess- um mótsögnum til hliðar og séð hlut- ina í einni tærri mynd, kjarnann í or- sök og afleiðingu. Við hlógum oft að því hvernig hún setti fingurinn á punktinn sem í augum okkar hinna var hulinn í skýjum afstæðis og ólíkra möguleika. Það er þetta sem ég ætla að muna um Fríðu frænku sem var sérstök og slíku fólki fer fækkandi. Jórunn Sigurðardóttir. Nú er Fríða frænka dáin. Þegar ég hugsa til baka þá var hún mjög litrík persóna. Hún lagði mkið upp úr því að vera í fínum fötum með skartgripi og vel til höfð. Stundum ansi skraut- leg en það hressti bara upp á um- hverfið. Hún hafði gott hjarta og oft þegar ég leit inn hjá henni sagði hún að hún hefði vitað að ég kæmi, hana hefði dreymt þannig draum. Hún bjó á ýmsum stöðum og ég hjálpaði henni oft að flytja, en það var sama hvar hún bjó, alltaf var huggu- legt og hlýlegt inni hjá henni. Hún var dugleg við ýmiskonar hannyrðir og þegar ég og börnin komum við hjá henni leysti hún alla yfirleitt út með gjöfum, eitthvað sem hún hafði búið til eða með litlum englastyttum. Hún hélt svo mikið upp á engla, enda sagði litla dóttir mín þegar hún heyrði að Fríða frænka væri farin til Guðs: „Mamma, er hún þá orðin engill?“ Ég veit að Fríðu líður vel núna þar sem hún er. Guð geymi hana. Auður Friðgerður og fjölskylda. HÓLMFRÍÐUR SIG- RÍÐUR THORLACIUS Vinátta sem hefst á heimavistarskóla end- ist ævilangt, jafnvel þótt fjarlæg lönd aðskilji áratugum saman. Við Biggi vorum skólafélagar í Héraðsskólanum að Laugarvatni veturinn 1957–’58 og náðum strax vel saman. Okkur fannst báðum gaman að gera hlutina svolítið öðruvísi en almennt var títt, enda var Biggi bæði frumlegur og hug- myndaríkur og hafði næmt skop- skyn. Fyrir árshátíðina, veturinn 1958, teiknuðum við heilmikla mynd af kennurum og öðrum helstu fyr- irmennum skólans, s.s. brytanum í mötuneytinu, hjúkrunarfræðingi o.s.frv. Við gerðum þessar myndir að vísu hvor í sínu lagi og var hver þeirra um metri á hæð og síðan skeyttum við þeim saman. Þegar upp var staðið varð heildarútkoman sextán hausa myndverk, a.m.k. tólf metra langt og var sett upp á gang skólans. En við gerðum meira en það fyrir árshátíðina. Við sömdum magnað hryllingsleikrit, ásamt Maroni Vilhjálmssyni (sem andað- ist fyrr á þessu ári), en Ingimar Ey- dal samdi tónlist við verkið. Báðir voru þeir skólabræður okkar. Ingi- mar spilaði tónverkið baksviðs en við Biggi lékum aðalhlutverkin. Eftir að skólagöngunni á Laug- arvatni lauk fórum við báðir á síld, JÓN BIRGIR ÁRSÆLSSON ✝ Jón Birgir Ár-sælsson fæddist í Skálholti (Hvamm- inum) á Höfn í Hornafirði 3. des- ember 1941. Hann lést á krabbameins- deild Landspítala við Hringbraut 11. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Háteigskirkju 19. júní. hvor á sínum bátnum, en vináttan hélt áfram og um haustið vorum við búnir að stofna eins konar kunningjaklíku í Reykjavík, ásamt æv- intýramanninum Maroni Vilhjálmssyni og töffaranum Bjarna Guðmundssyni. Við vorum uppátækja- samir, eins og títt er um unga menn, og brölluðum margt saman. Svo margt, reyndar, að það væri efni í langa og viðburðaríka bók. Ég átti heima í Keflavík þá, en Biggi fór að vinna á Vellinum og við unnum meðal ann- ars saman um tíma, þannig að kunningsskapurinn hélst óslitinn. Svo fór hann til náms í Bandaríkj- unum og fór fljótlega eftir það að vinna hjá Cargolux í Lúxemborg. Eftir það sáumst við ekki oft, nema þá sjaldan að hann kom til Íslands, en vorum þó í póstsambandi. Árið 2002 var mér falið að setja upp þorrablót Íslendinga í Lúxemborg og hugðist heimsækja hann í leið- inni, enda ætlaði hann að taka veg- lega á móti mér. Úr því varð þó ekki því hann var skyndilega kall- aður heim til Íslands þegar bróðir hans lést. Birgir Ársælsson og ég þekkt- umst í næstum hálfa öld og vorum svo miklir mátar að annað eins hlýt- ur að teljast fátítt. Fyrir nokkrum árum sagði ég við hann að ég hefði í hyggju að skrifa heilmikla heim- ildaskáldsögu þar sem hann yrði aðalsöguhetjan, enda var ég þegar byrjaður á þeirri bók. Hann kímdi hæversklega við hugmyndinni en tók henni að öðru leyti stillilega. Ég er staðráðinn í að skrifa bókina en héðan í frá get ég hvorki rifjað upp atburðarásina með honum né boðið honum að lesa yfir handritið. Ég sakna Bigga og get ekkert að því gert. Með honum er fallinn frá einn af þeim bestu vinum og kunn- ingjum sem ég hef átt um ævina; prúður piltur, örlátur drengur og afbragð annarra manna. Ég votta fjölskyldu hans og öðrum nákomn- um innilegustu hluttekningu mína. Þorsteinn Eggertsson. Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Kórsölum 3, áður Rauðagerði 44, sem lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi föstudaginn 16. júní verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju þriðjudaginn 27. júní kl. 13.00. Guðný Eygló Valtýsdóttir, Hulda Berglind Valtýsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Erla Sólrún Valtýsdóttir, Tryggvi Þór Agnarsson, Ágúst Ómar Valtýsson, Reynir Bergmann, Víðir Bergmann, Hlynur Bergmann, Þór, Valgerður, Sigurður Valtýr, Elísabet Lára, Katrín Guðrún, Guðbjartur Ægir, Ásgeir Örn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og stjúp- móðir, GUÐRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR, Eikarlundi 26, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi mánudagsins 19. júní sl. verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 30. júní nk. klukk- an 13.30. Gunnar Ragnars, Ragnar Friðrik Ragnars, Eiríkur Geir Ragnars, Gunnar Sverrir Ragnars. Ágústa Ragnars, Ólafur Friðrik Gunnarsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SIGBJÖRNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 20. júní. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju, miðviku- daginn 28. júní kl. 13.00. Þorvarður Guðmundsson, Anna Sigurbjörg Þorvarðsdóttir, Valur Þórarinsson, Guðmundur Jens Þorvarðarson, Svava Haraldsdóttir, Stefán Ragnar Þorvarðarson, Aðalbjörg Þorvarðardóttir, Tryggvi Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær dóttir okkar, systir, barnabarn, barna- barnabarn og frænka, ELFA GUÐRÚN REYNISDÓTTIR lést á vökudeild Barnaspítala Hringsins 20. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 14.00. Jóna Björk Gunnarsdóttir, Reynir Hilmarsson, Anna Mekkín Reynisdóttir, Elfa Signý Jónsdóttir, Hannes Höskuldsson, Gunnar J. Jóhannsson, Gunnlaug Árnadóttir Guðrún Anna Jónasdóttir, Hilmar Árnason, Guðrún Helga Sörensdóttir, Jón Arason, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Höskuldur A. Sigurgeirsson, Hólmfríður J. Hannesdóttir, Jónas Ragnar, Guðrún, Reynir Aðalsteinn, Sigþór,Erna Sigríður, Árni og Jóhann. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa GUÐFINNS INGA HANNESSONAR Hávegi 13, Kópavogi. Bestu þakkir færum við starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Halldóra Guðjónsdóttir, Theodór Guðfinnsson, Ragnheiður Snorradóttir, Hildur Guðfinnsdóttir, Magnús Flygenring, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.