Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.2006, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Starfsmenn IGS voru þóánægðir með þá víðtækusamstöðu sem náðist með-al starfsmanna við mót- mælin, eins og þeir vildu kalla að- gerðirnar. Vélum Icelandair seinkaði lít- illega við brottför en sú seinkum hafði ekki keðjuverkandi áhrif á áætlunarflugið. Farþegar þurftu ekki að bíða við innritun lengur en á venjulegum sunnudagsmorgni og komufarþegar voru ánægðir með hraða þjónustu við afgreiðslu far- angurs. Sverrir Hjörleifsson, einn komufarþega, sagðist aldrei hafa fengið eins hraða þjónustu. „Ég varð ekki var við neinar tafir og við komumst bara beint í gegn á hálfri klukkustund.“ Farþegar fengu afsökunarbeiðni Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice- landair, og Gunnar Olsen, fram- kvæmdastjóri IGS, tóku á móti far- þegum sem héldu af landi brott á sunnudagsmorgun og afhentu þeim blað með afsökunarbeiðni vegna hugsanlegra óþæginda sem kynnu að skapast „vegna ólöglegra að- gerða sumra starfsmanna hér á flugvellinum,“ eins og stóð á blaðinu, en tæplega 200 starfsmenn lögðu niður störf klukkan fimm um morguninn. Gunnar Olsen sagði í samtali við blaðamann að þeir væru að verja sína viðskiptavini og hafa hreyfingu á fólki svo færri væru eftir þegar starfsmenn mættu til starfa klukk- an átta. Verkstjórar og yfirmenn hjá IGS gengu í störf undirmanna sinna til að lipra fyrir, eins og Sturla Frosta- son, þjónustustjóri hlaðdeildar, orðaði það þegar blaðamaður Morgunblaðsins hitti hann við hleðslu farangurs í farangursrými einnar flugvélar Icelandair. „Þetta er ekki mitt starf, en ég geng stundum í það. Nú er ég að lipra fyrir, eins og aðrir yfirmenn hér, því það er ekki rétt að þessu verk- falli staðið,“ sagði Sturla. Kalla eftir raunverulegri kröfu Heimildarmenn Morgunblaðsins utan IGS voru samdóma um að starfsfólk hefði ekki farið út í svo róttækar aðgerðir nema vegna mikillar óánægju. Starfs- mannavelta fyrirtækisins væri mik- il og það talaði sínu máli. Starfsfólk IGS sem Morgunblaðið ræddi við sagði að það væri óánægt með kjör og þá hækkun sem hlotist hefði við nýgerða kjarasamninga ASÍ hefði verðbólgan étið upp. Þá væri óánægja með nýtt vaktafyr- irkomulag, sem sýndi aðeins ur fram í tímann, og mjög slæ vinnuaðstöðu. Þeir vilji því fá réttingu og laun í samræmi v mikla álag og miklu ábyrgð s starfsmenn hlaðdeildar þyrft axla. Það var mál starfsmanna a Jón Karl Ólafsson og Gunna Vonuðust til að áhrifin yrðu meiri Setuverkfall starfsmanna IGS, þjónustufyr- irtækis Icelandair á Keflavíkurflugvelli, í gær- morgun hafði ekki þau áhrif á áætlunarflug til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem starfs- menn höfðu búist við. Svanhildur Eiríksdóttir og Kristinn Ingvarsson ljósmyndari vöknuðu árla morguns og fóru á vettvang í Leifsstöð. Sverrir Hjörleifsson í Leifsstöð. Engar rað OLGA Ólafsdóttir, vaktstjó arsvæðinu í Leifsstöð og sag hefði gengið vel fyrir sig og „Auðvitað hefur fólkið ko það hefur verið mjög þolinm að tilkynna þeim um aðgerð gangi,“ sagði Olga. Vélum Icelandair seinkaði l Sturla Frostason, þjónustustjóri hlaðdeildar IGS, hlóð farangri í farangursrými flugvélar Icelandair í g FORSETINN OG ÍSRAEL Í Morgunblaðinu í fyrradag varskýrt frá því, að ísraelskur net- miðill, Y Net News, hefði greint frá því, að forseti Íslands hefði gagnrýnt sendiherra Ísraels, sem hingað kom í síðustu viku í tilefni 17. júní hátíða- halda okkar, fyrir það að ísraelsk yf- irvöld hefðu enn ekki beðizt afsökun- ar á því atviki, sem varð fyrir nokkrum vikum, þegar forsetafrúin lenti í vandræðum með að komast úr landi í Ísrael. Í sama netmiðli er sagt, að forset- inn hafi skyndilega tilkynnt sendi- herranum, að samtali þeirra væri lok- ið og fundi slitið og hafi sendiherrann skellt hurðum, þegar hún fór á brott. Talsmaður utanríkisráðuneytis Ísraels hefur staðfest að forsetinn hafi á fundi með Miriam Shomrat, sendiherra Ísraels, lýst óánægju sinni með framkomu Ísraelsmanna við forsetafrúna. Þegar Morgunblaðið leitaði upp- lýsinga um þennan fund hjá forseta- embættinu var engar slíkar upplýs- ingar að fá. Framkoma Ísraelsmanna við for- setafrú Íslands er að sjálfsögðu óaf- sakanleg svo og ef formleg afsökun- arbeiðni hefur ekki borizt. Hins vegar hlýtur sú spurning að vakna, hvort það sé forsetans að taka slíkt mál upp við fulltrúa ríkisstjórn- ar Ísraels. Eðlilegra sýnist vera, að utanríkisráðuneyti okkar annist sam- skipti af þessu tagi við stjórnvöld annars ríkis en ekki að forsetinn sjálfur komi þar við sögu. Þar sem utanríkisráðuneytið í Ísr- ael hefur staðfest, að forsetinn hafi tekið mál þetta upp við sendiherrann, er bæði æskilegt og nauðsynlegt að forsetaembættið greini frá því hvað hafi farið fram á umræddum fundi. Samkvæmt íslenzkri stjórnskipan er það utanríkisráðherra, sem fer með samskipti okkar við aðrar þjóðir og þess vegna hefði verið eðlilegt að Valgerður Sverrisdóttir utanríkis- ráðherra hefði tekið mál þetta upp við sendiherrann og vel má vera, að utanríkisráðherra hafi gert það, þótt ekki hafi verið skýrt frá því opinber- lega. Forsetinn hittir að sjálfsögðu bæði sendiherra erlendra ríkja og þjóð- höfðingja þeirra en hlutverk hans er auðvitað fyrst og fremst að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar. Ef ágreiningsmál eru uppi hlýtur það að vera hlutverk og verkefni utanríkis- ráðherra að fjalla um þau við fulltrúa annarra þjóða. GJÁ MILLI SIÐMENNINGA Könnun, sem rannsóknar-stofnunin Pew í Wash-ington gerði með því að tala við 14 þúsund manns í 13 löndum, sýnir að tortryggni ríkir á báða bóga milli múslíma og Vesturlanda- búa. Í frétt á forsíðu Morgunblaðs- ins á laugardag kemur fram að samkvæmt könnuninni líta margir Vesturlandabúar á múslíma sem of- stækisfulla og óumburðarlynda of- beldismenn og margir múslímar telja Vesturlandabúa sjálfselska, siðlausa og gráðuga. Líta höfundar rannsóknarinnar svo á að milli þessara samfélaga sé „djúp gjá“, sem meðal annars komi fram í því að hvorir fordæmi aðra fyrir hvern- ig komið sé fram við konur hjá þeim. Það getur verið freistandi að líta svo á að í kjölfar kalda stríðsins hafi komið árekstur siðmenninga og ljóst er að margir telja að svo sé. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001 og sprengju- árásirnar í Madríd og London hafa kynt undir tortryggni. Fárið vegna birtingar skopteikninganna af Mú- hameð spámanni í danska dag- blaðinu Jyllands-Posten hefur einn- ig orðið til þess að festa slík viðhorf í sessi. Ekki komu þó eingöngu fram neikvæð viðhorf í könnuninni því að drjúgur meirihluti aðspurðra í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi kvaðst líta múslíma jákvæðum augum, en í Þýskalandi og á Spáni tengdu hins vegar um átta af hverjum tíu íslam við öfgahyggju. Könnunin þykir einnig bera því vitni að stuðningur við hryðjuverk og Osama Bin Laden sé á undanhaldi í íslömskum ríkjum. Sú tortryggni, sem fram kemur í könnuninni, er skiljanleg og þarf í raun ekki rannsókn til að segja sér að hún sé fyrir hendi. Það væru hins vegar afdrifarík mistök að taka þátt í þeim leik að gefa sér að nú standi yfir átök milli siðmenn- inga því að sú er alls ekki raunin. Ef svo væri mætti ætla að mun ófriðlegra væri í ríkjum Evrópu- sambandsins um þessar mundir því að þar búa 20 milljónir múslíma að talið er. Á forsíðu nýjasta tölublaðs vikuritsins The Economist er orðið Evrabía letrað stórum stöfum við hliðina á mynd af Eiffel-turninum með mánasigð á toppinum og inni í blaðinu er fjallað um múslíma í Evrópu. Samskiptin við múslíma í Evrópu eru vissulega ekki án árekstra, en þau eru engu að síður að mestu leyti friðsamleg. Ýmis vandamál tengjast þessum hópi, sem flest má rekja til þess að að- lögun hefur gengið illa. Víða hafa orðið til hverfi múslíma þar sem at- vinnuleysi er gríðarlegt og óeirðir í hverfum innflytjenda í Frakklandi eru í fersku minni. Á hins vegar að tengja þau íslam? Í The Economist kemur fram að þeir sem voru fremstir í flokki í Frakklandi eru fæstir trúræknir og hryðjuverka- menn, sem hafa komið fram í Evr- ópu, eru iðulega úr röðum þeirra, sem eru tiltölulega velmegandi eða virðast hafa aðlagast samfélaginu, sem þeir búa í. Tortryggni byggð á fordómum er hættuleg. Ef ekki er reynt að vinna á henni og brúa gjána milli músl- íma og Vesturlandabúa getur það haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.