Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 246. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Skjáinn og Digital Ísland The Contender Í kvöld kl. 21.00 á SKJÁEINUM E N N E M M / S ÍA HUGGANDI BÍBÍLÍNA SÍMAVIÐTAL VIÐ PÁFAGAUK SEM ÞVAÐRAR ÚT Í EITT OG SKIPAR UNGLINGNUM Á HEIMILINU Í BAÐ >> 15 TÖFF SNILLD REYKJAVÍK EINS OG CANNES TEITI FLUGUNNAR >> 27 GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og eigin- kona hans, Laura Bush, lögðu í gær blómsveiga á staðinn þar sem Tvíburaturnarnir í New York stóðu og minntust þannig þeirra sem urðu fórn- arlömb sjálfsmorðingja al-Qaeda sem flugu far- þegaþotum á turnana fyrir réttum fimm árum, að morgni 11. september 2001. Árásirnar á New York og Washington kostuðu um þrjú þúsund manns lífið, langflestir dóu í New York. Þáttaskil urðu í sögunni, heimsmynd Bandaríkjamanna gerbreyttist, þeir voru ekki lengur öruggir í skjóli úthafanna. Hryðjuverkahættan og viðbrögð gagnvart henni urðu helsta viðfangsefnið í utan- ríkisstefnunni. Bush lýsti yfir hnattrænu stríði gegn hryðjuverkum, nokkrum vikum eftir árás- irnar hófu Bandaríkin stríð gegn stjórn talíbana í Afganistan og árið 2003 stríð gegn Írak sem Bush og menn hans sökuðu um samstarf við al-Qaeda. AP Reiturinn George W. Bush forseti og eiginkona hans, Laura Bush, leggja blómsveiga á litla tjörn á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu á Manhattan. Fimm ár eru liðin frá sjálfsmorðsárásunum. Minningarstund í New York AP Sorg Jody Greene, dóttir eins af fórnarlömbun- um, í Pennsylvaníu þar sem ein þotan hrapaði eftir að farþegar réðust gegn ræningjunum. STJÓRNVÖLD á Sri Lanka segja að nokkrir tugir upp- reisnarmanna úr röðum Tamíl-Tígra hafi verið felldir í hörðum bardögum á Jaffnaskaga í norðanverðu eyrík- inu um helgina. Alls hafi 28 stjórn- arhermenn fallið og vel á annað hundrað særst. Á vefsíðu Tígranna var fréttunum vís- að á bug og sagt að aðeins fjórir liðs- menn samtakanna hefðu fallið. Tígrarnir berjast fyrir sjálfstæðu ríki þjóðarbrots Tamíla en mik- ill meirihluti íbúanna er af þjóðerni Sinhala sem ráða mestu í landinu. Báðir aðilar ýkja að jafn- aði mannfall í lið fjandmannsins. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins í höfuðborginni Col- ombo sagði í gær að stjórnarhermenn væru að tryggja yfirráð sín á svæði á Jaffnaskaga sem þeir hefðu náð á sitt vald um helgina. Tígrarnir hefðu hins vegar sýnt harða mótspyrnu og með- al annars beitt stórskotaliði en markmið þeirra væri að leggja undir sig helsta flugvöllinn á skaganum. Talið er að um 8.000 óbreyttir borgarar séu nú í sjálfheldu á skaganum vegna átakanna en bardagarnir hafa teppt allar samgöngur á landi til svæðisins. Stjórnvöld og alþjóðlegar stofn- anir hafa þó flutt marga á brott með skipum og einnig hafa verið fluttar birgðir af nauðsynjum á staðinn. Meira en 60.000 manns hafa fallið í átökum Tígranna og stjórnarliða síðustu áratugina. Norðmenn höfðu milligöngu um vopnahlé árið 2002 en það er mjög ótryggt og yfir 1.500 manns hafa fallið í átökum í landinu frá því í desember. Tígrarnir saka nú stjórnvöld um að hunsa tilraunir norskra sáttasemjara til að stöðva átökin. Fjölmiðlar í Colombo hafa síð- ustu daga fullyrt að Norðmenn séu hættir að vera hlutlausir, þeir styðji nú Tamíla og séu því gagnslausir sáttasemjarar. Harðir bardagar á Jaffna- skaga »Íbúar á Sri Lankaeru um 20 millj- ónir, flestir búddistar af þjóðerni Sinhala. Tamílar eru hins veg- ar hindúar. »Norrænir eftir-litsmenn hafa síð- ustu árin fylgst með vopnahléi sem að nafninu til er enn í gildi. »Evrópusam-bandið hefur skil- greint Tamíl-Tígrana sem hryðjuverkahóp. Í HNOTSKURN TENGSL eru á milli aldurs móður við fæðingu barns, hvort barn hefur verið fyrirburi og hvort gripið hefur verið inn í fæðingu með keisara- skurði eða töngum og þess hvort barn greinist með ofvirkni. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem sérfræðingar hjá Barna- og ung- lingageðdeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (BUGL) gerðu. Í ljós kom að marktæk tengsl eru á milli þess að mæður séu innan við tvítugt þegar þær eignast börn og að þau greinist með ofvirkni síðar á lífsleið- inni. Fyrirburar reyndust fjórum sinnum fleiri meðal hinna ofvirku barna en almennt gerist en einnig kom í ljós að ofvirk börn voru oftar tekin með keisaraskurði eða töngum en íslensk börn almennt. „Það er talið að erfðir skýri of- virkni í 70% til 95% tilfella og þess vegna væri mjög gott að vita hvort foreldrarnir væru með ofvirkni, í rannsókn sem þessari. Þær upplýs- ingar höfum við ekki og þess vegna má helst sjá niðurstöður okkar sem vísbendingu um orsakaþætti,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, ein þeirra sem unnu að rannsókninni. | 9 Börn ungra mæðra lík- legri til að verða ofvirk ÞRÍR frambjóðendur í þingkosning- unum í Svíþjóð hafa hlotið sektir og allt að sex ára fangelsisdóm fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, að sögn vefsíðu Dagens Nyheter í gær. Einn mannanna, sem er hægri- maður í flokknum Moderaterna, hlaut tveggja ára fangelsi fyrir of- beldi gegn fimm og sex ára stúlkum. Maðurinn segir börnin sjálf hafa átt frumkvæðið. Jafnaðarmaður var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir ofbeldi gegn stjúpdóttur sinni frá því hún var átta til 12 ára. „Ég afplánaði dóminn,“ segir mað- urinn í samtali við blaðið og segist ekki álíta að hann hafi glatað trausti almennings vegna málsins. Beittu börn ofbeldi en vilja á þing Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.