Morgunblaðið - 11.09.2006, Page 4

Morgunblaðið - 11.09.2006, Page 4
UM 300 gestir sóttu styrktartónleika fyrir tíu ára dreng að nafni Frank Bergmann Brynjarsson sem haldnir voru í Festi í Grindavík í gærkvöldi en Frank greindist með hvítblæði fyrr á árinu. Hann er nú í Svíþjóð þar sem hann gengst undir bein- mergsskipti og eru foreldrar hans í fylgd með honum. Tónleikarnir voru hugsaðir til að styrkja fjölskylduna og heppnuðust afar vel, að sögn Sigríðar Lovísu Tóm- asdóttur, sem skipulagði tónleikana ásamt öðrum. Íþróttaálfurinn byrjaði skemmtunina og svo tók við grindvíska hljómsveitin Bigalow, þá KK og Rúnar Júl, svo óperusöngvararnir og grínistarnir Davíð og Stef- án, Bjarni Ara og Ástvaldur Traustason, Jónsi í Svört- um fötum, Gréta Mjöll og svo lauk tónleikunum með því að Skítamórall tók lagið en Gunnlaugur Helgason var kynnir á tónleikunum. Á myndinni má sjá Idol-Ingó taka lagið fyrir krakkana. „Það hefur hjálpað okkur mikið hvað listamennirnir voru fórnfúsir en sumir lögðu mikið á sig til að koma og spila,“ sagði Sigríður um árangur söfnunarinnar. Reikningsnúmerið fyrir þá sem vilja styrkja Frank Bergmann er 0143-26-199 og kennitala 140996-3199. Sungið til styrktar Frank Morgunblaðið/Ómar 4 MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol þann 5. október. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarauka á frábærum kjörum á vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Costa del Sol 5. október frá kr. 29.990 Allra síðustu sætin Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 saman í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Munið Mastercard ferðaávísunina „EF EKKI er komið til móts við blinda nemendur grunnskólanna þá er beinlínis verið að brjóta á rétt- indum þessara samfélagsborgara okkar, það fer ekki á milli mála,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, hæsta- réttarlögmaður. Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir móður tveggja daufblindra stúlkna á grunnskóla- aldri að þjónusta við blind börn væri nánast engin hér á landi og ekki lagt upp úr því að þau yrðu læs, auk þess sem ráðgjafarþjónustu við kennara í skólum landsins skorti sárlega. Ragnar segir að það verði lesið úr meginreglum um mannréttindi og reglunni um jafnan rétt borgaranna, að samfélaginu sé skylt að koma til móts við sérstakar þarfir blindra og heyrnarlausra og gera þeim kleift að taka þátt í samfélaginu. „Ríkinu er skylt að bjóða þessum börnum upp á kennslu að því marki sem mögulegt er og getur ekki borið kostnað fyrir sig.“ Í lögum um málefni fatlaðra segir að fatlaðir skuli eiga rétt á allri al- mennri þjónustu ríkis og sveitarfé- laga og fötluðum beri að veita þjón- ustu sem miðar að því að gera þeim kleift að lifa og starfa í eðlilegu sam- félagi við aðra. „Löggjöfin er út af fyrir sig ágæt, en framkvæmdin er ekki nógu góð,“ segir Ragnar. Engin þjónusta við blind og sjónskert börn eins og stendur Árið 2004 var blindradeild Álfta- mýrarskóla lögð niður, en deildin var stofnuð árið 1983 í þeim tilgangi að auka samskipti blindra og sjón- skertra við aðra nemendur en áður hafði sérstakur blindraskóli verið starfræktur. „Börnin fóru út í bekk- ina en í blindradeildinni var þeim kennt það sem fötlun þeirra kallaði á, s.s. athafnir daglegs lífs, lestur blindraleturs og námstækni,“ segir Margrét Sigurðardóttir sem starfað hefur sem blindrakennari um 35 ára skeið, en hún lét nýlega af störfum sem slíkur. Margrét segir að þegar mest hafi verið hafi 14 börn notið stuðnings blindradeildar Álftamýr- arskóla og mörg þeirra barna sem fengu stuðning í gegnum árin hafi haldið námi áfram að grunnskóla loknum. Eftir að deildin var lögð niður árið 2004 brást Reykjavíkurborg við vandanum með því að útvega blind- um börnum á höfuðborgarsvæðinu fimm klukkustunda ráðgjafarþjón- ustu í hverri viku, en börnum í sveit- arfélögum úti á landi var ekki boðið upp á þá þjónustu. „Þjónustan er hins vegar engin eins og staðan er í dag,“ segir Margrét. „Foreldrar barnanna eru óöruggir og leita til Sjónstöðvar sem ekki getur bent þeim á neitt úrræði, enda fellur það ekki undir hlutverk Sjónstöðvar að annast kennslu.“ Margrét telur að brýn þörf sé á þjónustumiðstöð fyrir blind börn eins og víða sé á hinum Norðurlönd- unum. Þar taki fagfólk á vandanum, miðli upplýsingum til almennra kennara sem kenna blindum og sjón- skertum börnum og taki börnin reglulega til þjálfunar og mats. Dæmi um að foreldrar flytji af landi brott með börn sín Halldór Sævar Guðbergsson, for- maður Blindrafélagsins, segir ástandið meðal blindra skólabarna grafalvarlegt og félagið muni í vetur leggja sig fram við að bæta stöðu þeirra. „Það er fullljóst að sjónskert börn sitja ekki við sama borð og önn- ur hér á landi og við vitum þess dæmi að foreldrar þeirra hafi flutt af landi brott í þeirri von að börnin fengju betri menntun,“ segir Hall- dór. Hann telur líklegt að stjórnvöld muni bregðast við þeim vanda sem nú hefur skapast með því að ráða einn kennara í fulla stöðu við að veita blindum börnum ráðgjöf og kennslu í skólum landsins í vetur. „Við lítum svo á að þar sé aðeins um bráða- birgðalausn að ræða og vonumst til þess að hér verði byggð upp öflugri þjónustu í náinni framtíð og lítum til þjónustumiðstöðva blindra á Norð- urlöndunum í því samhengi,“ segir Halldór. Verði slíkri þjónustumið- stöð komið á fót hér á landi segir Halldór að það liggi fyrir að byggja verði upp fagþekkingu, kennarar þurfi að afla sér umframmenntunar til þess að geta annast kennslu blindra, en þeir kennarar sem eru sérmenntaðir sem blindrakennarar hér á landi eru teljandi á fingrum annarrar handar í dag. »Átta sjónskert börn hófunám í grunnskólum landsins í ár, en 74 blindir og sjónskertir nemendur eru þar fyrir. »Ráðgjöf fyrir hópinn er afskornum skammti að mati Blindrafélagsins. Í fyrra starf- aði aðeins einn kennari við ráð- gjöf, í 5 klst. á viku. »Enginn blindrakennari hef-ur verið ráðinn til þessara starfa í vetur og hefur Blindra- félagið lýst yfir þungum áhyggjum vegna ástandsins. Í HNOTSKURN „Sjónskert börn sitja ekki við sama borð og önnur“ Blindrakennarar eru teljandi á fingrum annarrar handar Morgunblaðið/Þorkell Mannréttindabrot „Ef ekki er komið til móts við blinda nemendur grunn- skólanna þá er beinlínis verið að brjóta á réttindum þessara samfélags- borgara okkar, það fer ekki á milli mála,“ segir hæstaréttarlögmaður. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is GÖNGUSTÍGAR, girðingar og merkingar á Geysissvæðinu eru ekki í nægilega góðu horfi, og reglu- lega leggja ferðamenn á svæðinu sig í mikla hættu með því að fara of nærri hverunum. Morgunblaðið birti í gær mynd af ferðamönnum á svæðinu þar sem hópur fólks stóð uppi við Geysi sjálfan. Ragnheiður Björnsdóttir, formaður Félags leiðsögumanna, segir að þar sé um mikið hættuspil að ræða. Hverinn hafi breyst árið 2000, og nú komi stundum spýjur úr honum sem geti valdið mikilli hættu ef fólk stendur of nærri. Gera verði betri girðingar „Þarna eru bönd sem segja ekki neitt, þau enda án þess að ná í hring í kringum hverina,“ segir Ragnheið- ur. Þannig geti ferðamenn komið þannig að hverunum að þeir viti ekki hvorum megin við bandið eigi að vera. Ragnheiður segir að það verði að vera almennileg girðing svo ferða- menn vaði ekki út á svæðið. Ef ekki sé talið æskilegt að koma upp girð- ingum sé í það minnsta rétt að gera göngustígana betri til að ferða- mönnum sé ávallt ljóst hvort þeir séu á öruggri gönguleið eða hvort þeir eigi það á hættu að stíga í sjóð- andi hver. „Ég segi mínum hópum alltaf að halda sig á stígunum, en svo kemst maður í bobba þegar göngustígar eru ekki afmarkaðir. Svæðið er þannig að á sumum stöðum er eng- inn gróður, og þar gæti fólk haldið að væri göngustígur. En þar er kannski ekki óhætt að ganga, og maður getur farið niðurúr hvenær sem er,“ segir Ragnheiður. Hættuspil að fara nærri hverunum Morgunblaðið/Haraldur Þór Stefánsson Hættuspil Þessir ferðamenn lögðu sig í mikla hættu svo nærri Geysi. Göngustígar og girðingar ekki í góðu horfi RÖSKLEGA 31 milljón króna safn- aðist í landssöfnun Rauða kross Ís- lands (RKÍ), „Göngum til góðs“, um helgina. Aldrei hafa fleiri Íslendingar lagt söfnun RKÍ lið, en rúmlega 2.500 sjálfboðaliðar náðu því markmiði að ganga í hvert hús í þéttbýli á landinu. „Þetta gekk alveg óskaplega vel og við erum afskaplega þakklát bæði þessum mikla fjölda sem kom og gekk með okkur og ekki síður fólkinu sem tók á móti og lagði til fé,“ segir Kristján Sturluson, framkvæmda- stjóri RKÍ. Hann segir þá sem gengu hafa verið mjög sátta við viðtökurnar og fólk jafnvel sagt þeim að það hafi beðið tilbúið eftir heimsókninni. Kristján segir að eitthvert fé eigi eftir að bætast við þá rúmu 31 milljón króna sem komin var í kassann í gær. Tæplega 20 deildir Rauða krossins á landsbyggðinni eigi eftir að telja og ekki sé ljóst hversu mikið hafi verið lagt beint inn á reikning Rauða kross- ins. Einnig sé það gjarnan svo að hringt sé í söfnunarsímann eitthvað fram eftir vikunni. „Ég er bjartsýnn á að árangurinn verði svipaður og fyrir tveimur árum, og jafnvel betri,“ segir Kristján. Árið 2004 söfnuðust um 35 milljónir króna, en inni í þeirri upphæð var stórt framlag einstaklings. Það er því ljóst að árangurinn af söfnun sjálfboðalið- anna var meiri en síðast. Söfnunarfénu verður varið til að- stoðar börnum í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna al- næmis. Fólki sem ekki gafst kostur á að gefa í söfnunina á laugardag er bent á að hægt er að koma fram- lögum út vikuna í söfnunarsíma Rauða krossins, 907 2020, þar sem 1.200 kr. dragast af næsta símreikn- ingi, eða á reikning söfnunarinnar, 1151-26-000012, kt. 530269-2649. Aldrei fleiri hafa „gengið til góðs“ Yfir 31 milljón kr. safnaðist í landssöfnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.