Morgunblaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.09.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Nýjar dragtir Lokað í dag í Bæjarlind Opnum kl. 13:00 á morgun, þriðjudag ... Opið í Eddufelli Eddufelli 2 sími 557 1730 Bæjarlind 6 554 7030 Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15 BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra flutti ávarp á stofnfundi Lög- reglustjórafélags Íslands á laugar- daginn. Þar fjallaði hann m.a. um frétt Morgun- blaðsins af 16 ára pilti sem stakk karlmann á hol til að myrða hann. Björn spyr hverj- ar afleiðingar þess hefðu orðið hefði piltinum dottið í hug að búa til sprengju og athuga tjónið af henni og vitnar til orða geðlæknis sem telur líklegt að drengurinn sé hafi skert veruleikaskyn vegna tölvuleikja eða vídeómynda. Björn fjallaði um handtöku dönsku leyniþjónustunnar á ungum mönnum í Odense sem grunaðir voru um að undirbúa hryðjuverk. Spurn- ingar hefðu vaknað um hvort gögn leyniþjónustunnar dygðu til að fá mennina dæmda í gæsluvarðhald en það gengið eftir. Hann telur fráleitt að ekki þurfi ráðstafanir hérlendis til að bregðast við annars konar hættu við öryggi borgaranna en áður. Ræddi um viðbrögð við afbrotum Björn Bjarnason MARKTÆK tengsl eru á milli ald- urs móður við fæðingu barns, hvort barn hafi verið fyrirburi og hvort gripið hafi verið inn í fæðingu með keisaraskurði eða töngum og þess hvort barn greinist með ofvirkni. Þetta kemur meðal annars fram í niðurstöðum rannsóknar sem nokkr- ir sérfræðingar hjá Barna- og ung- lingageðdeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (BUGL) gerðu og birtust í Læknablaðinu nú í mánuðinum. Margrét Valdimarsdóttir, ein þeirra sem unnu að rannsókninni, segir að niðurstöðurnar séu áþekkar niðurstöðum nokkurra erlendra rannsókna sem bendi til að tengsl séu á milli nokkurra þátta á með- göngu og fæðingu og þess að börn greinist með ofvirkni. „Þetta bendir til þess að staðan sé svipuð hér á landi og erlendis,“ sagði Margrét í samtali við Morgunblaðið í gær. Tal- ið er að allt frá 720 upp í 3.300 börn á aldrinum sex til 18 ára geti verið of- virk hér á landi en helsta einkenni ofvirkni, eða ofvirkniröskunar, eru hreyfiofvirkni, hvatvísi og athyglis- brestur sem eru í ósamræmi við ald- ur og þroska. Gögn úr sjúkraskrám 196 barna sem komu til greiningar á BUGL voru notuð við rannsóknina og fylltu foreldrar barnanna út upp- lýsingaskrá þar sem spurt var um þroskaferil barnsins, heilsufarssögu, meðferðarsögu, skólasögu, félags- sögu og félagslegan bakgrunn. Auk Margrétar unnu þau Agnes Huld Hrafnsdóttir og Páll Magnússon sál- fræðingar og Ólafur Ó. Guðmunds- son yfirlæknir að rannsókninni en þau starfa öll á BUGL. Fyrri rann- sóknir hafa bent til þess að ýmsir þættir orsaki ofvirkni en erfðaþátt- urinn vegi þó þyngst. „Það er talið að erfðir skýri ofvirkni í 70% til 95% tilfella og þess vegna væri mjög gott að vita hvort foreldrarnir væru sjálf- ir með ofvirkni í rannsókn sem þess- ari. Þær upplýsingar höfum við ekki og þess vegna má helst sjá niður- stöður okkar sem vísbendingu um orsakaþætti,“ segir Margrét. Ungar mæður líklegri til að eignast ofvirk börn Þeir þættir sem voru skoðaðir voru aldur móður við fæðingu, hvort barn hefði verið fyrirburi, hvort barn hefði verið tekið með keisara- skurði eða töngum, fæðingarþyngd barns, áfengisnotkun, reykingar eða lyfjanotkun móður á meðgöngu. Í ljós kom að marktæk tengsl eru á milli þess að mæður séu innan við tvítugt þegar þær eignast börn og að þau greinast með ofvirkni síðar á lífsleiðinni. Benda niðurstöðurnar til þess að konur sem eru undir 20 ára aldri við fæðingu barns séu 2,5 sinn- um líklegri til að eignast barn sem greinist með ofvirkni en ef móðirin er eldri en 20 ára. Skýringin á þessu gæti til dæmis verið erfðaþátturinn, því meiri líkur eru á því að ofvirkar konur eignist börn ungar. Fyrirbur- ar reyndust fjórum sinnum fleiri meðal hinna ofvirku barna en al- mennt gerist en einnig kom í ljós að ofvirk börn voru oftar tekin með keisaraskurði eða töngum en íslensk börn almennt. Margrét segir að þessi tengsl ofvirkni við fæðingar með keisaraskurði eða töngum hafi reynst afar sterk en þrátt fyrir að þessi tengsl séu fyrir hendi sé því enn ósvarað hvort orsakasamhengi sé milli þáttanna og ofvirkni hjá börnum. Óljóst hvort reykingar, áfengi eða lyfjanotkun hafi áhrif Í rannsókninni kom fram að ekki reyndust vera marktæk tengsl milli allra þáttanna sem athugaðir voru og ofvirkni. Hlutfall mæðra sem reyktu á meðgöngu í rannsóknar- hópnum var ekki marktækt hærra en hjá þeim sem ekki reyktu. „Sum- ar erlendar rannsóknir hafa sýnt að allt að tvöfalt meiri líkur eru á því að barn greindist með ofvirkni ef reykt var á meðgöngu. Við spurðum mæð- urnar oft talsvert langt aftur í tím- ann um reykingar á meðgöngu og e.t.v. kann það að hafa haft áhrif á niðurstöðuna,“ segir Margrét að- spurð hvers vegna íslenska rann- sóknin hafi ekki sýnt þessi tengsl. Ekki reyndust heldur marktæk tengsl á milli lítillar fæðingarþyngd- ar og tíðni ofvirkni hjá börnum. Ekki var athugað hvort mæður ofvirkra barna hefðu fremur notað áfengi eða lyf á meðgöngu en mæður annarra barna þar sem ekki reyndust vera til gögn um viðmiðunarhópa á Íslandi. „Vegna þess hvað erfðirnar skipta miklu máli teljum við okkur ekki geta fullyrt með vissu að það sé or- sakasamband milli þáttanna í rann- sókninni og ofvirkni, jafnvel þótt tengslin hafi stundum mælst mjög mikil.“ Í niðurstöðum sínum benda höfundar á að veita megi ungum mæðrum aukinn stuðning og þjón- ustu og er nefnt í greininni að íhuga mætti miðstöð innan heilsugæslunn- ar þar sem foreldrar gætu fengið sérhæfða fræðslu og stuðning. „Því fyrr sem hægt er að veita stuðning því betra,“ segir Margrét. Ofvirkni tengd ýmsum þáttum í meðgöngu og fæðingu barna Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Skýringar Meiri líkur eru á að ofvirkar konur eignist ungar börn. »Talið er að allt frá 720 uppí 3.300 börn á aldrinum 6 til 18 ára geti verið ofvirk hér á landi. »Erfðir eru einn helstiorsakaþáttur ofvirkni en talið er að erfðir skýri ofvirkni í 70% til 95% tilfella. »Ljóst þykir þó að tengsleru á milli ýmissa þátta í meðgöngu og fæðingu barna og ofvirkni þeirra síðar meir. » Íslenskir vísindamennhafa fundið að marktæk tengsl eru annars vegar á milli aldurs mæðra við fæðingu barna, hvort börn fæðast fyrir tímann og hvort taka þarf börn með keisaraskurði eða töngum og hins vegar ofvirkni barna. »Nota má niðurstöðurnartil að greina hvaða börn eru líklegri en önnur til að verða ofvirk. Í HNOTSKURN Mánudagur 11. sept. Aloo-saag spínatpottur og buff. Þriðjudagur 12. sept. Eðalbuff m. sætri kartöflu. Miðvikudagur 13. sept. Próteinbollur m. cashewhnetusósu. Fimmtudagur 14. sept. Karri korma m. nanbrauði. Föstudagur 15. sept. Fyllt paprika m. brokkolisalati. Helgin 16.-17. sept. Ítalskur pottur m. pastasalati og buff. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.