Morgunblaðið - 11.09.2006, Page 15

Morgunblaðið - 11.09.2006, Page 15
Halló, halló … Hvað seg-irðu … Rrrrrrrrósa …íííí, ertu góður Bíbí-lína … brrrrrrr, mamma mín … fitfjú, grrrr … hahahahaha, Bíp … píb …“ Hljóðin sem berast frá hinum enda símalínunnar virðast helst eiga upptök sín í gömlu útvarps- tæki eða yfirbrunnu vélmenni úr vísindaskáldsögu en hvorugt er þó raunin. Það er Bíbílína, tveggja ára gamall regnbogagári sem læt- ur gamminn geisa við blaðamann milli þess sem hann reynir að þvaðra ástargaukinn Stínu „til við sig,“ eins og eigandi þeirra, Sig- urður Valur Sigurðsson, orðar það svo pent. „Bíbílína talar alltaf mannamál við Stínu þótt sú síð- arnefnda tali ekki neitt því Bíbílína kann ekkert annað. Þau eru miklir vinir.“ „Bíbílína, ertu góður?“ Þrátt fyrir nafngiftina er Bíbí- lína karlkyns en nafnið er leitt af nafni forvera hans sem andaðist fyrir aldur fram. „Hann Bíbí sem var mjög vel talandi veiktist einn daginn og dó,“ útskýrir Sigurður. „Það var mikið áfall fyrir fjöl- skylduna enda var hann bara eins og hálfs árs. Þá vorum við búin að taka frá annan unga sem við ætluðum að gefa en til að lækna harm fjölskyldunnar tókum við hann að okkur sjálf.“ Hann bætir því við að Bíbílína hafi verið fer- lega skemmtilegur frá upphafi. „Við vissum ekki að hann væri karlfugl því kyn gáranna kemur ekki í ljós fyrr en þeir verða kyn- þroska. Þá kemur blátt ofan á gogginn á karlinum en áður en það gerðist var Bíbílína búinn að læra nafnið sitt. Okkur fannst bara fyndið að leyfa því að halda sér.“ Bíbílína er ákaflega mannelskur og æstur í allan félagsskap. „Hann er alltaf á öxlinni á manni og var fljótur að herma eftir þegar fólk flautaði. Þá byrjuðum við að segja „Halló, halló …“ og reyndum að endurtaka það nógu oft svo að hann lærði það líka. Síðan hefur hann lært frasa eins og „Bíbílína, ertu góður?“ og „Rósa, hvar ertu?“ sem hann segir með miklu rúllandi err-i en konan mín heitir Rósa. Þetta tónar hann nákvæmlega eins og við segjum það og smám saman höfum við bætt fleiri orðum við.“ Romsa á símsvara Sjálfur hefur Bíbílína verið iðinn við að „pikka upp“ orð og frasa á borð við „sonasonasona, ég skal hugga þig,“ sem eftir Sigurði að dæma hljómar ákaflega blíðlega úr munni gauksa. „Svo æpir hann á son okkar: „Daníel! Farðu í bað!“ Þegar slökkt er á gemsa dóttur minnar svarar sjálfvirkur símsvari þar sem Bíbílína romsar upp úr sér einhverju misviturlegu.“ Þá er ekki laust við hégómleika hjá Bíbílínu því helst losnar um mál- beinið hjá honum þegar hann sér eigin ásýnd í spegli. En fylgir hugur máli þegar hinn fiðraði félagi hefur upp raust sína? „Nei, hann veit ekkert hvað hann er að segja,“ svarar Sigurður að bragði og skellihlær. „Hann er svo vitlaus að það tekur ekki nokkru tali. Þrátt fyrir það hefur hann mjög þroskað tilfinningalíf. Hann finnur alveg hvernig skapi við er- um í og hegðar sér í samræmi við þá skapsveiflu sem hann fær. Sömuleiðis sjáum við glögglega í hvernig skapi hann er. Oft er hann reiður við okkur og er með stæla og merkilegheit en þess á milli er hann mannelskur með eindæm- um.“ Sigurður starfar m.a. í Latabæ þar sem hann teiknar „story- board“ eða myndstiklur eins og það heitir á góðri íslensku. „Þar er Bíbílína hrókur alls fagnaðar enda sest hann á axlirnar á hverjum sem er og nartar í eyrnalokka eða þvaðrar upp í þau eyru sem fyrir honum verða.“ Sonasona- sona, ég skal hugga þig … Morgunblaðið/Eyþór Félagslyndir Sigurður „ræðir“ við vinina Bíbílínu og Stínu. Blátt á goggnum Enginn vissi hvort Bíbílína væri karl eða kona fyrr en hann varð kynþroska og blái bletturinn á trýninu ljóstraði upp um kynferði hans. Þá var hann þegar búinn að læra nafnið sitt. Bíbílína, arftaki Bíbí heit- ins, þvaðrar út í eitt og skipar unglingnum á heimilinu reglulega í bað. Bergþóra Njála Guð- mundsdóttir tók síma- viðtal við þennan mál- glaða páfagauk. ben@mbl.is gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 15 Sérfræðingar í saltfiski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbítskinnar og bita Sími: 466 1016 ektafiskur@emax.is                               !"# $%  &' ()*+"# ,-# .$/ $0  1112+232# tíska Guerrilla-búðin hættir SENN líður að því að verslunin Guerrilla Store muni hætta í húsnæði Slippsins við Héðinsgötu. Verslunin var opnuð 24. september í fyrra og mun eins og Guerrilla-rekstur gerir ráð fyrir hætta í húsnæði Slippsins hinn 25. sept. næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá Guerrilla-versluninni kem- ur fram að verslanir með þessu nafni séu með vörur frá hátískufyrirtækinu Comme des Garcons og bjóði upp á fatalínur allt frá 1980 til dagsins í dag og eru eldri línur CDG aðeins fáanlegar í Guerrilla- verslunum. Segja má að á undanförnu ári hafi miðborgin náð að teygja sig vel inn á Mýrargötuna en þar eru að spretta upp óhefðbundnar og skemmtilegar versl- anir víðs vegar um svæðið. Verslunin verður opin alla daga í september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.