Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 19

Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 19 brot Áhöfn risaborsins smokraði sér í gegnum borkrónuna að verki loknu til að ast gestunum hinum megin við mikil fagnaðarlæti viðstaddra. ors undir Fljótsdalsheiði á enda ndasprettsins ði áfanganum ákaft og menn voru æmdinni við Kárahnjúka. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir ð sig í gegnum síðasta berghaftið. »Þrír risaborar voru fengn-ir til landsins til að bora aðgöng og aðrennslisgöng milli Kárahnjúka og Fljóts- dals. »Fyrsti borinn kom tillandsins í desember árið 2003 og hinir tveir í byrjun árs 2004. »Þvermál borhausanna er7,2 metrar og heildar- þyngd hverrar borvélar um 600 tonn. »Borinn mylur niður bergiðog skilar mulningnum á færiband sem fest er neðan á hann. Færiböndin flytja svo mulninginn út úr göngunum. »Færiböndin við borinn semfór í gegnum Fljótsdals- heiðina eru um 17 kílómetra löng. Í HNOTSKURN Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Opnast hefur ný leið til aðsmygla fíkniefnum hingaðtil lands eftir að varnarliðiðhætti að fylgjast með óþekktum flugvélum í lofthelgi Íslands. Hægt er að fljúga hingað til lands og lenda með smyglvarning án þess að flugmálayfirvöld verði þess vör. Varnarliðið fylgdist þar til í lok maí á þessu ári með allri flugumferð sem fór um íslenska lofthelgi, þar með taldar óþekktar flugvélar. Ef slíkar flugvélar sáust á ratsjá var sá möguleiki fyrir hendi að senda orrustuþotur til móts við þær. Þetta var einkum hugsað til að bregðast við hernaðarógn, en á sama tíma gerði þetta kerfi þeim erfitt fyrir sem gátu hugsað sér að smygla fíkni- efnum eða öðrum varningi hingað til lands með litlum flugvélum. Flugvélar eru með svokallaðan rat- sjársvara, sem gefur flugmálayfirvöld- um upplýsingar um staðsetningu flug- vélarinnar. Flugumferðarstjórar Flugmálastjórnar sjá einungis flugvél- ar sem eru með kveikt á þessum rat- sjársvörum, en hægt er að slökkva á þeim með einu handtaki. Þegar það er gert koma vélarnar því ekki fram á skjám flugumferðarstjóra, og eru í raun ósýnilegar öðrum en þeim sem skima eftir þeim með berum augum, eftir að varnarliðið hætti eftirliti sínu. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri segir að í raun sé um tvær mismunandi teg- undir af ratsjám að ræða. Varnarliðið hafi einkum nýtt sér upplýsingar úr svokallaðri frumratsjá, sem sendir út merki sem endurkastast af flugvélum, og staðsetur þær með endurkastinu. Flugmálastjórn nýti hins vegar upplýs- ingar úr svokallaðri svarratsjá, sem fái upplýsingar frá ratsjársvörum flug- véla. Varnarliðið fylgdist með frumratsjá, en notaði einnig upplýsingar úr svar- ratsjá til að skilja frá þá flugumferð sem átti löglegt erindi hingað til lands, auk þess sem stjórnstöð varnarliðsins fékk flugáætlanir þeirra sem flugu um lofthelgina. Þorgeir segir að það geti vel verið löglegt að slökkva á ratsjársvara um borð í flugvélum, í sjónflugi sé ekkert sem skyldi flugvélar til að hafa kveikt á þeim. „Í sjónflugi er þess ekki endilega krafist að vélar séu á ratsjá, en við mælum auðvitað eindregið með því að menn séu með þetta í gangi. Í nánast öllum tilvikum eru flugmenn með rat- sjársvara í gangi, þeir vilja auðvitað láta sjá sig, og koma í veg fyrir að þeir fari of nálægt öðrum vélum.“ Dyrnar ekki galopnar Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að hann hafi vissulega heyrt af þessum nýja möguleika til að smygla varningi hingað til lands. „Það hefur verið talað um þetta sem möguleika, en þetta hef- ur ekki verið skoðað eða rætt sérstak- lega. En þegar heildarþarfir fyrir varn- ir verða skoðaðar kann þetta að vera eitt af þeim mörgu atriðum sem þarf að skoða. Við erum í ákveðinni upplýs- ingaöflun, og það er ekki bara þessi leið sem hugsanlegt er að nota [til að koma fíkniefnum hingað til lands],“ segir Grétar. Hann bendir á að þótt ekki sé fylgst með óskráðum flugvélum í lofthelginni þýði það ekki að dyrnar séu galopnar. „Við erum tengdir í ýmsa gagnabanka og net, svo ef menn eru að koma hingað þá eru ýmsar leiðir fyrir okkur til að komast að því. En þetta er ein leið, það eru þúsundir annarra sem menn nota á hverjum tíma. En þetta verður örugg- lega eitt af því sem menn munu velta fyrir sér, og hvernig er hægt að koma í veg fyrir þetta.“ Flugmálastjórn fær öll gögn frá bæði frumratsjá og svarratsjá, en þar er einungis unnið úr upplýsingum frá svarratsjánni. Þorgeir segir að engin ástæða hafi verið til þess hingað til að vinna úr frumratsjárgögnum, það hafi ekki verið hlutverk Flugmálastjórnar. Til þess að hægt væri að nýta frumrat- sjárgögnin þyrfti að setja upp nýjan hugbúnað, en það sé síður en svo óvinn- andi vegur. Þorgeir bendir á að fyrirtækið Flug- kerfi sé þessa dagana að afhenda kerfi fyrir flugvöll í Suður-Kóreu, sem nýti upplýsingar frá frumratsjá. Flugkerfi hannaði hugbúnað Flugmálastjórnar, og er að 2⁄3 hluta í eigu Flugmálastjórn- ar. „Þannig að við erum með þessa tækni í okkar höndum, ef svo má segja,“ segir Þorgeir. Þarf að geta brugðist við smygltilraunum Einn viðmælenda Morgunblaðsins, sem hefur sérþekkingu á þessu sviði, bendir á að ekki sé nægilegt til að koma í veg fyrir smygl hingað til lands með litlum flugvélum að Flugmálastjórn sjái flugvélar sem fljúgi hingað til lands. Einhver tæki verði líka að vera til staðar til að bregðast við, vakni grunur um að flugvél sé með smygl- varning sem til standi að afferma á litlum flugvelli, eða öðrum stað þar sem hægt er að lenda. Þar sem ekki séu orr- ustuþotur til staðar mætti hugsa sér hraðskreiða vél sem tollverðir gætu notað til að taka á móti slíkum vélum. Ekkert slíkt hafi þó verið skoðað af nokkurri alvöru hér á landi. Flugstjórnarmiðstöðvar skiptast á upplýsingum um flugáætlanir, en ljóst er að flugvélar sem ætlunin væri að nýta til að smygla eiturlyfjum eða öðru hingað til lands myndu annað hvort ekki gefa upp flugáætlun, eða gefa upp ranga flugáætlun. Þorgeir bendir á að ef flugvél slökkvi á ratsjársvara taki hernaðaryfirvöld í því landi sem flogið er frá mögulega eftir því. Þótt sé ekki ljóst hvort þau yfirvöld myndu koma boðum til yfirvalda hér á landi flygi flugvélin inn í íslenska lofthelgi. Áður hafi verið einfaldari boðleið milli er- lendra hernaðaryfirvalda og stjórn- stöðvar varnarliðsins hér á landi, en nú sé búið að leggja þá starfsemi niður. Einnig er ljóst að hægt er að forðast að sjást á ratsjá, m.a. með því að fljúga svo neðarlega að flugvélin sjáist ekki. Þorgeir segir það raunar alltaf hafa verið einhvern möguleika að komast þannig framhjá frumratsjá hér á landi, en sökum góðrar staðsetningar rat- sjárstöðva, sem og slétts hafflatar um- hverfis landið, hafi þurft talsverða sér- þekkingu til þess. „Það var aldrei hægt að útiloka neitt, en þetta verður auð- veldara ef enginn er að skoða frumrat- sjárgögnin. Þá er allt opið, og menn geta flogið án þess að sjást á ratsjá.“ Vel þekkt smyglleið Það er síður en svo ný aðferð til að smygla fíkniefnum milli landa að nota sér litlar flugvélar og reyna að komast hjá því að sjást á ratsjá. Það hefur verið vandamál um áratugaskeið í Flórída í Bandaríkjunum, þar sem yfirvöld hafa komið upp þéttriðnu neti ratsjáa til að reyna að koma í veg fyrir smygl, segir Þorgeir. Hann bendir þó á að ekki sé vitað til þess að neinar óþekktar flug- vélar hafi verið hér á sveimi á undan- förnum árum. Sérfræðingur á þessu sviði sem rætt var við bendir á að það hefði átt að liggja í augum uppi þegar íslenskum stjórnvöldum var tilkynnt um fyrir- hugað brotthvarf Bandaríkjahers að þessi leið til að smygla fíkniefnum hingað til lands myndi opnast. Þetta sé vel þekkt leið til að smygla eiturlyfjum, og þegar ljóst hafi verið að varnarliðið myndi hætta að sinna þessu eftirliti hefði átt að bregðast strax við. Ljóst megi vera af umfangi smyglmála sem fjölmiðlar hafi sagt frá undanfarið að kostnaðurinn við að útvega litla flug- vél sé „vasapeningur“ fyrir þá sem vilja smygla fíkniefnum hingað til lands. Fréttaskýring | Ný leið til að smygla fíkniefnum opnaðist vegna brotthvarfs varnarliðsins frá Keflavíkurflugvelli Smyglflugvélar sjást ekki á ratsjá í íslenskri lofthelgi Morgunblaðið/Brynjar Gauti Greið leið Litlar flugvélar sem ekki þurfa langar flugbrautir geta nú komist hingað til lands með smyglvarning án þess að þær sjáist á ratsjá. »Varnarliðið fylgdist meðsvokallaðri frumratsjá, sem nemur allar flugvélar í íslenskri lofthelgi, og gat brugðist við óþekktum flugvélum með því að senda orrustuþotur til höfuðs þeim. Þessu eftirliti var hætt í lok maí sl. »Flugmálayfirvöld fylgjasteinungis með svokallaðri svarratsjá, sem fær upplýsingar frá flugvélunum um staðsetn- ingu þeirra. Sé slökkt á bún- aðinum sem á að senda upplýs- ingarnar sést flugvélin ekki á ratsjá hér við land. »Eftir að varnarliðið hætti aðfylgjast með óþekktum flug- vélum eru flugvélar sem ekki senda flugmálayfirvöldum upp- lýsingar ósýnilegar í íslenskri lofthelgi, nema skimað sé eftir þeim með berum augum. »Alþekkt er sú aðferð að notalitlar flugvélar til að smygla fíkniefnum. Sú aðferð hefur m.a. verið mikið notuð til að koma fíkniefnum til Flórída í Banda- ríkjunum og eru yfirvöld þar með þéttriðið ratsjárnet til að reyna að koma í veg fyrir slíkt. Í HNOTSKURN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.