Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 22

Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 22
22 MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ María RósaJakobsdóttir fæddist á Syðri- Tjörnum í Eyja- fjarðasveit hinn 16. október 1951. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsi Ak- ureyrar hinn 30. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar eru hjónin Bene- dikt Jakob Jóns- son, bóndi í Péturs- borg, f. 9. september 1929, d. 29. júlí 1969, og Brigitte Bartsch frá Þýskalandi, f. 16. janúar 1931. Áttu þau saman fimm börn. Hin eru Lotta W. bóndi, f. 10. október 1950, maki Jón Gústafsson bóndi, f. 9. mars 1946; Jóna Bergdal listamaður, f. 10. ágúst 1953, maki Jör- undur Torfason kafari, f. 1. júní 1952; Jón Wilhem, f. 16. ágúst 1954, d. 1971; og Hilmar J. lag- ermaður, f. 10. júní 1957, maki Hanna Sigmarsdóttir leikskóla- kennari, f. 29. desember 1960. Síðar átti Brigitte Bartsch Konráð Bartsch tónlistar- mann, f. 10. ágúst 1971, maki Kristín McQueen tónlistar- maður, f. 1. sept- ember 1978. Eiginmaður Mar- íu er Jóhannes Haukur Jóhann- esson bifvélavirki, f. 23. janúar 1951. Sonur hennar er Helgi Jakob Helga- son, sem starfar sem bifvélavirki, f. 26. nóv- ember 1968, maki Ólöf María Jóhannesdóttir kennari, f. 14 febrúar 1968, þau eiga tvö börn, Maríu Katrínu, f. 14. janúar 1998, og Jóhannes Þengil, f. 18. nóvember 2001. María ólst upp í Pétursborg og bjó síðan á Akureyri. Hún starfaði lengst af við ummönnun á Öldrunarheimilinu Hlíð. María Rósa verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku María systir. Vegir guðs eru órannsakanlegir, af hverju þú? Baráttan við þessi veikindi sem þú þurftir að heyja gerðir þú með hetjuskap. Þú kvartaðir aldrei þótt þú vissir að hverju stefndi og þú varst alltaf jafn falleg þar til yfir lauk. Nú ertu laus við þennan lík- ama sem var orðin þér ofviða. Síð- asta spjallið við þig verður geymt í minningunni sem dýrmætt gull. Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, veiðiferðirnar, ferða- lögin, terturnar, klippingarnar, pössun á börnunum mínum, þú varst nú hálfgerð skámamma þeirra. Svo reynsluna okkar sem við áttum saman, hún gaf okkur betri skilning á lífið. Við vorum ólíkar en mikið saman, sérstaklega þegar við vorum litlar, þá sulluðum við í lækjunum og fjör- unni og gerðum bú í klettunum. Svo þegar þú varst orðin dama var gaman að komast í snyrtidótið þitt og var oft tekið til hendinni,við að snyrta sig. Ilmvatnið þitt var eitt- hvað sem einkenndi þig og allir löð- uðust að. Við áttum góða æsku, takk fyrir það. Þú varst lánsöm að eignast Helga Jakob sem var sól- argeislinn okkar þegar pabbi dó. Einnig varstu lánsöm að hitta Hauk sem Helgi valdi handa þér (eins og kom fram í brúðkaupinu) sem hefur reynst þér sem klettur á erfiðum stundum. Sólargeislana sem Helgi og Ólöf eru búin að gefa þér, María Katrín og Jóhannes Þengill sakna þín sárt eins og við öll. Megi guð styrkja ykkur í sorg- inni, elsku Haukur, Helgi, Ólöf og börn. Þú ert hetja, rólega systir. Ég sakna þín sárt og takk fyrir allt. Guð geymi þig. Jóna Bergdal. Elsku Maja frænka. Takk fyrir allar góðar minning- arnar og tímann sem við áttum saman með þér í þessum heimi. Ferðirnar á milli Moldhauga og Pétursborgar voru ansi margar og eftirminnilegar þegar öll börnin voru að alast upp, samtals 12 börn og því alltaf fjör. Engin veit hvað við höfum langan tíma hér en þú nýttir tímann þinn vel og varst allt- af glöð, falleg og brosandi hvar sem við hittum þig. Þú undirbjóst næsta líf eins og góð húsmóðir undirbýr næsta dag. Það var alltaf svo gott að heim- sækja ykkur Hauk í Eyrarveginn, heimilislegt og notalegt. Þið eruð svo rík að eiga Helga Jakob, Ólöfu og litlu barnabörnin ykkar. Elsku Haukur, Helgi Jakob, Ólöf, Birgitta, Lotta, Jóna, Himmi, Konni og fjölskyldur, megi góður guð styrkja ykkur. Þinn föðurbróðir, Þorsteinn og Þóra, börn og fjölskyldur. Elsku Maja frænka, það er með miklum trega að ég kveð þig. Þú, fallega sál, ert farin frá okk- ur, ó hversu sárt þín verður saknað. Þú varst svo falleg, brosmild og góð manneskja. Er ég hugsa til þín þá get ég ekki annað en séð þig brosa svo fallega til mín. Þótt þú værir veik þá tókstu á móti manni með brosi á vör á sjúkrahúsinu, þú varst svo sterk, algjör hetja. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig elsku Maja mín, enda eyddum við systurnar, ég og Hidda, mörgum stundum hjá þér. Þú átt ansi mikið í okkur systrunum enda svona skámamma okkar. Við ferð- uðumst svo mikið sama í Aðaldalinn og Ormarsá og á ég svo margar góðar minningar eins og þegar ég, þú, mamma og Hidda vorum í göngutúrunum okkar í Aðaldalnum, syngjandi allar í kór. Þú gafst þér tíma til að vera með okkur systr- unum, greiddir okkur og málaðir og við fengum að klæða okkur í kjól- ana þína og skó og svo var mynda- taka. Við áttum sameiginleg áhuga- mál, skór voru þar á meðal. Ég settist með þér niður um daginn og við fórum í gegnum skókassann þinn með flottu skónum þínum og þú varst að segja mér sögurnar bak við skóna. Frá frægu skónum sem voru sendir til þín beint á ballið. Það var bara eitthvað við það að koma til þín og Hauks og eins og Ágúst frændi minn sagði einhvern tímann að þá fór hann heim til þín og þú varst ekki heima en hann stakk nefinu inn um bréfalúguna til að finna bara Maju-lyktina. Það var svo gott að koma til þín og finna Maju-lyktina. Ég sakna þín, Maja frænka, en ég á margar minningarnar og þeg- ar ég hugsa til þín sé ég þig brosa til mín svo fallega, þú ert hetjan mín. Ásdís Jörundsdóttir. Elsku Maja frænka. Ég vart trúi því að tími sé kominn til að kveðja þig. Þú varst án efa besta frænka sem hægt er að hugsa sér og svo miklu meira en það. Þú varst góður vinur, gott að tala við þig og alltaf jafn gaman að hitta þig. Þú hafðir notalega nærveru, svo róleg, þægi- leg og glæsileg kona sem heillaðir alla með brosinu þínu. Ég og Ásdís systir vorum alltaf mikið hjá þér, má segja að við höf- um átt þig sem sparimömmu. Þú varst alltaf svo blíð og góð og héld- um við mikið upp á þig. Svo áttir þú yndislegan mann, hann Hauk, sem er engum líkur og Helgi hefur alltaf verið okkur systrum sem bróðir. Þar sem við höfum eytt mörgum skemmtilegum stundum saman á ég margar fallegar minningar um góða tíma með þér. Eyddum við stelp- urnar (þú, ég, mamma og Ásdís) ófáum stundum saman í Aðaldaln- um meðan karlarnir voru að veiða. Aldrei leiddist okkur því við skemmtum okkur alltaf svo vel að syngja, skoða náttúruna og bralla ýmislegt. Það eru margar sögurnar sem koma upp í hugann sem gaman væri að rifja upp með þér og við hefðum án efa hlegið mikið. Þú og mamma hlóguð allavega í marga daga þegar ég datt í pollinn í ára- bátnum og Ásdís ofan á mig. Ég rennblotnaði og hafði ekki aukaföt en þú varst svo úrræðagóð, klæddir mig í ullarbuxur af Hauki og bast þær upp með trefli. Mér þykir afskaplega vænt um að þið Haukur gátuð heimsótt mig í sumar, einnig var frábært að eiga stund með ykkur í brúðkaupinu hjá Helga og Ólöfu þar sem þú varst svo falleg og glæsileg eins og alltaf. Ég vildi að ég hefði getað verið miklu meira hjá þér síðustu dagana, en þykir svo gott að ég komst norð- ur þegar þú fórst á spítalann og að við náðum að spjalla og eiga fallega stund og ég gat kvatt þig, elskulega Maja frænka. Ég minnist þín sem bestu frænku í heimi og verður þín sárt saknað. Guð gefi Hauki, Helga, Ólöfu, litlu englunum og ömmu Brigitte styrk á þessum erfiðu tímum. Hildigunnur Jörundsdóttir. Mikil baráttukona er fallin frá, kona sem sýndi baráttuvilja og æðruleysi. Þeir eiginleikar hennar komu berlega í ljós þegar hún veiktist af illvígum sjúkdómi sem hafði betur eins og oft áður. Við María kynntumst árið 1981, þá unn- um við báðar á Dvalarheimilinu Hlíð og síðan höfum við alltaf verið mjög góðar vinkonur. Eins og segir í sálminum þá er margs að minnast, því margt höfum við gert og brallað saman. Það voru notalegar stundir sem við áttum saman, þá fórum við gjarnan inn á Greifann eða ein- hvern annan veitingastað og sátum og röbbuðum um heima og geima. Við kölluðum þessar stundir sál- fræðitímana okkar. Þetta átti að vera stutt brekka og fljótfarin en erfið varð hún, en alltaf varst þú jákvæð og með þínu jafn- aðargeði tókst þér að gera þetta einhvern vegin léttara en maður átti von á. Ég gæti skrifað margar blaðsíður því af nægu er að taka, en ljúfu og góðu minningarnar ætla ég að geyma með mér. Í dag kveð ég góða og trausta vinkonu með mikl- um söknuði. Guð geymi þig. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Elsku Haukur, Helgi Jakob, Ólöf, María Katrín og Jóhannes Þengill. Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg og söknuði. Þín vinkona, Sigrún Geirsd. Ég hef ekki oft kynnst mann- eskjum eins og henni Maríu. Þegar ég hitti hana fyrst fyrir nærri 16 árum, leið mér eins og ég hefði þekkt hana alla tíð. Hún var svo óendanlega hlý, góð, skilningsrík og gat gefið manni svo góð ráð þegar eitthvað bjátaði á. Hún töfraði fram dýrindis krásir algjörlega án fyr- irhafnar við öll tækifæri. Er kú- rekakássan hennar ógleymanleg. Við spjölluðum alltaf mikið og ég man þegar ég oft ætlaði aðeins að skreppa til hennar Maju, þá voru liðnir þrír til fjórir klukkutímar áð- ur en ég vissi af. Elsta barnið mitt og Konráðs bróður hennar Maríu, hann Daníel Máni, fæddist svo á af- mælisdaginn hennar, þann 16. nóv- ember 1992. Á milli Mána og Maríu var alltaf sérstakur strengur og áttu þau saman margar dýrmætar samverustundir sem eru enn dýr- mætari núna í minningunni. Við er- um almættinu eilíflega þakklát fyrir fermingardaginn hans Mána. Þar var María ásamt Hauki sínum og fjölskyldunni allri á Akureyri og áttum við þar saman yndislegan dag. Í huga allra barna sem kynntust Maríu var hún einstök. Hún var svo einstaklega barngóð og tók öllum börnum eins og þau væru hennar eigin. Hún bar virðingu fyrir börn- um, talaði við þau eins og jafningja og hafði einlægan áhuga á því sem þau voru að gera og hugsa. Þeir eru margir sem eiga núna um sárt að binda. María snerti við öllum sem hana þekktu og gaf svo mikið af sér af því að henni þótti svo vænt um fólkið sitt allt. Þegar við hittum hana í eitt af síðustu skiptunum á FSA, þá kom- um við til hennar saman ég og Heiðar Ingi, maðurinn minn, Kon- ráð barnsfaðir minn og bróðir Mar- íu og Kristín konan hans ásamt börnunum okkar Konráðs; Mána, Sóleyju Ylju og Unni Blæ. Þá reis María upp í rúminu og sagði: „Nei, er ekki stórfjölskyldan mætt!“ Þar áttum við svo saman yndislega stund sem er geymd eins og fjár- sjóður ásamt öllum minningunum sem við eigum um hana Maríu Rósu. Elsku Haukur, Helgi, Ólöf, María Katrín, Jóhannes Þengill, Brigitte, Lotta og Jón, Jóna og Jöri, Himmi og Hanna, Konni og Kitta. Það eru forréttindi að fá að kynnast konum eins og Maríu. Þið eruð öll einstök. Guð geymi ykkur og styrki. Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir. María Rósa Jakobsdóttir Arnarvatnsheiðin full af frelsi og kvaki. Hestur, hálfur peli, og hamingjan sjálf á baki. (J.Þ.B.) Kæri bróðir. Á kveðjustund kem- ur upp í huga mér hve góða æsku við Sigurður Sigurðsson ✝ Sigurður Sig-urðsson fæddist á Hamraendum í Stafholtstungum í Mýrasýslu 5. desem- ber 1931. Hann lést á heimili sínu í Hátúni 12 í Reykjavík 17. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Borgarneskirkju 2. september. áttum saman á Hamraendum í Staf- holtstungum. Mig langar til að kveðja þig með línum úr ljóðabókinni Hugleið- ir: Líf þitt var mynd mótuð skörpum línum með hrolli af frosti og flæðandi hita af eldi. Þinn dagur var skammur, náði naumast að kveldi en skylt var ávallt með rökkrinu og rómi þínum. (J.Þ.B.) Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Ída Sigurðardóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, EINAR JÓNSSON, Sóleyjarima 9, Grafarvogi, áður Karfavogi 17, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðju- daginn 12. september kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort Hjartaverndar. Þorgerður Egilsdóttir, Brynhildur Inga Einarsdóttir, Sigurbjörn Ásgeirsson, Sigurlaug Sandra Einarsdóttir, Skúli K. Skúlason, Anna Guðríður Einarsdóttir, Atli Norðdahl, Egill Örn Einarsson, Helga Fjóla Sæmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ÓLÖF HELGA GUÐNADÓTTIR húsmæðrakennari, Aratúni 38, Garðabæ, lést föstudaginn 8. september. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Guðný Benediktsdóttir, Rósa Kristín Benediktsdóttir, Gunnar Jónatansson, Hildur Benediktsdóttir, Björn Þór Guðmundsson, Hrönn Benediktsdóttir, Hörður Bjarnason, Ingvar, Pétur Smári, Guðni Bergur, Sunna Hrund, Hilmar Benedikt og Brynjar Kári, Viðar Guðnason. Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.