Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 25

Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 25 THOMAS HØILAND AUKTIONER A/S Frímerki · Mynt · Vín · Skartgripir Muslingevej 40 · 8250 Egå · Tlf. +45 8612 9350 www.thauctions.com · e-mail: tr@thauctions.com FRÍMERKI • UMSLÖG • SEÐLAR • MYNT Laugardaginn 16. september n.k. munu sérfróðir menn frá fyrirtækinu verða á Íslandi í leit að efni á næstu uppboð. Fyrirtækið Thomas Höiland Auktioner A/S í Kaupmannahöfn er stærsta fyrirtækið á Norðurlöndum með uppboð á frímerkjum og mynt og heldur stór uppboð á hverju ári auk þess að vera stöðugt með uppboð á Netinu. Leitað er eftir frímerkjum, gömlum umslögum og póstkortum, heilum söfnum og lagerum svo og gömlum seðlum og mynt. Boðið er upp á umboðssölu eða staðgreiðsluviðskipti eftir óskum viðskiptavinarins. Þeir verða til viðtals á Hótel Loftleiðum, laugardaginn 16. sept. kl. 10:00-13:00 og geta líka komið í heimahús eftir kl. 14:00. Nánari upplýsingar veitir Össur Kristinsson í síma 5554991 eða 6984991. Raðauglýsingar 569 1100 BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 Auglýsing um nýtt deiliskipulag og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík. Melavellir á Kjalarnesi. Tillaga að deiliskipulagi fyrir jörðina að Melavöllum á Kjalarnesi sem afmarkast af jörðunum Dalsmynni í norður, Melgerði í austur, Ártúni til suðurs og opnu svæði til vesturs. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði á Aðalskipulagi og eru innan svæðisins í dag þrjú sambyggð alifulglahús og íbúðarhús. Skipulagið gerir ráð fyrir að afmarkaðir séu nýir byggingareitir innan ákveðinnar byggingarlínu og verða bygging- ar að vera innan byggingareita. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ármúli 1. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits sem af- markast af Lágmúla, Háaleitisbraut, Ármúla og Hallarmúla, vegna lóðarinnar að Ármúla 1. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að leyft verði að rífa núverandi byggingu samkv. gildandi skilmálum, fjögurra hæða bílageymsla verði reist á lóðinni og átta til níu hæða bygging þar ofan á, 1/3 hluti níundu hæðar verður inndreginn og myndar þakgarð. Breytingar á gatnamótum Ármúla og Háaleitisbrautar eru einnig sýndar á uppdrætti og skal aðlaga lóðarmörk og frágang að þeim. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipu- lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 11. sept. til og með 23. október 2006. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www. skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags- muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulags- fulltrúa) eigi síðar en 23. október 2006. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 11. september 2006 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Rangt ráðuneyti ÞAU mistök urðu á sunnudag í frétt um hvalveiðar að Ásta Einarsdóttir, lögfræðingur sjávarútvegsráðuneyt- isins, var sögð starfa hjá samgöngu- ráðuneytinu. Beðist er velvirðingar á því. LEIÐRÉTT FRÉTTIR GRAFARVOGSBÚAR, Vestur- bæingar og íbúar í Hlíðahverfi og miðborg glöddust um helgina, reyndar hverjir í sínu lagi. Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða fór fram á Miklatúni. Markmið há- tíðarinnar var að kynna íbúum hverfisins það tómstundarstarf sem þeim býðst í hverfinu. Þá var Hagamelshátíð haldin á laugardag í tilefni af stórafmæli götunnar, en í ár eru 60 ár frá því að fyrsti hluti hennar var byggður og 50 ár frá því að annar áfangi hennar var byggður. Á þessu ári fagnar einnig Melaskóli 60 ára af- mæli og Melabúðin 50 ára afmæli. Síðast en ekki síst var Graf- arvogsdagurinn haldinn í níunda skipti. Dagskráin var fjölbreytt, m.a. var útimessa við Borgarholts- skóla. Hátíðahöld í hverfum borgarinnar Morgunblaðið/Sverrir Útimessa Fjórir prestar messuðu við Borgarholtsskóla í Grafarvogi á Grafarvogsdeginum sem var haldinn í níunda sinn á laugardag. Morgunblaðið/Ómar Skemmtilegt Hagamelur á afmæli og var haldið upp á það um helgina. Morgunblaðið/Sverrir Á hraðferð Á Miklatúni var tómstundastarf í Hlíðum og miðborg kynnt. ♦♦♦ STJÓRN Samtaka sjálfstæðra skóla býður nýtt leikskólaráð og menntaráð velkomið til starfa í Reykjavík. Í ályktun frá samtökunum kemur fram að málefni leik- og grunnskóla eru einna mikilvægustu málaflokkar inn- an stjórnkerfisins og mikið í húfi að fagmennska ráði ríkjum í skólamál- um. „Við í stjórn Samtaka sjálfstæðra skóla væntum þess að stofnun sér- staks leikskólaráðs sé til vitnis um að málefni leikskólans verði í enn meiri brennidepli en hingað til og að brýn úrlausnarefni verði jafnframt leyst í málefnum beggja skólastiga. Lýsum við yfir fullum vilja til þátttöku í öllu því sem verða má starfi leik- og grunnskóla til heilla, hér eftir sem hingað til, og erum reiðubúin til víð- tæks samstarfs um skólamálefnin.“ Sem veganesti inn í starfið fram- undan benda samtökin nýju leik- skólaráði á brýn úrlausnarefni: „Þar sem nánast öll börn á leik- skólaaldri dvelja á leikskóla er með sanni hægt að segja að leikskólinn sé fyrsta skólastigið. Leggja þarf áherslu á að efla þetta skólastig í hví- vetna, bæði faglega og í rekstrarlegu tilliti. Nýjar ákvarðanir um aukið gjaldfrelsi í leikskólum kalla á að rekstrargrundvöllur sjálfstæðu skól- anna verði tryggður í ljósi þess að for- eldraframlög minnka. Hraða verður undirbúningi svo að breytingar gangi áfallalaust fyrir sig – og setji ekki rekstrarforsendur í uppnám.“ Of lágt hlutfall fagmenntaðs starfs- fólks sé almennt á leikskólum borg- arinnar. Þrátt fyrir launahækkanir sé ljóst að erfitt verði að fullmanna skólana eftir sumarafleysingar. Starfsmannaeklu undanfarinna ára þurfi að uppræta. Samtök sjálfstæðra skóla Mörg úr- lausnarefni bíða leik- skólaráðs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.