Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 11.09.2006, Síða 27
Um þessar mundir er Reykjavík eins og Cann- es á góðum degi; frábært úrval kvikmynda í höfuðstaðnum eft- ir algjört unglingamyndabíósumar! Þegar myndin Börn eftir Ragnar Bragason, í samvinnu við snillingana í Vesturporti, var vígð í Háskólabói á laugardagskvöldið var svo sem ekki rauðum dregli fyrir að fara né heldur fáklæddum meyjum. Það dró þó ekki úr eftirvæntingu bíóunnenda eins og rithöfundaparsins Hallgríms Helga- sonar og Oddnýjar Sturludóttur sem voru mætt í sparifötunum og með góða skapið. Myndin er tekin í svart/ hvítu sem reyndist skemmtilegt mót- vægi við litagleðina í fatavali gesta eins og sjónvarpsdrottningarinnar Sirrýjar Arnardóttur en hún var töffari í hárauðum leðurjakka og leiddi stolt eiginmanninn, leikarann Kristján Franklín, sem á einmitt hlutverk í myndinni. Súperleikarinn Ingvar Sigurðsson leit stórvel út enda búinn að gista undanfarið í íbúð Geralds Butler í London, kynþokka- hönksins sem fer með aðalhlutverkið í Bjólfskviðu. Eins og til siðs er mættu leikarar filmunnar; Ólafur Darri Ólafsson, Gísli Örn Garð- arsson og Sigurður Skúlason auk annarra. Áhorfendur voru í hópi leik- ara og aðstandenda myndarinnar, vina og blaðamanna auk stöku snobb- gesta og frumsýningarfiðrilda eins og fröken Flugu. Sjaldan hefur ykkar stúlka verið viðstödd jafn mikil fagn- aðarlæti og þegar sýningu Barna lauk en salurinn reis úr sætum, blístrandi með þrumandi lófaklappi. Því næst þekktust fjölmargir frum- sýningargestir boð í Þjóðleik- húskjallarann hvar haldið var bíó- partí og mönnum gafst tækifæri til að ræða um myndina og skjalla hver annan. Næst var haldið á Cafe Ros- enberg í Lækjargötu og „tjillað“ í góðum félagsskap. Afslappaður stað- ur sem býður oft upp á lifandi tónlist án aðgangseyris. Smart. Það var líka bæði smart og spes hjá Spessa, myndlistarmanninum sem opnaði sýninguna Verkamenn í 101 Galleríi á Hverfisgötunni á föstudaginn. En margmennt var ekki og ekki heldur hjá Höllu Gunnarsdóttur sem opnaði sama dag í Gallery Turpentine í Ing- ólfsstræti. Vafalaust við veðrið að sakast en hvorki mönnum né hund- um var út sigandi þennan dag sökum rigningar og hvassviðris. Hárgreiðsla Flugustelpu fauk til andskotans um leið og hún yfirgaf slottið sitt en þá var bara að grípa til skvísuráða, renna greiðu þétt gegnum hárið og Voila! Orðin glamúrus með wet look. Það fór femínískur sæluhrollur um okkar konu þegar hún mætti ásamt öðrum stór-mennum á forsýningu myndarinnar Þetta er ekkert mál, heimildarmyndar um Jón Pál Sig- marsson í Smárabíói, í leikstýringu Steingríms Óskarssonar. Fluga undi sér vel innan um kraftakarla eins og Hjalta Úrsus Árnason og forseta lýð- veldisins, Ólaf Ragnar Grímsson. Það var fremur fámennur fagn- aður sem haldinn var í tilefni af út- gáfu glæsilegrar bókar Páls Stef- ánssonar sem nefnist PS, en tekið skal fram að góðmennt var þó. Auk góðmennisins Flugu forvitnu, voru mættir í Iðusal í Lækjargötu rit- stjóraþrenningin Haraldur J. Ham- ar, Jón G. Hauksson og Benedikt Jó- hannesson auk Kristjáns B. Jónassonar, þróunarstjóra Eddu. P.s.: Palli var aldrei slíku vant EKKI í stuttbuxum við uppákomuna heldur klæddur þessum líka „trendí“, tein- óttu jakkafötum … flugan Snobbgestir og snillingar Morgunblaðið/Eggert Pála Marie og Egill Einarsson. » Í Smárabíóivar hátíðar- frumsýning á kvikmyndinni Þetta er ekk- ert mál, heim- ildarmynd um Jón Pál Sigmarsson. Hjalti Úrsus Árnason og Dóra Jónsdóttir, móðir Jóns Páls.Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Eggert» Vesturportfrumsýndi kvikmyndina Börn í Háskólabíói. Björn Hlynur Haraldsson og Krummi. Andri Snær Helgason, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Rakel Garðarsdóttir. Páll Stefánsson og Helga Guðný, hönnuður PS Ísland. » Í Iðuhúsi var teiti í tilefni afútkomu PS Ísland, ljósmynda- bókar Páls Stefánssonar. … „trendí“ í teinóttu og tröllvaxnir testesteróntöffarar … Kristján B. Jónasson, útgefandi bókarinnar, Sigríður Guðjónsdóttir og Haraldur Hamar. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2006 27 menning Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20 2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20 5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 15. okt. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15 Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 Sun 8/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Sun 24/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20 FOOTLOOSE Fös 22/9 kl. 20 Lau 23/9 kl. 20 Fim 28/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 ALLIR Í LEIKHÚSIÐ Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgar- leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Áskriftarkort á 5 sýningar á 9.900. Þeir sem gerast áskrifendur fyrir 20.sept. fá gjafakort í Borgarleikhúsið í kaupbæti. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is PINA BAUSCH LOKSINS Á ÍSLANDI! Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn Pinu Bausch verður með 4 sýningar á verkinu Aqua í Borgarleikhúsinu. Sun 17/9 kl. 20 UPPS. Mán 18/9 kl. 20 Þri 19/9 kl. 20 Mið 20/9 kl. 20 Aðeins þessar 4 sýningar. Miðaverð 4.900. MIÐASALA HAFIN. MEIN KAMPF Lau 23/9 frumsýning UPPS. Mið 27/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 MIÐASALA HAFIN. ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir! Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar- son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson. Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney. Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 „EKKI HUGSA. DANSAÐU!“ Miðasala 568 8000 www.id.is ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Kortasala hafin! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Litla hryllingsbúðin – síðustu aukasýningar Fim 14. sept kl. 20 Ný aukasýn. í sölu núna! Fös 15. sept kl. 19 örfá sæti laus Lau 16. sept kl. 19 UPPSELT – síðasta sýning Leikhúsferð með LA til London Expressferdir.is - 5000 kr. afsláttur fyrir kortagesti. www.leikfelag.is 4 600 200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.