Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 36

Morgunblaðið - 11.09.2006, Side 36
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 254. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Suðvestan 8–13 m/s og skúrir, en hægari vindur og víða léttskýjað á austanverðu landinu. Hlýj- ast á Austurlandi. » 8 Heitast Kaldast 17°C 8°C ÞETTA er fyrsta dýrið sem stoppað er upp í heilu lagi hér á Íslandi. Og vissulega eru ekki margir sem eru með uppstoppað sauðnaut í kjall- aranum heima hjá sér,“ segir mál- arameistarinn Páll Jónatan Pálsson á Akranesi en hann fór í veiðiferð til Grænlands á síðasta ári ásamt fjórum öðrum íslenskum veiði- mönnum. „Ég held að ég geti sagt að þetta sé eftirminnilegasta ferðalag sem ég hef farið í. Sauðnautið sem ég skaut er tarfur, líklega um 10 ára gamall, og danski eftirlitsmaðurinn sá til þess að aðeins tarfarnir væru skotnir. Enda er verið að grisja í stofninum á þessu svæði.“ Tarfarnir eru með í það minnsta fjórar kýr í hjörðinni og oft eru kýrnar fleiri. Að sögn Páls Jón- atans fóru kýrnar strax að tarfinum eftir að hann féll. „Þær mynduðu hring í kringum hann og ætluðu greinilega að hjálpa dýrinu með einhverjum hætti. Kýrnar voru ekkert á förum þegar við nálg- uðumst hjörðina til þess að ná í tarfinn. Við þurftum að reka þær með látum í burtu en í þessari hjörð var tarfurinn, kálfur og fjórar kýr.“ | 10 Með sauðnaut í kjallaranum Morgunblaðið/Sigurður Elvar Veiðimaður Páll Jónatan Pálsson við sauðnautstarfinn sem hann veiddi á Grænlandi á síðasta ári. Blönduós | Réttað var í Auðkúlurétt í A-Húnavatnssýslu í gær en réttin er að sögn fróðra manna fjárflesta réttin á landinu. Heimtur voru mjög góðar og telja menn að um 14.000 kindur hafi komið af fjalli og er orðið æði langt síðan jafn margt fé hefur komið saman í Auðkúlu- rétt. Í fyrra töldu menn að um 10.000 fjár hefðu heimst í fyrstu göngum svo hér er um töluverða aukningu að ræða milli ára. Gangnamenn fengu sæmilegt veður til smalamennsku á Auðkúluheiði og töluðu sumir jafnvel um að einn daginn hefði verið of heitt og féð því rekist illa. Sæmilega viðraði á fólk í réttunum en þó gekk á með smá skúrum. „Þetta er einmitt rétta réttar- veðrið,“ varð einum bónda úr Blöndudal að orði – því að skúr- irnar héldu mönnum frá drolli og að verki. Greiðlega gekk að draga féð í dilka enda óhemju margar hendur að verki. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Fleira fé en oft áður Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is MEÐ BROTTHVARFI varnarliðs- ins frá landinu og lokun stjórnstöðv- ar sem fylgdist með óþekktum flug- vélum í lofthelgi Íslands hefur opnast ný leið til að smygla fíkniefn- um til landsins. Ekkert eftirlit er nú haft með því hvort hingað koma litl- ar flugvélar sem geta lent á af- skekktum stöðum og affermt eitur- lyf án þess að nokkur verði þess var. Grundvallarmunur er á þeim rat- sjárkerfum sem varnarliðið notaði, og því kerfi sem Flugmálastjórn nýtir sér við eftirlit með flugumferð. Varnarliðið notaði svokallaða frum- ratsjá, sem sendir út merki sem nemur allar flugvélar sem fara yfir landið. Flugmálastjórn notar annað kerfi, sem treystir á upplýsingar frá flug- vélunum sjálfum til að staðsetja þær, en hægt er að slökkva á bún- aðinum sem sendir gögn til flug- umferðarstjóra og veldur það því að flugvélin sést ekki á ratsjá hér á landi. Þetta staðfestir Þorgeir Pálsson flugmálastjóri. Hann bendir þó á að ekki sé vitað til þess að neinar óþekktar flugvélar hafi verið hér á sveimi áður en varnarliðið hætti eft- irliti sínu. Þetta sé þó þekkt leið til að smygla fíkniefnum, yfirvöld á Flórída í Bandaríkjunum hafi til að mynda komið upp þéttu neti ratsjáa til að reyna að stemma stigu við smygli á fíkniefnum með litlum flug- vélum. Skoðað í samhengi við varnarmál? Grétar Már Sigurðsson, ráðu- neytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að hann hafi vissulega heyrt af þessum nýja möguleika til að smygla eiturlyfjum hingað til lands. „Það hefur verið talað um þetta sem möguleika, en þetta hefur ekki verið skoðað eða rætt sérstaklega. En þegar heildarþarfir fyrir varnir verða skoðaðar kann þetta að vera eitt af þeim mörgu atriðum sem þarf að skoða,“ segir Grétar. Sérfræðingur sem rætt er við í Morgunblaðinu í dag bendir á að ekki væri nægjanlegt að láta flug- stjórnarmiðstöð Flugmálastjórnar fylgjast með óþekktum flugvélum. Það mundi lítið gagn gera nema hægt væri að bregðast við á ein- hvern hátt. Nú þegar orrustuþotur séu ekki lengur staðsettar hér á landi þyrfti að beita öðrum aðferð- um, svo sem að hafa hraðskreiða flugvél til taks til að senda tollverði til móts við óþekktar flugvélar sem grunur leiki á að beri smyglvarning. Ný leið til að smygla fíkni- efnum opin Litlar flugvélar geta smyglað fíkniefn- um til landsins án þess að sjást á ratsjá  Smyglflugvélar | Miðopna »Ljóst er af umfangi smygl-mála hér á landi undan- farið að kostnaður við að fá flugvél til að flytja fíkniefni hingað til lands er „vasapen- ingur“ fyrir þá sem standa í slíku smygli, segir sérfræð- ingur. »Ekki er ólöglegt aðslökkva á ratsjársvara, sem gefur flugmálayfir- völdum upplýsingar um stað- setningu flugvélar. Þessi tæki eru þó nær undantekning- arlaust höfð í gangi. »Flugmálastjórn fær gögnúr frumratsjá, sem nota má til að finna óþekktar flug- vélar, en vinnur ekki úr þeim, enda var það á hendi varnar- liðsins þar til stjórnstöð þess hætti starfsemi í lok maí sl. Í HNOTSKURN ÁRNI Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands og Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segjast hafa efasemdir um að markaður sé fyrir hvalkjöt hér á landi eða annars staðar. Þá sé ljóst að hvalveiðarnar hafi áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi og segir Erna að á meðan ekki sé markaður fyrir kjötið sé erfitt að sjá tilganginn í því að rugga bátnum með því að taka upp atvinnuveiðar á ný. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær telur sjávarútvegs- ráðherra að lögformlegar heimildir séu til staðar fyrir hvalveiðum í at- vinnuskyni þótt ekki hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um að hefja veið- arnar. Árni segist vera ósammála því að lagalegur grundvöllur sé til staðar og að aðrar þjóðir muni taka undir þá túlkun okkar. Hörður Sig- urbjarnarson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Norð- ursiglingar, segir að engar for- sendur séu fyrir því að leyfa veiðar á nýjan leik og að hart verði brugðist við af hálfu þeirra sem vinni við hvalaskoðun ef atvinnuveiðar verði teknar upp við Ísland. | 6 Segja ekki markað fyr- ir hvalkjöt Morgunblaðið/Ómar LISTAKONAN Yoko Ono mun 9. október nk. taka fyrstu skóflustungu að friðarsúlu sem reisa á í Viðey. Dagsetningin er ekki tilviljun því fyrrverandi eiginmaður Ono, Bítill- inn John Lennon, var fæddur þenn- an dag árið 1940. Þá á sonur þeirra, Sean, einnig afmæli þennan dag. Yoko Ono mun veita sérstök frið- arverðlaun, kennd við hana og Lennon, í Höfða sama dag. | 13 Fyrsta skóflustunga að friðarsúlu Morgunblaðið/Ómar Þorgeir Pálsson Grétar Már Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.