Morgunblaðið - 20.09.2006, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
YOKO Ono verður gestur Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík sem hefst 8. október
næstkomandi.
Á hátíðinni mun Yoko kynna
myndina Bandaríkin gegn
John Lennon. Myndin, sem
gerð var í samráði við Yoko,
segir frá tilraunum yfirvalda í
Bandaríkjunum til að hindra
Lennon í að breiða út boðskap
sinn og hugmyndir um frið og önnur mál. Eru í
myndini rakin fleiri dæmi um þöggunaraðgerðir
stjórnvalda þar í landi. Einnig mun Yoko kynna
stuttmyndina Onochord, heimildarmynd um
gagnvirkt listaverk listakonunnar.
Kvikmyndahátíð
Yoko gestur
Kvikmyndahátíðar
Yoko Ono
ÍSLENSKIR rokktónar munu hljóma í Kaup-
mannahöfn á föstudag en þá halda hljómsveitirnar
Singapore Sling og Stafrænn Hákon tónleika í Lip-
pen í Kristjaníu kl. 21. Singapore Sling mun einnig
leika í verslun 12 Tóna á Fiolstræde 7 kl. 18 sama
dag. Singapore Sling hefur verið mikið á ferðinni í
sumar og lék m.a. í Bretlandi og Þýskalandi.
Tónleikar
Singapore Sling í
Kaupmannahöfn
Singapore Sling
UNDIRRITAÐUR var í gær
samningur um stuðning Glitnis
við Óperustúdíó Íslensku óp-
erunnar.
Óperan stendur nú fyrir Óp-
erustúdíói fjórða árið í röð, en
þar fá nemendur tónlistarskóla
á höfuðborgarsvæðinu tæki-
færi til að taka þátt í óperusýn-
ingu sem að öllu leyti er unnin
eins og aðrar sýningar Ís-
lensku óperunnar. Glitnir er bakhjarl Óp-
erustúdíóssins þriðja árið í röð.
Í vetur mun Óperustúdióið sýna tvær stuttar
óperur eftir Puccini: Gianni Schicchi og Suor
Angelica.
Ópera
Glitnir styrkir
Óperustúdíóið
Giacomo Puccini
HLJÓÐFÆRALEIKARAR úr þrjá-
tíu fremstu sinfóníuhljómsveitum
Bretlands hyggjast halda hundrað
tónleika á heimili eða vinnustað
fólks sem af einhverjum sökum get-
ur ekki sótt tónleika. Framtakið
nefnist „Tónlistarfólk til taks“ og
gerir fólki kleift að tilnefna vin,
ættingja eða starfsfélaga sem gæti í
framhaldinu átt von á heimsókn.
Á vef BBC er haft eftir sellist-
anum Julian Lloyd Webber, að
fjöldi fólks elski tónlist en komist
ekki á tónleika vegna heilsufars-
vandamála, búsetuskilyrða, eða
vinnutilhögunar. „Þetta er tæki-
færi fyrir fólk að upplifa æsing og
innileika lifandi tónlistarflutnings.“
Tónlistar-
fólk til taks
„ÞAÐ hefði vissulega verið hægur
leikur að ná fram markmiðum nýs
skipurits án þess að reka manninn
úr starfi eftir fimmtán frábær ár.
Tónlistarfólki er misboðið enda
nýtur Hilmar Örn mikils stuðnings
tónlistarmanna í landinu. Hann er
vinsæll í sveitinni og hefur aldrei
verið áminntur formlega eða sak-
aður um að hafa ekki staðið sig
nógu vel í starfi. Uppsögnin hefur
vakið reiði í þessum litla heimi tón-
listarmanna á Íslandi og er að okk-
ar mati algjörlega óskiljanleg eftir
þennan flotta feril,“ segir Guð-
mundur Sigurðsson, formaður org-
anistadeildar FÍH.
Lögmaður FÍH, Brynjólfur Ey-
vindsson, lítur svo á að uppsögnin
standist ekki lög og hefur hann sent
stjórn Skálholts bréf þar sem hann
lýsir þeirri skoðun sinni.
„Sex opinberir aðilar komu að
ráðningu Hilmars Arnar á sínum
tíma og því getur einn þeirra ekki
tekið einhliða
ákvörðun um
uppsögn heldur
þyrftu þeir allir
að skrifa undir
slíkt plagg.
Þar sem að
skipulagsbreyt-
ingar voru
nefndar sem
ástæða fyrir upp-
sögninni fórum
við þess á leit á fundi með þessum
aðilum að gerð yrði ný starfslýsing
fyrir núverandi organista, en það
virtist enginn vera tilbúinn til að
ganga þá leið. Hilmar Örn er einn
virtasti og farsælasti organisti
landsins. Það er því með ólíkindum
og hreint ótrúlegt að menn sjái
ástæðu til að grípa til svona grófra
aðgerða. Maður veltir því fyrir sér
hvort kirkjunnar mönnum finnist
hann vera of alþýðlegur fyrir helgi-
dóminn,“ segir Guðmundur.
Guðmundur
Sigurðsson
Uppsögnin
stenst ekki lög
„ÞAÐ er vissulega óhætt að segja að
uppsögnin hafi komið mér á óvart og
verið mér mikið áfall,“ segir Hilmar
Örn Agnarsson, organisti og kór-
stjóri í Skálholti undanfarin fimmtán
ár, en honum var fyrirvaralaust sagt
upp störfum vegna skipulagsbreyt-
inga, eins og það var orðað í upp-
sagnabréfi, frá og með 1. október.
„Undrunin er mest yfir því að vita
ekki hvað er í gangi og sú óvissa er
vond fyrir alla aðila. Ég hef aldrei
fengið áminningu í starfi og okkur
hér hefur aldrei verið tjáð hvaða
breytingar séu í vændum. Þetta er
fyrst og fremst niðurlæging fyrir alla
kórana mína og ég er sár þeirra
vegna. Þetta er líka niðurlæging fyrir
það starf, sem ég hef verið að vinna í
Skálholti, fyrir konuna mína sem er
með húsið endalaust opið og fyrir þá,
sem hafa verið að koma í Skálholt og
gefa vinnuna sína. Svona haga menn
sér ekki í kristnu samfélagi. Gangi
þetta eftir kem ég til með að hætta
um áramótin eftir þriggja mánaða
uppsagnarfrest, en ég er auðvitað
harðákveðinn í að hafa glæsilega jóla-
tónleika,“ segir Hilmar Örn.
Flókinn ráðningarsamningur
Sex opinberir aðilar komu að ráðn-
ingu Hilmars Arnar fyrir fimmtán
árum. Auk Skálholtsstaðar var það
Biskupstungnahreppur og fjórar
kirkjusóknir sem þar eru: Skálholts-
sókn, Torfastaðasókn, Bræðratungu-
sókn og Haukadalssókn.
Síðan hefur Hilmar starfað eftir
einum ráðningarsamningi, í 80%
vinnu hjá Kirkjuráði og í 20% starfi
hjá hrepp og sóknunum fjórum innan
prestakallsins. Á sameiginlegum
fundi kirkjuráðs Þjóðkirkjunnar,
skólaráðs Skálholtsskóla og þeirra,
sem störfuðu á staðnum í janúar sl.
var ákveðið að gera nokkrar skipu-
lagsbreytingar í rekstri staðarins, að
sögn séra Sigurðar Sigurðarsonar,
vígslubiskups í Skálholti og stjórn-
arformanns Skálholtsstaðar. Með
honum í stjórn sitja kirkjuráðsmenn-
irnir Halldór Gunnarsson og Jóhann
Björnsson. Ákveðið var að reka stað
og skóla sem eina rekstrareiningu og
hefur Hólmfríður Ingólfsdóttir verið
ráðin framkvæmdastjóri, en henni er
einkum ætlað að létta daglegum
rekstri af bæði vígslubiskupi og rekt-
or. Samhliða endurskoðun á
áherslum í skólastarfinu var ákveðið
að endurskoða starf organista og tón-
listarstarf á staðnum yfirleitt, að sögn
Sigurðar.
„Stjórnin ákvað að segja upp samn-
ingnum við sóknirnar og sveitarfélag-
ið og ráða organista í fullt starf á for-
sendum staðarins með mikið breyttu
starfssviði. Um leið og þessum samn-
ingi var sagt upp var ákveðið að segja
organistanum upp af hálfu staðarins.
Skálholtsstaður getur hinsvegar ekki
sagt upp samningum sóknanna og
sveitarfélagsins við núverandi org-
anista. Vegna þess hve hið nýja starf
verður ólíkt hinu fyrra þótti rétt að
gefa fleirum kost á að spreyta sig á
því og verður það auglýst síðar. Nú-
verandi organisti getur auðvitað sótt
um þetta nýja starf enda leggur
stjórnin áherslu á að haga þessum
starfslokum ekki á neinn þann hátt
sem skaðað geti möguleika viðkom-
andi einstaklings í framtíðinni,“ segir
vígslubiskup og bætir við að fljótlega
verði haldinn fundur með organist-
anum til að semja um tilhögun starfs-
loka þar sem að ýmsu sé að huga. Að
sögn Sigurðar liggur nákvæm starfs-
lýsing hins nýja starfs ekki fyrir.
„Helstu breytingarnar munu hins-
vegar felast í stóraukinni þjónustu
við skólann og kirkjutónlistarsvið
hans. Organista er ætlað að móta
aukna þjónustu við sífellt fjölgandi
ferðamenn og koma á markvissara
samtarfi við Sumartónleika.“
Undrun og áfall
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hilmar Örn
Agnarsson
Sigurður
Sigurðarson
„ÆSKILEGAST væri að málið væri í öðr-
um farvegi en reyndin er orðin og að hægt
hefði verið að leysa málið með öðrum hætti
en að grípa til uppsagnar. Ég er að sjálf-
sögðu ekki sáttur við þessa framvindu, en
það er alfarið í höndum stjórnar Skálholts
að ákveða hvaða leiðir skal fara að settum
markmiðum,“ segir Hörður Áskelsson,
söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar.
Hörður segir málið fyrst og fremst snú-
ast um breytingar á skipuriti og eflingu
samstarfs aðila í Skálholti, eins og fram
kemur í skýrslu, sem hann kynnti biskupi
og kirkjuráði nýlega.
Um stöðu organistans segir Hörður m.a.
í skýrslu sinni:
„Þegar tónlistarstarfsemi Skálholtsstaðar
er skoðuð er ekki hægt að horfa fram hjá
stöðu organistans, sem við Skálholts-
dómkirkju hlýtur að
skipta miklu máli. Með
sérstökum fjárstuðningi
Þjóðkirkjunnar til þessa
starfs hefur yfirstjórn
kirkjunnar undirstrikað
mikilvægi þess. Rökin
fyrir því að greiða með
þessu eina organistastarfi
við íslenska kirkju hljóta
að vera vilji til að kirkju-
tónlistarstarfið í Skálholti sé með alveg
sérstökum hætti. Ekki verður séð að þeir
fjármunir, sem kirkjan leggur sérstaklega
til þessa starfsþáttaar skili sér í blómlegra
starfi í Skálholtskirkju en almennt gerist.
Eðlilegt væri að sá sérmenntaði starfs-
krafur, sem gegnir stöðu organista Skál-
holtskirkju hverju sinni, væri listrænn
stjórnandi þess tónlistarstarfs sem fram fer
á staðnum og kæmi þar með að mótun
Sumartónleikanna. Kirkjutónlistarsvið
Skálholtsskóla ætti að sjálfsögðu að njóta
starfskrafta organistans, sem ábyrgð-
armaður orgela kirkjunnar á hann að vera
samræmingaraðili um alla notkun þeirra.
Organistinn ætti að skipuleggja reglubund-
ið orgeltónleikahald, sem ætti að vera eðli-
legur þáttur í þjónustu við ferðamenn.
Hann á að sjá til þess að orgelið hljómi á
uppgefnum tímum daglega yfir háannatíma
ferðamennskunnar. Ekki ætti að vera erfitt
að ráða lengra komna nemendur til að
sinna slíkri þjónustu í tengslum við þjálf-
un.“
Hörður segist vissulega skynja það að
mönnum finnist einhver ólykt af málinu
sem sé í sjálfu sér ekkert óeðlilegt því aldr-
ei sé gamanmál fyrir starfsmenn að fá upp-
sagnarbréf. „Mínar athugasemdir snúast
um að organistinn á staðnum sé ekki nógu
sýnilegur og ég vil efla hans aðkomu að því
sem er að gerast í Skálholti þar sem þetta
er eina organistastaða landsins sem Þjóð-
kirkjan borgar en ekki söfnuðirnir. Ég
legg til að organistinn sé virkari í tónlist-
arstarfseminni, komi meira inn sem þátt-
takandi í skólastarfið, tengist Sumartón-
leikunum og að orgelið sem hljóðfæri verði
sýnilegra í tónlistardagskrá staðarins til
eflingar kirkjutónlistinni.“
Að sögn Harðar leikur enginn vafi á því
að Hilmar Örn hafi unnið ötult starf fyrir
héraðið. „Kirkjan hefur á hinn bóginn sam-
þykkt ákveðna tónlistarstefnu og ber okk-
ur, sem störfum fyrir kirkjuna, að fram-
fylgja henni. Það eru alveg hreinar línur.“
„Köllum eftir sýnilegri og virkari organista“
Hörður Áskelsson
„HILMAR Örn hefur unnið al-
gjörlega frábært starf með barna-
og unglingakórum hér í sveitinni
og það má segja að við foreldrar
barnanna séum í algjöru sjokki yfir
þessum nýjustu fréttum af kórstjór-
anum. Okkur finnst það skipta
börnin höfuðmáli að þau séu í kóra-
starfinu því af því hafa þau bæði
gagn og gaman,“ segir Guðrún
Hárlaugsdóttir, íbúi í Reykholti í
Biskupstungum og móðir barns,
sem er í kór hjá Hilmari Erni.
„Þetta er mikil vanvirðing við
sveitungana auk þess sem allar
fjórar sveitakirkjurnar verða org-
anistalausar eftir uppsögnina því
ekki lifir mað-
urinn af 20%
launum eftir að
hafa misst 80% af
laununum. Við
íbúarnir erum
ómögulegir yfir
þessari þróun
mála. Ótrúlegt er
að stjórn Skál-
holts, sem skipuð
er að meirihluta
mönnum sem ekki búa hér, skuli
geta tekið svona einhliða ákvörðun.
Þetta sýnir ekkert annað en fyr-
irlitningu í skjóli einhverra skipu-
lagsbreytinga.“
Vanvirðing
við sveitungana
Guðrún
Hárlaugsdóttir