Morgunblaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 39
menning
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
Sigurður Bessason, formaður Eflingar, setur ráðstefnuna
Framleiðsluhættir og stjórnmál
Ingólfur Gíslason, félagsfræðingur hjá Jafnréttisstofu
Barnaskólar í ljósi þjóðfélagsuppruna. Ísland á fyrri hluta 20. aldar
Ólöf Garðarsdóttir, sagnfræðingur hjá Hagstofu Íslands
Verkalýðshreyfingin og staða kvenna og karla á vinnumarkaði
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, dósent við félagsvísindadeild H.Í.
Baráttan fyrir mannsæmandi húsnæði
Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur hjá ReykjavíkurAkademíunni
Tryggvi sigurvegari? – Verkalýðsbókmenntir á 20. öld
Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur hjá ReykjavíkurAkademíunni
Velferðarkerfið: Ávöxtur af baráttu verkalýðshreyfingarinnar?
Guðmundur Jónsson, prófessor við hugvísindadeild H.Í.
Launþegahreyfing á nýrri öld
Stefán Ólafsson, prófessor við félagsvísindadeild H.Í.
Hvar stöndum við – hvert stefnum við?
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, 1. varaformaður Eflingar, stjórnar pallborði með
þátttakendunum Ásmundi Stefánssyni, ríkissáttasemjara, Eddu Rós Karlsdóttur,
forstöðumanni greiningardeildar Landsbanka Íslands, Atla Gíslasyni, lögmanni
Eflingar-stéttarfélags og Sigurði Bessasyni, formanni Eflingar-stéttarfélags
Dagskrá:
laugardaginn 23. september 2006 í Iðnó kl. 10.00–17.00. Ráðstefnustjóri er Guðmundur Þ Jónsson
Formaður ReykjavíkurAkademíunnar, Clarence E. Glad, slítur ráðstefnunni
Lúðrasveit verkalýðsins leikur við upphaf ráðstefnunnar frá 09.30-10.00
Myndefni úr óútkominni sögu Dagsbrúnar, eftir Þorleif Friðriksson, sagnfræðing, verður til sýnis á ráðstefnunni
Dagsbrún 100 ára Bókasafn Dagsbrúnar 50 ára
Efling-stéttarfélag og ReykjavíkurAkademían bjóða til ráðstefnu
Samfélagsleg áhrif
verkalýðshreyfingarinnar á 20. öld
- Framtíðarsýn á 21. öldinni
E
I
N
N
,
T
V
E
I
R
O
G
Þ
R
Í
R
4
1
.2
4
6
HAUSTVINDUR þessa tónleika-
dags við Eyjafjörð er fyrir mér í
einhverju ólýsanlegu og nánu
samhengi við blæ og áferð fal-
legra tónleika sem hér eru til
umfjöllunar. Angurvær stemning,
bæði ljúfsár, en um leið full af
þakklæti fyrir gjafir sumarsins
og ávaxta þess kristölluðust í óði
sellósins og píanósins.
Fyrstu sellótónar Gunnars í
prelúdíuþætti Couperin undir-
strikuðu í mýkt og litríki sínu
tóna haustsins. Annars var það
franski sellóleikarinn Paul Baze-
laire sem setti saman þessa fimm
þátta svítu úr stökum verkum
tónskáldsins. Þessi samröðun
skapar verkinu í heild einkar
skemmtilegan búning sem býr
bæði yfir fjölbreytni og sam-
hæfni lagbrota og stefja.
Gunnar og Selma vöktu verkið
svo sannarlega til lífsins og með
fremur hægu hraðavali í Sikileyj-
ardansþættinum naut andstæða
hornakalla og gáska í næsta
þætti, „La Tromba“, sín til fulln-
ustu. Eins og fram kom í vand-
aðri munnlegri kynningu Gunn-
ars, þá samdi Schubert næsta
verk, „Sónata arpeggione, ekki
fyrir selló og píanó heldur fyrir
hljóðfærið arpeggione, sem fund-
ið var upp í Vín árið 1823 og er
nú orðið safngripur. Hljóðfærið
er stundum nefnt gítarselló og er
með sex strengjum. Allavega eig-
um við þessu hljóðfæri og Schu-
bert að þakka þessa gullfallegu
sónötu. Verkið einkennist af
miklum fjölda litríkra söngstefja
og eru þessar fallegu línur oft
lausar úr viðjum hins klassíska
forms. Þar sem lega arpeggione
var hærri en sellósins þá þarf oft
að leika á hásviði þess sem mér
fannst að skapaði verkinu sér-
stakan blæ sem Gunnar náði að
kalla fram á heillandi hátt. Verk-
ið er samslungið af alvöru og
gáska, og mikið eyrnayndi.
Að hléi loknu kynnti Gunnar
útsetningar Hafliða Hallgríms-
sonar á íslenskum þjóðlögum frá
árinu 1973 og taldi hann þessi
verk vera fyrstu gæfuspor Haf-
liða á gifturíkri göngu hans, sem
eins okkar besta tónskálds. Síðan
léku þau Selma: „Ljósið kemur
langt og mjótt“, „Kvölda tekur“
og „Kindur jarma í kofunum“ á
svo sannfærandi hátt að lofsyrðin
á undan urðu hverju orði sann-
ari. Í lokin kom svo tónverkið
„Fantasíustykkin op. 73“ eftir
Robert Schumann, þar má segja
að hið rómantíska hugmyndaflug
nái að flæða frá byrjun til loka.
Tónverkið er einnig til í gerð fyr-
ir klarínettu og píanó, en selló-
gerðin hrífur mig mest. Verkið
ber höfuðeinkenni Schumanns og
er í senn innblásið og hug-
myndaríkt.
Mér fannst að Selma og Gunn-
ar næðu að beina þessu mikla
flæði í réttan farveg og hrifu
áheyrendur sannarlega á þeirri
vegferð. „Svanur Saint Saëns“
náði svo góðu lokaflugi sem
aukalag ágætra tónleika.
Angurvær stemning
TÓNLEIKAR
Laugarborg
Gunnar Kvaran selló, og Selma Guð-
mundsdóttir, píanó. Á efnisskrá: Svíta í
fimm þáttum eftir Couperin, Sónata ar-
peggione eftir Schubert, þrjú ísl. þjóð-
lög í útsetningu Hafliða Hallgrímssonar
og Fantasiestücke op. 73 eftir Schu-
mann. Sunnudaginn 10. september kl.
15.
Selló- og píanótónleikar
Jón Hlöðver Áskelsson
GAGNAUGAÐ blæs til tónlist-
arveislu í Tónlistarþróunarmiðstöð-
inni næstkomandi fimmtudag. Yf-
irskrift tónleikanna er Sköllfest og
er markmiðið að þetta verði árviss
viðburður á haustin enda undirtitill
viðburðarins Sumarið er búið.
Fjöldi hljómsveita sér um að
skemmta viðstöddum og þá má
fyrsta nefna bandarísku sveitina
Shai Hulud. Þeir spila í fyrsta sinn
hér á landi og skarta af því tilefni
nýjum söngvara og eru með nýtt
efni í pokahorninu. Sveitin gerði á
dögunum samning við útgáfufyr-
irtækið Metal Blade records.
Auk Shai Hulud koma fram ís-
lensku sveitirnar Changer, Severed
Crotch, Morðingjarnir, Celestine,
Benny Crespo’s Gang og I Adapt.
Tónleikarnir hefjast klukkan 18
og að sögn tónleikahaldara lýkur
þeim á skikkanlegum tíma svo tón-
leikagestir nái síðasta strætó heim.
Tónleikarnir fara sem fyrr segir
fram í húsi Tónlistarþróun-
armiðstöðvarinnar, Hólmaslóð 2.
Ekkert aldurstakmark er á tón-
leikana en miðaverð er 1.000 krón-
ur.
Tónlist | Sköllfest í Tónlistarþróun-
armiðstöðinni við Hólmaslóð
Stemning Það er jafnan mikil stemning á tónleikum með Severed Crotch.
Bandarískir Hljómsveitin Shai Hulud kemur fram í kvöld.
Sumarið er búið