Morgunblaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Kennarar
Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum
könnunarprófum í 4. og 7. bekk 2006. Skilyrði
eru að viðkomandi hafi kennt þessum árgöng-
um stærðfræði eða íslensku.
Nánari upplýsingar eru veittar á Námsmats-
stofnun í síma 550 2400 milli kl. 13:00 og 16:00
alla virka daga til 5. október nk.
Hægt er að sækja um á netinu, slóðin er
www.namsmat.is.
Atvinna í boði
Leitum að sölumanni í fullt starf við að selja
auglýsingar. Föst laun í boði ásamt árangurs-
tengingu. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl
og á box@mbl.is merktar „Sölumaður-19050“
fyrir 27. september.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Haustferð reykvískra
sjálfstæðismanna
Laugardaginn 23. september efna sjálfstæðis-
félögin í Reykjavík til árlegrar haustferðar.
Að þessu sinni verður farið að Hellisheiðar-
virkjun og svæðið skoðað, síðan farið að bor-
holunni við Hverahlíð, grillað við Úlfljótsvatn,
ekið að Nesjavöllum þar sem kynning verður
á virkjuninni og síðan í bæinn.
Brottför frá Valhöll Háaleitis-
braut 1, kl. 10.00 og komið til
baka kl. 17.30.
Fararstjóri í ferðinni verður
Guðlaugur Þór Þórðarson
alþingismaður.
Allir hjartanlega velkomnir. Verð
kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500
fyrir börn.
Vinsamlega skráið þátttöku í síma 515 1700
fyrir kl. 17.00 föstudaginn 22. september.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.
Aðalfundur
Vesturgötu 3 ehf.
Aðalfundur Vesturgötu 3 ehf. verður haldinn
laugardaginn 30. september 2006, kl. 14.00
í Iðuhúsinu við Lækjargötu.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Önnur mál.
Félagskonur eru hvattar til að mæta á fundinn.
Stjórnin.
Bátar/Skip
Fiskiskip til sölu
Sveinbjörn Jakobsson SH 104, sskrnr. 260,
er 103 brúttórúmlesta eikarbátur smíðaður í
Esbjerg í Danmörku 1964. Skipið er selt með
veiðileyfi en án aflahlutdeilda.
Gunnar I. Hafsteinsson hdl., Magnús Helgi
Árnason hdl., Hafnarhvoli við Tryggvagötu,
Reykjavík, sími 552 3340.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingar á
deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar tillögur að breytingum á deiliskipulags-
áætlunum í Reykjavík.
Fossvogur, einbýli.
Tillaga að breytingu á skilmálum í deiliskipulagi
fyrir einbýli í Fossvogi. Breytingin felst í því að
nýtt ákvæði um kjallara bætist við skilmálana.
Önnur ákvæði skilmálanna eru óbreytt.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Háaleitisbraut 68.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr.
68 við Háaleitisbraut. Breytingin felst í því m.a.
að fyrsta hæð hússins verði stækkuð um 498
m², bílastæðum er fjölgað um sex, gangstéttar til
austurs og norðurs verði færðar utar og breidd
bílastæða austan byggingar stytt.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Lindargata 21, 23 og 25.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit
1.152.2 Skuggahverfi vegna Lindargötu 21, 23 og
25. Breytingin felst í því að felld er úr gildi hverfis-
vernd, verndun götumyndar, á lóðunum númer
21, 23 og 25 við Lindargötu. Að öðru leyti gilda
áfram áður samþykktir skilmálar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Laufengi 136 – 182.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Engjahverfi
vegna lóðanna að Laufengi 136 - 182.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að raðhúsalóðirnar
þrjár eru minnkaðar og gerð ný lóð fyrir bílskúra,
gerður er byggingareitur þar sem heimilt verður
að byggja 24 bílskúra með flötu eða einhalla
þaki, skilyrt er að bílskúrar séu byggðir samtímis
og frágangur á umhverfi unninn samhliða fram-
kvæmd. Gangstígur meðfram Víkurvegi færist
nær veginum
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Austurberg 1 og 1a, íþróttasvæði Leiknis
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Breiðholt
vegna íþróttasvæðis Leiknis við Austurberg 1 og
1a.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að sett er áhorfenda-
stæði með bekkjum meðfram grasvelli á aust-
urmörkum lóðar, byggingareitur fyrir búnings- og
aðstöðuhús er breytt og hann stækkaður. Gert
er ráð fyrir húsi á einni hæð á vesturhluta bygg-
ingareits og tveggja hæða byggingu á austari
hluta byggingareits. Einnig verður sett upp fimm
metra há netrimlagirðing meðfram Norðurfelli í
stað tveggja metra girðingar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipu-
lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,
frá 20. sept. til og með 1. nóvember 2006. Einnig
má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfull-
trúa) eigi síðar en 1. nóvember 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 20. september 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Félagslíf
Myndakvöld í kvöld kl. 20 í
Mörkinni 6
Pétur Þorleifsson sýnir myndir
úr safni sínu. Ferðafélagsferð
frá 1982 í Lónsöræfi og sólskins-
leiðar á Vatnajökul. Aðgangur
kr. 500, kaffi og meðlæti, allir
velkomnir.
Fjallahringur Þingvalla –
gönguferðir næstu sunnudaga á
Þingvöllum.
Haustlitaferð í Þórsmörk -
helgarferð 29. september.
Hengill úr Dyradal, 7. október.
Sjá nánar á heimasíðu Ferðafé-
lagisns, www.fi.is
I.O.O.F. 9 18709208½
I.O.O.F. 7 1879207½
I.O.O.F. 7 1879207½
I.O.O.F. 18 1879208
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Afgreiðslustarf
í Laugarnesapóteki
Í boði eru góð kjör og vinalegt starfsumhverfi.
Þjónustulund, lipurð í samskiptum og bílpróf
skilyrði. Nánari upplýsingar gefur Hanna María
í síma 893 3141/hanna@apotek.is
Laugarnesapótek ehf.
Kirkjuteig 21
105 Reykjavík
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Raðauglýsingar
augl@mbl.is
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Íslensk-pólska vináttufélagið
og Landsvirkjun hafa und-
irritað samstarfssamning sem
hefur það að markmiði að
kynna pólska menningu á Ís-
landi og stuðla að skilningi á
fjölmenningu í nútíma-
samfélagi á Íslandi.
Með samningnum milli vin-
áttufélagsins og Landsvirkj-
unar leggur Landsvirkjun til
fjármuni sem gera mögulegt
að fá til landsins pólska lát-
bragðsleikarann Ireneusz
Krosny, sem er heimsfrægur
fyrir list sína. Hann heldur
sýningar dagana 29. og 30.
september og 1. október nk. í
Þjóðleikhúsinu en það er hluti
af pólskri menningarhátíð sem
haldin verður dagana 28. sept-
ember til 1. október nú í haust,
segir í fréttatilkynningu.
Þar kemur jafnframt fram
að Landsvirkjun hefur á und-
anförnum misserum lagt
áherslu á jákvætt framlag til
fjölmenningar á Íslandi. Pól-
verjar eru langstærsti hópur
innflytjenda hér á landi og er
hátíðinni ætlað að kynna menn-
ingarlegan bakgrunn þessa
hóps. Eitt af markmiðum há-
tíðarinnar er að ná til sem
flestra og koma fram á henni
heimsfrægir pólskir listamenn.
Helstu hvatamenn að hátíð-
inni eru Anna Wojtyska og
Marta Macuga.
Þeim sem vilja kynna sér
dagskrá og fyrirkomulag
menningarhátíðarinnar er
bent á heimasíðuna
www.polska.is þar sem allar
upplýsingar koma fram.
Pólsk menning kynnt á Íslandi
Þorsteinn, Anna og Marta við undirritun samningsins.
GUNNAR Karlsson, prófess-
or í sagnfræði, flytur hádeg-
isfyrirlestur sem hann nefnir:
Að skrifa konur inn í þjóð-
arsögu. Fyrirlesturinn er á
vegum Rannsóknastofu í
kvenna- og kynjafræðum við
Háskóla Íslands og fer fram á
morgun, 21. september kl.
12.15–13.15, í Norræna hús-
inu.
„Yfirlitsrit um sögu hafa
jafnan speglað valdastöðu
karla í samfélögum fortíðar
og því fjallað margfalt meira
um karlmenn en konur. Þetta
á jafnt við um svokallaða
mannkynssögu sem Íslands-
sögu og yfirlit fyrir almenn-
ing sem námsbækur. Á tímum
jafnréttiskröfu er þetta alvar-
legt vandamál fyrir fræði-
greinina sagnfræði og náms-
greinina sögu og ætlar
fyrirlesari að ræða um hugs-
anlegar leiðir til að bæta úr
því,“ segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur
um konur í
þjóðarsögu
FRÉTTIR