Morgunblaðið - 09.10.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 274 . TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÓÐAMANSGARÐUR
EYJÓLFUR EYJÓLFSSON TEKUR ÞÁTT Í
FYRSTU FÆREYSKU ÓPERUNNI >> 34
SPARNAÐUR
HVERNIG ER BEST AÐ
EIGNAST SÓFASETT?
FJÁRMÁL >> 21
PAKISTANSKA þjóðin sameinaðist í gær á
minningarstundum um þá 73.000 landa sína
sem fórust þegar jarðskjálfti sem var 7,6 á
Ricthers-kvarðanum reið yfir Pakistan og hluta
Indlands og Afganistans 8. október fyrir ári.
Víða gall við í sírenum í borgum og bæjum á
mínútunni 8.52 á morgni sunnudags, þegar
ósköpin dundu yfir.
Í kjölfar skjálftans var talið að þrjár og hálf
milljón manna hefðu misst heimili sín af hans
völdum og segja talsmenn Rauða krossins
400.000 þeirra enn í sömu sporum, nú þegar
kaldur veturinn nálgast óðfluga.
Hjálparsamtök segja, að allt að 1,8 milljónir
manna gætu átt á hættu að veikjast í kuldunum
framundan, enda hefur heilsugæsla víða farið
úr skorðum sem og samgöngur.
Musharraf fer fram á viðbótarframlag
Hjálparsamtök segja, að enduruppbyggingin
geti tekið allt að átta ár. Pervez Musharraf, for-
seti Pakistans, er bjartsýnni en hann hefur
sagt, að hann vonist til að 80 prósent uppbygg-
ingarinnar í landinu verði lokið innan þriggja
ára. Jafnframt lýsti hann því yfir í gær, að þjóð-
in þyrfti á 54,5 milljarða íslenskra króna auka-
aðstoð að halda til að fjármagna byggingu
600.000 heimila til viðbótar. | 14
Minntust fórnarlamba jarðskjálftans
Ár liðið frá því yfir 73.000 manns létu lífið í hamförunum ógurlegu í Pakistan
Minningarstund Pakistönsk börn kveikja á
kertum í minningu fórnarlambanna í gær.
Peking. AFP. | Stjórnvöld í Peking segja
heimsókn nýs forsætisráðherra Japans,
Shinzo Abe, til borgarinnar marka tímamót
í samskiptum ríkjanna. Þannig hefur mik-
illar spennu gætt í samskiptum þeirra og
sögðust báðir aðilar vona, að viðræður Abe
og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína,
yrðu til að liðka fyrir samvinnu þeirra á
ýmsum sviðum, en Japan er næststærsta
hagkerfi heims og Kína rísandi stórveldi.
Að sögn fréttaskýrenda er mikilvægi
heimsóknarinnar fyrir Japana undirstrikað
með því, að þetta er í fyrsta sinn sem nýr
forsætisráðherra landsins rýfur þá hefð að
fara í fyrstu heimsókn sína til Washington.
Jafnframt notuðu leiðtogarnir tækifærið
til að lýsa yfir áhyggjum vegna fyrirhug-
aðra kjarnorkutilrauna Norður-Kóreu-
manna. Sögðu þeir í sameiginlegri yfirlýs-
ingu að það yrði allsendis „óviðunandi“ ef
Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorku-
sprengju, líkt og þeir hafa boðað að þeir
muni gera.
Fréttaskýrendur segja að sú staðreynd
að Kínverjar sendi frá sér yfirlýsingu sem
þessa sýni hversu alvarlegum augum þeir
líti framgöngu Norður-Kóreustjórnar.
Reuters
Sögulegt Wen Jiabao (t.v.), forsætisráð-
herra Kína, tók á móti Shinzo Abe.
Sögulegar
viðræður
Lýstu áhyggjum sínum
vegna áforma N-Kóreu
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„ÉG held ég hafi
aldrei fengið
jafn sterk við-
brögð við neinu
sem ég hef gert í
vinnunni. Það er
greinilegt að
þetta brennur á
mörgum,“ sagði
Eva María Jóns-
dóttir dagskrár-
gerðarkona um
viðtal við hana, Þarfir fullorðna
fólksins ráða, sem birtist í Morgun-
blaðinu 1. október sl. Viðbrögðin
hafa borist í sendibréfum, tölvu-
pósti, síma og fólk gefið sig á tal við
Evu Maríu á förnum vegi. Undan-
tekningarlaust hefur verið tekið
undir sjónarmiðin sem Eva María
tjáði í viðtalinu.
„Ég bjóst við að fá einhverjar
skammir fyrir að vera íhaldssöm,
afturhaldssöm og að vinna gegn
jafnrétti kynjanna. Það er fjarri
mér að tala fyrir afturhvarfi til for-
tíðar. Ég er einfaldlega að benda á
að eftir að báðir foreldrar fóru að
vinna utan heimilis hafa börnin sop-
ið seyðið af löngum vinnudegi og
fjarvistum þeirra fullorðnu og það
er ekki bara allt í fína. Ég hef ekki
fengið nein neikvæð viðbrögð, en
grunntónninn er að börnin eigi það
skilið að við setjum þeirra þarfir
fremst í forgangsröðina. Við, þau full-
orðnu, getum bjargað okkur sjálf. En
börnin þurfa á okkur að halda. Fólk
vill að börnin, þarfir þeirra og hagur
séu efst á blaði þegar fengist er við
mál þar sem börn koma við sögu.“
Eva María benti á taka þurfi tillit
til jafnréttismála og umhverfismála
við ýmsar framkvæmdir og skipu-
lagningu. „Nýja tillitssemin ætti að
vera gagnvart börnum.“ Þá þurfi
vinnuveitendur að taka meira tillit til
þarfa barnafólks, en á það skorti.
Aldrei fengið jafn sterk
viðbrögð við neinu
Eva María Jónsdóttir telur að taka þurfi meira tillit til þarfa barnanna
Í HNOTSKURN
»Eva María lýsti þeirriskoðun sinni í viðtali
við Morgunblaðið 1. októ-
ber sl. að íslenskt sam-
félag tæki ekki nóg tillit til
þarfa barna og barnafólks.
» Eva María telur aðhinir fullorðnu þurfi
að taka meira tillit til
barnanna í stað þess að
fljóta með straumnum og
stjórnast af lífsgæðakapp-
hlaupinu.
Eva María
Jónsdóttir
EINBEITINGIN skein úr andliti
Ólivers Kristinssonar, fjögurra
mánaða snáða, þegar hann gerði
æfingar í ungbarnasundi ásamt
kennara sínum í Sundlaug Graf-
arvogs fyrir skömmu.
Samnemendur hans á nám-
skeiðinu létu ekki sitt eftir liggja
og sýndu fimi sína í vatninu, for-
eldrum og öðrum viðstöddum til
ómældrar ánægju.
Ungbarnasund hefur notið vax-
andi vinsælda hér á landi und-
anfarin ár en þar gefst foreldrum
kjörið tækifæri til þess að eiga
skemmtilega samverustund með
barni sínu. Markmið námskeið-
anna er meðal annars að tryggja
vellíðan barna í vatni og stuðla að
eðlilegum hreyfiþroska. Morgunblaðið/RAX
Einbeiting
í ungbarna-
sundi
London. AFP. | Bretum finnst fátt jafn
skemmtilegt og sjá knattspyrnulið sitt
leggja það franska að velli í landsleik,
Frakkar séu jú óþolandi nágrannar, dramb-
samir og alltof meðvitaðir um framlag sitt
til heimsmenningarinnar. Rígurinn á milli
ríkjanna nær langt aftur fyrir frönsku bylt-
inguna, nú þegar franskir rithöfundar bera
nýtilkomið lof á drifkraft íbúa Lundúna.
Það kom því aðstandendum könnunar
franskra vínframleiðenda í opna skjöldu, að
fimmtungur þátttakanda, sem allir voru
breskir, skyldi viðurkenna að þeir hefðu
gjarnan kosið, að þeir hefðu fæðst hinum
megin við Ermarsundið.
Þá sögðust 37 prósent vilja flytja til
Frakklands í ellinni og um þriðjungur þátt-
takenda undir fimmtugu játaði að vilja
fremur búa í Frakklandi. Er talið að rekja
megi þessar niðurstöður m.a. til þess, að
frönskum knattspyrnustjörnum, sem búa
og starfa á Bretlandseyjum, fer sífellt fjölg-
andi.
Vildu vera
Frakkar
♦♦♦