Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÖNNUR tveggja björgunarþyrln-
anna sem Landhelgisgæslan hefur
tekið á leigu kom til landsins á
laugardaginn. Er þyrlan að mörgu
leyti sambærileg stærri þyrlu
Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, þótt
hún sé ekki að öllu leyti löguð að ís-
lenskum aðstæðum.
Þyrlan er af gerðinni Pouma og
er leigð til eins árs frá norska fyrir-
tækinu Air Lift en fram í ræðu
Björns Bjarnasonar við komu þyrl-
unnar að fyrirtækið ræki m.a.
björgunarþyrluþjónustu fyrir
sýslumanninn á Svalbarða. Hefur
flugdeild Landhelgisgæslunnar
verið í nánu samstarfi við fyrir-
tækið um árabil varðandi þjálfun,
skipti á flugmönnum og vara-
hlutum. Munu tveir þyrluflugmenn
frá fyrirtækinu starfa hér á landi í
eitt ár auk flugvirkja en Landhelg-
isgæslan er í óða önn um þessar
mundir að þjálfa upp fleiri starfs-
menn til að sinna verkefnum þyrlu-
björgunarsveitarinnar sem mun
stækka mjög mikið á næstu árum.
Fylla í skarð Varnarliðsins
Leiguþyrla af Dauphin-gerð,
sömu gerðar og minni þyrla Land-
helgisgæslnunnar, er væntanleg
snemma í næsta mánuði. Er gert
ráð fyrir að með fjórar þyrlur geti
flugdeild Landhelgisgæslunnar
fyllilega annað þeim verkefnum
sem hún gerði áður ásamt þyrlu-
björgunarsveit Varnarliðsins sem
nú er farin af landi brott.
Einungis er þó um skammtíma-
lausn að ræða. Stefnt er að því að
TF-LÍF verði í framtíðinni seld og
þrjár stórar og langdrægar björg-
unarþyrlur verði keyptar í staðinn.
Minni þyrla gæslunnar, TF-SIF
verði hins vegar áfram í rekstri.
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrsta leiguþyrlan komin
Fagnaðarefni Björn Bjarnason dómsmálaráðherra heilsar norska þyrlu-
flugmanninum við komuna til landsins síðastliðinn laugardag.
Þyrlan leigð í eitt ár og er af svipaðri tegund og stærri þyrla Gæslunnar
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
UNGUR Íslend-
ingur, að hálfu,
tekur nú þátt í
hernaði Banda-
ríkjanna í Írak.
Thomas Sean
Bartley, sem er
19 ára, hefur nú
verið í Fallujah í
þrjá vikur og.
þegar lent í blóð-
ugum átökum.
Hann vill ekki mikið um það tala,
enda er ekki ætlazt til þess.
Sean er sonur hjónanna Scott og
Ingibjargar Bartley, sem búa í
Mobile í Alabama. Ingibjörg er
Grindvíkingur, dóttir hjónanna
Þórarins Ólafssonar og Guðveigar
Sigurðardóttur.
Nokkur ár eru síðan Sean ákvað
að ganga í herinn og líkar honum
veran þar vel. Í Fallujah er hann
við gæzlu og eftirlit af ýmsu tagi,
en til átaka getur alltaf komið. „Við
erum þrautþjálfaðir til þessa verk-
efnis og vel færir um að bregðast
við flestu eða öllu sem fyrir kann
að koma. Ég verð hér í sjö mánuði
og lít á það sem skyldu mína að
sinna þessu verkefni. Það er hluti
af því að verja umheiminn fyrir
hugsanlegum hryðjuverkum og
koma á friði og góðu stjórnarfari í
landinu,“ segir Sean.
Hann segir að Írak sé afskap-
lega ólíkt Bandaríkjunum, allt önn-
ur menning og því sé þar mörgu að
kynnast og margt að læra.
„Þetta er þegar orðin mikil lífs-
reynsla og ég vonast til að vera
okkar Bandaríkjamanna hér leiði
til þess að Írakar geti lifað betra
lífi á ný. Ég geri ekki ráð fyrir
öðru en koma heim heill á húfi. Ef
ekki hef ég engu að síður lagt mitt
af mörkum í baráttunni fyrir betri
heimi,“ segir Sean Bartley.
Móður Seans, Ingibjörg, segist
vera hreykin af syni sínum, en auð-
vitað hrædd um hann þarna. Það sé
þó bót í máli að hann sé í Fallujah,
þar sem sé mun friðsamlegra en í
Bagdad.
„Hann tók þá ákvörðun upp á
sitt einsdæmi fyrir þremur árum
að ganga í herinn eins og pabbi
hans gerði þegar hann var ungur,
en hann tók þátt í Persaflóastríð-
inu á sínum tíma. Þegar menn
ganga í herinn geta þeir búizt við
að vera sendir hvert sem er og að
lenda í átökum. Ég hef fulla trú á
því að drengurinn spjari sig vel,
þótt hann sé villingur eins og
mamman,“ segir Ingibjörg Þórar-
insdóttir Bartley.
Hefur þegar lent í
blóðugum átökum
Í HNOTSKURN
»Herir Bandaríkjanna ogBretlands gerðu innrás í
Írak 20. mars 2003.
»Síðan þá hafa alls 2.732bandarískir hermenn látið
lífið í átökum við uppreisnar-
menn.
»Yfir 20.000 bandarískirhermenn hafa særst og er
talið að næstu mánuðir gætu
skipt sköpum fyrir fram-
haldið.
» Í september síðastliðnumsærðust 776 bandarískir
hermenn og hafa ekki verið
fleiri frá því átökunum í Fall-
ujah í nóvember 2004.
Thomas Sean
Bartley
Nítján ára Íslendingur að hálfu sem tekur þátt í aðgerðum
Bandaríkjahers í Írak segir herþjónustuna mikla lífsreynslu
BÍLL valt á Reykjanesbraut í fyrri-
nótt við nýtt húsnæði Ikea. Beita
þurfti klippum til að ná ökumann-
inum út úr bílnum en engir farþeg-
ar voru í bílnum. Betur fór þó en á
horfðist en samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var maðurinn fluttur á
slysadeild með minniháttar meiðsl.
Á sunnudagsmorgun ók maður á
þrítugsaldri á steyptan kant við
Breiðhöfða í Reykjavík og var hann
fluttur á slysadeild Landspítala-
Háskólasjúkrahúss. Meiddist hann
lítillega en grunur leikur á því að
hann hafi verið ölvaður. Almennt
var hins vegar lítið að gera hjá lög-
reglunni og útköll tiltölulega fá.
Aftur á móti var nóttin erilsöm í
sjúkraflutningum á höfuðborgar-
svæðinu, farið var í 40 útköll sem
þykir mikið á 12 tíma vakt.
Mikið um sjúkra-
flutninga þrátt
fyrir rólega helgi
ALLHARKALEGUR árekstur varð
á Kringlumýrarbraut á laugardags-
kvöldið þegar ökumaður fólksbíls
sem keyrði norður eftir götunni
varð fyrir jeppabifreið sem var á
leið suður eftir götunni. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni í
Reykjavík hafði ökumaður fólks-
bílsins ekið of hratt og sveigt oft á
milli akreina þegar bíllinn rakst ut-
an í annan bíl með þeim afleiðing-
um að sá fyrrnefndi kastaðist yfir á
hina akbrautina. Lenti hann þar
utan í jeppa, sem var á leið í gagn-
stæða átt, með þeim afleiðingum að
bíllinn valt.
Slapp ökumaður jeppans ómeidd-
ur en klippa þurfti ökumanninn úr
fólksbílnum. Fótbrotnaði hann á
báðum fótum og er mjaðmargrind-
arbrotinn. Loka varð Kringlumýr-
arbraut við gatnamót Miklubrautar
til suðurs í tæplega eina og hálfa
klukkustund vegna slyssins. Varð
töluverð umferðarteppa vegna
þessa.
Harður árekstur á
laugardagskvöld
hefur mál fyrir Hæstarétti enda hafi
hann ekki haldið skrá yfir aldur fé-
laga sinna úr stétt lögmanna.
Árið 1963 öðlaðist Jón réttindi til
þess að flytja mál fyrir Hæstarétti.
Aðspurður segir Jón að ekki hafi
mikið breyst varðandi flutning mála
fyrir Hæstarétti á þeim tíma sem
liðinn er frá því að hann varð hæsta-
réttarlögmaður. „Nei, nei, Hæsti-
réttur er skipaður með lögum og
þetta er okkar æðsti dómstóll. Ég
hef náttúrlega alltaf mætt í Hæsta-
rétti þegar á hefur þurft að halda og
til fallið mál frá Vestmannaeyjum,“
segir Jón en hann hefur rekið eigin
lögmannsstofu í Vestmannaeyjum
frá árinu 1963.
JÓN Hjaltason hæstaréttarlög-
maður er einn af elstu mönnum sem
flutt hafa mál fyrir Hæstarétti Ís-
lands en síðastliðinn fimmtudag
flutti hann mál Þorleifs Hjaltasonar
gegn íslenska ríkinu, 82 ára að
aldri.
Sigurður Líndal, prófessor
emeritus, telur víst að Jón sé meðal
þeirra elstu sem flutt hafa mál fyrir
Hæstarétti. Lárus Fjeldsted kunni
þó að hafa verið eldri en hann hafi
verið rúmlega áttræður þegar hann
flutti mál fyrir Hæstarétti. „Ég þori
þó ekki að fullyrða að hann hafi ver-
ið eldri en Jón,“ segir Sigurður.
Jón Hjaltason segist ekki vita til
þess að hann sé elsti maður sem flutt
Flutti mál fyrir
Hæstarétti 82 ára
Morgunblaðið/Sverrir
Með þeim elstu Jón Hjaltason í Hæstarétti síðastliðinn fimmtudag.