Morgunblaðið - 09.10.2006, Síða 6

Morgunblaðið - 09.10.2006, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Glæsileg gisting **** & frábær staðsetning Ljubljana 27. október frá kr. 49.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Lúxushelgi í Heimsferðir bjóða glæsilega helgarferð til Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu. Bjóðum frábært tilboð á flugi og gistingu á hinu glæsilega hóteli Grand Hotel Union, alveg í miðborg Ljubljana. Spennandi kynnisferðir með farar- stjórum okkar. Gríptu tækifærið og heimsæktu þessa einstöku borg og njóttu frábærs aðbúnaðar. Verð kr.49.990 Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í þrjár nætur í tvíbýli á Grand Hotel Union **** með morgunverði. Munið Mastercard ferðaávísunina Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is ÍBÚÐARHÚS á bænum Búlandi í Arnarneshreppi við Eyjafjörð skemmdist mikið í eldsvoða í gær- morgun. Hjónum, sem gistu í hús- inu, tókst að koma sér út og tilkynna um brunann eftir að reykskynjari fór í gang. Fengu þau væga reyk- eitrun en sluppu ósködduð að öðru leyti. Skömmu fyrir klukkan sjö í gær- morgun barst lögreglu og slökkviliði á Akureyri tilkynning um brunann en bærinn á Búlandi er í um 20 kíló- metra fjarlægð frá Akureyri. Hjón- in, sem eru á miðjum aldri, höfðu þá komið sér út úr húsinu eftir að reyk- skynjari hafði vakið þau. Þar sem eldurinn logaði á þeim stað í húsinu þar sem heimilissíminn var þurfti konan að hlaupa um eins kílómetra leið á næsta bæ til að tilkynna um brunann. Á meðan reyndi maðurinn að slökkva eldinn en varð frá að hverfa vegna reyks en eldurinn breiddist nokkuð hratt út. Hjónin voru gestkomandi í húsinu og voru að passa það fyrir húsráðanda en á bænum hefur farið fram nokkur hundarækt. Lögregla og slökkvilið voru fljót á staðinn og hófst slökkvistarf rúmum tíu mínútum eftir að tilkynning barst frá neyðarlínu. Tankbíll með vatni var með í för en vatn er af skornum skammti á svæðinu. Einnig voru bændur í nágrenninu fengnir til að vera til taks ef meira vatn þyrfti en þess reyndist þó ekki þörf. Húsið illa farið eftir brunann Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á Akureyri barst mikill og þykkur reykur frá húsinu þegar slökkviliðið kom á vettvang og fóru reykkafarar inn í húsið til að stað- setja eldsupptök. Barst eldur í þak og sambyggt útihús og þurfti meðal annars að opna þakið til að ráða nið- urlögum eldsins. Tók slökkvistarfið rúman hálftíma. Undir eins var farið með fólkið á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en þau höfðu fengið væga reykeitrun. Var þeim leyft að fara eftir skoðun og voru komin til síns heima á Akur- eyri upp úr hádegi í gær. Húsið sem brann er tvílyft steinhús og er komið nokkuð til ára sinna. Er það klætt með timbri að innan og brann nokk- ur hluti þess en skemmdir vegna reyks og hita er töluverðar. Er talið að búslóð sé illa farin og nánast ónýt. Ekki er vitað um orsök eldsins. Konan þurfti að hlaupa eftir hjálp á meðan maðurinn reyndi að slökkva eldinn Hús brann á Búlandi við Eyjafjörð Slökkvistarf Lyfta þurfti þaki hússins til að komast að eldinum. Ljósmyndir/Rúnar Þór Pétursson Illa farin Talið er að búslóðin hafi skemmst mikið í brunanum. GEÐLYF gera sitt gagn, en oft þarf fleira að koma til í meðhöndlun geð- raskana, að mati Sylviane Lecoultre Pétursson, yfiriðjuþjálfa á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH). Hún var spurð hvað henni þætti um umræðuna um geðheil- brigðismál í Kastljósi Sjónvarpsins undanfarið þar sem fram hafa komið skiptar skoðanir á gildi lyfjagjafar í meðferð geðraskana. Sylviane sagði að þessi umræða snerist ekki um annaðhvort – eða. Spurningin sé hve mikil og langvinn notkun geðlyfja eigi að vera. Hún tók dæmi af ein- hverjum sem fær astmakast. Það sé ekki nóg að gefa astmalyf, heldur þurfi einnig að skoða umhverfi sjúklingsins. Býr hann við ryk- mengun, reykir hann eða er með dýr sem ýta undir astmaeinkenni? Sama eigi við um þá sem þjást af geðröskunum, umhverfi þeirra og aðstæður verði einnig að skoða og lagfæra auk þess að gefa þeim lyf ef nauðsynlegt er. Sylviane segist ekki vera ein um að standa stuggur af því hvað lyfja- fyrirtækin eru stór og stjórna mörg- um rannsóknum. Hún tekur fram að hún sé ekki með því að segja að læknar þiggi mútur, en hver trúi því að lyf séu upphaf og endir alls? Stundum þykir Sylviane að það sé farið of snemma að gefa lyf. Ef til vill þyrfti að verja meiri tíma til að skoða fólk á móttökudeild, sérstaklega ungt fólk. „Stundum finnst mér greiningin ganga hratt fyrir sig, við gefum okkur ekki tíma til að skoða hvernig fólkið er í raun.“ Sylviane telur að hér á landi skorti fleiri úrræði. Auk göngudeildar geð- sviðs LSH nefnir hún Reykjalund, þar sem er langur biðlisti og Klepp sem sinnir langtímaendurhæfingu, athvörf á borð við Vin og mikilvægt starf Fjölmenntar. Sylviane telur sárlega skorta starfsemi sem tengir endurhæfingarstarfið við vinnu- markaðinn og skólakerfið. „Við tökum við fólki eftir að það hefur lokið fyrsta skrefinu í meðferð- inni, sem gjarnan er lyfjagjöf á sjúkrahúsi. Þar sem okkar starfsemi endar tekur við gríðarstórt bil yfir að vinnumarkaði eða skóla og þar er þörf á fleiri úrræðum.“ Þörf á fleiri úrræðum en geðlyfjum Sylviane Lecoultre Pétursson FRAMSÓKNARMENN í Norð- austurkjördæmi halda tvöfalt þing í janúar 2007 til að velja frambjóðend- ur í fyrstu 10 sæti á framboðslista til komandi alþingiskosninga. Þetta var ákveðið á kjör- dæmisþingi fram- sóknarmanna sem haldið var á Djúpavogi 7. – 8. október síðastlið- inn. Dagný Jóns- dóttir alþingis- maður tilkynnti á kjördæmis- þinginu að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Einnig ætlar Jón Kristjánsson al- þingismaður að láta af þingmennsku. Valgerður Sverrisdóttir utanríkis- ráðherra og Birkir Jón Jónsson al- þingismaður hafa þegar tilkynnt að þau gefi kost á sér og á kjördæm- isþinginu tilkynnti Sigfús Karlsson á Akureyri að hann gæfi einnig kost á sér. Framboðsfrestur er til 1. desem- ber, að sögn Péturs Snæbjörnsson- ar, formanns kjördæmisráðsins. Í stjórnmálaályktun þingsins kemur m.a. fram að stefnt skuli að því að lágmarkslaun verði undan- þegin skatti og að fyrsta skrefið í því sé að skattleysismörk verði komin í að lágmarki 100 þúsund krónur 1. janúar 2008. Valið á lista í janúar Dagný Jónsdóttir Kjördæmisþing framsóknarmanna í NA-kjördæmi SKAÐABÆTUR vegna ærumeið- inga verða reiknaðar út frá fjárhag tjónvalds ef frumvarp sem nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hyggjast leggja fram á þessu þingi verður samþykkt sem lög. Einnig myndi réttarvernd almennra hegningarlaga vegna æru- meiðinga ná til fjöldskyldna þeirra sem verða fyrir slíkri háttsemi. Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, er höf- undur frumvarpsins og fyrsti flutn- ingsmaður þess. Ásamt honum eru 13 þingmenn Sjálfstæðisflokksins og tveir þingmenn Framsóknarflokks- ins meðflutningsmenn. Sigurður Kári segir að tilefni laganna sé að ýmsir fjölmiðlar hafi upp á síðkastið gengið lengra og lengra í umfjöllun um einkamálefni fólks. „Ég vil ekki banna þeim það. Ég vil hins vegar tryggja að fari þeir yfir strikið og brjóti gegn friðhelgi einkalífsins þá fái þeir makleg málagjöld.“ Í frum- varpinu felst m.a. að bætt verði við ákvæði 26. gr. skaðabótalaga um að við ákvörðun bóta vegna meingerðar gegn æru eða persónu annars manns skuli lagt til grundvallar „að bóta- fjárhæðir hafi verulega fjárhagslega þýðingu fyrir þann sem dæmdur er til greiðslu þeirra,“ eins og segir í greinargerð. Sigurður Kári segir að með breytingunni verði forvarnar- gildi laganna gegn brotum gegn æru fólks aukið og í raun teknar upp svo- kallaðar sektarbætur eins og þekkist í meiðyrðalöggjöf í Bretlandi. Sam- kvæmt frumvarpinu á einnig að taka sérstakt tillit til þess ef brot gegn æru er framið í ágóðaskyni. Einnig miðar frumvarpið að því að víkka út réttarverndina til fleiri aðila en bara þess sem ærumeiðingin sjálf beinist að. Verði það að lögum munu aðstandendur þess sem verður fyrir ærumeiðingum geta krafist bóta ef þeim tekst að sýna fram á að umfjöll- un hafi komið mjög illa við þá. Sigurður Kári er vongóður um að frumvarpið verði að lögum á nýhöfnu þingi. Hann bendir á að bætur vegna meiðyrða séu afar lágar og yfirleitt borgi það sig ekki fyrir fólk að sækja rétt sinn fyrir dómstólum. Bætur vegna ærumeiðinga miðist við fjárhag tjónvalds Í HNOTSKURN »Bætur í málum vegnaærumeiðinga eru yfirleitt á bilinu 50 til 200 þúsund krónur. »Tilefni frumvarpsins erumfjöllun ýmissa fjölmiðla á Íslandi um einkamálefni fólks. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is BJÖRGUNARSVEITIR Slysa- varnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út um miðjan dag í gær en veita þurfti gangnamanni aðstoð sem lentur var í sjálfheldu í bæjar- fjallinu fyrir ofan Melrakkadal. Í tilkynningu segir að aðstæður á staðnum hafi verið nokkuð erfiðar, fjallið bratt og mikil lausamöl. Komu björgunarsveitarmenn sér fyrir í fjallinu ofan við gangna- manninn, sigu niður til hans og svo var sigið með hann á jafnsléttu. Var farið með manninn til byggða en hann mun fljótlega hafa haldið aft- ur á fjöll í leit að fé. Bjargað úr sjálfheldu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.